Morgunblaðið - 31.08.2011, Page 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2011
Conan er kominn aftur ogþað verður að segjasteins og er að maðursaknar Arnolds
Shcwarzeneggers. Þessi nýi sem
leikur Conan, Jason Momoa, kann
reyndar jafnlítið að leika og
Shcwarzenegger og hefur það sem
líklegast skiptir mestu máli; mjög
mikið magn af vöðvum. En hann
hefur voða lítinn sjarma, er svona
súkkulaðisætur og ekki nógu hrár í
hlutverk Conans. En það eru fínar
tæknibrellur í myndinni og mikið
af blóði, þannig að fólk sem kaupir
sig inn á hana mun fá mest af því
sem auglýsingarnar lofa.
Fyrsta myndin um Conan kom
út árið 1982 þegar Conan-æði gekk
um Vesturlönd. Myndin náði mikl-
um vinsældum en mynd númer tvö
var mun síðri og naut lítilla vin-
sælda. Þessi nýjasta mynd hefur
ekkert framyfir fyrstu myndina um
Conan nema blóðið og brellurnar.
Sagan
Sagan hefst í þorpi Cimmeriu-
manna, Conan fæðist í miðjum bar-
daga. Foreldrar hans eru upp-
teknir við að drepa annað fólk
þegar hríðirnar koma og vatnið
fer. Móðirin særist sjálf í bardag-
anum og tekur sér pásu á vígvell-
inum til að fæða króann. Hann
reynist hinn mesti vígamaður. Fað-
ir hans er höfðingi þorpsins og
sendir strákana óvopnaða upp í
fjallshlíð til að leika sér og þá upp-
hefst ansi vel heppnað atriði í
myndinni hjá tíu ára Conan. Ógn-
arlegir vígamenn sitja fyrir þeim
og tíu ára strákurinn drepur þá
alla með hrottalegum hætti. Marg-
lemur höfði þeirra við stein og
sker síðan höfuðið af þeim öllum
og kemur með heim til pabba síns.
En þótt Conan alist þarna upp í
paradís stríðsmanna, þar sem eini
þorstinn sem Cimmeríumenn finna
fyrir er blóðþorsti eins og faðir
Conans segir, verður hrun í para-
dís þegar Cimmeríumenn eru sjálf-
ir drepnir í stað þess að þeir fái að
standa einir að drápunum. Þorp
Conans er þurrkað út og faðir hans
aflífaður af Khalar Zym sem ásamt
seiðkonunni, dóttur sinni, og her
sem þau stýra stefnir að því að ná
alheimsvöldum. Til þess setur hann
grímu saman og ganga herleið-
angrar hans fyrst út á það en síðan
þarf hann að koma hreinu blóði í
grímuna og mun þá öðlast æðri
mátt til heimsyfirráða.
Conan sem er sá eini sem slepp-
ur undan því á lífi þegar Zym eyðir
þorpinu og elst upp á flakki. Vinn-
ur fyrir sér sem bardagamaður og
sjóræningi. Hann hefur svarið þess
eið að hefna föður síns og ætt-
menna og á endanum hittast þeir
Conan og Zym aftur. Það er ein-
mitt þegar Zym á lítið eftir til að
öðlast mátt í grímuna, því hann er
búinn að finna stúlkuna með hreina
blóðið og á aðeins eftir að koma
blóðinu í grímuna til að öðlast hinn
mikla mátt, en þá grípur Conan
inn í atburðarásina.
Framleiðendur þessarar myndar
lögðu áherslu á að hún væri ekki í
tengslum við hinar myndirnar, ekki
framhald af þeim, þótt umfjöll-
unarefnið sé Conan og atburða-
rásin gerist á Hyboríutímanum. En
Robert E. Howard, sem samdi sög-
urnar á sínum tíma, bjó til ímynd-
aðan heim og ímyndaðan tíma sem
átti að vera á milli þess þegar Atl-
antis sökk í sæ og þar til saga sið-
menningar hefst. En sagan er
samt í klassískum Conan-stíl; með
fáklæddu stúlkunni sem hann
bjargar, hinum miklu tröllum og
hinu vonda fólki sem hann þarf að
drepa og góðum endalokum. Ekki
er mikill húmor í myndinni en best
hefði verið að þeir hefðu sleppt
honum alveg, því þegar þeir notast
við hann er það hrikalega mis-
heppnað. Lítið er um leik í mynd-
inni, ekki einu sinni Ron Perlman
gerir sitt almennilega en er líklega
skástur. Það eru samt mörg mjög
fín atriði í myndinni og þeir sem
kaupa sig inn á Conan gera það
væntanlega ekki vegna leiklistar-
áhuga.
Barbarískt blóðbað
Laugarásbíó, Háskólabíó og
Borgarbíó
Conan the Barbarian bbnnn
Leikstjóri er Marcus Nispel og aðalleik-
arar Jason Momoa, Ron Perlman og
Rose McGowan.
BÖRKUR
GUNNARSSON
KVIKMYNDIR
Vöðvatröll Þótt ekki vanti vöðvana á nýja Conan-goðið er þessi súkku-
laðisæti maður ekki heppilegur í hlutverk goðsins.
