Morgunblaðið - 31.08.2011, Side 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2011
Fjórði hluti sýningaraðar
Leifs Þorsteinssonar er til-
einkaður portrettljósmyndun
og stendur frá 3. september til
3. nóvember í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur. Um er að ræða
20 svarthvítar myndir, flestar
teknar í kringum 1980, af
helstu myndlistarmönnum
þjóðarinnar á þeim tíma.
Hluta af myndunum tók Leif-
ur fyrir bókina Íslensk list sem
gefin var út hjá bókaútgáfunni Hildi og kom út ár-
ið 1981 en útgefandi var Gunnar S. Þorleifsson. Á
sýningunni má sjá portrettmyndir allt frá Gunn-
laugi Scheving, Finni Jónssyni til Nínu Tryggva-
dóttur og Hildar Hákonardóttur.
Ljósmyndalist
Ljósmyndir Leifs
Þorsteinssonar
Nína
Tryggvadóttir
Komin er út bókin Prjónað úr
íslenskri ull fyrir áhugasamt
prjónafólk með uppskriftum að
flíkum úr íslenskri ull en jafn-
framt fræðandi bók fyrir þá
sem hafa áhuga á sögu hand-
verks og ullar. Í bókinni er í
fyrsta skipti rakin á einum stað
saga prjóns á Íslandi, allt frá
upphafi til nútímans.
Í bókinni er einnig að finna
65 uppskriftir sem valdar eru í
samstarfi við Ístex. Margar hverjar eru sígildar
uppskriftir og aðrar nýrri. Áhersla er lögð á lopa-
peysur en einnig eru uppskriftir að smærri við-
fangsefnum eins og húfum, sokkum, vettlingum
og treflum.
Bækur
Ullarbækur komn-
ar á markað
Prjónað úr ís-
lenskri ull.
Yfirlitssýning hefst á myndum
blaðaljósmyndarans Marcs
Ribouds hinn 3. september í
Ljósmyndasafni Reykjavíkur á
Tryggvagötu 15, 6. hæð. Hinn
franski Riboud er einna þekkt-
astur fyrir ítarlegar myndfrá-
sagnir sínar frá Austurlöndum
en hann var einn af fyrstu vest-
rænu ljósmyndurunum til að
komast inn í Kína eftir Menn-
ingarbyltingu Maós árið 1966. Sýningin spannar
50 ára tímabil en hann var strax kominn á mála
hjá umboðsskrifstofu Magnum árið 1953. Þar
kynntist hann ljósmyndurum eins og Robert Capa
og Henri Cartier Bresson, sem urðu lærifeður
hans í ljósmyndun.
Ljósmyndalist
Sýning á myndum
Marcs Ribouds
Mynd frá 1967.
Í dag, 31. ágúst klukkan 20 verða haldnir
kammertónleikar í bókasal Þjóðmenningar-
hússins. Þar kemur fram Kammertríó Kópa-
vogs, sem er skipað Martial Nardeau flautu-
leikara, Guðrúnu Birgisdóttur flautuleikara
og Peter Máté píanóleikara, en þremenning-
arnir hafa starfað lengi saman.
„Já, við Martial höfum starfað saman í
þrjátíu ár,“ segir Guðrún og hlær, áður en
hún bætir við: „Þetta hljómar eins og við
séum orðin 70 ára, en við byrjuðum mjög
ung að spila saman. Þegar við spilum með
píanói spilum við oftast með Peter Máté,
þannig hefur það verið síðastliðin 15 ár.“
Á efnisskrá þeirra fyrir hlé eru tvö ensk
prógrömm frá 19. öld eftir Samuel Wesley
og John Clinton. Verkin gaf Kammertríóið
út á hljómdiskinum Tapað – fundið árið
2010. Spurð hvers vegna þau hafi valið lög
af plötunni til spilunar segir hún að þau hafi
haft svo lítinn tíma til að kynna hana í fyrra
að þau hafi ákveðið að minna á hana. „Og
þar sem við ákváðum að vera í Þjóðmenn-
ingarhúsinu lá beinast við að hafa líka lög
sem sækja í þjóðararfinn,“ segir Guðrún. Á
dagskránni eru meðal annars Hugleiðing
um íslenskt þjóðlag eftir Tryggva Baldvins-
son, sex íslensk þjóðlög í útsetningu Snorra
Sigfúsar Birgissonar og lög eftir Emil Thor-
oddsen og Sigfús Halldórsson í útsetningum
Atla Heimis Sveinssonar. Auk þess leika þau
verkið Dropaspil eftir Þorkel Sigurbjörns-
son. Guðrún bendir á að öll tónlistin eftir
hlé er útsett fyrir listamennina sem spila.
„Þetta verður svona lof okkar til tónskáld-
anna, þau eru alltaf að semja eitthvað fyrir
okkur og eru voða góð við okkur,“ segir
hún. Að lokum vildi hún koma því á fram-
færi hvað það væri gaman að vera í Þjóð-
menningarhúsinu. „Það er svo mikið líf á
þessum elskulega stað,“ segir hún.
borkur@mbl.is
Töpuð og fundin tónlist spiluð í kvöld
Kammertríóið ætlar að sækja í þjóðararfinn
fyrst þau eru að spila í Þjóðmenningarhúsinu
24Stundir/G.Rúnar
Þjóðmenningarhúsið Þau Martial Nardeau, Guðrún Birgisdóttir og Peter Máté spila í kvöld.
