Morgunblaðið - 31.08.2011, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 31.08.2011, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2011 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Vinstri græn-ir tóku sérfrí frá stjórnarsamstarfi um síðustu helgi, en eru nú komnir endurnærðir til verka á ný. En þeim varð ljóst á sínu stutta skeiði utan stjórnar að eitt og annað þarf endilega að rann- saka. VG og Samfylkingin hafa lengi hrópað að rannsaka þyrfti hvernig það atvikaðist að íslensk yfirvöld samþykktu að eiga aðild að árásinni á Írak fyrir nærri áratug. Vinstri stjórnin hefur nú senn setið í þrjú ár án þess að hafa látið framkvæma þessa mikilvægu rannsókn. Það mun hafa tafið óðfúsa rannsakendur í að hefja nauðsynlegar aðgerðir að þeir áttuðu sig allt í einu á því að Ísland hafði aldrei verið aðili að árásinni á Írak, ólíkt til að mynda aðild íslensku rík- isstjórnarinnar að árás Nató á Líbíu, þar sem ríkisstjórn Ís- lands undir forystu Jóhönnu og Steingríms gat ráðið því hvort Nató færi í stríð eða ekki. Íslensk yfirvöld höfðu ekkert með það að gera hvort ráðist var á Írak. Nú vilja ráðherrar VG og aðrir flokksráðsmenn fá að vita af hverju þeir sjálfir tryggðu með Samfylkingunni að Nató kæmist átölulaust í að láta sprengjum sínum rigna yfir réttláta og rangláta í Líb- íu. Það er auðvitað sjálfsagt að samþykkja þessa tillögu um rannsókn. Fyrsti kafli hennar gæti falist í því að ráðherrar VG litu í eigin barm og könn- uðu hvað þar væri að finna, jafnvel þótt óvíst sé að allt það sé endilega fyrir viðkvæma. Jóhanna Sigurð- ardóttir, sem líkt hefur þingmönn- um VG við ráfandi villiketti, hefur af þessu tilefni árétt- að að stjórnarliðar eigi að tala af virðingu hverjir um aðra. Hún benti jafnframt á að utan- ríkisráðherra Samfylking- arinnar, Össur Skarphéðins- son, hefði hagað sér „kórrétt“ í Líbíumálinu. Hann hefði í einu og öllu fylgt ályktun Al- þingis um málið, sagði Jó- hanna. Það var vissulega mjög vel af sér vikið hjá utanrík- isráðherranum í ljósi þess að Alþingi hefur enga ályktun gert um málið. Yfirlýsing Jó- hönnu er talin hluti af Dýra- fjarðarafbrigðinu í pólitískri refskák, sem enginn teflir bet- ur en núverandi forsætisráð- herra landsins. Hvernig geta Vinstri grænir gert ríkari kröfur til nokkurs ráðherra í mikilvægu máli en að hann fari í hvívetna og út í æsar eftir ákvæðum þeirrar ályktunar sem Alþingi hefur ekki gert í tilteknu máli? Nú er það svo að fjöldi þeirra ályktana sem Alþingi hefur aldrei gert er augljóslega mik- ill, jafnvel óteljandi líkt og eyjar Breiðafjarðar og hólar Vatnsdals. Miðað við það hlýt- ur að sæta furðu að Össur skuli verða fyrsti ráðherra landsins til að fylgja sam- viskusamlega eftir sérstakri ályktun sem Alþingi hefur ekki gert um tiltekið mál, því ekki geta aðrir ráðherrar af- sakað sig með því að ekki hafi verið úr nægilega mörgum ályktunum af því tagi að velja. Það er óþarfi að taka ríkisstjórn landsins alvarlega. Ekki gerir hún það sjálf } Rannsóknarríkisstjórn Ástand fuglalífsá Tjörninni er alvarlegt eins og allir þeir sem þangað hafa komið nýlega hafa séð. Skýrsla um fuglalíf var afhent yfirvöldum í Reykjavík í janúar og hefði verið farið eftir ábendingum sem þar koma fram eru líkur til að andarungar hefðu dafnað og mávar ekki orðið jafn yfirgnæfandi í fuglalífi Tjarn- arinnar. Skýringar sem borgar- yfirvöld gefa á því að ekki var litið til ráðlegginganna í skýrslunni eru þær að skýrslan hafi ekki verið lesin þar sem hún hafi ekki verið tekin fyrir fyrr en nokkuð var liðið á ágúst. Kristín Soffía Jónsdóttir, varaformaður um- hverfis- og sam- gönguráðs fyrir Samfylkinguna, segir