Morgunblaðið - 31.08.2011, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 31.08.2011, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2011 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Ekki verður nauðsynlegt fyrir arki- tekta sem taka þátt í hönnunarsam- keppni um nýtt fangelsi á Hólms- heiði að fylgja frumteikningum sem danska arkitektastofan Alex Poulsen var fengin til að gera. Þeir geta á hinn bóginn haft þær til hliðsjónar. Teikningarnar kostuðu 4,8 milljónir króna. Jón Magnússon, skrifstofustjóri fjármála- og rekstrarskrifstofu inn- anríkisráðuneytisins, segir að þær hafi alltaf átt að nota sem hliðsjón- argögn og svo verði áfram. Arkitektastofan Alex Poulsen var fengin til verksins í krafti þess að stofan hefur teiknað mörg fangelsi. Jón segir að í forsendum hönnun- arsamkeppninnar verði lögð áhersla á að hönnun verði hagað þannig að rekstrarkostnaður verði sem lægst- ur. Helst þurfi aðeins eina varðstofu en þar með þurfi fangelsið helst að vera á einni hæð. Í dönsku teikning- unum sé einmitt miðað við að fang- elsið verði á einni hæð. Þegar teikningarnar frá Alex Poulsen voru pantaðar var stefnan tekin á alútboð fangelsisins, þ.e. bjóða átti út hönnun og byggingu þess um leið. Nú á að velja teikn- ingar fyrst og síðan bjóða út fram- kvæmdirnar. Jón segir að þetta breyti engu um gildi teikninganna, vinnan sé alls ekki unnin fyrir gýg. Hólmsheiðarfangelsið á m.a. að leysa Hegningarhúsið við Skóla- vörðustíg af hólmi en það hefur verið á endurnýjuðum undanþágum frá 1998 og rann sú síðasta út 1. maí síð- astliðinn. Unnið er að endurnýjun. Teikningar bara til hliðsjónar  Danskir arkitektar fengu 4,8 milljónir fyrir frumteikningar að nýju fangelsi  Undanþága fyrir Hegningarhúsið rann út 1. maí  Unnið að endurnýjun Tölvumynd/Alex Poulsen Framtíð Það er sem nýja fangelsið kúri í gróðursælli laut á Hólmsheiði. Í teikningum Alex Poulsens er gert ráð fyrir að fangelsið verði reist í kross og með varðstofu í miðjunni. Skipan klefa og her- bergja er lýst en ýmislegt er lát- ið ógert, s.s. lagnateikningar, enda voru þær ekki pantaðar. Kvæði í kross BETRUNARHÚS Á HEIÐINNI Tölvumynd/Alex Poulsen Hús Fangelsið er á einni hæð. Í svari sínu til umboðsmanns Al- þingis segir Seðlabanki Íslands að reglur bankans nr. 492/2001 um verðtryggingu sparifjár og lausafjár séu settar á grundvelli ákvæðis í lög- um vexti og verðtryggingu. Þær hafi því fulla stoð í lögum. Í 2. mgr. 15. gr. laganna um vexti og verðtryggingu er kveðið á um að Seðlabankinn setji nánari reglur um verðtryggingu sparifjár og lánsfjár. Samkvæmt því sé efnisleg niður- staða sú sama hvort sem greiðslur séu verðbættar eða höfuðstóllinn. Í samræmi við það segist Seðlabank- inn ekki geta séð að meginregla laga um vexti og verðtryggingu hafi verið ranglega framkvæmd þótt reglur Seðlabankans nr. 492/2001 kveði á um verðbættan höfuðstól en lögin um verðbættar greiðslur. Seðlabankinn segist ætíð hafa fylgt þeirri stefnu og meginreglu sem mörkuð hafi verið við upptöku almennrar verðtryggingar að höf- uðstóll skuldar breytist með verð- lagsþróun og að afborganir og vextir reiknist af verðbættum höfuðstól. Morgunblaðið/Ernir SÍ Hefur svarað umboðsmanni. Reglurnar með fulla lagastoð Sigrún Rósa Björnsdóttir sigrunrosa@mbl.is Margir þekkja bláu byggingarnar með líflegu skreytingunum við Súðarvog 4, þar sem Vél- smiðja Jósafats Hinrikssonar var lengi til húsa og framleiddi meðal annars trollhlera. Nú stendur til að rífa fremsta hluta hússins, sem er samtals 2.158 fermetrar og á tveimur hæðum, auk kjallara undir hluta þess. Fast- eignafélagið Reginn ehf., sem er í eigu Lands- bankans, hefur auglýst eftir tilboðum í niðurrif hússins og rennur frestur til að skila inn til- boðum út kl. 11 í dag, 31. ágúst. Húsnæðið við Súðarvog 4, sem var byggt