Listasafn Reykjanesbæjar tók sl.
vetur þátt í norrænu listverkefni
ásamt Dalarnas Museum í Svíþjóð
og Haugesund Billedgalleri í Noregi
og verður afraksturinn sýndur á
sýningum í löndunum þremur í
haust. Íslenska sýningin Óvættir og
aðrar vættir verður opnuð á morgun
kl. 14 í Bíósal Duushúsa og er hluti
af dagskrá Ljósanætur, menningar-
og fjölskylduhátíðar Reykjanes-
bæjar. Á sýningunni verða verk eftir
börn frá löndunum þremur. Verk-
efnið gekk út á að hópur 12-14 ára
unglinga var fenginn til að mynd-
skreyta þjóðsögur úr heimahögun-
um og voru til þess notaðar grafísk-
ar aðferðir. Íslenski hópurinn kom
frá Myllubakkaskóla í Keflavík og
vann út frá sögunni Rauðhöfða undir
leiðsögn myndmenntakennarans
Sigríðar Ásdísar Guðmundsdóttur
og Elvu Hreiðarsdóttur, formanns
félagsins Íslenskrar grafíkur, en fé-
lagið hafði milligöngu um verkefnið.
Mynd-
skreyttu
þjóðsögur
Sýning á verkum
norrænna unglinga
Grafík Unglingar við listsköpun
sína, unnið út frá þjóðsögum
þriggja landa.
Fór svo að honum
varð að ósk sinni í
kjölfar viðtalsins! 32
»
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Sýning myndlistarkonunnar Val-
gerðar Guðlaugsdóttur, Dúkka,
verður opnuð á morgun kl. 18 í
Listasafni Reykjanesbæjar í Duus-
húsum og er hún hluti af menningar-
hátíð bæjarins, Ljósanótt, sem hald-
in verður um helgina.
„Ég er að velta fyrir mér tilvist
konunnar í samtímanum,“ segir Val-
gerður um sýninguna. Myndin á
boðskorti sýningarinnar er hins veg-
ar ekki mjög dúkkuleg, eins og Val-
gerður bendir á, óskýr mynd af ljós-
hærðri konu sem búin er að maka
varalit á varirnar á sér og hálft and-
litið. „Þetta er tvíeggjað, hvort kon-
ur séu einhverjar dúkkur eða hvað,“
segir Valgerður. „Ég vinn mikið með
kvenímyndina í nútímaþjóðfélagi í
list minni og þessi sýning er öll um
það. Ég er t.d. með ljósmyndaseríu
sem heitir „Sex dúkkur“, myndir af
mér og fimm vinkonum mínum þar
sem við erum allar farðaðar eins og
dúkkur með ljósar hárkollur.“
Konur steyptar í sama mót
Valgerður segir fólk hafa rekið
inn nefið á meðan hún var að setja
upp sýninguna og hún hafi tekið eft-
ir því sérstaklega að karlmenn hafi
haldið að konurnar á ljósmyndunum
fyrrnefndu, dúkkumyndunum, væru
allar sama konan. „Það er það sem
ég var að spá í, þegar ég var að gera
seríuna, hvort hægt væri að steypa
allar þessar konur í sama mót með
því að farða þær eins og svo eru þær
með eins hárkollur,“ segir Val-
gerður. Hins vegar hafi sumar
þeirra kvenna sem rekið hafi inn
nefið haldið að karlmaður væri á
meðal fyrirsætnanna. Þær hafi hald-
ið að hún væri að stríða sýningar-
gestum. „Karlarnir sjá bara ljóst hár
og líkt make-up og segja bara „já, já,
þetta er allt sama konan“. Konurnar
fara dýpra í þetta,“ segir Valgerður.
Hún vinnur í fleiri miðla en ljós-
myndun, m.a. skúlptúra, vatns-
litamyndir og klippimyndir og segist
líta á sig sem pop-feminista, notar
tilbúna hluti í bland við aðra úr eigin
hugmyndaheimi.
Markaðssettur kvenleiki
Í texta eftir Þóru Þórisdóttur í
sýningarskrá Dúkku segir m.a. að
feminismi í listum hafi verið dottinn
úr tísku um 1990 þegar Valgerður
var að hefja listnám. Svokallaður
póstfeminismi hafi verið tekinn við
þar sem kenningar andfeminista
hafi náð ákveðnu vægi um leið og
feminismi sem slíkur hafi verið
smættaður inn í heildarhugmynda-
fræði póstmódernismans. Eftir það
hafi áberandi feminísk list átt undir
högg að sækja, þótt úrelt eða þreytt
um leið og „eðlislægur kvenleikinn“
hafi verið endurframleiddur og
markaðssettur sem aldrei fyrr. Á
sýningunni velti Valgerður því fyrir
sér hvernig konan reyni að uppfylla
þá ímynd sem gefin sé af henni í
samfélaginu, hvernig hún felli sig
inn í munstrið sem henni sé gefið en
einnig hvernig hún geti verið sinn
eigin skapari.
Sýningin stendur til 16. október,
opið virka daga kl. 12-17 og um helg-
ar kl. 13-17. Aðgangur er ókeypis.
Eru konur einhverjar dúkkur?
Sýningin
Dúkka í Listasafni
Reykjanesbæjar
á Ljósanótt
Ljósmynd/Valgerður Guðlaugsdóttir
Dúkkumynd Ein ljósmyndanna í syrpunni „Sex dúkkur“ sem er hluti sýn-
ingarinnar Dúkka sem opnuð verður á morgun í Listasafni Reykjanesbæjar.