að skýrslan hafi ekki fengist af- greidd „vegna fjölda aðkallandi mála“. Svo hafi hún gleymst, en áhuga- leysi hafi ekki verið um að kenna. Karl Sigurðsson, formaður ráðsins fyrir Besta flokkinn, tekur sama pól í hæðina og seg- ir miklar annir hafa verið hjá ráðinu á vordögum og nefnir breytingar á sorphirðumálum sérstaklega í því sambandi. Margt ljótt má af sanngirni segja um 15 metra regluna alræmdu, en hverjum hefði dottið í hug að hún hefði ofan á annað orðið til þess að spilla andastofninum á Tjörninni. Meirihlutinn í borgarstjórn gefur furðulegar skýringar á sinnuleysi sínu} Aumkunarverðar afsakanir Á apaplánetunni er það górillan sem ræður, stærsti apinn og sterkasti, 400 kílóa górillan segja enskumælandi (á ensku reyndar) og eiga þá við ósigr- andi ógnandi fyrirbæri sem vofir yfir manni. Það má líka nota orðasambandið miðaldra hvítur karlmaður í valdastöðu, eða jafnvel bara orðin Dominique Strauss-Kahn. Víst var Dominique Strauss-Kahn líkt við eðlunaróðan sjimpansa af ungri franskri stúlku sem hann reyndi að þvinga til maka við sig, en górilla á eiginlega betur við, ekki síst þegar ákæruvaldið í New York borg hefur ákveðið að ekki séu líkur á að hann hljóti sakfellingu fyrir samskipti sín við þernuna Nafissatou Diallo. Takið eftir því að það er ekki vegna þess að saksóknari er sannfærður um sakleysi Strauss- Kahns, heldur fyrir það að honum þykir ekki líklegt að hægt verði að sannfæra kviðdóm um sekt hans þar sem Diallo sé svo ótrúverðug; innflytjandi sem þekki ókræsilega kóna. Í því sambandi skipti engu að sönn- unargögn bendi til þess að eitthvað hafi átt sér stað, lífsýni úr Strauss-Kahn fundust á jakkaboðungi þern- unnar, í raun sé þetta spurning um orð á móti orði; Strauss-Kahn heldur því fram að þernan hafi fallið fyr- ir töfrum hans þegar hann birtist á besefanum – hvernig getur ein kona staðist svo villimannslega töfra? Hvað þernan segir skiptir engu í þessu sam- bandi, það voru engin vitni frekar en svo oft þegar górilla kemur fram vilja sínum. Heyrðu góði, kallar kannski einhver; Dominique Strauss-Kahn hefur nú líka þurft að þola sitthvað, handjárnaður og sýndur ógreiddur í ljótum jakka og missir af færi á því að verða forseti Frakklands, aukinheldur sem hann missti vellaunaða stöðu! Víst er það satt og rétt, en rétt að spyrja á móti: Hvernig gat maður sem svo þungt er haldinn kvenfyrirlitningu náð svo langt? (Hvaða rugl, segir Strauss-Kahn, ég bein- línis elska konur.) Hvernig má það vera að maður sem telur að allar konur eigi að vera sér til frjálsrar ráðstöfunar hafi komist til slíkra valda? Í Frakklandi segja stuðningsmenn Strauss-Kahn, franskir vinstrimenn nota bene, að hann hafi verið hvítþveginn, hann sé blanchi, og spá því að hann eigi afturkvæmt í fremstu röð. Það má vel vera, gleymum því ekki hvernig franska pressan tók á mál- inu; Le Monde / Le Post lýsti útliti þernunnar, brjóstastærð og lögun þjóhnappa hennar, France-Soir lýsti sniðinu á þernubúningnum og því að fórnarlambið liti vel út miðað við aldur og útvarpsstöðin RMC sagði lögmenn Strauss-Kahn hafa fengið áfall þegar þeir sáu hvað Diallo væri ófríð. Er ekki kominn tími til að flytja sig af apaplánet- unni? Árni Matthíasson Lífið á apaplánetunni Pistill STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Kristján Jónsson kjon@mbl.is Minkurinn er ekki stór,talsvert minni en með-alköttur. En hann hef-ur víða reynst mikill skaðvaldur í nýjum heimkynnum en hann er upprunninn í Norður- Ameríku. Hann veiðir mest algengar fisktegundir sem hann hefur aðgang að í ám og vötnum en einnig étur hann egg og fugla yfir sumarið. Rannsóknir skortir til að meta að fullu