Morgunblaðið - 28.09.2011, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 28.09.2011, Blaðsíða 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2011 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Norræn tíska, hönnun og menning verður í kastljósinu á Norræna tískutvíæringnum, Nordic Fashion Biennale (NFB). sem hefst 30. sept- ember nk. með sýningu í Norræna sögusafninu, The Nordic Heritage Museum, í Seattle. Tvíæringurinn er verkefni Norræna hússins og sér Ilmur Dögg Gíslastjóri, verkefnis- stjóri hússins, um skipulagningu hans ásamt fjölda annarra. Tvíær- ingurinn er haldinn í samvinnu við Reykjavík Calling, verkefni sem heyrir undir landkynningarátakið Iceland Naturally. Á sýningunni verður varpað ljósi á margt það fremsta í norrænni tísku- hönnun með áherslu á Ísland, Græn- land og Færeyjar og munu alþjóð- legir hönnuðir leiða tveggja daga tísku- og hönnunarmálþing, 30. sept- ember og 1. október, auk þess sem 12 ungir, bandarískir hönnuðir munu keppa um ferð á Reykjavík Fashion Festival. Hluti af Norræna tískutvíær- ingnum og kjölfesta hans er sýningin Looking Back to Find our Future en á henni er lögð áhersla á norræna tísku- og skartgripahönnun sam- tímahönnuða á Norðurlöndum. Listakonan Hrafnhildur Arnar- dóttir, öðru nafni Shoplifter, er list- rænn stjórnandi hennar en hún hef- ur m.a. unnið fyrir listasafnið Museum of Modern Art í New York og með tónlistarkonunni Björk. Hrafnhildur teflir á sýningunni sam- an gömlu og nýju, nýtir gripi í safn- inu og blandar saman við nýja, nor- ræna hönnun. Mun það varpa ljósi á menningarleg áhrif og djúpar rætur fortíðar sem margir hinna norrænu list- muna spruttu úr. Haldið utan Norðurlanda „Norræna húsið er fram- leiðandi NFB. Hann var haldinn fyrst árið 2009 í Norræna húsinu og eftir þann viðburð var ákveðið að hann yrði ekki haldinn á Íslandi, Færeyjum eða Græn- landi, þeim löndum sem eru í fókus. Við viljum halda viðburð- inn fjarri heimahög- um þessara landa í meira framandi samhengi,“ segir Ilmur. Á stað þar sem verk hönnuða frá þessum löndum væru sjaldséð. Ilmur segir Seattle því kjör- inn vettvang fyrir tvíæringinn og að sýningin sé mjög stór, margir hönnuðir taki þátt í henni. Í Nordic Heritage Museum sé tekin fyrir arfleifð norrænna land- nema í Seattle sem settust að í hverfinu Ballard og Hrafn- hildur setji sýn- inguna í raun upp inni í sýningum sem fyrir séu í safn- inu, blandi samtíma- hönnun saman við þær. „Hún nær með þessu að tengja sam- an fortíð, nútíð og framtíð,“ segir Ilmur, hönnuðir séu enda að vinna mikið með menningararf sinna landa. Sýningin sem Hrafnhildur stýrir er á þremur hæðum í safninu og ólíkar áherslur á hverri hæð. Á miðhæðinni eru t.d. innsetningar eft- ir hönnuði og á efstu hæð sérstök herbergi tileinkuð hverju landanna á Norðurlöndum fyrir sig, hönnuðir frá tilteknu landi með innsetningar þar, m.a. er Henrik Vibskov með inn- setningu í danska herberginu. „Aðalfókusinn á sýningunni er á Ísland, Færeyjar og Grænland og þetta er stærsta sýning á norrænni fatahönnun sem hefur verið haldin í Ameríku,“ segir Ilmur. „Hvorki hafa svona margir hönnuðir komið saman áður né á þennan hátt því algengasta miðlunin á tísku er m.a. í gegnum tískusýningar og svokölluð „show ro- om“,“ bendir Ilmur á. Til viðbótar tísku- og hönnunarinnsetningunum verður haldin götutískuljós- myndasýning með myndum frá Reykjavík, Nuuk, Færeyjum, Kaup- mannahöfn, Helsinki, Osló