Morgunblaðið - 28.09.2011, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 28.09.2011, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2011 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Það eru um-brotatímarbæði nær og fjær. Í Þýska- landi gerðist á dögunum sá ein- stæði atburður að forseti stjórnlagadómstóls landsins varaði ríkisstjórn þess við því að reyna að læðast bak- dyramegin framhjá nýlegum úrskurði dómstólsins um Evr- ópumálin. En svo einstök sem þessi aðvörun þýska dóms- forsetans virðist, þá sannast enn að fátt er nýtt undir sólinni. Því bakdyraleiðin var einmitt sú leið sem íslensk ríkisstjórn kaus að fara eftir úrskurð Hæstaréttar um kosningar til stjórnlagaþings. Það var stjórn- skipulegt skaðræðisverk. Og á Íslandi er sá einstæði at- burður að gerast að ríkis- stjórnin og forysta hennar í þinginu er komin á hlaup með sjálfa þingsetinguna. Og það al- varlega er að það er vegna óstjórnlegs ótta sem ríkis- stjórnin flýtir þingsetningu Al- þingis. Þvert gegn ófrávíkjan- legri venju er í ofboði ákveðið að hafa þingsetningu að morgni dags vegna þess að ríkis- stjórnin óttast íslenskan al- menning. Lögreglan virðist hafa kynnt ríkisstjórninni að hún sjái ekki ástæðu til að standa að sér- stökum heiðursverði við þing- setninguna eins og jafnan hefur tíðkast. Og ríkisstjórnin sem komið var á með potta- glamursaðgerðum, sem ýmsir núverandi ráðherrar ýttu undir með ráðum og dáð, flýr nú al- menning eins hratt og fætur toga. Núverandi ráðherrar, sem sumir gengu fussandi og sveiandi um þinghúsið fyrir rúmum tveimur árum, þá óbreyttir þingmenn, og hneyksluðust yfir því að ör- þreyttir lögreglumenn fengju að athafna sig þar innan húss og fá þar stundarskjól, skjálfa nú á beinunum og segjast sann- færðir um að sömu lög- reglumenn muni passa þá sjálfa fyrir illa sviknum almenningi. Skýringar þær sem gefnar hafa verið á flýtingu þingsetningar eru mjög ótrúverð- ugar. Raunar er naumast of- sagt að þær séu bersýnilega ósannar og út í hött. Það er ekki meiri ástæða nú en endra- nær „að koma þingmönnum inn í helgina“ og breyta frá hefðbundnu formi þingsetn- ingar. Enda munar engu. Nú- verandi ríkisstjórn er fræg fyrir athafna- og aðgerðarleysi sitt og þrír klukkutímar á átta mánaða starfstíma til eða frá eru ekki líklegir til að breyta því. Fróðlegt væri að fá upplýst hvort stjórnarandstaðan hefði verið með ríkisstjórninni í að leggja á ráðin um fyrir- komulag flóttans frá íslensk- um almenningi. Það er orðið sérstakt og af- markað vandræðamál í stjórn- sýslunni hve sitjandi forsætis- ráðherra virðist illa að sér um stöðu og eðli mála. Nú síðast bregst hún við þeim ógöngum sem kjaramál lögreglumanna hafa ratað í með því að segja að ríkisstjórnin megi ekki „grípa inn í gerðardóminn“ sem féll. Vandamálið er ekki gerðar- dómurinn. Vandamálið er að ríkisstjórnin stefndi máli lög- reglumanna úr farvegi samn- inga og í gerðardómsmeðferð. Og þar knúði hún á um að lög- reglumenn fengju engar raun- leiðréttingar sem máli skipta. Því er fjarstæðukennt af odd- vita ríkisstjórnarinnar að skýla sér nú á bak við niður- stöðu gerðardómsins. Frá þessum staðreyndum getur ríkisstjórnin ekki flúið. Og það er ekki endilega víst heldur að hún nái að komast undan á flótta frá fólkinu í landinu. Það er langflest búið að átta sig á að ríkisstjórnin sjálf er hið raunverulega ljón á vegi bætts hags þess jafnt í bráð sem lengd. Það er dapurlegt að horfa upp á ríkis- stjórnina hrekjast um á flóttanum} Flóttinn mikli Gríðarleg fjár-festingarþörf er í íslenskum sjávarútvegi en samt sem áður liggur fjárfesting í greininni niðri. Sama staða hefur verið uppi allt frá því núverandi ríkis- stjórn komst til