áhrifin á vistkerfið hérlendis en ljóst er að við vissar aðstæður getur hann valdið miklum usla, sundrað æðarvarpi og étið verðmæt laxa- eða silungsseiði. Erlendis hefur sýnt sig að tilkoma minksins hefur fækkað í stofnum sílamáfs, teistu og fleiri tegunda en oft flytja fuglarnir sig aðeins þó aðeins um set. Róbert Arnar Stefánsson, for- stöðumaður Náttúrustofu Vestur- lands í Stykkishólmi, hefur stundað rannsóknir á mink og reynt að meta stofnstærð. Lengi hefur verið vitað að 5-6 ára sveiflur eru á stærðinni en ekki ljóst hvað veldur. Ekki er um samræmdar að- gerðir á landsvísu að ræða við minkaveiðar, misjafnt er hve mikil áhersla er lögð á þær eftir sveit- arfélögum enda þau sum mjög fá- menn. Mörg eru líka illa stödd fjár- hagslega. Beitt er ýmsum veiðiaðferðum, hundar gjarnan látn- ir leita dýrin uppi við sjó og vötn og þau síðan skotin ef mönnum tekst að hrekja þau úr fylgsnunum. Einnig er beitt gildrum af ýmsu tagi, mörgum finnst sumar þeirra stangast á við dýraverndarlög. Átaksverkefni bar árangur Efnt var til sérstaks átaksverk- efnis á vegum Umhverfisstofnunar á árunum 2007-2010 um staðbundna útrýmingu minks í Eyjafirði og á Snæfellsnesi. Átakið mun hafa kost- að alls um 140 milljónir króna, mest- ur var kostnaðurinn við veiðarnar en einnig var skráning veiða endurbætt og settir upp gagnagrunnar. Ágætur árangur náðist strax með auknu veiðiálagi á fyrrnefnda svæðinu en heldur minni fækkun varð á Snæ- fellsnesi. Ekki tókst að útrýma dýr- inu á þessum svæðum enda afar erf- itt. Heimildarmenn segja einnig að vel hafi gengið að fækka mink víða á norðan- og austanverðu landinu. Ríkið greiðir allt að helming kostnaðar sveitarfélaga við eyðingu minks, þó mest 1.500 krónur á skott- ið. En auki sveitarfélögin mjög veið- arnar getur Umhverfisstofnun neyðst til að lækka endurgreiðslu- hlutfallið til að fara ekki fram úr fjár- lögum. Minna hefur veiðst af mink síð- ustu árin en áður, að sögn Bjarna Pálssonar, sem er deildarstjóri á náttúrauðlindasviði hjá Umhverfis- stofnun og annast m.a. veiðistjórnun. Væntanleg sé skýrsla um veiðina síð- ustu 12 mánuðina á landinu öllu og þá fáist gleggri mynd af stöðunni. En hefur mink fækkað á Íslandi? „Í raun veit það enginn en við höfum grun um það,“ segir Bjarni. „Það hefur veiðst minna af mink en við vitum ekki enn með vissu hvað veldur, hvort það er vegna þess að sveitarfélög hafa haldið að sér hönd- um vegna peningaleysis. Ég sendi öllum sveitar- félögum fyrirspurn í sumar um þessi mál. Þau sem hafa svarað segja að ekki hafi orðið neinar verulegar breytingar á tilhögun veiðanna. Og á sumum svæðum hafa menn gert skurk í þessu, t.d. í Kelduhverfi og þar hefur mjög lítið veiðst síðan.“ Víða hægt að halda minkastofnum niðri Morgunblaðið/RAX Veiðimaður Reynir Bergsveinsson við Elliðavatn 2008. Hann notar minka- síu sem hefur reynst mjög árangursríkt tæki við minnkaveiðar. Byrjað var að ala norður- ameríska minkinn í Evrópu 1927 til skinnaframleiðslu og fjórum árum síðar var fyrsta minkabúið stofnað á Íslandi; fyrstu dýrin sluppu út árið eft- ir. Það tók minkinn aðeins um 40 ár að nema allt landið enda aðstæður um margt mjög hag- stæðar fyrir hann hérlendis. Minkurinn étur mikið af fiski í ám og vötnum og seið- um í eldisstöðvum en einnig egg og fugla. Sums staðar, m.a. á litlum eyjum við Skot- land, hefur tekist að út- rýma dýrinu eða halda því í skefjum. En það myndi kosta geysilegt fé að reyna að útrýma alveg mink á Íslandi. Auk þess eru hér mörg minkabú og aldrei hægt að útiloka að dýr sleppi stundum úr þeim. Erfitt að út- rýma mink 80 ÁRA SAGA HÉRLENDIS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.