og Stokk- hólmi. Ljósmyndararnir sem verk eiga á henni eru Jói Kjartans frá Reykjavík, Hildur Hermans frá Osló, Hel-Looks frá Hels- inki, The Locals frá Kaup- mannahöfn, Style Clicker frá Stokkhólmi og Aviaaja Ezeki- assen frá Nuuk. Mikið um að vera í Ballard Ilmur segir tvíær- inginn hafa breitt úr sér í hverfinu Ballard. Í verslunarmiðstöð- inni Bellevue hafi ver- ið sett upp sýning á göngunum, NFB Curator’s Cut og hófst hún 8. sept- ember. Þá starfar NFB einnig með myndlistargalleríi í Seattle, Project Ro- om, en íslenska hönnunarmerkið Vík Prjónsdóttir er að setja upp verk þar og í einni heitustu tískuvöru- verslun Seattle, Blackbird verða einnig haldnir hlið- arviðburðir. Tvíæringurinn hefst með mál- þingi, NFB 2011 Fashion Summit, röð gagnvirkra kynninga og umræðufunda sem stýrt verður af leiðandi fólki og forystuaðilum í hönnun og tísku. „Þetta er alþjóðlegt málþing, bæði norrænir fyrirlesarar og amerískir sem endar á stórum gjörn- ingi með Henrik Vibskov,“ segir Ilmur. Gjörningurinn sé ágætisdæmi um það í hvaða áttir tískan sé að fara, hönn- uðir séu að fara nýjar leiðir í því að miðla hugmyndaheimi sínum. Meðal þeirra sem halda fyrirlestra eru Yv- an Mispelaere, listrænn hönnuður hjá Diane Von Furstenberg; Áslaug Magnúsdóttir, stofnandi Moda Oper- andi, og íslenski hönnuðurinn Mundi Vondi. Ilmur segir tvíæringinn hafa feng- ið mikla umfjöllun nú þegar í fjöl- miðlum í Seattle þó að hann sé ekki formlega hafinn. Þá megi það sama segja um þátttökulöndin. „Það er eiginlega framar okkar björtustu vonum,“ segir Ilmur. Fatahönnunarkeppni og tónleikar Síðasti hluti tvíæringsins verður keppni tískuhönnuða og ber hún yfir- skriftina North by Northwest og er henni ætlað að „glæða andagift og sköpunargleði með óviðjafnanlegum listmunum og straumum í norrænni hönnun“, eins og því er lýst í tilkynn- ingu. Nemendum og ungum hönn- uðum frá vesturströnd Bandaríkj- anna var boðið að taka þátt í keppninni og voru 12 valdir til að taka þátt í úrslitum. Sigurvegarar munu hljóta ferð til Íslands á tísku- vikuna í Reykjavík á næsta ári. Ekki er allt upp talið enn því haldnir verða tónleikar sem eru hluti af tvíæringnum, tónleikar með yfir- skriftinni Sister City Showcase: Reykjavík Calling. Þar koma fram tónlistarmenn frá Íslandi, Grænlandi og Færeyjum með tónlistarmönnum frá Seattle: Ólöf Arnalds & Sean Nelson með Kyle O’Quin; Snorri Helgason og David Bazan; Gudrid Hansdottir og Tomo Nakayama og Nive Nielson og Shelby Earl. Tón- leikarnir eru haldnir í samstarfi við útvarpsstöðina KEXP í Seattle sem mun m.a. vera með beina útsendingu frá Iceland Airwaves-hátíðinni, 12.- 14. október nk. og prentmiðlana The Stranger, Seattle Weekly og Seattle Magazine. Norræni tískutvíæringurinn stendur yfir í sex vikur. Norræn tíska, hönnun og menning í brennidepli  Norræni tískutvíæringurinn hefst 30. september í Seattle  Stærsta sýning á norrænni fatahönn- un sem hefur verið haldin í Bandaríkjunum  Hrafnhildur Arnardóttir listrænn stjórnandi sýningar Ilmur Dögg Gísladóttir Hrafnhildur Arnardóttir Prjón Vík Prjónsdóttir setur upp verk í myndlistargalleríinu Project Room í Seattle. Vefsiða tvíæringsins: www.nordic- fashionbiennale.com. Kvenlegt Inuik Design er grænlenskt tískumerki. Dökkt Hönnun bAR- BARA Í gONGINI , dansks tískuhönnuðar. Þekktur Danski hönnuðurinn Dani- el Vibskov verður á tvíæringnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.