Morgunblaðið - 31.08.2011, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 31.08.2011, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Ernir Kátir skátar Skátar frá Akureyri og Sauðárkróki á leiðinni á heimsmót skátahreyfingarinnar í Svíþjóð í ár. landið. „Það eru færri skátar núna en voru fyrir 50 árum en það var allt annað samfélag þá. Með endur- skoðuninni og bókunum ætlum við okkur að efla skátastarfið á Íslandi og kynna betur fyrir bæði ungu fólki og samfélaginu öllu hvað skátastarfið stendur fyrir. Það er mikið af fordómum í gangi og sjálf- sagt fullt af fólki sem finnst skát- arnir púkó en það veit eflaust af- skaplega lítið fyrir hvað skáta- hreyfingin stendur. Við ætlum auðvitað að kynna það líka,“ segir Ólafur og bætir við að skátafélög muni standa fyrir kynningum í sín- um hverfum eða byggðarlögum. „Við ætlum að setja meira púður í þetta, kynna skátahreyfinguna bet- ur fyrir foreldrum svo þeir átti sig á því hversu mikils virði þetta getur verið fyrir börnin þeirra.“ Áætlað er að það taki um þrjú ár að inn- leiða nýja starfsgrunninn og verður það gert með námskeiðum og alls konar verkefnum. Kennir börnum sjálfstæði Ólafur segir skátastarfið hafa uppeldisleg markmið og leitast við að kenna börnum að verða sjálf- stæðir, virkir og ábyrgir ein- staklingar í samfélaginu. „Það finnst börnum og unglingum ekki sérstaklega spennandi en fyrir þeim er skátastarfið ævintýri þar sem þau upplifa mjög margt: Útilíf, söng, leiki o.fl. Fólk hefur þrönga mynd af því sem skátastarfið stend- ur fyrir en það sem þetta gengur fyrst og fremst út á er að skátarnir verði smám saman sjálfstæðir og marki sína eigin braut. Þetta er allt gert í gegnum leik og ævintýri og ef þú spyrð skátana hvað sé gaman við að vera skáti þá nefna þeir útilegur, vera að vinna að ýmsum verkefnum, fara á skátamót o.fl. Skátar eru ekki einungis að hnýta hnúta, það er bara ein leið að markinu.“ Morgunblaðið/Eggert Handbækurnar Afrakstur fimmtán ára vinnu innan skátahreyfingarinnar. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2011 Eldri menn sem eyða litlum tíma í djúpum svefni geta verið í meiri hættu á að þróa með sér háan blóð- þrýsting en þeir sem sofa vel. Þetta kom fram í bandarískri rannsókn sem er sagt frá á BBC.co.uk. Skoðaðir voru 784 karlkyns sjúk- lingar og þeir sem fengu minnstan svefn voru í 83% meiri hættu á að fá of háan blóðþrýsting en þeir sem fengu mestan svefn. Rannsakendur sögðu að þeir gerðu ráð fyrir að það væri svipað hjá konum. Hár blóð- þrýstingur, einnig þekktur sem há- þrýstingur, eykur líkurnar á hjarta- áfalli og öðrum heilsufarsvandamálum. Rannsökuð voru gæði svefnsins hjá 784 mönnum eldri en 65 ára á tímabilinu frá 2007 til 2009. Í byrjun átti enginn þeirra við háþrýsting að etja en í lok rannsóknar voru 243 komnir með háþrýsting. Sjúkling- unum var skipt í hópa eftir því hvað þeir eyddu miklum tíma í djúpum svefni. Þeir sem eyddu minnstum tíma í honum, eða 4% af nætursvefn- inum, voru 1,83 faldri meiri hættu á að fá háan blóðþrýsting en þeir sem sváfu 17% næturinnar í djúpum svefni. Rannsakendur sögðu að nánari skoðunar væri þörf til að sjá hvort bættur svefn lækkaði blóðþrýsting- inn aftur. Auk þess finnst þeim þurfa að skoða þetta í fleiri aldurshópum og hjá báðum kynjum. Það er samt löngum vitað að svefn er mikilvægur fyrir góða heilsu og mikilvægt að setja hann í forgang og ná sex til átta tíma nætursvefni á hverri nóttu. Heilsa Reuters Svefn Betra er að sofa vel heima hjá sér en í vinnunni. Lítill og grunnur svefn getur hækkað blóðþrýstinginn Dalvík Sparisjóður Svarfdæla – söluferli Fyrirtækjaráðgjöf H.F. Verðbréfa hf. hefur til sölumeðferðar, fyrir hönd Bankasýslu ríkisins, 90% stofn- fjárhlut ríkisins í Sparisjóði Svarfdæla. Um Sparisjóð Svarfdæla Sparisjóður Svarfdæla hefur verið starfræktur í yfir 120 ár. Skrifstofa Sparisjóðs Svarfdæla og aðal- afgreiðsla er í ráðhúsinu á Dalvík, en auk þess er rekin afgreiðsla í Hrísey. Alls starfa nú tíu starfs- menn hjá sjóðnum. Sparisjóðurinn er eina fjármálafyrirtækið á Dalvík og því mikilvægur í fjölbreyttu atvinnulífi Dalvíkurbyggðar. Í sveitarfélaginu eru sterk fyrirtæki sem hafa skapað sér sérstöðu og er Dalvíkurhöfn stór og umsvifamikil fiski- og vöruhöfn. Fjárhagslegri endurskipulagningu Sparisjóðs Svarfdæla lauk í desember 2010 og er stofnfé að henni lokinni 424,4 milljónir króna. Í kjölfar endurskipulagningarinnar varð ríkissjóður eigandi stofnfjár að nafnverði 382,0 milljónir króna eða 90% af heildarstofnfé. Á grundvelli laga nr. 88/2009 um Bankasýslu ríkisins fer Bankasýslan með hlut ríkisins. Sparisjóður Svarfdæla hefur að undanförnu starfað á grundvelli undanþágu frá kröfu Fjármálaeftirlitsins um 16% eiginfjárhlutfall, en eiginfjárhlut- fall sjóðsins skv. ársreikningi fyrir árið 2010 er 10,5%. Söluferlið Frá og með mánudeginum 5. september n.k. geta áhugasamir fjárfestar nálgast samantekt um Spari- sjóð Svarfdæla og önnur gögn vegna fyrirhugaðrar sölu hjá H.F. Verðbréfum hf. Frestur til að skila inn óskuldbindandi tilboðum er til kl 12:00 mánudaginn 19. september n.k. Tilboð skulu berast á sérstöku formi sem nálgast má hjá H.F. Verðbréfum hf. Söluferlið er aðeins opið hæfum fjárfestum, sbr. 9. tölulið 43. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007. Auk þess þurfa fjárfestar að uppfylla tiltekin skilyrði sem gerð er grein fyrir í sölugögnum og lúta einkum að fjárhagslegum styrk og hæfi að öðru leyti til að fara með virkan eignarhlut í fjármálafyrirtæki. Fjárfestum er frjálst að bjóða í allan eignarhlut seljanda og/eða hluta hans. Seljandi áskilur sér rétt til þess að breyta söluferlinu og/eða stöðva það án fyrirvara. Einnig áskilur seljandi sér rétt til að hafna öllum tilboðum. Fjárfestar sem vilja taka þátt í söluferlinu geta haft samband við fyrirtækjaráðgjöf H.F. Verðbréfa hf. í síma 585 1700 eða sent tölvupóst á spsv@hfv.is. Snúið Súlufimi og dans eiga margt sameiginlegt. Morgunblaðið/Eggert Á hvolfi Það varmargt kennt á nám-skeiðinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.