Morgunblaðið - 15.07.2011, Síða 40

Morgunblaðið - 15.07.2011, Síða 40
40 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 2011 STÆRSTA MYND ÁRSINS! HARRY POTTER 7 - PART 2 3D kl. 2:20 - 5:10 - 6:30 - 8 - 9:15 - 10:45 - 11:10 12 TRANSFORMERS 3D kl. 2:20 - 4:25 - 8 - 10:30 12 SUPER 8 kl. 8 12 MR. POPPER´S PENGUINS kl. 2:20 - 5:45 L KUNG FU PANDA 2 3D ísl. tal kl. 2:20 - 4:25 L / ÁLFABAKKA / EGILSHÖLL HARRY POTTER 7 - PART 2 3D kl. 2:40 - 5:20 - 8 - 10:40 12 SUPER 8 kl. 10:20 12 HARRY POTTER 7 - PART 2 kl. 2:40 - 5:20 - 8 - 10:40 12 THE HANGOVER 2 kl. 8 12 HARRY POTTER 7 - PART 2 kl. 2:40 - 5:20 - 8 - 10:40 VIP KUNG FU PANDA 2 3D m/ísl. tali kl. 2 - 4 L TRANSFORMERS3 3D kl. 6 - 9:10 12 KUNG FU PANDA 2 m/ísl. tali kl. 2 - 4 - 6 L TRANSFORMERS 3 kl. 8 - 11:10 12 PIRATES OF THE CARIBBEAN kl. 2:20 - 5:10 10 á allar sýningar merktar með grænu1.000 kr.SPARBÍÓ 3D SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI BARÁTTAN UM HOGWARTS ER HAFIN SJÁÐU LOKAKAFLANN Í 3D HHHHH - T.M - THE HOLLYWOOD REPORTER HHHHH - L.S - ENTERTAINMENT WEEKLY HHHHH - R.C - TIME HHHH - H.O - EMPIRE HHHH - J.T - VARIETY GAGNRÝNENDUR ERU ALLIR Á EINU MÁLI. STÓRKOSTLEGUR ENDIR Á STÆRSTU KVIKMYNDASERÍU ALLRA TÍMA. HHHH "MÖGNUÐ ENDALOK" - KA Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is Bjartur Guðjónsson, Kenya Emil, Sandra Þórðardóttir og Inga Þyri Þórðardóttir mynda músíkalska fereykið 3 Raddir & Beatur. Bjart- ur, eða Beatur, er „bítboxari“ eða taktkjaftur á góðri íslensku, og syngur hann bassalínur og taktinn á meðan stúlkurnar syngja textana. Þau eru stödd hér á landi um þessar mundir til þess að taka upp auglýsingu fyrir bílaumboðið Peugeot. Starfsmenn fyrirtækisins uppgötvuðu þau á veraldarvefnum og voru ólm í að fá þau til liðs við sig. „Þeir spottuðu okkur á YouTube og leist svo vel á að þeir höfðu samband við okkur,“ segir Inga Þyri Þórðardóttir, ein rödd- in. Þetta er kjörið tækifæri fyrir sönghópinn til að koma sér enn betur á framfæri. Auglýsingin verður síðan sýnd á bílasýningu í Frankfurt í september þar sem þau munu einnig troða upp. Sumarsmellur um Austurvöll Kvartettinn gaf út í vikunni sumarsmell um Austurvöll. Lagið er sérstaklega tileinkað sól- böðum og góðum minningum af Austurvelli þegar fjöldi Íslendinga leggur leið sína þangað og rúllar sér saman í grasinu. Von er á nýrri plötu frá hópnum en síðast gáfu þau út jólaplötu árið 2009. Upptökur hefj- ast í ágúst en vinna að henni er nú þegar hafin. Inga Þyri segir plötuna hafa verið barn síns tíma og þau hafi tekið miklum breytingum síðan. Því hafi verið ákveðið að gefa út vandaðri og flottari plötu og verður hún gefin út fyrir Evrópumarkað. „Þetta verða að einhverju leyti sömu lögin en við erum búin að fríkka þau mikið upp.“ Sjálfsbjargarviðleitni 3 Raddir & Beatur búa öll í Noregi. Fyrst þegar þau fluttu þangað voru þau nánast ein í heiminum. Þau voru blönk og höfðu ekki efni á strætó enda borðuðu þau túnfisk úr dós nánast í öll mál fyrstu þrjá mánuðina. Ókunn um- hverfinu klæddu þau sig í búninga og héldu gangandi af stað á vit ævintýranna. „Við þekktum engan og vissum ekki neitt þegar við komum þarna út. Við prentuðum bara út lista á viðburðaskrifstofum þarna í Osló. Svo fórum við bara í göngutúr og bönkuðum upp á hjá öll- um skrifstofunum og sungu fyrir þau,“ segir Inga Þyrí og bætir við að margir hafi hrein- lega misst andlitið. „Við fengum mjög góð við- brögð og fólk man eftir okkur út af þessu. Það gerir þetta enginn úti, þar senda þeir bara tölvupósta. En það voru margir hissa.“ Gengu ófeimin á milli húsa og sungu  3 Raddir & Beatur gefa út nýja jólaplötu  Syngja og sjást í auglýsingu fyrir Peugeot-bílaumboð Kvartett Kenya, Sandra og Inga Þyrí syngja ljúfa tóna fyrir gesti á meðan Bjartur taktkjaftar undirspil. 3 Raddir & Beatur hafa vakið mikla lukku enda frumlegur sönghópur hér á ferð.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.