Morgunblaðið - 21.07.2011, Side 4

Morgunblaðið - 21.07.2011, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2011 Rekstrartap Akraneskaup- staðar fyrir fyrstu fimm mán- uði ársins nam 153,6 milljónum króna. Í fjárhags- áætlun fyrir sama tímabil var hins vegar gert ráð fyrir sex milljóna króna tapi. Frá þessu var greint á síðasta fundi bæjarráðs Akraness. Í gögnum sem lögð voru fram á fundinum kemur fram að aukið tap megi rekja til 87,8 milljóna króna bókfærðum gengismun sem ekki hafi verið gert ráð fyrir. Á fundinum var samþykkt tillaga um aukin rekstrarútgjöld bæjar- sjóðs upp á rúmlega sextíu milljónir króna. Akranes tapaði 153,6 milljónum á fimm mánuðum Tap Gerðu ekki ráð fyrir gengismun. Kristel Finnbogadóttir kristel@mbl.is „Það stefnir allt í að það verði ekki fyrr en seint í ágúst sem berja er að vænta, víðast hvar,“ segir Sveinn Rúnar Hauksson, læknir og berjasérfræðingur. Hann segir berjasprettu vera tvísýna vegna mikils kulda nú í vor. Á móti kem- ur að skordýr, til dæmis birkifeti, hafa látið minna á sér bera vegna kuldans og skemmdir á nýsprottnu lyngi gætu því orðið minni en áður. Vegna hlýinda síðustu ár hefur fólk getað farið í berjamó í byrjun ágúst en að sögn Sveins mun berjatínsla í ár að öllum líkindum hefjast mánuði seinna en und- anfarin ár. „Þetta er kannski gamli berjatínslutíminn sem ég man eftir sem barn,“ segir Sveinn og vísar til síðustu daga ágústmánaðar og fyrstu daga í september. Spretta veltur á september Sveinn segir að víða sé falleg spretta af sætukoppum og að gott útlit sé fyrir bláberjatínslu. Kræki- berjalyng virðist hins vegar styttra á veg komið. Uppskeran veltur þó á veðri næstu vikur og fram í sept- ember. „Vanalega er sagt að sam- hengi megi sjá á milli meðalhita í maí og berjasprettu. Núna var maí þó óvenju kaldur. Kannski má segja að september muni skera úr um berjasprettuna í ár en það fer eftir því hve lengi hann hangir frostlaus.“ Sveinn segir berjatínslu misjafna eftir landshlutum. Í ár megi vænta að hefðbundin berjalönd fyrir norð- an og austan bjóði ekki upp á mikla sprettu vegna kuldatíðar. „Í raun er ekki hægt að ganga að neinu vísu varðandi berin en þetta er spennandi í ár. Mín kenning er hins vegar sú að það sé aldrei berjalaust. Þau eru alltaf einhvers staðar,“ segir Sveinn. Hann hvetur fólk til að gefast ekki upp fyrirfram heldur fara í berjamó. Berjamór lætur bíða eftir sér  Berjatínslan hefst mánuði seinna en síðustu ár  Berjaspretta er tvísýn vegna kulda í vor og í sumar  Lítur betur út fyrir bláber en krækiber Morgunblaðið/ÞÖK Hjalti Geir Erlendsson hjaltigeir@mbl.is „Það er allt orðið afskaplega þurrt og gróðurinn er bara alveg að skrælna. Garðyrkjumenn hérna keyra bókstaflega vatnið í garðana alveg eins og þeir geta og hafa ekki undan,“ segir Jón Viðar Finnsson, bóndi á Dalbæ 1 í Hrunamanna- hreppi. Sumarið hefur víða um land einkennst af þurrkum. Ástandið er verst á Norðurlandi og á Vest- fjörðum þar sem nánast ekkert hef- ur rignt í sumar. Þá hefur víða verið þurrt sunnan- og suðvestanlands, t.d. í Hreppunum, í Hjarðarlandi í Biskupstungum og í kringum Eyrar- bakka. Óvenjulegt ástand Trausti Jónsson, sérfræðingur í veðurfarsrannsóknum hjá Veður- stofu Íslands, segir að ástandið sé farið að vera heldur óvenjulegt. Víða hafi nánast ekkert rignt, til dæmis í Skagafirði þar sem úrkoma í júlí hafi aðeins mælst 0,3 millimetrar. Trausti segir ástæðuna vera þrálát- ar þurrar norðanáttir. „Norðanáttir eru af tvennum toga, þurrar eða blautar, þær eru þurrar þegar há- þrýstingur er frekar hár,“ segir Trausti. Úrkoma sé þó í meðallagi á Suðaustur- og Austurlandi. Þá hafi rignt nokkuð í Vestmannaeyjum og í kringum Kirkjubæjarklaustur. Þurrkarnir hafa víða haft áhrif á grassprettu. Ekki bætir úr skák að sumarið hefur verið óvenjulega kalt. Þó ætti að létta yfir bændum því Veðurstofan spáir regni um næstum allt land í byrjun næstu viku. Jón Viðar gaf þó lítið fyrir spár veðurfræðinga. „Það er ansi mikil vöntun á regni hérna. Ég segi nú alveg hiklaust að það er búið að spá regni hér á næstu þremur dögum alveg síðan í maí en aldrei orðið neitt af því. Ég sé alveg fram á að þetta geti versnað en hér er þó alls ekkert neyðarástand. Ef það fer að rigna verðum við fljótir að gleyma öllum vandamálum.