Morgunblaðið - 28.09.2011, Page 21
UMRÆÐAN 21Bréf til blaðsins
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2011
Ársalir fasteignamiðlun og fyrirtækjasala
Ef þú vilt selja, leigja eða kaupa fasteign eða selja
eða kaupa fyrirtæki í rekstri, hafðu samband.
Ársalir
FASTEIGNAMIÐLUN
Engjateigi 5, 105 Rvk
533 4200
Ársalir ehf fasteignamiðlun
533 4200 og 892 0667
arsalir@arsalir.is
Engjateigi 5, 105 Rvk
Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali
–– Meira fyrir lesendur
MEÐAL EFNIS:
Fjölskyldubílar
Umhverfisvænir bílar
Rafbílar
Atvinnubílar
Jeppar
Nýjustu græjur í bíla
Staðsetningarbúnaður
Varahlutir
Dekk
Umferðin
Bíllinn fyrir veturinn
Þjófavarnir í bíla
Námskeið
Ásamt fullt af öðru
spennandi efni
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 3. október.
Bílablað
SÉRBLAÐ
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
kata@mbl.is
Sími: 569-1105
Morgunblaðið gefur út
glæsilegt sérblað um
fjölskyldubíla,
atvinnubíla, jeppa,
vistvænabíla og fleira
föstudaginn 7. október
Nú þegar blasir við
að hætta er á nýrri
kreppu á Vesturlöndum
áður en Ísland nær sér
á strik af eigin ramm-
leik, þá beinist athyglin
meira að sjálfu atgervi
hinna vanmáttugu
ráðamanna þjóð-
arinnar.
Án þess að nefna
nöfn, vil ég segja að
þótt mér þyki persónu-
lega frekar vænt um alla þá stjórn-
málamenn okkar sem ég þekki, þá
finnst mér að á erfiðum tímum þurfi
að vera fólk við stjórnvölinn sem hafi
alla algenga viðurkennda kosti til að
bera; óskerta heilsu, að vera á góðum
vinnualdri, að hafa pottþétta atvinnu-
sögu og að geta gert góða grein fyrir
máli sínu.
En einnig að hafa sýnt að það hafi
þá lágmarksgreind að geta lokið
stúdentsprófi; sem og að hafa helst
lokið háskólaprófi í einhverri grein er
fjallar um þjóðfélagsfræði. En þá
meina ég fög eins og hagfræði, stjórn-
málafræði, félagsfræði, landafræði,
félagsráðgjöf, sálfræði og jafnvel
mannfræði.
Næstbesti kosturinn væri fög sem
teljast að vísu ekki til félagsvísinda
heldur til hugvísinda, en fjalla samt
um þjóðfélagið, svo sem lögfræði,
sagnfræði, bókmenntafræði, guð-
fræði og heimspeki.
Síst þykir mér þörf hjá stjórn-
málamönnum að hafa menntast í
raunvísindum svo sem líffræði, lækn-
isfræði, verkfræði og efnafræði; og
raunar í aðskiljanlegum fögum svo
sem hjúkrunarfræði, sjúkraþjálfun,
stærðfræði og íþróttafræðum; af því
slíkt mun meira við hæfi aðkeyptra
sérfræðinga er þurfa ekki heildar-
yfirsýn stjórnmálamannsins.
Enn fremur tel ég að stjórn-
málamennirnir ættu ekki að vera ríg-
bundnir við sértækari hagsmuni, svo
sem er varða afmarkaðri málefni, á
borð við hvers konar minnihlutahópa,
ef það verður til að lita afstöðu þeirra
til almennari málefna. Ennfremur að
þeir hafi hreint sakavottorð.
Einnig væri æskilegt að þeir sem
hafa sérhagsmuna að gæta af ein-
stökum atvinnugreinum væru ekki að
nota Alþingið sem milliliðalaust áróð-
urspúlt til þjóðarinnar. Vægi þeirra
er svo yfirgnæfandi þegar kemur að
því að koma iðnaðinum og versluninni
aftur í gang, að þeir fengju hvort eð
er tækifæri til að fá áheyrn.
