Morgunblaðið - 31.08.2011, Page 27
DAGBÓK 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2011
Sudoku
Frumstig
9 1 2
7 4 5
8 3 7
5 2 9 3 4
8 7
2
9 4 8 1
3
1 7 5
8 1 7 3 9
9 3 4 2 8
7 1 4
5 1 8
2 3 5
4 1
1 8
3 2
7 1
2
4 1 3 9
4 5 3 2
1 7 8 5
8
9 2 8
3 7
6 4
3 7 1 2 4 6 5 8 9
6 9 8 3 5 1 2 7 4
5 2 4 8 9 7 6 1 3
4 6 2 5 7 3 1 9 8
9 1 7 6 2 8 3 4 5
8 3 5 9 1 4 7 2 6
2 8 3 1 6 9 4 5 7
1 4 9 7 3 5 8 6 2
7 5 6 4 8 2 9 3 1
7 3 6 4 5 9 2 1 8
5 1 8 2 7 6 4 9 3
9 2 4 8 1 3 7 5 6
6 4 2 7 3 5 1 8 9
3 8 9 1 4 2 5 6 7
1 5 7 9 6 8 3 2 4
2 6 5 3 9 4 8 7 1
8 7 3 6 2 1 9 4 5
4 9 1 5 8 7 6 3 2
1 4 5 7 9 2 6 8 3
8 2 9 6 4 3 7 5 1
6 7 3 8 1 5 4 9 2
9 1 4 5 6 7 2 3 8
2 6 7 3 8 1 9 4 5
3 5 8 4 2 9 1 6 7
5 8 6 1 7 4 3 2 9
7 3 2 9 5 6 8 1 4
4 9 1 2 3 8 5 7 6
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er miðvikudagur 31. ágúst,
243. dagur ársins 2011
Orð dagsins: Faðir, gjör mig nú dýr-
legan hjá þér með þeirri dýrð, sem ég
hafði hjá þér, áður en heimur var til.
(Jh. 17, 5.)
Víkverji hefur verið þokkalega ið-inn við að fara á völlinn í sumar.
Hann öskrar ekki mikið, klappar
vonandi af nægilegri ákefð til að það
teljist ekki kampavínsklapp og hefur
svona rétt á meðan á leiknum stend-
ur hæfilega óbeit á þeim, sem eru í
öðruvísi treyjum, án þess þó að
burðast mikið um með slíkan far-
angur utan vallar. Víkverji horfir
líka af og til á fótboltaleiki, sem fara
fram í útlöndum, en þá fyrir framan
sjónvarpsviðtæki, og finnst þá
stundum að leikurinn hafi í áranna
rás glatað einhverju af ljóma sínum,
en reynir að bægja slíkum hugs-
unum frá vegna þess að honum
finnst þrátt fyrir háan aldur of
snemmt að gerast önugt gamal-
menni.
x x x
Víkverja var hins vegar skemmtþegar hann rakst á hugleið-
ingar um fótbolta í nýjustu bók Juli-
ans Barnes (mun ekki skyldur John
Barnes), The Sense of an Ending.
Söguhetjan fær ekki að passa barna-
barnið sitt og dóttir hans segir við
hann að hann geti farið með dreng-
inn á völlinn þegar hann verði eldri.
„Einmitt, gigteygur afinn í stúkunni
að leiða drenginn inn í leyndardóma
knattspyrnunnar: hvernig eigi að
fyrirlíta fólk í öðruvísi litum treyj-
um, hvernig eigi að þykjast meiddur,
hvernig eigi að snýta sér á vellinum
– sjáðu, vinur, þú ýtir þéttingsfast á
aðra nösina til að loka henni og
sprengir græna slímið út úr hinni.
Hvernig eigi að vera hégómlegur á
allt of háum launum og eiga bestu
árin að baki áður en skilningur vakn-
ar á því um hvað lífið snýst. Auðvitað
hlakka ég til að fara með Lucas á
völlinn.“
x x x
Sumt af því, sem Barnes lýsir íþessum stutta kafla, á einnig við
um íslenska knattspyrnu, til dæmis
plagsiðurinn að láta sig detta við
minnstu snertingu og gera sér upp
meiðsli. Íslenskir fótboltamenn eru
hins vegar síður en svo yfirborgaðir
– þeir hljóta eiginlega að teljast und-
irborgaðir og óspilltir af auðfengnu
fé. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 hreyfingarlausa, 8
setur, 9 hæfileikinn, 10 eldi-
viður, 11 víðáttu, 13 flanaði,
15 rok, 18 svikull, 21 ekki
gömul, 22 endar, 23 synji, 24
meta á ný.
Lóðrétt | 2 illkvittni, 3 heykv-
íslar, 4 gretta sig, 5 slitna, 6
krampakast, 7 röski, 12
stúlka, 14 veiðarfæri, 15 vers,
16 fárviðri, 17 smásilungs, 18
hótum, 19 illt, 20 kyrrðin.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 volks, 4 fíkja, 7 dómur, 8 ömmur, 9 ger, 11 aurs, 13
saur, 14 álinu, 15 sjór, 17 mett, 20 sló, 22 nakin, 23 vinda, 24 af-
máð, 25 tíðka.
