Morgunblaðið - 28.09.2011, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2011
Ungverski kvikmyndaleik-stjórinn Béla Tarr ereinn af fjórum heiðurs-gestum á RIFF þetta ár-
ið og af því tilefni eru sýndar þrjár
myndir eftir hann: Fyrst myndin
sem hann gerði þegar hann var ein-
ungis 22 ára, Hreiðurgerð (Family
nest, 1977), Harmóníur Werck-
meisters (Werckmeister Harm-
onies, 2000) og Hesturinn í Tórínó
(The Turin Horse, 2011) sem er nýj-
asta mynd hans og sú síðasta, eftir
því sem hann segir sjálfur.
Þar segir frá feðginum í hrjóstr-
ugri sveit í Ungverjalandi við lok
nítjándu aldar. Kveikjan að mynd-
inni er atburður sem átti sér stað á
Ítalíu árið 1889 þegar heimspeking-
urinn Friedrich Nietzsche varð vitni
að því að maður nokkur í Tórínó
barði hest sinn. Nietzsche gat ekki
hamið sig og stökk til og batt enda á
ofbeldið og grét, en þessi viðburður
markaði upphafið á tíu ára þögn
hans sem varði til æviloka. Kvik-
myndin Hesturinn í Tórínó fer frá
þessu atviki en skoðar það sem
gerðist á eftir, segir frá eiganda
hestsins, dóttur hans, og hestinum.
Myndin er svart-hvít og í henni er
nánast ekkert talað og fátt gerist á
þessum tveimur og hálfa tíma. Tök-
urnar eru mjög langar og dvalið
lengi við hvert atriði af mikilli ná-
kvæmni. Slíkt er ekkert nýtt hjá
Béla Tarr, hann er einmitt frægur
fyrir að ögra viðteknum venjum í
kvikmyndagerð (hann hefur gert sjö
klukkustunda langa mynd) og legg-
ur mikið upp úr nánd við persón-
urnar á tjaldinu. Einfaldleikinn ræð-
ur för og tökurnar/rammarnir eru
hver öðrum fallegri, mér leið satt að
segja oft eins og á ljósmyndasýn-
ingu á meðan ég horfði á myndina.
Þetta er ein allsherjar stemning og
minnti mig oft á myndir Tarkov-
skys.
Þessi mynd er langt ljóð (reyndar
mjög langdregið ljóð). Fyrir nútíma-
fólk, þar sem hraði og stöðug til-
breyting ræður för, reynir sannar-
lega á þolinmæðina að horfa á þessa
mynd, en sennilega höfum við frekar
gott af því að láta stoppa okkur af.
En mér fannst samt ekkert sér-
staklega gaman að horfa á þau feðg-
in gera sama hlutinn aftur og aftur,
setjast við matarborð og graðga í sig
kartöflur með berum höndum, fara á
fætur, fara að sofa, sækja vatn í
brunninn, athuga með hestinn. En
vissulega tekst með þessum endur-
tekningum að gera fásinnið hjá þeim
feðginum, fátæktina og hokrið, nán-
ast áþreifanlegt. Hversdagsleikans
grimmd smýgur í merg og bein. Til-
veran er blýþung. Ég sárvorkenndi
þeim að vera stödd í þessari allt-
umvefjandi eymd og volæði.
Endalausar þagnir og eina um-
hverfishljóðið dapurlegt vindgnauð.
Einstaka sinnum var tónlist og þá
endurtekið stef þar sem fiðla græt-
ur. Og framvindan er öll niður á við.
Þetta versnar bara. Þetta er ein-
hvers konar dómsdagsmynd, þar
sem þögn trjáormanna í upphafi er
aðeins fyrsta merkið um að eitthvað
er ekki eins og það á að vera. Það er
engin von, ekkert bros. Argasta
þunglyndi myndi einhver segja, en
sett fram á gullfallegan hátt. Ég er
ekkert hissa á því að Béla Tarr sé
vinsæll hjá kvikmyndanördum,
þetta er ekki fyrir hvern sem er.
