Morgunblaðið - 28.09.2011, Side 1

Morgunblaðið - 28.09.2011, Side 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 8. S E P T E M B E R 2 0 1 1  Stofnað 1913  227. tölublað  99. árgangur  NORRÆNI TÍSKU- TVÍÆRINGURINN Í SEATTLE FLUGAN SEM STÖÐVAÐI STRÍÐIÐ ATVINNU- OG NÝ- SKÖPUNARHELGI Á SUÐURNESJUM BARNABÓKAVERÐLAUN 29 FRUMKVÖÐLASTARF 10TÍSKA, HÖNNUN, MENNING 32 Ómar Friðriksson Ylfa Kristín K. Árnadóttir Stjórn og formenn svæðisdeilda Landssambands lögreglumanna (LL) funduðu til kl. hálftólf í gær- kvöldi um kjaramál í kjölfar niður- stöðu gerðardóms. Um langan hita- fund var að ræða þar sem lýst var yfir mikilli óánægju og reiði með nið- urstöðu dómsins. Niðurstaðan leið- rétti ekki þann mun sem væri á grunnlaunum lögreglumanna og þeirra viðmiðunarstétta sem lagt var upp með þegar verkfallsréttur lög- reglumanna var afnuminn með lög- um. Að sögn Snorra Magnússonar, formanns LL, munu svæðisdeildir sambandsins halda félagsfundi um allt land á föstudagskvöld til að ræða frekar stöðu mála og þá vaxandi reiði sem er innan raða lögreglu- manna. Haraldur Johannessen ríkislög- reglustjóri segir lögreglustjóra venjulega ekki skipta sér af kjara- deilu lögreglumanna við fjármála- ráðuneytið. „Hins vegar verð ég að segja alveg eins og er að mín samúð liggur lögreglumannamegin í þess- ari deilu.“ Lögreglumenn í umdæmum víðs vegar um landið ætla að segja sig úr óeirðasveitum lögreglunnar eða hafa þegar gert það vegna óánægju með launakjörin og niðurstöðu gerðar- dóms. Síðdegis í gær höfðu yfir 40 liðsmenn sveitanna sagt sig úr þeim. Lögreglumenn fá ekki greitt sér- staklega fyrir verkefni óeirðasveita eða þjálfunina sem þeim fylgir. Snorri segir að það sé skilningur LL að hverjum lögreglumanni sé frjálst að segja sig frá vinnu í óeirða- sveitunum. Störfin séu ekki skil- greind í kjara- eða stofnanasamn- ingum LL þrátt fyrir óskir sambandsins um þá skilgreiningu. Við stofnun óeirðasveitanna hafi lög- reglumönnum verið í sjálfsvald sett hvort þeir sóttu um að starfa í þess- um hópum og því líti LL svo á að þeim hinum sömu sé heimilt að segja sig úr þeim. Lögreglan standi sína plikt „Þessi viðbrögð lögreglumanna eru afleiðing af því að þeir telja að þeirra sjónarmið nái ekki fram að ganga í kjarabaráttunni og ég hef fullan skilning á því,“ segir Haraldur Johannessen. „Ég reikna að sjálf- sögðu með því að lögreglan standi sína plikt eins og hún hefur ætíð gert en það þarf að hafa í huga að lögreglumenn eru ekki skyldugir til að vera í óeirðasveitum en þeir eru hins vegar skyldugir til að sinna sínu starfi og ég reikna að sjálfsögðu með því að lögreglan í landinu geri það.“ Vaxandi ólga og reiði innan lögreglunnar  Munu halda félagsfundi um allt land  Um 40 sagt sig úr óeirðasveitunum  Ríkislögreglustjóri lýsir samúð sinni Morgunblaðið/Júlíus Öryggisbúnaður Öryggisskildir óeirðasveitar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu standa tilbúnir til notkunar ef á þarf að halda, t.d. við setningu Alþingis næstkomandi laugardag. Morgunblaðið/Ómar Mótmæli Lögreglan hafði mikinn viðbúnað við setningu Alþingis á Aust- urvelli fyrir ári. Mun lögregla ekki standa heiðursvörð að þessu sinni. M„Megn óánægja og reiði“ » 6 Tugir lögreglumanna hafa sagt sig úr óeirðasveitum en alls eru á þriðja hundrað menn í þessum sveitum um allt land. Allt að 80 lögreglumenn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu eru í óeirðasveitinni auk allra meðlima sérsveitar ríkislögreglustjóra. Hafa þeir boðað til fundar í dag en voru í gær beðnir um að bíða með ákvarðanir um uppsagnir fram að fundinum. Í sveitinni á Suðurnesjum eru 26 lögreglumenn, sem hafa sagt þeim störfum sínum lausum, sem og 9 starfsbræður þeirra í Eyjafirði. Á bilinu 8-9 lögreglumenn í hverju lögregluumdæmi á lands- byggðinni tilheyra óeirðasveitum en fyrir utan Suðurnesin og höfuborgar- svæðið eru umdæmi tólf talsins. Tugir sagt sig úr sveitunum Á ÞRIÐJA HUNDRAÐ Í ÓEIRÐASVEITUM LÖGREGLUNNAR Óeirðasveit á æfingu.  Tvær rannsóknarnefndir hafa tekið til starfa á vegum Alþingis á grundvelli laga um slíkar nefndir sem tóku gildi í sumar. Önnur þeirra mun rannsaka aðdraganda og orsakir falls sparisjóðanna en hin starfsemi Íbúðalánasjóðs á ár- unum 2004 til 2010. Samkvæmt lögunum eru nefndunum tveimur veittar víðtækar heimildir til þess að afla sér upplýsinga um rann- sóknarefni sín og verður öllum, bæði opinberum stofnunum, lög- aðilum sem og einstaklingum skylt að láta nefndunum í té þau gögn sem þær kunna að fara fram á með þeirri einu takmörkun að lög- menn, endurskoðendur eða aðrir aðstoðarmenn verði ekki krafðir upplýsinga sem þeim hafi verið trúað fyrir, nema með leyfi þess sem í hlut eigi. M.a. er nefndunum heimilt að birta upplýsingar sem varðað hafa bankaleynd, sé ástæða til. »12 Morgunblaðið/Árni Sæberg Rannsóknir Nefndir kynntar í gær. Rannsóknarnefndir fá víðtækar rann- sóknarheimildir  Ekkert fæst upp í fimm milljarða króna kröfur á tvö þrotabú eignar- haldsfélaga í eigu fyrrverandi starfsmanna Icebank, Aðalsteins G. Jóhannssonar og Sigurðar Smára Gylfasonar. Um var að ræða lán sem félögin tóku til kaupa á hlutabréfum í Ice- bank, fyrir tvo og hálfan milljarð króna í hvoru tilviki. »14 Ekkert upp í kröfur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.