Morgunblaðið - 21.07.2011, Blaðsíða 8
Steinþór Guðbjartsson
Kristján H. Johannessen
Waldorfskólinn Sólstafir mun hefja starfsemi í fær-
anlegum skólastofum við Sóltún 6 í Reykjavík síð-
sumars. Við þetta eru íbúar ekki á eitt sáttir en hús-
félög íbúðarhúsa í nágrenni við skólastofurnar hafa
kært byggingarleyfið.
Hafa húsfélögin sent úrskurðarnefnd skipulags-
og byggingarmála borgarinnar kæru þar sem kraf-
ist er að framkvæmdirnar verði stöðvaðar.
Segja leyfið ekki í samræmi við skipulag
Segir í bréfi til úrskurðarnefndar að hinn 6. júlí
hafi verið gefið út byggingarleyfi til þess að reisa
færanlegar skólastofur á lóðinni. Íbúar í nágrenn-
inu segja að ekki verður séð að um bráðabirgðaleyfi
sé að ræða. Þeir segja leyfið ekki í samræmi við
staðfest skipulag og benda á að engin grennd-
arkynning hafi farið fram vegna framkvæmdanna.
Sólstafir voru í Hraunbergi í Breiðholti í um ára-
tug. Skólinn er einkaskóli á grunnskólastigi og var
byrjað að flytja fyrstu stofurnar á svæðið fyrr í
þessari viku.
Könnun um staðsetningu
Snorri Traustason, kennari við skólann, segir að
fyrir um fimm árum hafi verið gerð könnun á meðal
foreldra barna skólans um óskastaðsetningu skól-
ans í framtíðinni. Niðurstaðan hafi verið miðsvæðis
og Sóltúnið hafi orðið fyrir valinu með tilliti til þjón-
ustu við alla höfuðborgina. Þetta svæði hafi verið
best tengt með almenningssamgöngum út í öll
hverfi borgarinnar og auk þess nálægt Waldorf-
leikskólunum við Grundarstíg og Mýrargötu.
Fékk lóðina 2006
Skólinn fékk úthlutaða lóð við Sóltún 6 árið 2006
og samkvæmt skipulagi er gert ráð fyrir að skóla-
húsnæði verði byggt á lóðinni. Um 50 nemendur frá
1. upp í 10. bekk eru í skólanum. Snorri segir að til
að byrja með verði fimm færanlegar kennslustofur
á lóðinni. Framtíðarsýnin sé að opna þar leikskóla
og hefja byggingaframkvæmdir í framtíðinni.
Skólahúsnæði hafi verið hannað en allar áætlanir
hafi breyst við fall fjármálakerfisins og ekki liggi
fyrir hvenær framkvæmdir hefjist. „Það er ekki
auðvelt að fara af stað með slík verkefni.“
Grenndarkynning óþörf
Magnús Sædal Svavarsson, byggingarfulltrúi í
Reykjavík, segir að samþykkt hafi verið að á reit
væntanlegrar skólabyggingar mættu vera fær-
anlegar skólastofur fyrir leik- og grunnskóla til
bráðabirgða.
Ekki var um grenndarkynningu að ræða vegna
færanlegu skólastofanna. Magnús segir að sam-
kvæmt skipulagi eigi að reisa þarna skóla og þar
sem skólastofurnar séu innan byggingarreitsins
þurfi enga grenndarkynningu. „Grenndarkynning
fer aðeins fram þegar deiliskipulag liggur ekki fyrir
og um minni háttar frávik frá byggðarmynstri er að
ræða,“ segir hann.
Íbúar ósáttir við færanlegar
kennslustofur í Sóltúni
Waldorfskóli fyrir 50 nemendur opnaður síðsumars Byggja skólahús síðar
Segja leyfið ekki í samræmi við skipulag Skólastofur innan byggingarreits
Morgunblaðið/Golli
Deilur Íbúar benda á að ekki hafi farið fram grenndarkynning en byggingarfulltrúi segir að þess hafi ekki þurft. Skólastofurnar séu innan byggingarreits.
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2011
Íslendingar þekkja vel til EmmuBonino eftir að hún var fram-
kvæmdastjóri sjávarútvegsmála
ESB fyrir hálfum öðrum áratug.
Þá benti hún Ís-lendingum á að
þeir fengju ekki að
ráða eigin fiskveiði-
lögsögu ef þeir
gengju í ESB. Þetta
hafa sumir átt erfitt
með að meðtaka þrátt fyrir að
æðstu embættismenn sambandsins
hafi ítrekað þessa stefnu margoft.
Í gær birti Morgunblaðið greinsem Bonino, sem nú er varafor-
seti efri deildar ítalska þingsins,
ritaði við annan mann. Í greininni
kemur fram ekki síður mikilvæg
ábending til Íslendinga en sú um
fiskveiðimálin.
Bonino fjallar um stöðu evr-unnar og ESB og bendir á að
þar sem „samstarf fullvalda ríkja
hefur augljóslega brugðist eru nú
aðeins tveir möguleikar eftir“.
Annar möguleikinn sé að evru-ríkin „verði áfram fullvalda og
endurheimti völd sín á sviði pen-
ingamála, sem felur ekki aðeins í
sér dauða evrunnar, heldur myndi
það stefna innri markaðnum og
jafnvel tilvist Evrópusambandsins í
hættu“.
Hinn kosturinn, segir Bonino, erað „ríkin gangi lengra í því að
afsala sér fullveldisrétti til Evrópu-
sambandsins“.
Hún nefnir einnig að þetta val séað verða öllum ljóst. En þá
horfir hún að vísu framhjá rík-
isstjórn Íslands þar sem enginn hef-
ur fylgst með erlendum fréttum ár-
um saman.
Emma Bonino
Fullveldisafsal til
bjargar evrunni
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 20.7., kl. 18.00
Reykjavík 13 léttskýjað
Bolungarvík 13 léttskýjað
Akureyri 11 skýjað
Kirkjubæjarkl. 14 skýjað
Vestmannaeyjar 12 léttskýjað
Nuuk 8 léttskýjað
Þórshöfn 11 skýjað
Ósló 18 léttskýjað
Kaupmannahöfn 21 heiðskírt
Stokkhólmur 22 heiðskírt
Helsinki 22 heiðskírt
Lúxemborg 20 skýjað
Brussel 16 léttskýjað
Dublin 15 skýjað
Glasgow 16 skýjað
London 17 skúrir
París 17 skýjað
Amsterdam 18 léttskýjað
Hamborg 22 heiðskírt
Berlín 22 skýjað
Vín 20 skýjað
Moskva 27 heiðskírt
Algarve 27 heiðskírt
Madríd 32 heiðskírt
Barcelona 22 léttskýjað
Mallorca 27 léttskýjað
Róm 26 léttskýjað
Aþena 32 heiðskírt
Winnipeg 26 alskýjað
Montreal 27 léttskýjað
New York 30 heiðskírt
Chicago 33 skýjað
Orlando 31 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
21. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:59 23:10
ÍSAFJÖRÐUR 3:33 23:46
SIGLUFJÖRÐUR 3:14 23:31
DJÚPIVOGUR 3:22 22:47