Morgunblaðið - 21.07.2011, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 21.07.2011, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2011 Reuters Á í vök að verjast Andy Hayman, fv. aðstoðarlögreglustjóri í Lundúnum, gerir grein fyrir máli sínu í yfirheyrslu hjá breska þinginu 12. júlí sl. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Andy Hayman, fyrrverandi aðstoð- arlögreglustjóri í Lundúnum, er bor- inn þungum sökum í nýrri skýrslu breska þingsins um hleranahneyksl- ið. Er hann m.a. sakaður um að hafa vísvitandi leitt þingmannanefnd á breska þinginu af leið þegar hann var spurður út í tengiliði sína hjá News International, Bretlandsarmi fjölmiðlaveldis Ruperts Murdoch. Komast skýrsluhöfundar svo að orði að þótt ekki sé afdráttarlaust hægt að saka Hayman um ósannindi sé „erfitt að forðast grun um að hann hafi vísvitandi verið loðinn í svörum til að afvegaleiða“ þingið. Einn af hornsteinunum Niðurstaða þingmannanefndar- innar er álitshnekkir fyrir Scotland Yard, eina af lykilstofnunum í bresku samfélagi, en það var einmitt Hayman sem fór fyrir rannsókn hennar á meintum innbrotum í síma ættingja fórnarlamba hryðjuverka- árásanna í Lundúnum árið 2005. Að sögn breska dagblaðsins Daily Telegraph kemur fram í skýrslunni að nú sé talið að brotist hafi verið inn í síma hjá allt að 12.800 einstakling- um til að afla upplýsinga fyrir götu- blaðið News of the World, sem er í eigu News International, eða ríflega þrefalt fleiri en talið var til þessa. Má í þessu samhengi rifja upp að í september sl. fjallaði New York Times ítarlega um hleranamálið og gaf Hayman þá ekki kost á viðtali. Kemur fram í grein New York Times að Hayman hafi gerst dálka- höfundur hjá The Times eftir að hann lauk störfum hjá lögreglunni. Í þeim dálkum hafi Hayman m.a. hald- ið uppi vörnum fyrir rannsókn lög- reglunnar á hlerununum og látið að því liggja að aðeins hefði verið um fá- ein fórnarlömb að ræða. En The Times er í eigu News International. Scotland Yard fær á baukinn í skýrslunni og er sögð bera ábyrgð á „röð mistaka“ við rannsókn á hler- unum News of the World. Forsagan er í stuttu máli sú að í árslok 2005 tóku að vakna grunsemdir í bresku konungsfjölskyldunni um að einhver hefði aðgang að símtækjum starfs- manna krúnunnar. Persónulegar upplýsingar sem ekki áttu að berast út fyrir innsta hring rötuðu þannig í fréttir News of the World og þótti einsýnt að ekki væri allt með felldu. Nefnd á vegum breska þingsins rannsakaði tvívegis hleranir á sím- um krúnunnar og hafði New York Times eftir John Whittingdale, for- manni nefndarinnar, að Scotland Yard hafi ekki sýnt áhuga á að rann- saka málið umfram þá þræði sem lágu til Clives Goodman, blaðamanns News of the World, og einkaspæj- arans Glenns Mulcaire, sem Good- man var í samfloti með. Þá hefur New York Times eftir aðilum sem komu að rannsókninni að Scotland Yard hafi verið tregt til að rannsaka málið frekar vegna tengsla við News of the World. Sjálfur reyndi Good- man að fela slóðina með því að vísa til Mulcaires sem „Alexanders“ í kvitt- unum fyrir aðkeypta þjónustu. Fóru þeir félagar í steininn en kaflaskil urðu í málinu í sumar þegar í ljós kom að hleranirnar voru miklu um- fangsmeiri en álitið var í fyrstu. Þrettán þúsund fórnarlömb? Ljóst er að langur vegur er frá því að öll kurl séu komin til grafar og segir á vef Daily Telegraph að í skýrslunni sé lýst yfir áhyggjum af því að aðeins hafi verið haft samband við 170 möguleg fórnarlömb hlerana og að það geti tekið allt að áratug upplýsa þau öll, hátt í 13.000 manns ef rétt reynist, um brotin. Kemur ekki fram hvers vegna talið er að þessi vinna sé svo tímafrek. Loks segir í skýrslunni að „nánast ógerningur sé að komast hjá þeirri niðurstöðu“ að News International hafi reynt að „hindra rannsókn á glæpsamlegu athæfi“. Eru fulltrúar lögreglunnar um leið gagnrýndir fyrir að nota seinagang fjölmiðla- veldisins sem afsökun fyrir því að rannsókninni miðaði hægt. „Röð mistaka“ hjá Scotland Yard  Flaggskip löggæslu í Bretlandi átalið í nýrri skýrslu þingmanna um hleranir News of the World Baldur Arnarson baldura@mbl.is Stóra spurningin í breskum stjórn- málum er þessi: Hvaða áhrif mun hleranahneykslið hafa á ímynd Dav- ids Cameron forsætisráðherra og feril hans til langframa? Of snemmt er að skera úr um hvaða áhrif tilsvör Camerons í fyrir- spurnartíma í breska þinginu í gær munu hafa í þessa veru. Eins og við mátti búast snerist málsvörn Camerons öðrum þræði um þá ákvörðun hans að fela Andy Coulson að fara fyrir samskiptum sínum og forsætisráðuneytisins við fjölmiðla og almenning, í kjölfar þess að sá síðarnefndi lét af störfum sem ritstjóri götu- blaðsins News of the World vegna hlerana- hneykslisins. Cameron