Sjálfur hefur hann sagt að þessi
mynd sé um „the heaviness of hum-
an existence“ eða byrði mannlegrar
tilvistar. Vissulega er þessi mynd
fallegt listaverk en heldur lang-
dregið.
Ljóðrænt vonleysi
RIFF: Háskólabíó
Hesturinn í Tórínó bbbbn
Leikstjóri: Béla Tarr. Aðalhlutverk: Ján-
os Derzsi, Erika Bók, Mihály Kormos.
Ungverjaland, 2011. 146 mín. Flokkur:
Heiðursverðlaun.
KRISTÍN HEIÐA
KRISTINSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Rok Dóttir hestaeigandans berst á hverjum morgni í roki að brunninum til að sækja vatn. Stilla úr Hestinum í Tór-
ínó eftir Béla Tarr. Myndin er um byrði mannlegrar tilvistar, að sögn leikstjórans.
Argentínski kvikmynda-leikstjórinn Carlos Sorinfærir okkur á kvik-myndahátíð þessa árs al-
veg splunkunýja mynd sem fjallar
um og dregur nafn sitt af hvarfi
heimiliskattar. Hjónin Beatriz og
Luis eiga þennan ágæta kött og
þau eru ósköp venjulegt fólk, en
eru reyndar stödd í þeim að-
stæðum að í upphafi myndar er
Luis útskrifaður af geðdeild þar
sem hann hefur verið lagður inn
vegna þess að hann hefur misst
stjórn á sér og lúskrað duglega á
vini sínum og samstarfsfélaga.
Hann hefur ásakað þennan félaga
sinn um að hafa stolið lífsverki
sínu, ritgerð eða rannsókn í sagn-
fræði, en Luis er prófessor í fag-
inu. Þau hjónin reyna að koma lífi
sínu í venjulegt horf eftir heim-
komu heimilisföðurins og allt virð-
ist í lagi á yfirborðinu, en ekki er
allt sem sýnist. Kötturinn þeirra,
Donatello, hverfur fljótlega og í
framhaldi af því læðist efinn og
óttinn að Beatriz og hún veit ekki
svo gjörla hvort hún getur treyst
geðheilsu manns síns, jafnvel ekki
sinni eigin. Áhorfandinn sveiflast á
milli þess að skilja efasemdir
hennar um eðli eiginmannsins og
þess að álíta hana óþarflega tor-
tryggna, jafnvel haldna ofsóknar-
æði. En vissulega er sá möguleiki
fyrir hendi að kettinum hafi verið
fyrirkomið. Þótt allt sé meira og
minna með kyrrum kjörum í
hversdagslífinu eykst innri órói
Beatriz eftir því sem yfirvegun og
gæska Luis er meiri. Carlos Sorin
tekst með ákaflega fíngerðum
hætti og ýmsum kvikmyndalegum
brögðum, m.a. lýsingu og sjónar-
hornum, að læða inn undirliggj-
andi óhugnaði. Þetta er því í raun
óvenjulegur tryllir eða hrollvekja
þar sem áhorfanda er haldið í
stöðugri og lúmskri spennu og
óvissu. Snilldarleikur beggja aðal-
leikaranna á ekki síður þátt í að
skapa andrúmsloftið, þau skila
sínu fjarska vel með næmi og hár-
fínum blæbrigðum. Mikið er um
nærmyndir af andlitum þeirra þar
sem minnstu viprur koma fram og
segja sitt. Og til að fullkomna
bræðinginn þá er lúmskur húmor
ekki langt undan. Það er einhver
tegund af hrekkjusvíni í þessu öllu
saman, eins og það sé verið að
stríða áhorfandanum á einhvern
hátt. Athyglisverð, skemmtileg og
vönduð mynd.
Kötturinn veit hvað hann syngur
RIFF: Háskólabíó/Bíó Paradís
El Gato desaparece
bbbbn
Leikstjóri: Carlos Sorin. Aðalhlutverk:
Luis Luque, Beatriz Spelzini. Argentína,
2011. 89 mín. Flokkur: Fyrir opnu hafi
KRISTÍN HEIÐA
KRISTINSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Köttur Luis og Beatriz þurfa að takast á við breytta stöðu sín á milli eftir
heimkomu Luis af geðdeildinni. Aðalleikararnir eiga snilldarleik.