valda. Afleið- ingarnar eru mun meira at- vinnuleysi en ella væri í greinum sem þjónusta sjávar- útveginn. Hvernig ætli standi á þessu? Forsætisráðherra telur að þetta sé atvinnulífinu að kenna og komi rík- isstjórninni ekki við. Flestir aðrir átta sig á að þetta ástand er bein afleiðing af sjávarútvegsstefnu ríkis- stjórnarinnar. Forsætisráð- herra losnar ekki við ábyrgð- ina á þessu með því að reyna að skella skuldinni á aðra. Forsætisráðherra telur að verk ríkis- stjórnarinnar hafi engar afleiðingar} Fjárfestingar sem bíða F yrir stuttu fór ég að hjóla í vinn- una mér til skemmtunar. Það var líka skemmtilegt, meira að segja miklu skemmtilegra en ég hafði búist við, og líka fróðlegt. Nokkr- ir molar sem mig langar að deila með þér, ágæti lesandi: Vegalengdir eru afstæðar Vegalengd er fall af vilja, því meiri vilji því minna máli skipt- ir vegalengdin; ef viljinn er til staðar er engin vegalengd of löng. Það skýrir að nokkru hvers vegna fólk leggur upp í það að hjóla hringinn í kringum landið og sumir oftar en einu sinni og oftar en tvisvar (þetta helst í hendur við þau sannindi að geta er fall af vilja; því meiri sem viljinn er því meiri er getan, eða það lærði ég í það minnsta þegar ég byrjaði á sjónum). Veður er mismunandi gott Ég hef ekki lent í því að hjóla í vondu veðri, en það hefur vissulega verið misgott. Líkt og ég lærði á sjónum þá er best að vinna sér til hita – í stað þess að fara kappklæddur af stað þarf maður bara að skjálfa rétt á meðan farið er af stað og svo sér innbyggða miðstöðin um restina. Þessu tengt má geta þess að á morgnana er ríkjandi norðaustanátt og síðdegis ríkjandi suðvestanátt – ég er nefnilega alltaf með vindinn í fangið á leiðinni úr Hafnarfirði upp að Rauðavatni og eins á heimleiðinni. Brekkan er vinur þinn Kunningi minn úr borgar- pólitíkinni sagði mér eitt sinn frá því að borgarfulltrúar hefðu samþykkt í borgarstjórn fyrir löngu að alltaf þeg- ar stofnleiðir væru lagðar yrði gert ráð fyrir hjólabraut- um en embættismenn hefðu hunsað þá sam- þykkt enda myndi enginn hjóla vegna veðurs og mishæða. Eins og ég nefndi er eiginlega aldrei vont veður á Íslandi og brekkurnar eru eitt það besta við hjólamennskuna, þær eru persónuleg áskorun sem gaman er að sigrast á og síðan gefa þær innspýtingu af endorfíni sem eykur enn ánægjuna. Konur gefa ekki séns Frá því ég fór að hjóla í vinnuna hef ég farið 700 sinnum yfir gatnamót og þar af 385 sinnum yfir gatnamót sem eru ekki ljósastýrð. Ekki er alltaf bíll á leið um viðkomandi gatnamót, en mér telst svo til að það hafi þó gerst ríflega 200 sinnum. Af þeim skiptum hafa konur stoppað tvisvar, en karlar 146 sinnum. Garðabær rokkar Á leið minni hjóla ég í gegnum fjögur sveitarfélög. Af þeim er lang- best að hjóla í Garðabæ og mjög gott að hjóla í Kópavogi og Reykjavík. Í Hafnarfirði, þar sem félagshyggjuflokk- ur (hrunflokkurinn) hefur stjórnað í 26 ár af síðustu 30 er ömurlegt að hjóla og hættulegt. Öryggið er málið Eins og ég nefndi er veðurfar ekki hindrun hjólreiðum og ekki heldur hæðir og hólar; það sem stendur hjólreiðum helst fyrir þrifum er öryggis- leysi. Reglulega fá tilteknir flokkar flog yfir „einkabíl- ismanum“ og vilja pína alla til að taka strætó eða hjóla, en gera þó ekkert til að tryggja öryggi hjólreiðamanna. Það er trúa mín að ef góðar og öruggar hjólabrautir væru í boði yrðu hjólreiðamenn legíó á Íslandi. arnim@mbl.is Árni Matt- híasson Pistill Ævintýri í hjólaferð STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is E nn ríkir mikil óvissa um stöðu sérgreina- lækna og greiðslu- hlutfall sjúklinga þeirra. Sjálfstætt starfandi sérgreinalæknar hafa verið samningslausir síðan samn- ingur þeirra við