“ Lítið rignt á höfuðborgarsvæð- inu í á þriðja mánuð Reykvíkingar hafa ekki farið var- hluta af úrkomuleysi sumarsins þó svo að hæg grasspretta komi sér ekki eins illa fyrir borgarbúa. Í Reykjavík hefur verið frekar þurrt í á þriðja mánuð fyrir utan stöku skúrir. Trausti Jónsson segir úr- komuna hafa mælst hátt í 20 milli- metra í júlí og það sé 14 mm undir meðallagi. „Undanfarin ár hafa haft tilhneigingu til að vera svona en þetta er fjórða árið í röð. Það skiptir þó oftast um þegar líður á sumarið, ýmist í ágúst eða september, og þá byrjar að rigna,“ segir Trausti. Það hafi þó ekki verið raunin í fyrra en þá hafi þurrkatíðin haldið áfram í Reykjavík fram í febrúar. „Gróðurinn er bara alveg að skrælna“  Víða þurrt í sumar  Úrkomu má þó vænta innan tíðar Grænmetisbændur hjá SH grænmeti á Grafarbakka við Flúðir hafa í sumar þurft að grípa til þess ráðs að nota haugsugu til að vökva gróðurinn. Ragnhildur Þórarins- dóttir, sem rekur SH grænmeti, segir þurrkana með ólíkindum og töluvert sé farið að skemmast. SH græn- meti ræktar aðallega gulrætur, kínakál og hvítkál sem þolir illa mikla þurrka. Þá hafi sprettan farið óvenju seint af stað í ár sökum tíðs næturfrosts í júní. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Þurrkar farnir að skemma uppskeruna Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Lítri af bensíni í sjálfsafgreiðslu kostar 244,80 kr. hjá Skeljungi og hefur aldrei verið hærra, en lítrinn kostaði um 208 kr. um sl. áramót. N1 lækkaði verðið um þrjár krónur í fyrradag og hækkaði það svo aft- ur um sömu tölu í 242.90 kr. í fyrrakvöld. Magnús Ásgeirsson, inn- kaupastjóri hjá N1, segir að heims- markaðsverðið hafi lækkað á mánudag en hækkað aftur á þriðjudag. Þar með hafi allar bjart- sýnisspár gengið til baka og N1 því hækkað verðið á ný en dregið það fram á kvöld. Að sögn Magnúsar eru tíðar verðbreytingar samspil margra þátta. Í fyrradag hafi komið fram tölur hjá fjármálamörkuðum á Wall Street um meiri bjartsýni í efnahagsmálum í Bandaríkjunum en þær hafi ekki verið á rökum reistar. Titringur upp og niður sé á fjármálamörkuðum í Evrópu vegna óvissunnar um hvar Grikkland, Ítalía og Spánn enda. Seinni part- inn í fyrradag hafi líka verið til- kynnt að Orkumálastofnun Banda- ríkjanna myndi birta tölur í gær um minni birgðir vestra. „Það má ekki anda á mörkuðunum,“ segir Magnús um verðbreytingarnar. Ekkert virðist vera eðlilegt þeg- ar bensínverð er annars vegar, en Magnús segir að heimsmark- aðsverðið lækki gjarnan um miðjan júlí og fram á haustið. Það hafi hins vegar ekki gengið eftir núna. Hann segist samt vona að það hækki ekki meira, en hafa beri í huga að gengi krónunnar hafi líka áhrif, staðan í Líbíu sem og á hrá- vörumörkuðum. Verð á bensíni er í sögulegu hámarki Um 208 kr. um áramót » Bensínlítrinn hækkaði um 3,50 hjá Skeljungi 10. janúar sl. og fór í 213,60 kr. áður hafði lítrinn hækkað um 2 kr. um áramótin. » N1 hækkaði lítrann um 5 kr. 24. janúar og fór hann í 217,90 kr. Þá sagði Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins, í fyrirspurn- artíma á Alþingi að lítraverðið stefndi í „hreina sturlun“. Met Bensínverðið aldrei hærra. Alltaf ódýrast á netinu Þú færð alltaf hagstæðara verð á flugfelag.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.