Morgunblaðið - 31.08.2011, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 31.08.2011, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 3 1. Á G Ú S T 2 0 1 1  Stofnað 1913  203. tölublað  99. árgangur  GÍTARINN ER GJÖF FRÁ GUÐUNUM NÝ SÝN GÖMUL GILDI ERU KONUR EINHVERJAR DÚKKUR? SKÁTASTARFIÐ 10 SÝNING Á LJÓSANÓTT 30GÍTARSÉNÍ 32 Stjarnan varð í gærkvöldi Íslandsmeistari kvenna í knattspyrnu í fyrsta skipti með því að sigra Aftur- eldingu, 3:0, í 16. umferð deildarinnar. Tveimur umferðum er ólokið en Garðabæjarliðið hefur unnið 13 leiki í röð og er sjö stigum á undan Val. Stjarnan rauf með þessu fimm ára einokun Valskvenna á Ís- landsbikarnum. Á myndinni fagna Ása Dögg Aðal- steinsdóttir markvörður, Gunnhildur Yrsa Jóns- dóttir fyrirliði og Soffía Arnþrúður Gunnarsdóttir á Stjörnuvellinum í leikslok í gærkvöldi. » Íþróttir Morgunblaðið/Golli Stjarnan Íslandsmeistari Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ræst hefur úr sumrinu og heyfengur er nægur í flestum sveitum. Þó er heyfengur lítill á einstaka svæðum, eins og til dæmis kalsvæðunum norðaustanlands og ösku- svæðinu í Skaftárhreppi. Útlit er fyrir að hægt verði að bjarga því innan héraða. Vegna kulda og þurrka í vor og framan af sumri var spretta almennt lítil á Suður- landi, að sögn Sveins Sigurmundssonar, framkvæmdastjóra Búnaðarsambands Suð- urlands. Þegar hlýnaði og byrjaði að rigna spruttu grös vel. „Það var eins og þau hefðu beðið með einhvern kraft,“ segir Sveinn. Þá hefur heyskapur almennt gengið vel. Sveinn telur að heyfengur sé almennt heldur minni en síðustu tvö ár en þó nægj- anlegur. Öskufallssvæðið í Skaftárhreppi er undantekning. Þar sé uppskera mun minni. Reiknar Sveinn með að miðla þurfi viðbót- arheyi á jarðir þar. Telur hann víst að hægt verði að gera það innan Skaftárhrepps og ef flytja þurfi fóður verði hægt að sækja það í Öræfasveit. Mjög góður heyfengur er í bestu ræktunarsveitum í Eyjafirði og Suður-Þingeyjarsýslu. Að sama skapi er uppskera lítil af túnum á kalsvæðunum. Lítil uppskera af túnum á kalsvæðum Hundruð hektara túna við utanverðan Eyjafjörð og í Þingeyjarsýslu eyðilögðust vegna kals í vor. Ingvar Björnsson, ráðu- nautur hjá Búgarði, segir að hluti túnanna hafi verið plægður og ræktað á þeim græn- fóður. Uppskera hafi hins vegar aðeins orð- ið um þriðjungur eða fjórðungur á þeim túnum sem látin voru standa. Hann segir að ágætis sprettutíð hafi verið í ágúst og séu menn enn við heyskap um allan fjörð. Ingvar metur það svo að heyfengur inni í Eyjafirði, á Svalbarðsströnd og í Hörgárdal verði yfir meðallagi og bændur þar aflögu- færir með hey, ef bændur á kalsvæðunum þurfi á að halda. Þeir geti einnig bjargað sér með kjarnfóðri. Víðast hef- ur ræst úr heyskap  Margir tónlist- arskólar í Reykjavík þurfa að hækka verðskrá sína til þess að mæta niðurskurði í styrkjum frá Reykjavíkur- borg. Tónlistar- kennarar eru ósáttir við órétt- látan niðurskurð borgarinnar en mun færri nemendur stunda tón- listarnám nú en fyrir fimm árum. Minni aðsókn í tónlistarnám megi þó líka rekja til kreppunnar. »6 Tónlistarnám hækkar í Reykjavík Tónlistarnám Stúlka í píanótíma.  Aðgerðir á vegum Umhverf- isstofnunar til að halda niðri minkastofnum á Snæfellsnesi og í Eyjafirði með auknu veiðiálagi hafa borið góðan árangur. Fulltrúi stofnunarinnar segir líklegt að mink hafi fækkað síðustu árin. „Í raun veit það enginn en við höfum grun um það,“ segir Bjarni Pálsson, deildarstjóri á auðlinda- sviði hjá Umhverfisstofnun. »16 Aukið veiðiálag hefur fækkað mink Minkur í vörn.  