Morgunblaðið - 31.08.2011, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2011
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Lögregla jók eftirlit sitt við skóla í
Hafnarfirði og Reykjanesbæ í gær í
kjölfar tilkynninga um að menn
hefðu reynt að tæla ung börn upp í
bíla enda er óhætt að segja að full
ástæða sé til. Tilkynningar voru
einnig sendar til foreldra, a.m.k. í
flestum skólum í Hafnarfirði, skv.
upplýsingum frá bænum. Þar verður
haldinn fundur til að tryggja að til-
kynningar um slíkar tilraunir berist
hratt og örugglega til þeirra er mál-
in varðar.
Fyrir tæplega sjö árum, 25. nóv-
ember 2004, plataði maður 9 ára
stúlku upp í bíl sinn í Kópavogi, ók
með hana á brott og skildi hana síðan
eftir á Mosfellsheiði. Maður á jeppa
sá hana þegar hún veifaði úti í veg-
arkanti á Þingvallaleið. Ljóst er að
mikil mildi er að stúlkan varð ekki
úti.
„Myrkur og vaðandi slydda“
Í forsíðufrétt Morgunblaðsins um
barnsránið 26. nóvember 2004 er eft-
irfarandi haft eftir Sigurði Ásgeirs-
syni, bjargvætti stúlkunnar: „Ég var
á leið upp í Kjós þegar ég sá ein-
hvern í vegkantinum,“ sagði hann.
Þetta var um sexleytið og komið
myrkur og vaðandi slydda. Hann
sneri við á Skálafellsafleggjaranum
til að kanna málið betur og varð þá
ljóst að þetta var yfirgefið barn. Ég
spurði hvað í ósköpunum hún væri
að gera þarna og sagði hún mér þá
að einhver maður hefði keyrt sig
þarna upp eftir og skilið sig eftir.“
Ökumaður á bíl á undan honum hafði
ekki séð barnið og það hafði haft sitt
að segja að hann var á háum jeppa.
Líkt og í þeim málum sem hafa
komið upp í Hafnarfirði að undan-
förnu, sagði maðurinn sem skildi
stúlkuna eftir, að móðir hennar hefði
lent í slysi og hann ætti að aka stúlk-
unni á sjúkrahús.
Rétt er að taka fram að ekkert
hefur komið fram um að málin teng-
ist og blekkingin sem notuð hefur
verið er líklega handhæg í augum
þessara manna.
Magnús Baldursson, fræðslustjóri
Hafnarfjarðar, segir að halda eigi
fund með öllum þeim sem málið
snertir, s.s. skólastjórnendum,
starfsmönnum sem sinna barna-
vernd, lögreglu o.fl. til að ræða við-
brögð. Hann minnir einnig á að atvik
sem þessi verði ekki eingöngu við
skóla heldur geti einnig orðið á leið
til og frá heimilum barnanna.
Lögregla fylgist betur
með umferð við skóla
Stúlku var rænt
2004 og hún skilin
eftir við Skálafell
Bjargað „Ég átti ekki von á neinu þarna í þessu hávaðaroki og suðaust-
anslyddu. Hún var orðin gegnköld og skalf af kulda,“ sagði Sigurður.
Engar nýjar vísbendingar höfðu
í gær borist um mennina sem
hafa reynt að tæla börn upp í
bíla í Hafnarfirði og Keflavík.
Í Hafnarfirði er manninum
lýst sem feitlögnum og frekar
ungum. Hann aki um á stórum
bláum bíl sem hefur verið lýst
sem „ljótum“, hugsanlega ryðg-
aður, skv. upplýsingum frá lög-
reglu. Í Keflavík er maðurinn
sagður þéttvaxinn, um fertugt
og á hvítum jeppa.
Brýna þarf fyrir börnum að
fara alls ekki upp í bíla með
ókunnugu fólki heldur hlaupa í
burtu sé þeim boðið far.
Á ljótum bíl
EKKI FLEIRI VÍSBENDINGAR
María Elísabet Pallé
mep@mbl.is
Verðskrá flestra tónlistarskóla í
Reykjavík hefur hækkað um 10-15%
til að mæta 12% niðurskurði hjá
Reykjavíkurborg nú á haustmánuð-
um. Skólastjórar tónlistarskólanna
segja að verðskrár hafi ekki hækkað
á síðustu árum en nú hafi þeir neyðst
til að hækka. Telja sumir skólastjór-
ar að nemendum hafi almennt fækk-
að frá árinu 2008 og ákveðna stöðn-
um vera í starfi tónlistarskólanna
vegna kreppunnar í stað framfara og
fjölbreytni í tónlistarkennslu í
Reykjavík.
Sigursveinn D. Kristinsson, skóla-
stjóri Tónlistarskóla Sigursveins,
segir að skólanum hafi tekist að fara
varlega í hækkunum og hafi tekist að
hækka verðskrá um aðeins 4%. Það
hafi tekist með hagræðingu í rekstri
en áður hafi verið skorið niður í
kennslu.
Ósanngjarn niðurskurður
„Við skólastjórar í STÍR, Samtök-
um Tónlistarskóla í Reykjavík, höf-
um gert mjög mikið til að benda
Reykjavíkurborg á að skólarnir hafi
orðið fyrir mjög ósanngjörnum nið-
urskurði og meiri en tíðkist hjá
stofnunum Reykjavíkurborgar al-
mennt, og það finnst okkur mjög
slæmt,“ segir Sigursveinn. Hann
segir margt óljóst með framtíð skól-
anna. „Ríki og sveitarfélög gerðu
samkomulag þann 13. maí síðastlið-
inn. Ríkið ætlar að kosta framhalds-
nám og sveitarfélögin grunnnám
sem er mjög jákvætt en við eigum
eftir að sjá hvernig útfærslan verð-
ur,“ segir Sigursveinn. „Við höfum
gert athugasemdir við reglugerð
sem er í umsagnarferli hjá innanrík-
isráðuneytinu.Við verðum að vera
bjartsýn á að skólarnir standi af sér
þessa kreppu og þennan niðurskurð
sem gengur ekki til lengdar,“ segir
Sigursveinn.