Sjúkratryggingar Íslands rann út um mánaðamótin mars/apríl sl. og staðan hefur m.a. leitt til þess að sjúklingar hafa þurft að taka á sig aukinn kostn- að. Sá kostnaður á enn eftir að aukast en seint og illa hefur geng- ið að ganga frá samningum við læknana. Reglugerð um greiðsluþátt- töku sjúklinga í heilbrigðisþjón- ustu rennur út í lok október. Samningar við sérgreinalækna runnu út 31. mars sl. og daginn eftir var reglugerðin fyrst fram- lengd um tvo mánuði og síðan um fimm mánuði. Verði reglugerðin ekki framlengd með eða án breyt- inga fellur aukinn kostnaður á sjúklinga en nú er greiðsluhlut- fallið frá því að vera ekkert upp í um 75%. Þegar allir sjúklingar eru teknir saman greiðir sjúklingur um þriðjung að meðaltali. „Þessi reglugerð um greiðsluþátttöku sjúklinga er kjölfestan í allri fram- vindu málsins,“ segir Kristján Guðmundsson, formaður samn- inganefndar Læknafélags Reykja- víkur, um stöðu samninganna. Samningur við Barnalækna- þjónustuna til hliðsjónar Samningur milli Barnalækna- þjónustunnar í Domus Medica og Sjúkratrygginga Íslands var end- urnýjaður 1. ágúst sl. Engar efnis- legar breytingar voru gerðar í sambandi við þjónustustig eða þjónustumagn, en einingaverð og komugjöld hækkuðu í samræmi við þróun verðlags. Kristján segir að í máli sér- greinalækna hafi verið rætt um hækkanir á almennum nótum en ljóst sé að hækkanirnar þýði hærra sjúklingagjald. Hann hafi ekki séð samninginn við Barna- læknaþjónustuna, setja hafi átt reglugerð um hann um liðin mán- aðamót og hafi sérgreinalæknar gert ráð fyrir að hafa hana til hlið- sjónar í sínum samningum. Línan hafi verið lögð en ríkið vilji ekki taka á sig aukinn kostnað og því liggi ljóst fyrir að hann lendi á sjúklingum. Hvað hann verði mik- ill eigi eftir að koma í ljós. Í lausu lofti Sérgreinalæknar hafa unnið samkvæmt tvíframlengdum samn- ingi og í sumum tilfellum bætt allt að 10% aukagjaldi, sem sjúklingar hafa ekki fengið endurgreitt. Sér- greinalæknar benda á að eininga- verð hafi nánast ekkert hækkað síðan 2008 og ekki verði við svo búið öllu lengur. Þeir hafi þurft að taka á sig allar rekstrarhækkanir án þess að fá nokkuð á móti og slíkt gangi einfaldlega ekki upp til lengdar. Um næstu mánaðamót, þ.e. í vikulok, rennur svonefndur efnis- gjaldasamningur úr gildi. Um er að ræða greiðslur fyrir einnota áhöld og efni. Þegar samningarnir runnu út um mánaðamótin mars/ apríl var þessum efnisgjaldasamn- ingi sagt upp með sex mánaða uppsagnarfresti. Rætt hefur verið um að lengja uppsagnarfrestinn um mánuð og tengist það reglu- gerðinni sem allir bíða eftir. Kristján segir að þó búið sé að leggja meginlínur sé mikil vinna eftir til þess að ná sam- komulagi. En reglugerðin sé lykil- linn að framhaldinu og eftir henni sé beðið. Þjónustan verður æ dýrari fyrir sjúklinga Morgunblaðið/Golli Kostnaður Endurgreiðsla Sjúkratrygginga miðast við eldri gjaldskrár. Sjúkratryggður einstaklingur á rétt á afsláttarkorti þegar hann hefur greitt ákveðna upphæð á árinu fyrir heil- brigðisþjónustu. 18-66 ára einstaklingar og atvinnulausir samkvæmt vottorði frá Vinnu- málastofnun fá afsláttarkort þegar þeir hafa greitt 28.000 kr. fyrir heilbrigðisþjónustu. 67-69 ára með skertan eða engan ellilífeyri fá kortið þeg- ar þeir hafa greitt 22.400 kr. 70 ára og eldri, 60-69 ára með óskertan lífeyri, öryrkjar og 67-69 ára sem nutu ör- orkulífeyris til 67 ára aldurs fá afsláttinn eftir að hafa greitt 7.000 kr. 18 ára og yngri í sömu fjölskyldu fá af- sláttarkortið eftir að hafa greitt 8.400 kr. á árinu. Ekki er hægt að færa greiðslu á einu ári yfir á það næsta. Réttur fyrnist um áramót AFSLÁTTARKORT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.