Lögreglu hefur ekki tekist að hafa hendur í hári þeirra manna sem hafa reynt að plata börn upp í bíla í Hafnarfirði og í Keflavík að undanförnu. Málin eru tekin alvarlega enda engin ástæða til annars. Fyrir rúmlega sjö árum var níu ára stúlka plötuð upp í bíl í Kópa- vogi en ökumaðurinn laug að henni að móðir hennar væri á spítala og hann myndi aka stúlk- unni þangað. Hann skildi síðan stúlkuna eftir á Mosfellsheiði þar sem svo heppilega vildi til að öku- maður jeppa varð hennar var. »6 Svipuð lygasaga var notuð fyrir sjö árum Hjalti Geir Erlendsson hjaltigeir@mbl.is „Staðan verður dekkri og dekkri eft- ir því sem tímanum fleygir fram og ófriðnum virðist ekki ætla að linna. Það eina sem við getum gert er að benda á staðreyndir málsins og það höfum við gert með þessu áliti,“ seg- ir Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vest- mannaeyjabæjar. Í áliti sem samþykkt var mótat- kvæðalaust á fundi bæjarráðs Vest- mannaeyjabæjar er farið hörðum orðum um sjávarútvegsfrumvarp ríkisstjórnarinnar. Þar er fullyrt að lögfesting frumvarpsins í óbreyttri mynd muni leiða til fólksflótta frá Eyjum. Frum- varpið gerir ráð fyrir skerðingu hjá Eyjaflotanum um níu þúsund þorskígildistonn. Afleiðing þess verði m.a. að um 200 störf tapist. Bæjarráð fullyrðir að slík skerðing bitni harkalega á bæjarsjóði. Þannig muni tapaðar tekjur til útsvars nema um 1,1 milljarði króna. Í tilkynningu frá bæjarráði er mögulegum áhrif- um frumvarpsins líkt við áhrifin sem eldgosið 1973 og Tyrkjaránið 1627 höfðu á samfélag Eyjamanna. Réttmætur hræðsluáróður „Við höfum verið sökuð um hræðsluáróður og það er ef til vill rétt en staðreyndin er sú að við erum einfaldlega logandi hrædd, við höf- um vandað mjög til allra verka og lagt okkur fram við að reikna út áhrifin fyrir sveitarfélagið og okkur er sífellt mætt með skætingi og ómálefnalegum árásum sem jafnvel eru persónulegar,“ segir Elliði. Hann segir mikilvægt að horfast í augu við að hagsmunir samfélagsins og útgerðarinnar séu nátengdir. Bæjaryfirvöld muni gera allt sem í þeirra valdi standi til að verjast árás- um og það sé best gert með því að benda á staðreyndir. „Ég vona það heitt og innilega að þeir sem um mál- ið fjalla lesi álit okkar yfir og ef þeir finna göt á málflutningi okkar að þeir ræði það þá við okkur. En þetta er veruleikinn eins og hann snýr við okkur Vestmannaeyingum,“ segir Elliði. „Hagsmunir útgerða fara með hagsmunum Eyjamanna og hags- munir Eyjamanna fara með hags- munum samfélagsins alls. Við erum öll í sama liði í þessu.“ MEyjamenn logandi hræddir »8 Segja fólksflótta blasa við Elliði Vignisson  Bæjarráð Vestmannaeyja segir að um 200 störf muni tapast verði sjávarútvegs- frumvarpið lögfest í óbreyttri mynd  Líkja áhrifunum við Tyrkjaránið 1627  Hróðmar Helgason, einn þriggja íslenskra lækna sem hafa þekkingu og reynslu til að framkvæma flóknar hjarta- þræðingar á börnum, flutti nýlega til Sví- þjóðar. Hann segir laun sérfræði- menntaðra lækna vera um helmingi hærri annars staðar á Norður- löndum en tíðkast hérlendis. Í Sví- þjóð fæst Hróðmar m.a. við hjarta- aðgerðir á börnum sem send eru frá Íslandi. »4 Laun sérfræði- menntaðra lækna mun hærri erlendis Hróðmar Helgason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.