í þrennu lagi á árunum 1955-1984, er alls 5.469 fermetrar. Lóðin sjálf er 6.898 fermetrar en húsið, sem er stálgrindarhús, er byggt á steypta plötu. Gera svæðið meira aðlaðandi Um ástæður niðurrifsins segir Bergsveinn Ólafsson, verkefnastjóri hjá Regin, að fremsti hluti hússins hafi verið byggður árið 1958 og sé einfaldlega barn síns tíma. Húsið hafi lekið og farið hafi verið inn í það og brotið og skemmt. Meginástæðan sé hins vegar að reyna að snyrta svæðið og gera það meira aðlaðandi. Stefnan að leigja út eignirnar „Skemmurnar á bak við eru 3.300 fermetrar. Við teljum að við getum frekar leigt þegar búið er að snyrta þarna í kring,“ segir Bergsveinn. Nú eigi Reginn þessar eignir og vinni að því að koma þeim í rekstur. „Við höfum lagt mikla orku í að hreinsa til í kringum þær eignir sem við eigum.“ Gert ráð fyrir blandaðri byggð Bergsveinn segist ekki gera ráð fyrir að það verði byggt á svæðinu á næstunni en bendir jafnframt á að menn hafi verið byrjaðir að kaupa lóðir upp til þess að rífa húsnæði og byggja íbúðir. Bergsveinn segir að í ramma- skipulagi Reykjavíkur sem kynna eigi seinni hluta þessa árs sé þetta svæði skilgreint sem blönduð byggð. Síðan eigi eftir að vinna deili- skipulag fyrir það. Það ferli taki hins vegar ein- hver ár en þangað til þurfi að vinna að því að losa hverfið við þá leiðinlegu ímynd sem hefur verið á því um sóðaskap. Morgunblaðið/Árni Sæbrtg Súðarvogur 4 Fremsti hluti byggingarinnar hverfur fljótlega úr götumyndinni en Reginn ehf. hefur boðið út niðurrif hennar. Bæta ímyndina með niðurrifi Hagvöxtur á Íslandi er næst- minnstur af aðildarríkjum OECD, Efnahags- og framfarastofnunar- innar, frá því í ársbyrjun 2009. Samdrátturinn nemur rúmum sex prósentum og er Ísland langt á und- an næstu löndum, Slóveníu og Ír- landi, en þar dróst landsfram- leiðslan saman um 4% á tímabilinu. Aðeins á Grikklandi hefur verg landsframleiðsla dregist meira sam- an, eða um rúm 9%. Sem kunnugt er hafa Grikkir þurft að glíma við mikinn skuldavanda og hefur gríska ríkið fengið gríðarlega há neyðarlán frá Evrópusambandinu og Grikk- landi. Að meðaltali nemur hag- vöxtur í löndum OECD 1,81% á þessu tímabili. Mestur hefur hann verið í Tyrklandi, eða tæp 16%. Seðlabanki Tyrklands hefur að und- anförnu lækkað stýrivexti, til að sporna við innflæði fjármagns til landsins. Þar á eftir kemur Kórea með 13% hagvöxt og Síle og Ísrael með 10 og 9%. Af Norðurlöndunum eru Svíar efstir, með tæplega 7% vöxt landsframleiðslu á tímabilinu. Samdrátturinn er tæpt prósent í Danmörku, hálft prósent í Noregi og Finnar eru nærri núllinu. ivar- pall@mbl.is Íslendingar og Grikkir reka lestina Hagvöxtur innan OECD Breyting á vergri landsframleiðslu frá ársbyrjun 2009 til og með fyrsta fjórðungs 2011. Heimild: OECD. Belgía Sviss Ástralía Svíþjóð Lúxemborg Pólland Ísrael Síle Kórea Tyrkland 10 14 12 16 6 8 4 2 15,69% 12,81% 9,94%7,95% 6,90% 6,65% 4,13% 3,05% 2,94% 9,16% Gr ikk lan d Ísl an d Sló ve nía Írla nd Un gv erj ala nd Sp án n Íta lía Br etl an d Po rtú ga l Da nm örk -1 -2 -3 -4 -5 -6 -7 -8 -9 -9,15% -6,36% -3,98% -3,96% -2,69% -2,17% -1,34% -0,89% -0,77% -0,71% % % Vilji er innan fé- lags- og trygg- ingamálanefndar til að stíga skref í átt að því að af- nema verðtrygg- ingu á húsnæðis- lánum. Nefndin fundaði í gær ásamt fulltrúum frá Lands- samtökum lífeyr- issjóða, ASÍ og Seðlabankanum um að veita Íbúðalánasjóði heimild til að veita óverðtryggð lán. Fulltrúar Íbúðalánsjóðs funda með nefndinni í dag. Sigríður Ingi- björg Ingadóttir, varaformaður nefndarinnar, segist búast við að til- lagan verði samþykkt út úr nefnd- inni í dag og að samstaðan um hana verði þverpólitísk. hallurmar@mbl.is Íbúðalánasjóð- ur veiti óverð- tryggð lán Sigríður Ingibjörg Ingadóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.