Morgunblaðið - 05.10.2011, Blaðsíða 27
DAGBÓK 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 2011
Sudoku
Frumstig
1 4
2 3 8
7 5 8 6
1
4 6 7
5 1 4
6 4 3 7 8
5 1
1 8 7 3
9 5
1
1 7 2
5 9 7 2
8 9 5
4 7 8
3 8 9 1
7 4
2 8 4
7 3
9 1 4
7 2
3 5
6
7 1 8
9 2 1
4 5 6
8 5 3 7 2
1 7 6 9 8 3 5 2 4
5 2 3 1 7 4 6 8 9
9 4 8 2 5 6 3 1 7
6 3 2 5 9 1 7 4 8
8 5 4 7 6 2 9 3 1
7 9 1 3 4 8 2 6 5
2 6 9 4 1 5 8 7 3
4 8 5 6 3 7 1 9 2
3 1 7 8 2 9 4 5 6
9 7 8 5 4 1 3 6 2
2 1 3 6 7 8 5 9 4
5 4 6 9 3 2 8 7 1
1 2 7 4 8 3 9 5 6
6 8 5 7 1 9 4 2 3
3 9 4 2 6 5 7 1 8
7 3 9 1 2 4 6 8 5
4 5 1 8 9 6 2 3 7
8 6 2 3 5 7 1 4 9
4 1 8 5 9 3 2 7 6
6 9 3 7 2 4 8 5 1
7 2 5 8 1 6 9 3 4
3 8 1 4 6 2 7 9 5
5 4 9 3 7 8 1 6 2
2 7 6 1 5 9 3 4 8
9 6 4 2 3 1 5 8 7
1 3 7 6 8 5 4 2 9
8 5 2 9 4 7 6 1 3
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er miðvikudagur 5. október,
278. dagur ársins 2011
Orð dagsins: Nýtt boðorð gef ég yður,
að þér elskið hver annan. Eins og ég
hef elskað yður, skuluð þér einnig
elska hver annan. (Jóh. 13, 34.)
Grátt var í efstu hlíðum Esjunnar ígærmorgun. Ef rok og rigning
helgarinnar dugði ekki til að sann-
færa fólk um að sumarið væri að baki
og vetur handan við hornið sá Esjan
um að taka af allan vafa.
Ísland á sér margar hliðar.
x x x
Erlendir vinir Víkverja dvöldu áÍslandi liðna helgi ásamt vina-
hjónum sínum, sem voru að koma
hingað í fyrsta skipti. Þau komu á
fimmtudag og fóru á sunnudag. Allan
tímann var rigning og rok fyrir utan
sólarglennu á laugardagsmorgun
þegar þau óku á Þingvelli, Geysi og
Gullfoss.
x x x
Sólar naut við allt þar til komið varí Haukadal. Þegar Strokkur
hafði gosið einu sinni fyrir fólkið opn-
uðust himnarnir og regnið steyptist
niður. Leiðin til baka á bílastæðið
virtist mun lengri í úrhellinu en leiðin
frá bílastæðinu.
x x x
Þegar kemur að ferðamálum erenginn ósérhlífnari en Strokkur.
Geysir var vitaskuld tilkomumeiri og
nafn hans er í erlendum tungumálum
orðið almennt heiti fyrir goshveri.
Geysir er aftur á móti sestur í helgan
stein á meðan Strokkur viðheldur
sinni virkni hvernig sem viðrar, jafn
að nóttu sem degi, sumri sem vetri.
Alltaf gýs hann á nokkurra mínútna
fresti. Gestir frá öllum heimshornum
bíða í ofvæni og gefa frá sér hrifning-
arstunur þegar vatnsborðið byrjar
að bólgna áður en strókurinn stígur
upp.
x x x
Rokið og rigningin eru ekki notuðí landkynningu fyrir Ísland, en
kunna þó að hafa sínar jákvæðu hlið-
ar. Umræddir ferðalangar notuðu
tímann, sem þau hefðu verið utan-
dyra, til að fara í búðir, kaupa minja-
gripi og leggja sitt af mörkum til að
efla íslenskan efnahag og bæta í
gjaldeyrisforðann. Einnig skoðuðu
þeir söfn í Reykjavík og voru ánægð-
ir að ferðalokum þrátt fyrir hama-
ganginn í veðrinu. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 dregur á tálar, 8
árstíð, 9 kinnungur, 10 eldi-
viður, 11 hnýta skóþveng, 13
sár, 15 málms, 18 klöpp, 21
verkfæri, 22 glöddu, 23 ilm-
ar, 24 þolgóð.