Mér finnst að núverandi kerfi hafi
gengið þolanlega fram að hruninu
2008, en að lausatökin á flestu síðan
þá, svo sem með erlenda fjárfestingu
á Íslandi, byggingu stórhýsa, lög-
gæslumál, samgöngumál, og einblín-
ingu á sterkari tengsl við útlend
hagstjórnarkerfi, beini
athyglinni að því að of
mikið sé um það að
mannvalið á stjórn-
endum þjóðarinnar sé
ekki með sjálfsögðum
ágætum.
Sumir myndu segja
að þeir vildu síst hafa
yfir sér fullfríska
menntamenn á Alþingi
sem væru með allt á
þurru hjá sér og sínum,
til að túlka sjónarmið
landsbyggðarmanna og
sjúklinga, t.d. Enda fælist í fulltrúa-
lýðræðis-hugtakinu að Alþingið væri í
bókstaflegum skilningi samsafn af
sérhagsmunaaðilum þjóðarinnar. En
að menntafólkið væri með menntun
sinni sjálfkrafa orðið einhvers konar
afmörkuð yfirstétt, líkt og á öldum
áður, og væri því óhæft til að vera í
fullu forsvari fyrir almenning. En nú-
orðið sýnist mér þó að flestar kjarna-
fjölskyldur geti af sér einhverja slíka
háskólaborgara.
En ef þessir þingmenn hefðu að
auki getu til að útlista fyrir kjós-
endum stöðu mála í málum þar sem
engir kostir eru góðir, þá væri land-
stjórnin orðin líkari sveitarstjórn-
unum að því leyti að staðreyndir mál-
anna kæmust betur inn í sálarlíf
kjósendanna, án þess að gíf-
uryrðaflaumur sérhagsmunaaðila og
fjölmiðla væri að halda of lengi lífi í
fölskum vonum.
Þó er því ekki að neita að þá myndu
kannski sum þau fræ falla í skugg-
ann, sem hefðu þó annars borið nokk-
urn ávöxt.
Sagt er að forseti vor hafi lýst
þeirri skoðun sinni er hann var þing-
maður Alþýðubandalagsins forðum
daga, að þingmenn þess ættu að vera
skyldaðir til að hafa lokið einhverju
háskólaprófi. Sú skoðun fékk víst
ekki meðbyr þá. En getur verið, að
hann, sem doktor og fyrrverandi pró-
fessor í stjórnmálafræði, sé færari
um að ræða við kjósendur en margir
mennirnir og konurnar á Alþingi?
Þrátt fyrir allt?
Traustið á
atgervi alþingis-
manna okkar
Eftir Tryggva V.
Líndal
»… þótt mér þyki per-
sónulega frekar
vænt um alla þá stjórn-
málamenn okkar sem ég
þekki, þá finnst mér að
á erfiðum tímum þurfi
að vera fólk við stjórn-
völinn sem hafi alla al-
genga viðurkennda
kosti til að bera.
Tryggvi V.
Líndal
Höfundur er þjóðfélagsfræðingur
og skáld.
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is
Í grein eftir Kristján Oddsson
undir fyrirsögninni „Eru HPV-
bóluefni örugg?“ frá 15. sept. sl.
lætur höfundur eins og hann sé að
svara spurningunni, hvort HPV-
bóluefnin séu
örugg eða ekki.
Með bóluefnum
eiga hins vegar
að fylgja leið-
beiningar, en
þær eru og hafa
aldrei verið
prentaðar hér
handa almenn-
ingi, en þær eru
til þess gerðar
víða erlendis að
svara svoleiðis spurningum. Ekki
er hins vegar hægt að segja, að
þessi umdeildu HPV-bóluefni séu
örugg þar sem allar tölur hjá VA-
ERS-gagnagrunninum hafa verið
að hækka og er talan komin í 103
dauðsföll, 4.777 náðu ekki bata,
763 hlutu varanlega örorku, 9.115
tilfelli á bráðamóttöku og síðan
voru 2.307 sjúkrahúslegur skráðar
eftir bólusetningu skv. VAERS og
sanevax.org. Þrátt fyrir að allar
þessar tölur og frásagnir fórn-
arlamba komi frá heilbrigðisfólki
og fórnarlömbum, þá láta embætt-
ismenn hér eins og dauðsföll og
alvarlegar aukaverkanir hafi aldr-
ei komið upp, eða þar sem menn
fullyrða að: „Eftir tæplega 10 ára
notkun og tugmilljónir bólusettra
einstaklinga hefur ekki verið sýnt
fram á að HPV-bólusetning orsaki
dauðsföll eða alvarlega sjúkdóma.“
Þrátt fyrir að menn láti eins og
alvarlegir sjúkdómar hafi ekki
komið upp, þá höfum við mörg
dæmi um alvarlega sjúkdóma, auk
þess er bent á það í leiðbeining-
unum, að fólk geti hugsanlega
fengið Guilliane Barre, blóðtappa,
heilabólgu, sjálfsofnæmissjúkdóma
o.s.frv. Þá er auk þess vitað til
þess að stúlkur hafi látist innan
við 2 mín. frá bólusetningu, sjá
anaphylactic-dæmi VAERS ID:
304739-1, og svo dæmi um stúlku
er lést fáeinum mín. frá bólusetn-
ingu VAERS ID: 305259-1. Þá
hefur Judicial Watch einnig birt
mikið af dauðsföllum eftir bólu-
setningu, eins og t.d. eitt dæmi 3
tímum eftir HPV-bólusetningu,
dánarorsök blóðtappi og tvö önnur
dæmi um blóðtappa og/eða hjarta-
vandamál (physiciansforlife.org).
Það er hins vegar alveg rétt að
við búum við lélegt heilbrigð-
iskerfi og eftirlit hér, þar sem hér
hefur sérstaklega verið passað
upp á að prenta aldrei einn ein-
asta bækling á íslensku yfir eitt
einasta bóluefni, auk þess sem all-
ar upplýsingar eru og hafa verið
af skornum skammti, þannig er
það tryggt að almenningur fái lítið
sem ekkert að vita um allar
áhættur sem fólk tekur oftast nær
óafvitandi. Það kæmi manni ekki á
óvart að heyra það frá Kristjáni
og öðrum aðdáendum HPV-
bólusetninga hér, að öll þessi fórn-
arlömb: Carley Steele, Rebecca
Ramagge, Paige Brennan, As-
hleigh Cave, Hattie Vickery,
Lauren Smith, Sarah Chandler,
Leah Mann, og Debbie Jones
væru ekkert annað en lygarar, og
jafnvel þó fleiri nöfn væru nefnd
til sögunnar, þar sem menn leggja
svo mikla áherslu á að reyna að
túlka það sem svo, að HPV-
bóluefnin séu örugg.
Þrátt fyrir að það sé almennt
viðurkennt á Indlandi að 4 stúlkur
hafi látist af 14.000 þátttakendum
og að 120 hafi hlotið alvarlegar
aukaverkanir eftir HPV-bólusetn-
ingu (examiner.com), og að bólu-
setningum hafi verið hætt þar,
rétt eins og átti sér stað á Spáni
eftir að 2 stúlkur urðu fyrir alvar-
legum aukaverkunum (uncenso-
red.co.nz), þá er eins og menn geti
alls ekki viðurkennt það heldur,
þar sem skilaboðin hér eiga
greinilega að vera að HPV-
bóluefnin séu örugg sama hvað.
Það er greinilega til of mikils
mælst, að ætlast til þess að emb-
ættismenn hér skoði niðurstöður
yfir dauðsföll og alvarlegar auka-
verkanir eftir HPV- bólusetningu
sem Judical Watch og National
Vaccine Information Center hafa
tekið saman og birt, eða af fórn-
arlömbum, þar sem öll áherslan
hér er eins og áður segir bara á
einn veg, að HPV-bóluefnin séu
örugg og sama hvað. En hvernig
er það, Kristján, vilja svona menn
eins og þið ekki taka á ykkur per-
sónulega fjárhagslega ábyrgð þar
sem þið fullyrðið, að HPV-
bóluefnin séu örugg?
ÞORSTEINN SCH.
THORSTEINSSON,
formaður Samstarfsnefndar trú-
félaga fyrir heimsfriði.
Alvarlegar aukaverkanir og dauðs-
föll hluti af HPV-bólusetningu
Frá Þorsteini Sch. Thorsteinssyni
Þorsteinn Sch
Thorsteinsson