Morgunblaðið - 28.09.2011, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 28.09.2011, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2011 A.m.k. sextán manns biðu bana af völdum felli- byljarins Nesat sem gekk yfir Filippseyjar í gær. Úrhelli sem fylgdi fellibylnum olli víða flóðum. Rafmagnslaust varð í höfuðborginni Manila og á stærstu eyju landsins, Luson, auk þess sem loka þurfti mörgum skrifstofum. Um 100.000 íbúum strandsvæða var skipað að flýja heimili sín áður en ósköpin hófust. Á myndinni er flutningaskip sem strandaði í óveðrinu nálægt Manila. Reuters Skæður fellibylur hrellir Filippseyinga Fyrstu þingkosningarnar í Egyptalandi eftir fall einræðisstjórnar Hosnis Mub- araks eiga að hefjast 28. nóv- ember og nýtt þing á að koma saman 17. mars. Opinbera fréttastofan MENA sagði að herforingja- stjórnin hefði ákveðið að kosn- ingar til neðri deildarinnar ættu að fara fram í þremur umferðum, 28. nóvember, 14. desember og 3. janúar. Kosningar til efri deildar- innar hefjast síðan 29. janúar og þeim á að ljúka í mars. Kosningalöggjöfin hefur verið mjög umdeild. Lögin kveða á um að tveir þriðju þingmannanna verði kjörnir með hlutfallskosningu en hinir í ein- menningskjördæmum. Aðeins óháðir frambjóð- endur eru kjörgengir í einmenningskjördæmun- um, að því er fram kemur á vefsíðu bráðabirgðastjórnarinnar. Yfir tuttugu stjórnmálaflokkar hafa hafnað kosningalögunum og segja þau til þess fallin að auðvelda gömlum bandamönnum Hosni Mub- araks að komast á þingið. Þeir krefjast þess að all- ir þingmennirnir verði kjörnir með hlutfallskosn- ingu og framfylgt verði lögum sem banna spilltum stjórnmálamönnum að bjóða sig fram í kosning- um. bogi@mbl.is Stefnt er að því að Egyptar ljúki þingkosningum í mars  Yfir tuttugu stjórnmálaflokkar hafna kosningalögum herforingjastjórnarinnar Forsetakosningar á næsta ári » Eftir að nýtt þing hefur verið kosið á nefnd að semja nýja stjórnarskrá og síðan verður efnt til forsetakosninga. » Nefndin fær allt að hálft ár til að semja stjórnarskrána þannig að líklegt er að for- setakosningarnar verði í fyrsta lagi í lok ágúst á næsta ári. » Tugir flokka hafa verið stofnaðir eftir að Hosni Mubarak sagði af sér 11. febrúar. Andstæðingur Mub- araks mótmælir. Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Þegar þýskur kafbátur sökkti breska kaupskipinu Gairsoppa fyrir sjötíu árum sukku með því um 219 tonn af silfurstöngum. Bandarískir kafarar ætla að reyna að bjarga silfurfarminum sem er metinn á jafnvirði tæpra 25 milljarða króna. Bandaríska fyrirtækið Odyssey Marine Exploration staðfesti í fyrra- dag að það hefði fundið skipið í Atl- antshafi um 300 mílur, eða 490 kíló- metra, undan strönd Írlands. Forstjóri fyrirtækisins kvaðst vera mjög vongóður um að hægt yrði að bjarga silfrinu og sagði að svo verð- mætum málmfarmi hefði aldrei áður verið bjargað af hafsbotni. Stefnt er að því að björgun farmsins hefjist næsta vor. Nokkrar árangurslausar tilraunir höfðu verið gerðar til að finna Gair- soppa en Odyssey Marine Explor- ation kvaðst hafa fundið flakið til- tölulega fljótt eftir að leit fyrir- tækisins hófst. Skipsflakið er á 4.700 metra dýpi en fyrirtækið sagði að ekkert ætti að vera því til fyrirstöðu að allur silfur- farmurinn næðist. „Við vorum svo heppin að skipsflakið er á réttum kili, lestin er opin og greið leið er að henni,“ hefur fréttaveitan AFP eftir Greg Stemm, forstjóra Odyssey Marine Exploration. Miklar tækniframfarir Fyrirtækið hefur leitað að fjölda skipsflaka víða um heim. Fyrirtækið skýrði frá því í maí 2007 að það hefði fundið hálfa