reyndi að skilja milli sín og Coulsons með þeim orðum að ef í ljós kæmi að ritstjórinn fyrrv. hefði sagt honum ósatt um hler- anir News of the World myndi það hafa „alvarlegar afleiðingar“ fyrir fréttahaukinn. Spurning um heiðarleika Í kjarna sínum snýst málið um hvort Cameron sé ærlegur maður. Fól hann óvönduðum manni að stjórna samskiptum sínum við al- menning? Vissi Cameron hvað blaða- menn Coulsons höfðu á samvisk- unni? Cameron freistaðist til að svara slíkum spurningum með því að lýsa því afdráttarlaust yfir að hann hefði ekki ráðið Coulson til starfans ef þær upplýsingar sem nú hafa komið fram hefðu legið fyrir árið 2007, árið sem Coulson fór af launa- skrá Murdochs og gerðist áhrifa- og trúnaðarmaður í Íhaldsflokknum. Gærdagurinn var án efa sá erfið- asti fyrir Cameron síðan hann tók við embætti forsætisráðherra í maí í fyrra. Ed Miliband, leiðtogi Verka- mannaflokksins í stjórnarandstöðu, skynjaði að Cameron stóð höllum fæti og vændi hann um að hafa sýnt „stórkostlegan dómgreindarbrest“ með samstarfinu við Coulson. Tengslin orðin að myllusteini Hleranahneyksli News of the World er vatn á myllu þeirra sem haldið hafa því fram að áhrif Mur- dochs í breskum stjórnmálum séu alltof mikil. Slíkum sjónarmiðum var haldið á lofti í umræðum um hvort Murdoch ætti að fá að eignast ráð- andi hlut í sjónvarpsstöðinni BSkyB. Komið hefur fram að Cameron bauð Murdoch til tedrykkju eftir að hafa tekið við völdunum síðasta sumar. Það var m.a. af þessu tilefni sem þingmenn stjórnarandstöðunnar spurðu Cameron hvort þeir Murdoch hefðu rætt fyrirhuguð kaup sem News Corp, móðurfélag News Int- ernational í Bretlandi, féll frá vegna uppljóstrana um hleranir News of the World. Svaraði Cameron þá m.a. svo: „Ég átti aldrei nein óviðeigandi samtöl.“ Til að bæta gráu ofan á svart fyrir leiðtoga Íhaldsflokksins voru í gær birtir tölvupóstar úr forsætisráðu- neytinu sem þykja sýna svo ekki verði um villst að skrifstofustjóri hans, Ed Llewellyn, hafi komið í veg fyrir að háttsettir lögreglumenn upplýstu Cameron um rannsókn á hlerunum News of the World. Yvette Cooper, innanríkisráð- herra í skuggaráðuneyti þingsins, vék að þessu og sagði Llewellyn tví- vegis hafa komið í veg fyrir að Came- ron fengi þessar upplýsingar. Spurði hún svo hvort það hefði verið gert til að vernda Cameron og Coulson eða af ótta við að slíkar upplýsingar kæmu forsætisráðherranum illa. Traustið að veði Áður en Tony Blair leiddi Verka- mannaflokkinn til stórsigurs í þing- kosningunum 1997 hét hann því að skjöldur sinn yrði „hvítari en hvítt“ þegar heiðarleiki hans væri annars vegar. Þótti mörgum stuðnings- mönnum jafnaðarmanna heldur fall- ið á þann skjöld þegar Gordon Brown tók við valdataumunum í flokknum og varð um leið forsætis- ráðherra árið 2007. Nú, aðeins rúmu ári eftir að Came- ron varð forsætisráðherra, stendur hann frammi fyrir því að heiðarleiki hans er dreginn í efa. Honum er því brýnt að reisa við tiltrú og álit á stjórnmálamönnum og hefur í því skyni boðað að rannsókn á hlerunum News of the World verði útvíkkuð og lög um fjölmiðla endurskoðuð. Kastar Coulson fyrir úlfana  David Cameron reynir að afneita fyrrv. almannatengli sínum  Hart sótt að forsætisráðherranum á breska þinginu  Neitar að hafa rætt við Murdoch um yfirtökuhugmyndir News Corp á BSkyB Reuters Í skotlínunni David Cameron ber hönd fyrir höfuð sér í breska þinginu í gær. Við hlið hans er George Osborne, fjármálaráðherra Bretlands. Andy Coulson Það kemur fjölmiðlajöfrinum Rupert Murdoch ekki illa að hafa á sínum snærum marga af áhrifamestu fjölmiðlum hins enskumæl- andi heims þegar umfjöllun um hleranahneykslið er annars vegar. Á myndinni hér fyrir neðan skoðar Murdoch forsíðu Lundúna- blaðsins The Times en á forsíðunni getur að líta fimm dálka fyr- irsögn, „Málsvörn Murdochs“, og meðfylgjandi frétt um svör hans frammi fyrir breskri þingnefnd á þriðjudag. Murdoch sendi starfsmönnum sínum tölvupóst í vikunni þar sem fram kom að gripið yrði til aðgerða til að tryggja að sambærileg mál endurtaki sig ekki. Tók Murdoch jafnframt fram að starfsmenn sem bregðist trausti verði að taka afleiðingum gjörða sinna. Á sínum tíma var sagt um breska heimsveldið að það væri svo víðfeðmt að sólin settist þar aldrei. Það sama má segja um fjöl- miðlaveldi Murdochs. Suður í Ástralíu hefur Julia Gillard forsætis- ráðherra lýst því yfir að starfshættir fjölmiðla hans verði rannsak- aðir. Ólíklegt þykir að sambærilegt hneyksli komi upp á yfirborðið og er m.a. horft til þess að vegna yfirburðastöðu Murdochs á dag- blaðamarkaðnum sé samkeppnin þar ekki jafn hörð og í Bretlandi. Blaðamennirnir beri ábyrgð MURDOCH SNÝST TIL VARNAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.