Undanfarin ár hefur skiln-ingur og viðurkenningaukist á sjúkdómum,fötlun og öðrum höml-
um, sem hefð var fyrir að afgreiða
sem hreina óþekkt eða óþolandi
sérvisku. Asperger-heilkennið er
eitt af þessu en það er eitt af því
sem hefur verið sett á einhverfu-
rófið eins og það er kallað í þessari
bók sem er skrifuð af hinum breska
Luke Jackson. Hann var einungis
þrettán ára þegar hann setti bókina
saman og árangurinn er enn merk-
ari í ljósi þess að Jackon er sjálfur
haldinn téðu heilkenni. Bókin vakti
mikla lukku í Bretlandi þegar hún
kom þar út 2002 og
hefur Guðni Kol-
beinsson nú snarað
henni yfir á hið yl-
hýra af sinni vel
þekktu natni og
næmi.
Bókin er nefni-
lega í nokkurs kon-
ar talmálsstíl og
nær Guðni vel að
fanga léttúðugan,
kíminn og oft og
tíðum hispurslausan
tón bókarinnar.
Það er eitthvað
eðlilegt og aðgengi-
legt við það hvernig
Jackson stílar bók-
ina og fyrr en varir
er maður kominn á kaf í heim ein-
staklings með asperger-heilkenni.
Hér erum við auðvitað komin að
mesta mikilvægi bókarinnar, hér er
aðili að gefa skýrslu beint úr skot-
gröfunum, fremur en að fræðingur
eða aðstandandi sé að lýsa. Jackson
gerir sér furðuvel grein fyrir stöðu
sinni, er búinn að
rannsaka málið í
þaula og eftir því
sem bókinni vindur
fram fáum við inn-
sýn inn í heim
þeirra sem stríða
við þetta einkenni.
Jackson skreytir
svo allt það sem
kalla mætti sér-
fræðital með fyndn-
um athugasemdum
um sjálfan sig og
fjölskyldu sína.
Æðruleysi það sem
Jackson virðist búa
yfir er heillandi og
hann sýnir glöggt
fram á hversu
langt er hægt að komast í gegnum
þetta blessaða líf með húmor að
vopni. Jackson sýnir að sátt við
sjálfan sig og vöntun á gremju eða
biturð er sem leiðarljós fyrir alla
þá sem stríða við hömlun af hvers
kyns toga. Vel heppnuð bók í alla
staði.
Frík, nördar og asperger-heilkenni
bbbbn
Eftir Luke Jackson. Vaka-Helgafell 2011.
222 bls.
ARNAR EGGERT
THORODDSEN
BÆKUR
Frá þeim sem skilur þetta
Myndin Oldboy eftir Park Chan-
Wook varð fræg að endemum er hún
kom út árið 2004. Ofbeldið þótti æði
grafískt og söguþráðurinn vel súr.
Spike Lee ætlar nú að endurgera
myndina og er það hjartaknúsarinn
Josh Brolin sem fer með burðarrull-
una. Lee tekur við keflinu úr hönd-
um sjálfs Stevens Spielbergs en
hann tryggði sér réttinn á endur-
gerðinni árið 2008. Þá átti Will
Smith að leika aðalhlutverkið. Í
mynd Lees er svo talað um sjálfan
Christian Bale sem „vonda“ kallinn.
Það yrði nú svaðaleg sjón ef af yrði.
Reuters
Gamli gamli Josh Brolin.
Josh Brolin í Oldboy
Galdrakarlinn í Oz – forsalan hefst í dag!
Bjart með köflum (Stóra sviðið)
Fös 2/9 kl. 19:30 16.sýn Fös 9/9 kl. 19:30 18.sýn Fös 16/9 kl. 19:30 20.sýn
Lau 3/9 kl. 19:30 17.sýn Lau 10/9 kl. 19:30 19.sýn Lau 17/9 kl. 19:30 21.sýn
Listaverkið (Stóra sviðið)
Lau 1/10 kl. 16:00 2.sýn Sun 2/10 kl. 19:30 4.sýn
Lau 1/10 kl. 19:30 3.sýn Fös 7/10 kl. 19:30 5.sýn
Svartur hundur prestsins (Kassinn)
Sun 18/9 kl. 19:30 2.sýn Sun 25/9 kl. 19:30 5.sýn Sun 2/10 kl. 19:30 8.sýn
Fös 23/9 kl. 19:30 3.sýn Fös 30/9 kl. 19:30 6.sýn
Lau 24/9 kl. 19:30 4.sýn Lau 1/10 kl. 19:30 7.sýn
Hreinsun (Stóra sviðið)
Fös 21/10 kl. 19:30 2.sýn Fim 3/11 kl. 19:30 5.sýn Lau 19/11 kl. 19:30 8. sýn
Fim 27/10 kl. 19:30 3.sýn Fös 4/11 kl. 19:30 6.sýn
Fös 28/10 kl. 19:30 4.sýn Mið 9/11 kl. 19:30 7.sýn
Ballið á Bessastöðum (Stóra sviðið)
Sun 4/9 kl. 14:00 32.sýn Sun 18/9 kl. 14:00 34.sýn
Sun 11/9 kl. 14:00 33.sýn Sun 25/9 kl. 14:00 35.sýn
Fálkaorður og fjör - sýning fyrir alla fjölskylduna!
Verði þér að góðu (Kassinn)
Fös 2/9 kl. 20:00 Sun 4/9 kl. 21:00 Sun 11/9 kl. 19:30
Lau 3/9 kl. 21:30 Lau 10/9 kl. 19:30