Lóðrétt | 2 skipuleggi, 3 til-
biðja, 4 formóðir manna, 5
afkvæmum, 6 viðbragð, 7
þver, 12 tunga, 14 reyfi, 15
saklaus, 16 elsku, 17 and-
varpi, 18 æki, 19 guðlegri
veru, 20 gef að borða.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt 1 mjólk, 4 sýsla, 7 glíma, 8 ólæti, 9 met, 11 atti, 13 garn,
14 negla, 15 görn, 17 töng, 20 las, 22 flúði, 23 tálmi, 24 glata, 25
lurka.
Lóðrétt 1 mygla, 2 ólíkt, 3 kram, 4 snót, 5 snæða, 6 asinn, 10
eigra, 12 inn, 13 gat, 15 göfug, 16 rjúfa, 18 örlar, 19 geiga, 20
lina, 21 stal.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Þefur af einspili. V-NS.
Norður
♠1063
♥KG854
♦106
♣Á65
Vestur Austur
♠85 ♠K97
♥972 ♥D63
♦ÁG97542 ♦KD
♣4 ♣KG872
Suður
♠ÁDG42
♥Á10
♦83
♣D1093
Suður spilar 4♠.
Það gekk á ýmsu í þessu spili frá BR
í síðustu viku, en þar sem Oddur
Hjaltason sat í suður vakti vestur á 2G,
sem sýndi veika hindrun í láglit. Eftir
þreifingar austurs komst Oddur inn á
3♠ og bróðir hans og makker í norður,
Hrólfur Hjaltason, lyfti í 4♠. Útspilið
var ♣4.
Oddur fann einspilsþefinn af lauf-
fjarkanum og drap því á ásinn. Hann
renndi ♠10, tók annað tromp með svín-
ingu og spilaði tígli í bláinn. Austur tók
á tígulhjónin og losaði sig út á ♠K –
ranglega, að sögn Odds, því þegar
Oddur kláraði nú trompin þvingaðist
austur í mjúku litunum. Til að valda
♥D varð austur að fara niður á ♣K-G
tvíspil, en þá gat Oddur farið inn á ♥K
og fríað laufið í einni ferð.
Hjarta frá austri hefði slitið sam-
ganginn.
5. október 1919
Barn náttúrunnar eftir Hall-
dór Laxness kom út. Þetta var
fyrsta bók Nóbelsskáldsins.
„Ég hygg að vér megum
vænta hins besta frá honum,“
sagði gagnrýnandi Alþýðu-
blaðsins. „Og hver veit nema
að Halldór frá Laxnesi eigi
eftir að verða óskabarn ís-
lensku þjóðarinnar.“
5. október 1946
Alþingi samþykkti samning
um afnot Bandaríkjanna af
Keflavíkurflugvelli. Harðar
deilur urðu um samninginn og
nýsköpunarstjórnin sprakk
vegna þeirra.
5. október 1949
Dregið var í fyrsta sinn í
Vöruhappdrætti Sambands ís-
lenskra berklasjúklinga
(SÍBS). Hæsti vinningur, hús-
gögn í tvær stofur, kom á miða
númer 18064.
5. október 1963
Hljómar léku í fyrsta sinn op-
inberlega, í Krossinum í
Njarðvík. Nákvæmlega fjöru-
tíu árum síðar héldu þeir tón-
leika í Austurbæ.
5. október 2000
Víkingaskipið Íslendingur
kom til hafnar í New York, en
lagt hafði verið af stað frá Ís-
landi í júní. „Takmarkinu er
náð,“ sagði Gunnar Marel
Eggertsson skipstjóri. Ferðin
var farin til að minnast landa-
fundanna árið 1000.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
„Ég er milljarðamæringur,“ segir afmælisbarn
dagsins, Þór Jakobsson veðurfræðingur, en hon-
um reiknast svo til að hann hafi nú lifað í rúmlega
2,3 milljarða sekúndna. Þór fæddist í Kanada, son-
ur hjónanna séra Jakobs Jónssonar og Þóru Ein-
arsdóttur. Hann lærði veðurfræði í Noregi og í
Kanada. Er heim var komið hóf Þór störf hjá Veð-
urstofu Íslands og hafði þar umsjón með hafís-
þjónustu. „Ég er hættur störfum, en kíki þó oft til
þeirra í kaffi,“ segir Þór, sem situr síður en svo
auðum höndum. „Ég er að bauka hitt og þetta; ég
er með aðstöðu í Reykjavíkurakademíunni, ég er í
forsvari fyrir Oddafélagið, ég er viðriðinn hafíssetur á Blönduósi og
svo stend ég fyrir Sólstöðugöngum ásamt nokkrum félögum mínum.“
Þór er kvæntur og á tvö börn og þrjú barnabörn. Hann hyggst taka
lífinu með ró á afmælisdaginn, en hyggur á þeim mun meiri hátíða-
höld eftir fimm ár. „Ég er að fara að undirbúa 80 ára afmælið,“ segir
hann kíminn.