„Við þurfum líklega að hækka
gjaldskrá um 10% en það er ekki al-
veg komið á hreint því að við eigum
eftir að endurnýja þjónustusamning
okkar,“ segir Sigurður Sævarsson,
skólastjóri Nýja tónlistarskólans.
Sigríður Árnadóttir, skólastjóri
Tónlistarskólans í Grafarvogi,
hækkaði verðskrá um 10% eftir að
hafa reynt allt sem mögulegt var.
Kjartan Eggertsson, skólastjóri
Tónskóla Hörpunnar, segir að
hækkun á gjaldskrá þeirra nemi 15%
en hún hafi ekki verið hækkuð síð-
astliðin þrjú ár. „Við höfum þá stefnu
að hafa aldrei nemendur á biðlista en
hins vegar er fækkun á nemendum,“
segir Kjartan. Telur hann að fækk-
unin sé afleiðing kreppunnar.
Stefán Edelstein, skólastjóri hjá
Tónmenntaskóla Reykjavíkur, segir
að þurft hafi að hækka gjaldskrá um
15%, hins vegar hafi fleiri nemendur
sótt um skóla í ár en í fyrra sem telj-
ist sérkennileg staða. „Fyrir fimm
árum voru 290 nemendur í skólanum
en í ár eru 140 vegna niðurskurðar
og þetta er sú stefna sem hefur verið
ríkjandi hjá Reykjavíkurborg. Ég
hef enga ástæðu til að vera bjart-
sýnn, ég er búinn að upplifa þetta ár
eftir ár eftir ár,“ segir Stefán.
Margir tónlistarskólar
hækka verðskrá um 10-15%
Stöðnun er í starfi tónlistarskólanna Skólastjórar ósáttir við borgina
Ljósmynd/Margrét Ísaksdóttir
Tónlistarnám Gjaldskrá margra tónlistarskóla í Reykjavík mun hækka á
þessu hausti vegna niðurskurðar hjá Reykjavíkurborg.
Tónlistarnám
» Gjaldskrá margra skóla hef-
ur hækkað um 10-15% í haust.
» Nemendum hefur fækkað á
síðustu árum vegna krepp-
unnar.
» Fyrir fimm árum voru 290
nemendur í Tónmenntaskóla
Reykjavíkur en eru nú um 140.
» Skólastjórar telja að
tónlistarskólar hafi orðið fyrir
ósanngjörnum niðurskurði.
» Beðið er niðurstöðu sam-
komulags ríkis og sveitarfélaga
um greiðslu með framhalds-
námi í tónlist.
Express ferðir bjóða frábæra ferð til La Sella
á Spáni sem er fjölbreyttur 27 holu golfvöllur,
hannaður af engum öðrum en José María Olazábal.
Skelltu þér í golfveislu á Spáni og njóttu þess að
spila golf við fyrsta flokks aðstæður.
Nánar um þess frábæru ferð og aðrar
golfferðir á www.expressferdir.is
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum, frítt fyrir golfsettið, gisting á 5*
Marriott-hóteli með hálfu fæði, ótakmarkað golf, akstur til og frá flugvelli, golfkerrur,
æfingaboltar og íslensk fararstjórn.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Nánari upplýsingar
á expressferdir.is
eða í síma 5 900 100
Golfferðir
Golf á Spáni
í október!
179.900 kr.
Fararstjóri: Jón Karlsson, golfkennari
Brottfarir: 20. og 22. október, 7 eða 9 daga ferð
Verð á mann í tvíbýli frá
Jóhanna Sigurð-
ardóttir, for-
sætisráðherra
segir ályktun VG
um rannsókn á
aðgerðum rík-
isstjórnarinnar í
málefnum Líbíu
vera óskiljanlega.
Jóhanna tjáði sig
í viðtali við Rík-
isútvarpið í gær
um ályktun VG sem samþykkt var á
flokksráðsfundi um helgina, þar sem
sett er fram krafa um aðAlþingi
skipi rannsóknarnefnd á aðdrag-
anda þess að Ísland hafi samþykkt
loftárásir Atlantshafsbandalagsins á
Líbíu.
Jóhanna lét í ljós undrun sína á
ályktun samstarfsflokks síns í rík-
isstjórn. „Mér finnst það nú bara al-
veg óskiljanlegt vegna þess að utan-
ríkisráðherra hefur í alla staði staðið
vel að þessu máli og ég tek undir
hans málflutning sem er kórréttur.
Hann fór fullkomlega að ályktun Al-
þingis í þessu máli og þetta mál hef-
ur verið í ríkisstjórn þannig að þessi
ályktun VG er alveg óskiljanleg.“
Fram kom í Morgunblaðinu í gær
að þau Steingrímur J. Sigfússon,
Katrín Jakobsdóttir, Svandís Svav-
arsdóttir, Ögmundur Jónasson og
Jón Bjarnason, ráðherrar VG, hafi
verið samþykk ályktuninni.
Jóhanna sagði jafnframt að flokk-
arnir ættu að láta af því að skiptast á
skoðunum í gegnum ályktanir.
Frekar ætti að ræða málin manna á
milli væri einhver óánægja.
hallurmar@mbl.is
Skilur ekki
Vinstri
græna
Jóhanna
Sigurðardóttir.