Lóðrétt | 1 vodka, 2 lemur, 3 sorg, 4 fjör, 5 komma, 6 aðrar, 10
erill, 12 sár, 13 sum, 15 sinna, 16 óskum, 18 ennið, 19 trana, 20
snið, 21 óvit.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Kraftaverk. S-Enginn.
Norður
♠Á
♥G73
♦ÁK842
♣D1043
Vestur Austur
♠KG10952 ♠D8743
♥852 ♥109
♦9 ♦D106
♣G82 ♣K96
Suður
♠6
♥ÁKD64
♦G753
♣Á75
Suður spilar 6♥.
Suður opnar á 1♥, vestur hindrar í
2♠, norður hvetur til stórræða með
3♠ og austur fórnar í 4♠. Þessi stig-
mögnun hefur örvandi áhrif á suður,
hann spyr um ása og veður svo í
slemmu. Útspilið er ♦9.
Málið er grafalvarlegt ef tígulnían
er ein á ferð, eins og líklegt má telj-
ast. Minni háttar kraftaverkalega
gæti þó bjargað slemmunni. Legan
góða felst í því að vestur eigi þrjú
tromp og ♣G, en austur ♣K.
Sagnhafi drepur á ♦Á, tekur ♠Á
og tvö tromp. Spilar síðan tígli að
kóngnum. Trompi vestur fer hinn
náttúrulegi slagur á ♦D fyrir lítið,
auk þess sem vestur væri þá illa
endaspilaður. Vestur hendir því
væntanlega í slaginn. Sagnhafi drep-
ur þá á ♦K, spilar enn tígli og enda-
spilar nú austur.
31. ágúst 1805
Steinunn Sveinsdóttir frá Sjö-
undá á Rauðasandi dó í tugt-
húsinu í Reykjavík, 36 ára.
Hún var dysjuð við alfaraleið á
Skólavörðuholti og grjóti
kastað að dysinni, Steinkudys.
Vegna grjótnáms 110 árum
síðar voru bein hennar flutt í
Hólavallagarð.
31. ágúst 1919
Listvinafélag Íslands efndi til
fyrstu almennu íslensku list-
sýningarinnar í Barnaskól-
anum í Reykjavík. Á sýning-
unni voru níutíu listaverk eftir
sautján listamenn. „Hver mað-
ur fer þaðan betri og auðugri
en hann kom,“ sagði í Vísi.
31. ágúst 1947
Septembersýningin var opn-
uð. Þar sýndu átta listmálarar
og tveir myndhöggvarar, sem
síðar voru nefndir Septem-
hópurinn.
31. ágúst 1980
Silfursjóður, að öllum lík-
indum frá landnámsöld, fannst
við Miðhús á Fljótsdalshéraði.
Fjórtán árum síðar var mikið
deilt um aldur silfursins.
31. ágúst 1994
Lengstu viðureign íslenskrar
skáksögu lauk með jafntefli
eftir 183 leiki. Þetta var skák
Jóhanns Hjartarsonar og Jóns
Garðars Viðarssonar á Skák-
þingi Íslands í Vestmanna-
eyjum. Eldra met var frá 1988,
163 leikir.
31. ágúst 2008
Heimildarkvikmyndin Kjöt-
borg hlaut Silfurrefinn, verð-
launagrip heimilda- og stutt-
myndahátíðar í Reykjavík.
Áður hafði hún hlotið verð-
laun á Skjaldborgarhátíðinni á
Patreksfirði.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist …
Tvíburasysturnar Guðrún og Kristín Jóhannes-
dætur eru fimmtugar í dag. Guðrún býr á Akur-
eyri og Kristín í Reykjavík og Guðrún segir að hún
ætli ekki að halda sérstaklega upp á afmælið en
þær verði í auknu símasambandi. Þær spjalli oft
saman mörgum sinnum á dag og í dag byrji þær á
því að tala saman og ljúki deginum á sama hátt.
„Ég tek mér frí úr vinnunni í einn dag í tilefni
dagsins og verð með börnunum mínum og barna-
barni í rólegheitum,“ segir Guðrún. „Ég hef aldrei
haldið upp á afmælið mitt og það er fínt að vera í
rólegheitum heima.“
Guðrún er læknafulltrúi við geðdeild Sjúkrahússins á Akureyri.
Hún aðstoðar dóttur sína við hundarækt og segir að því megi segja að
frítíminn fari að mestu í hundana. Auk þess hafi hún mjög gaman af
því að lesa og sé í raun alæta á bækur. „Ég hef mjög gaman af því að
fara á bókasafnið, sækja mér bækur og fara heim og lesa,“ segir hún.