milljón silfurpeninga og hundruð gullmuna í skipi sem nefnt hefur verið „Svarti svanurinn“ og sökk í Atlantshafi í grennd við Gíbraltarsund árið 1804. Yfirvöld á Spáni hafa gert tilkall til farmsins. Fyrirtækið hefur notfært sér miklar tækniframfarir við leitina, m.a. hljóðsjártæki sem hafa stór- batnað, staðsetningarkerfi og háþró- uð fjarstýrð farartæki sem kanna heimshöfin á miklu dýpi. Kaupskipinu var sökkt í febrúar 1941 þegar það var á leiðinni frá Ind- landi til Bretlands með silfur, hrá- járn og te. Gairsoppa varð viðskila við skipalest í óveðri í Atlantshafi og skipstjórinn ákvað að sigla til Galway á Írlandi en þýskur kafbátur sökkti kaupskipinu. Fundu silfurfarm sem metinn er á 25 milljarða króna  Fjársjóðsskip fannst á hafsbotni 1 1 2 2 FUNDU GILDAN SILFURSJÓÐ Á HAFSBOTNI BRETLAND FRAKKLAND ÍRLAND ATLANTSHAF Norðursjór Flak kaupskipsins fannst um 480 km frá strönd Írlands og á um 4.700 metra dýpi 125 m 76 m Heimild: Odyssey Marine Exploration Ljósmynd: Úr samtímasögusafni í Stuttgart ODYSSEY EXPLORER Skipsflakið fannst í sumar með hljóðsjárbúnaði í rússneska skipinu RV Yuzhmorgeologiya sem leigt var og notað við leitina Leitarskipið Odyssey Explorer notaði fjarstýrt farartæki, Fönix Remora, til að kanna skipsflakið Breska ríkið samdi við bandaríska fyrirtækið Odyssey Marine um björgun flaksins eftir útboð á síðasta ári. Samkvæmt samningnum á fyrirtækið að halda 80% af nettóverðmæti silfursins sem bjargað verður Fönix Remora (Miðað við dýpi farþegaskipsins Titanic 3.810 m) S.S. Gairsoppa 4.700 m metrar MAK-1M Köfunarhljóðsjá 1.000 2.000 3.000 4.000 S.S. GAIRSOPPA Gerð: Gufuknúið kaupskip Eigandi: Skipafélagið British India Steam Navigation í Lundúnum Stærð: 5.237 tonn Smíði lokið: 1919 Í áhöfninni voru 85 menn og aðeins einn þeirra komst lífs af Í skipinu voru 2.600 tonn af hrájárni, 1.765 tonn af tei, 219 tonn af silfri og 2.369 tonn af öðrum varningi Þýskur kafbátur sökkti skipinu 17. febrúar 1941 þegar það var á leiðinni til Írlands frá Kalkútta á Indlandi Dómstóll í Sádi- Arabíu hefur dæmt konu til hýðingar með tíu vandarhöggum fyrir að brjóta bann við því að konur aki bílum. Konan var fund- in sek um að aka bíl í Jedda-borg í júlí. Sádi-arabísk samtök, sem berjast fyrir því að banninu verði aflétt, segja að konan hafi þegar áfrýjað dómnum. Tvær aðrar konur verða dregnar fyrir rétt síðar á árinu fyrir að brjóta bannið, að sögn fréttavefjar breska ríkisútvarpsins. Tugir kvenna hafa virt bannið að vettugi í sádiarabískum borgum síðustu mánuði til að knýja ráðamennina til að afnema bannið. Konungur Sádi-Arabíu, Abdull- ah, tilkynnti á dögunum að sádi- arabískar konur fengju kosninga- rétt í fyrsta skipti árið 2015. SÁDI-ARABÍA Kona dæmd til hýðingar fyrir að aka bifreið Kona við stýri! Skoðanakönnun á vegum Danske Bank bendir til þess að 50,6% Dana séu andvíg því að Danmörk taki upp evruna og 22,5% séu hlynnt því. Ef marka má könnunina hefur and- stæðingum evrunnar fjölgað um 22,3 prósentustig og það er mesta fjölgun sem mælst hefur milli kann- ana. Á vef danska ríkisútvarpsins er þetta rakið til umræðunnar um skuldavanda evruríkja. Þar segir ennfremur að munurinn á vöxtum í Danmörku og á evrusvæðinu sé orðinn sáralítill, eða aðeins 0,05 prósentustig, en hann hafi verið 1,75 prósentustig fyrir tveimur ár- um þegar vextirnir í Danmörku voru hæstir. „Það þýðir að kostn- aðurinn við að taka ekki upp evr- una hefur minnkað verulega,“ segir á fréttavef danska ríkisútvarpsins. DANMÖRK Meirihluti á móti því að taka upp evru

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.