Aldurinn leggst vel í Þór. „Mér finnst þetta að vísu vera há tala, en
ég teldist fremur ungur ef ég væri páfi og svo held ég líka að ráðherr-
arnir í Kína séu yfirleitt á mínum aldri.“ annalilja@mbl.is
Þór Jakobsson er 75 ára í dag
Eins og ungur páfi
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is
Flóðogfjara
5. október Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 0.21 2,9 6.31 1,4 13.10 3,2 19.41 1,4 7.48 18.45
Ísafjörður 2.35 1,5 8.45 0,8 15.27 1,8 22.08 0,7 7.56 18.47
Siglufjörður 5.04 1,1 10.50 0,7 17.17 1,2 23.47 0,5 7.39 18.30
Djúpivogur 3.12 0,7 9.54 1,8 16.30 0,9 22.26 1,5 7.18 18.14
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Ekki vera hræddur við að kreista allt
sem þú getur út úr daglegum viðfangsefnum.
Dagurinn í dag er tilvalinn til að biðja um hluti
eins og lán, leyfi, eða hvaðeina annað.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Ekki taka áhættu þó að þú viljir vera
sjálfstæður og teljir að þú þarfnist ekki leið-
sagnar. Aðrir fylgja þínu fordæmi.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Stemningin í fjölskyldunni ýtir þér í
áhugaverðar áttir. Skiptir þá engu hvort um
lítinn hlut er að ræða eða stóran.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Einbeittu þér að einu verkefni í einu
og þá mun allt ganga upp hjá þér. Gættu þess
bara að ganga ekki of nærri sjálfum þér.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Félagslyndi þitt og áhugi á að sjá og
hitta aðra dregur að þér athygli í dag. Ekki
taka viðkomandi sem sjálfsögðum hlut.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Lítið reiðikast á réttum stað getur gef-
ið þér góða hugmynd að breytingum. Treystu
innsæi þínu.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Samræður við yfirmenn um stöðu mála
og stuðning munu verða gagnlegar. Að
breyta bara einum sið kostar mikinn aga og
honum býrðu yfir nú.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Ekki eyða orku í smáhluti sem
enginn tekur eftir nema þú. Og nú skyndilega
hefur þú allan tímann í heiminum.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Farðu út að skemmta þér og fólk
mun safnast að þér. Fáðu góðan vin til að
slást í för með þér.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Vinur eða kunningi lætur ekki
mjög vel að stjórn þessa dagana, sama hvað
þú reynir mikið. Einhver telur sig vita hvað
þér er fyrir bestu.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Nágranni eða fjölskyldumeðlimur
virðist ætla að eyðileggja næðið sem þú met-
ur svo mikils. Brettu nú upp ermarnar og
láttu sem flesta heyra frá þér.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú þarft að leysa ákveðið mál heima
fyrir og það þolir enga bið svo þú verður
hreinlega að láta það ganga fyrir öllu öðru.
Samræður geta orðið glaðlegar og borið góð-
an árangur.
Stjörnuspá
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. Rc3 a6
5. a4 e6 6. g3 c5 7. Bg2 cxd4 8. Rxd4
e5 9. Rc2 d4 10. Rd5 Rxd5 11. cxd5
Bg4 12. O-O Rd7 13. h3 Bh5 14. f4
Bc5 15. Kh1 O-O 16. fxe5 De7 17. Bf4
Rxe5 18. Rxd4 Hfe8 19. Hc1 Ba7 20.
Rf5 Df6 21. Dc2 Bxe2 22. Rh6+ gxh6
23. Dxe2 Rg6 24. Dg4 Dxb2 25. Bxh6
Be3 26. Bxe3 Hxe3 27. d6 Db6 28. d7
Hd8 29. Hc8 He7 30. Df5 Re5
Staðan kom upp á alþjóðlegu móti
sem lauk fyrir skömmu í Los Angeles
í Bandaríkjunum. Hollenski stór-
meistarinn Loek Van Wely (2689)
hafði hvítt gegn kollega sínum Alj-
eandro Ramirez (2594) frá Banda-
ríkjunum (Aljeandro tefldi áður und-
ir fána Kostaríku). 31. Df6! Dxf6 32.
Hxd8+ Kg7 33. Hg8+! og svartur
gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.