Vinnufélagar Guðrúnar gáfu henni ávísun upp í ferð til útlanda í af-
mælisgjöf. „Hún er ekki af verri endanum og nú þarf ég bara að finna
mér ferð,“ segir hún og horfir einna helst til Ungverjalands. „Ég
elska að sitja úti á kaffihúsi og horfa á mannlífið.“ steinthor@mbl.is
Guðrún Jóhannesdóttir 50 ára í dag
Frítíminn fer í hundana
Hlutavelta
Berglind Magnús-
dóttir, Kristín Magn-
úsdóttir, Magnús Már
Magnússon, Marta
Þormóðsdóttir og
Sigurður Patrik Fjal-
arsson söfnuðu 24.924
kr. með tombólu sem
þau héldu við Úlfars-
fell og Eiðistorg og
gáfu Rauða krossi Ís-
lands.
Flóðogfjara
31. ágúst Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 1.30 -0,1 7.35 4,3 13.47 -0,1 19.53 4,4 6.07 20.50
Ísafjörður 3.38 -0,1 9.34 2,4 15.54 0,0 21.47 2,5 6.04 21.03
Siglufjörður 5.58 -0,0 12.15 1,4 18.05 0,0 5.47 20.46
Djúpivogur 4.45 2,4 10.59 0,1 17.08 2,4 23.17 0,2 5.35 20.22
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Skoðanir þínar (og þú hefur margar
núna) geta hjálpað öðrum – en bara mót-
tækilegu fólki. Taktu af skarið í óleystri deilu.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Mundu að öllu frelsi fylgir ábyrgð og
að frelsi þitt nær aðeins að garði granna
þíns. Ef þú gætir þess að halda þér vakandi
munu ást og auðæfi falla þér í skaut.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú skalt leggja harðar að þér í
vinnu til þess að geta slakað betur á þegar
heim er komið. Gefðu vinum þann tíma sem
þú hefur aflögu en gerðu samt ekki þeirra
vandamál að þínum.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú getur komist að óvæntum leynd-
armálum í dag. Einhver veitir þér upplýs-
ingar sem kollvarpa framtíðaráformum þín-
um.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú átt innihaldsríkar samræður við for-
eldra þína í dag. Samskipti skapa ekki bara
frið, heldur felast í þeim bestu augnablik
lífsins.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Reyndu að bíta á jaxlinn og ljúka
verkefnum sem þér eru falin. Eitthvað neyðir
þig til þess að endurmeta stöðu mála.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú íhugar atburði sem gerast fyrir
framan þig, en líka tilfinningarnar á bak við
þá. Maður getur ekki bæði unnið mikið og
skemmt sér alla nóttina.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Búðu til lista yfir ólokin verkefni
og reyndu að ljúka þeim á tilsettum tíma.
Léttu af þér okinu við góðan vin og þú munt
sjá veröldina í nýju og betra ljósi.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Djúpt innra með þér er vera sem
langar til þess að hægja á öllu. Jafnvel þótt
allir reyni að tala af skynsemi er hætt við
misskilningi. Góður vinur er gulli betri.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú hefur ástæðu til að fylgjast vel
með einhverjum sem er tortrygginn í þinn
garð. Góðar fréttir berast frá útlöndum.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Ef þú værir smiður myndir þú
negla saman meistaraverk í dag. Nú eru skil-
yrði hagstæð til framkvæmda.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Það er engum öðrum að kenna en
þér að þér leiðist þessa dagana. Reyndu að
halda aftur af þér í ræktinni.
Stjörnuspá
1. Rf3 Rf6 2. c4 g6 3. d4 Bg7 4. g3 0-0 5.
Bg2 d5 6. cxd5 Rxd5 7. 0-0 Rb6 8. Rc3
Rc6 9. e3 e5 10. d5 Ra5 11. e4 c6 12. Bg5
f6 13. Be3 cxd5 14. Bxb6 Dxb6 15. Rxd5
Dd8 16. Hc1 Hf7 17. b4 Rc6 18. b5 Ra5
Staðan kom upp á franska meist-
aramótinu í opnum flokki í Caen, Frakk-
landi. Laurent Fressinet (2.698) hafði
hvítt gegn Sebastien Feller (2.666). 19.
Rc7! Dxd1 20. Hfxd1 Hb8 21. Hd8+ Hf8
svartur hefði einnig tapað eftir 21. … Bf8
22. Rd5. 22. Re8! Rc4 23. Hxc4 Be6 24.
Hxb8 Bxc4 25. Bf1 Bxa2 26. Rd2 Kh8
27. Bc4 Bh6 28. Bxa2 Bxd2 29. Bd5 a6
30. b6 Ba5 31. Bxb7 Bxb6 32. Bxa6 Bd4
33. Hc8 og svartur gafst upp. Á mótinu
tefldu 12 stórmeistarar og varð Maxime
Vachier-Lagrave (2.722) þeirra hlut-
skarpastur með sjö vinninga af 11 mögu-
legum en fjórir skákmenn deildu öðru
sætinu með 6½ vinning.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik