Morgunblaðið - 28.09.2011, Síða 27
DAGBÓK 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2011
Sudoku
Frumstig
4
5 9
5 9 3 7 6
8 5
9 8 3
9 6 2
8 4 6 3
2 7
3 2 5 4
8 7 4 2
1 2 9 8 6
7 2
6 3 4
1 7 8 9
9 2 4
6 3
2
3
5 1
2 9 4
8 5 7 9 2
7 5 1
4 3
1 3 7
7 6 1
2 8
4 6 1 5 2 7 3 8 9
5 3 9 8 1 4 7 2 6
2 8 7 6 9 3 1 4 5
1 5 6 3 8 2 9 7 4
9 2 4 1 7 5 6 3 8
8 7 3 9 4 6 5 1 2
7 9 8 4 5 1 2 6 3
3 1 5 2 6 8 4 9 7
6 4 2 7 3 9 8 5 1
2 1 4 6 5 9 3 8 7
6 7 8 1 2 3 5 4 9
9 3 5 8 7 4 6 1 2
7 9 2 4 3 1 8 6 5
8 4 3 5 6 7 2 9 1
1 5 6 2 9 8 4 7 3
5 8 9 3 1 6 7 2 4
4 2 7 9 8 5 1 3 6
3 6 1 7 4 2 9 5 8
5 1 3 7 9 8 2 4 6
7 9 8 6 4 2 3 5 1
4 6 2 1 3 5 9 8 7
6 8 1 2 5 3 7 9 4
9 7 4 8 6 1 5 3 2
3 2 5 4 7 9 1 6 8
8 5 6 3 1 7 4 2 9
2 3 7 9 8 4 6 1 5
1 4 9 5 2 6 8 7 3
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er miðvikudagur 28. september,
271. dagur ársins 2011
Orð dagsins: En ef einhver elskar
Guð, þá er hann þekktur af honum.
(I. Kor. 8, 3.)
Það getur verið mikil skemmtunað sökkva sér í bresku blöðin og
þau virðast ekki draga af sér þrátt
fyrir hlerunarhneyksli sumarsins.
Tony Blair, fyrrverandi forsætisráð-
herra, er mjög á milli tannanna á fjöl-
miðlum þessa dagana. Hann þykir
hafa notað stöðu sína sem erindreki
fyrir botni Miðjarðarhafs til að maka
krókinn svo um munar. Víkverji furð-
aði sig á því þegar langur kafli í grein
um Blair var notaður til að gefa til
kynna að hann ætti í tygjum við ísr-
aelska athafnakonu og velti fyrir sér
hvort blaðamaðurinn hefði ekki frek-
ar verið að skemmta sér við skrift-
irnar fremur en að hugsa um sann-
leiksgildi og erindi þessara
vangaveltna við lesendur. Vitnað var
í viðvörun ísraelska blaðsins Maariv
til Cherie Blair um að passa nú upp á
manninn sinn og rakið að Blair hefði
átt langa fundi með konunni.
x x x
Þessi vinkill var þó aðeins tekinnupp í einu af götublöðunum.
Virðulegri blöðin létu sér nægja að
fjalla um hvað stutt væri á milli við-
skiptahagsmuna erindrekans og
málamiðlunarhlutverks hans.
x x x
Breska blaðið Daily Mail sló þvíupp á forsíðu um helgina að
breska ríkisútvarpið, BBC, ætlaði af
tillitssemi að hætta að nota skamm-
stafanirnar BC og AD. Sú fyrrnefnda
vísar til þess að eitthvað hafi gerst
fyrir Kristsburð og sú síðari þýðir í
raun á því herrans ári og vísar til tím-
ans eftir Kristsburð. Í staðinn ætlar
BBC að tala um samtíma eða Com-
mon Era og fyrir samtíma eða Be-
fore Common Era. Víkverji veit ekki
hvort óbærilegur þrýstingur hlust-
enda BBC hefur orðið til þess að
þessi ákvörðun var tekin, en sér ekki
betur en að hún sé líklegri til að
flækja málin en einfalda auk þess
sem áfram verður miðað við fæðingu
Krists sem upphaf tímatals samtím-
ans. Uppsláttur blaðsins var hins
vegar slíkur – flennifyrirsögn með
orðunum „BBC kastar 2000 ára
kristni fyrir róða – að ætla hefði mátt
að um heimsendi væri að ræða.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 tilkynnir, 8 deig-
ar, 9 nægir, 10 tölustafur, 11
kind, 13 byggja, 15 hestur,
18 fljótin, 21 nam, 22 aft-
urkallaði, 23 fiskar, 24
dásamlegt.
Lóðrétt | 2 umræða, 3
kroppa, 4 bál, 5 mannsnafn,
6 digur, 7 ýlfra, 12 tíni, 14
bókstafur, 15 ástand, 16 am-
boðin, 17 stíf, 18 bæn, 19
ekki gömul, 20 lélegt.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt 1 bólga, 4 fölar, 7 rugls, 8 ljóst, 9 ask, 11 iðra, 13 vita, 14
rekki, 15 vont, 17 trúr, 20 gil, 22 liðna, 23 jafnt, 24 síðla, 25 tað-
an.
Lóðrétt 1 byrði, 2 lógar, 3 ansa, 4 fólk, 5 ljóði, 6 rotta, 10 sukki,
12 art, 13 vit, 15 volks, 16 næðið, 18 rofið, 19 rotin, 20 gata, 21
ljót.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Indversk svíning. S-NS.
Norður
♠ÁDG109
♥KG8
♦8
♣D1076
Vestur Austur
♠K875 ♠3
♥5 ♥10976432
♦ÁK1054 ♦93
♣532 ♣K94
Suður
♠642
♥ÁD
♦DG762
♣ÁG8
Suður spilar 4♠.
Það er kölluð „kínversk svíning“
þegar óvölduðu háspili er húrrað út í
von um að millihönd sofi á verðinum.
En kannast menn við „indverska svín-
ingu“? Hún sást hjá BR í síðustu viku.
Víða varð suður sagnhafi í 4♠ eftir
grandopnun og yfirfærslu. Út kom ♦Á
og hjarta í öðrum slag. Spilamennskan
er sjálfgefin. Sagnhafi tekur heima,
spilar spaða og svínar. Fer svo aftur
heim á hjarta … nei, hann kemst ekki
lengra í bili, því vestur trompar óvænt
og spilar ♦K. Skyndilega er kominn
titringur í spilið – ekki er hættulaust að
spila laufi á gosann, því hafi skrattinn
komist í gjöfina mun vestur drepa og
gefa austri laufstungu. Í öryggisskyni
spila sagnhafi því laufi á ÁSINN,
svínar spaða, tekur ♠Á og spilar litlu
laufi úr borði. Og hvað gerist? Gosinn
heldur.
28. september 1968
Öldugjálfur, höggmynd eftir
Ásmund Sveinsson, var sett
upp við Menntaskólann við
Hamrahlíð. Myndin var gjöf
Reykjavíkurborgar til skólans
en hún hafði áður verið lánuð
á heimssýninguna í Montreal.
28. september 1991
Landsbjörg, landssamband
björgunarsveita, var formlega
stofnuð. Þar með sameinuðust
Flugbjörgunarsveitin, Hjálp-
arsveit skáta o.fl.
28. september 2006
Byrjað var að safna vatni í
Hálslón, meginlón Kára-
hnjúkavirkjunar, þegar hjá-
veitugöngum var lokað.
28. september 2006
Götuljós á höfuðborgarsvæð-
inu og víðar voru slökkt í hálfa
klukkustund í tengslum við
upphaf Alþjóðlegrar kvik-
myndahátíðar í Reykjavík.
„Mikil ró og fegurð færðist yf-
ir borgina frá himni,“ sagði á
Mbl.is.
28. september 2010
Samþykkt var á Alþingi, með
33 atkvæðum gegn 30, að
höfða mál fyrir landsdómi
gegn Geir H. Haarde, fyrrver-
andi forsætisráðherra, fyrir
brot gegn lögum um ráðherra-
ábyrgð. Rannsóknarnefnd á
vegum þingsins hafði áður
lagt til að fjórir yrðu ákærðir.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
ÞETTA gerðist …
Bill Haas tryggði sér 10 milljónir dollara, nær 1,2
milljarða króna, fyrir sigur í Fedex-mótaröðinni í
golfi um helgina. Ingvar K. Hreinsson, deildar-
stjóri hjá ríkisskattstjóra á Siglufirði, sjúkraflutn-
ingamaður hjá Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar
og héraðslögreglumaður við embætti lögreglunar
á Akureyri, hefur ekki látið sig dreyma um slíkt
verðlaunafé en segir að það ýti enn frekar undir
áhugann á íþróttinni. „Ég er á kafi í golfinu og
með 12,8 í forgjöf og þegar maður sér verðlauna-
féð í Fedex fer maður að æfa sig meira,“ segir af-
mælisbarn dagsins, en Ingvar er fimmtugur í dag.
„Það verður kaffi á könnunni og kruðerí.“
Ingvar hefur lengi verið virkur í Golfklúbbi Siglufjarðar og æft golf
í um 25 ár. Hann er nú ritari klúbbsins eftir að hafa verið formaður í
sjö ár. Framundan er gerð nýs níu holu golfvallar og er stefnt að því
að hefja framkvæmdir næsta vor. Hann segist hafa spilað víða, m.a. á
Sauðárkróki, Dalvík, Blönduósi og Akureyri og tvisvar á Flórída.
„Það er draumastaður fyrir kylfinga,“ segir hann. Geysisvöllur í
Haukadal er uppáhaldsvöllurinn en hann segist eiga margar perlur
eftir. „Eins og til dæmis Vestmanneyjar,“ segir hann. steinthor@mbl.is
Ingvar K. Hreinsson deildarstjóri 50 ára
Með 12,8 í forgjöf
Hlutavelta
Sigurbjörg Sara Finns-
dóttir, Sgrún Hanna
Gunnarsdóttir og Hrönn
Gunnarsdóttir héldu
tvær tombólur fyrir utan
Lágafellslaug og söfn-
uðu samtals 5.045 krón-
um sem þær færðu
Rauða krossinum. Fram-
lagið rennur til sveltandi
barna í Sómalíu. Hrönn
vantar á myndina.
Flóðogfjara
28. september Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 0.25 -0,1 6.32 4,4 12.45 -0,1 18.48 4,5 7.28 19.10
Ísafjörður 2.32 -0,1 8.32 2,4 14.52 -0,1 20.43 2,5 7.34 19.14
Siglufjörður 4.45 -0,0 10.58 1,4 16.56 -0,0 23.16 1,5 7.17 18.57
Djúpivogur 3.42 2,4 9.57 0,1 16.04 2,4 22.10 0,2 6.58 18.39
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Vertu ekki niðurdregin/n þótt þú sjáir
eftir orðum þínum. Vandamálið er að þú vinn-
ir mikið að málum sem þú kærir þig ekki um.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Njóttu þess að eyða deginum í fé-
lagsskap annarra. Einbeiting þín gerir verk
þín áhrifaríkari.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Einhver reynir að gera þér lífið leitt
svo nú reynir á þolinmæðina. Gefðu þér tíma
til þess að íhuga næsta skref og mundu að
kærleikurinn snýst um að gefa og þiggja.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú þarft að gæta þess að vera sér-
staklega háttvís í samtölum í dag. Reyndu að
láta þér lynda við fólk sem þú hittir á förnum
vegi, allir eiga sína sögu.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Gerðu þér grein fyrir því hvað þú hefur
það gott og sýndu þakklæti þitt með því að
láta gott af þér leiða. Þú kemst að ýmsu í
gegnum ættingja.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú ert ekki viss hvort þú eigir að efast
um vissa hugmynd eða styðja hana. Bjartsýni
þín smitar út frá sér. Mundu að það er aldrei
of seint að vinna nýja sigra.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú vekur athygli á þér í dag með ein-
hverjum hætti. Vertu opin/n og varastu alla
þröngsýni.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Það er ekki laust við að innblást-
urinn hafi náð tökum á þér og þér líður frá-
bærlega. Veldu þér stefnu og ekki víkja af
veginum.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Einvera gerir þér gott þessa dag-
ana. Reyndu að nýta það til skynsamlegra
verka í stað þess að sitja með hendur í skauti.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Svo virðist sem ákveðin persóna
eigi erfitt með að þiggja aðstoð þína og
þakka fyrir sig. Gefðu þér tíma til að finna or-
sök gremju og kippa hlutunum í liðinn.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú ert óvenju ástríðufull/ur þessa
dagana. Margar hendur vinna létt verk en
stundum getur ringulreiðin orðið of mikil.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Allt sem viðkemur heimili og fjöl-
skyldu er í brennidepli um þessar mundir.
Gleymdirðu afmælisdegi? Þú getur allt sem
þú vilt.
Stjörnuspá
1. e4 c5 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. g3 Rc6 5.
Bg2 d6 6. d3 Hb8 7. Rge2 a6 8. Hb1 b5
9. b3 Bg4 10. f3 Bd7 11. Bb2 e6 12. Dd2
Rf6 13. g4 Da5 14. O-O O-O 15. Rg3
Rd4 16. Dd1 b4 17. Rce2 e5 18. Rxd4
cxd4 19. Ha1 Db6 20. Bc1 a5 21. h3 a4
22. f4 Ha8 23. Bd2 axb3 24. axb3 Ha3
25. g5 Re8 26. f5 f6 27. h4 Rc7 28. h5
Hfa8 29. Hb1 gxh5 30. Dxh5 Ha2
Staðan kom upp á Norðurlandamóti
öldunga (60 ára og eldri) sem lauk fyrir
skömmu í húsakynnum Taflfélags
Reykjavíkur í Faxafeni. Finninn Eero
Patola (1886) hafði hvítt gegn Svíanum
Nils Malmdin (2307). 31. g6! Hxd2 32.
Dxh7+ Kf8 33. Rh5 Re8 34. Rxg7
Haa2 35. Bh3 Rxg7 36. Dh8+ hvítur
stendur nú til vinnings. 36…Ke7 37.
Dxg7+ Kd8 38. Dxf6+ Kc7 39. g7 Db8
40. Df8 Ha8 41. Dxb8+ Hxb8 42. Hf3
Hg8 43. f6 Ha2 44. Hg3 Bxh3 45. f7 og
svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.