HHHH
- K.S. ENTERTAIN-
- P.H. SAN
FRANCISCO
HHHH
EIN ALLRA BESTA MYND ÁRSINS
-ENTERTAINMENT
WEEKLY
HHHHH
-VARIETY
HHHH
-BOX OFFICE
MAGAZINE
HHHH
HHHH
- A.E.T MORGUNBLAÐIÐ
- EMPIRE
HHHH
VINSÆLASTA
MYNDIN Í
USA Í DAG
UPPLIFÐU
TÖFRA DISNEY
Í ÁSTSÆLUSTU
TEIKNIMYND
ALLRA TÍMA
STÓRKOSTLEG MYND FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA - SÝND Í TAKMARKAÐAN TÍMA
ÍSLENSK TAL
ÓGNVEKJANDI
SPENNUÞRILLER
UPPLIFÐU
MARTRÖÐINA
Í MAGNAÐRI
ÞRÍVÍDD
SÝND Í
HHHHH
-FRÉTTATÍMINN, Þ.Þ.
MIÐASALA Á WWW.SAMBIO.IS
JOHNNY ENGLISH REBORN kl. 5:50 - 8 - 10:10 2D L
JOHNNY ENGLISH REBORN kl. 8 - 10:10 2D VIP
SHARK NIGHT kl. 8 - 10:10 3D 16
KONUNGUR LJÓNANNA kl. 6 3D L
DRIVE kl. 5:50 VIP - 8 - 10:10 2D 16
ALGJÖR SVEPPI kl. 6 2D L
CRAZY, STUPID, LOVE kl. 5:30 - 8 - 10:20 2D 7
HORRIBLE BOSSES kl. 8 - 10:10 2D 12
BÍLAR 2 M. ísl. tali kl. 5:40 2D L
/ ÁLFABAKKA
DRIVE kl. 5:30 - 8 - 10:20 2D 16
KONUNGUR LJÓNANNA Ísl. tal kl. 5:30 3D L
KONUNGUR LJÓNANNA Enskt tal kl. 8 3D L
SHARK NIGHT kl. 8 - 10:40 3D 16
ALGJÖR SVEPPI kl. 5:30 2D L
CRAZY, STUPID, LOVE kl. 8 - 10:10 2D 7
FRIGHT NIGHT kl. 10:30 2D L
SHARK NIGHT kl. 10:10 3D 16
JOHNNY ENGLISH REBORN kl. 8 2D L
ALGJÖR SVEPPI kl. 8 2D L
30 MINUTES OR LESS kl. 10:10 2D 14
/ EGILSHÖLL
/ KRINGLUNNI
/ KEFLAVÍK
NÆSTU SÝNINGAR Á FÖSTUDAG
KONUNGUR LJÓNANNA Ísl. tal kl. 6 3D L
DRIVE kl. 8 2D 16
SHARK NIGHT kl. 10:10 3D 16
ALGJÖR SVEPPI kl. 6 - 8 2D L
FRIGHT NIGHT kl. 10:10 2D 16
/ AKUREYRI
/ SELFOSSI
SHARK NIGHT kl. 5:50 - 8 - 10:10 3D 16
KONUNGUR LJÓNANNA Ísl. tal kl. 6 3D L
KONUNGUR LJÓNANNA Enskt tal kl. 8 3D L
DRIVE kl. 8 - 10:10 2D 16
ALGJÖR SVEPPI kl. 6 2D L
KVIKMYNDAHÁTÍÐ
THE TREE OF LIFE Ótextuð kl. 10 2D 10
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG
KEFLAVÍKSÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL,
KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKI. EGILSHÖLL,
KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND Í EGILSHÖLL OG AKUREYRI SÝND Í KRINGLUNNISÝND Í ÁLFABAKKA OG EGILSHÖLL
ROWAN ATKINSON
FRÁ ÞEIM SÖMU
OG FÆRÐU OKKUR
MISTER BEAN
HANN HLÆR FRAMAN Í HÆTTUNA