Morgunblaðið - 05.10.2011, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 2011
Æskan Mikilvægt er að hlusta á hugmyndir unga fólksins þegar virkja á það til athafna.
Svanhildur Eiríksdóttir
svei@simnet.is
K
eflavíkurkirkja fór fyr-
ir skömmu af stað
með verkefni fyrir
ungt fólk sem nefnist
Energí og trú og
styrkt er m.a. af Kjalarnesprófast-
dæmi og Keflavíkurkirkju. Að
sögn Hjördísar Kristinsdóttur
verkefnisstjóra er ástæðunnar að
leita í því að margt ungt fólk leitar
til kirkjunnar í vanda sínum og
markmið verkefnisins sé að virkja
það til athafna og fá það til að
bera ábyrgð á eigin lífi. „Málþingið
á fimmtudag er einn liður í þessu
verkefni en þar verður bæði inn-
legg frá fyrirlesurum sem vilja
hvetja ungt fólk til árangurs, m.a.
með skapandi forystu, fræðsla um
hvað standi ungu fólki á Suður-
nesjum til boða en í framhaldi köll-
um við eftir viðbrögðum frá unga
fólkinu sem það vinnur að á mál-
þinginu. Við viljum stuðla að sam-
vinnu og samræðum þeirra aðila
sem vinna í þágu ungs fólks og
þess sjálfs,“ sagði Hjördís í sam-
tali við blaðamann. Hún áréttaði
að þó að þingið væri haldið í
Keflavíkurkirkju væri það ekki
trúarlegs eðlis, starfsfólkið bæri
einungis hag samfélagsins fyrir
brjósti. „Við viljum stefna hærra
fyrir Suðurnesin. Við hljótum að
vera búin að stíga í botninn og þá
er bara að spyrna upp,“ sagði
Hjördís.
Vonleysi að vera á
skjön við samfélagið
Ráðstefnan er hugsuð
fyrir þau ungmenni sem
eru án atvinnu og hafa
ekki sömu tækifæri og
aðrir. Oft eru þau komin í
mikinn vanda og erfitt að
snúa við blaðinu. „Það
fylgir því mikið vonleysi að
vera á skjön við samfélagið.
Þú vaknar á öðrum tíma, þú
missir úr og máltíðirnar
samanstanda oft af nær-
ingarsnauðum
skyndibita. Það er
hægt að snúa við
blaðinu eins og dæmin hafa sannað
og þau munu fá vitneskju um hvað
stendur þeim til boða, bæði frá
Miðstöð símenntunar á Suð-
urnesjum, sem býður upp á náms-
leiðir fyrir ungt fólk sem og Evr-
ópu unga fólksins, t.d. varðandi
atvinnumál og önnur tækifæri í
Evrópu, en samtökin styrkja þessa
ráðstefnu sérstaklega. Við viljum
heyra hvernig unga fólkið sér
framtíðina, hvernig því finnst það
geta haft áhrif og hvort hægt sé að
færa hugmyndir þeirra í nyt.“
Hjördís sagði að málþingið
væri ekki síður hugsað sem for-
vörn og þannig væri kirkjan í sam-
starfi við nemendaráð og náms-
ráðgjafa grunn- og
framhaldsskólanna á Suðurnesjum
og þeir nemendur sem áhuga hafa
á málþinginu geta fengið frí úr
skóla til þátttöku. Aðalfyrirlesarar
eru Logi Geirsson handknattleiks-
maður og Sigrún Sævarsdóttir
Griffths, tónlistarkennari við Gu-
Nú er bara að spyrna
upp frá botninum
Hvernig sér unga fólkið framtíðina fyrir sér og hvernig getum við fært okkur
framtíðarsýn þeirra í nyt? Þetta er meðal þess sem einblínt verður á í Keflavík-
urkirkju á fimmtudag á málþinginu Hærra, ég og þú sem boðið verður upp á
fyrir ungt fólk á Suðurnesjum.
Morgunblaðið/Úr myndasafni Keflavíkurkirkju
Skapandi forysta Sigrún Sævarsdóttir Griffths þekkir kirkjustarfið vel.
Vefsíðan desiretoinspire.net er af-
rekstur samvinnu tveggja kvenna
sem þó hafa aldrei hist og búa meira
að segja hvor í sinni heimsálfunni.
Kim starfar hjá netfyrirtæki í Kanda
en Jo starfar fyrir hið opinbera í ástr-
ölsku borginni Brisbane. Þær deila þó
báðar ómældi ástríðu fyrir innan-
hússhönnun og þannig lágu leiðir
þeirra saman. Þær tóku að skiptast á
ljósmyndum af fallegum hlutum fyrir
heimilið en þær eyða báðar stórum
hluta frítíma síns í að finna hluti í hið
fullkomna herbergi. Á vefsíðunni má
sjá ýmiss konar flottar hugmyndir
sem Kim og Jo hafa fundið á ferðum
sínum um veraldarvefinn en þar má
líka finna ljósmyndasafn þeirra
stallna. Það er varla annað hægt en
að verða fyrir frískandi innblæstri af
þessari vefsíðu og þar er að finna
margar hentugar og smart lausnir
fyrir heimilið.
Vefsíðan www.desiretoinspire.net
Ljósmynd/Óskar P. Friðriksson
Smart Það eru allir litlu hlutirnir sem skipta máli þegar við skreytum heimilið.
Frískandi og smart innblástur
Hljómsveitin Greifarnir fagna 25 ára
starfsafmæli með tónleikum í Aust-
urbæ hinn 6. október og í Hofi á Ak-
ureyri 8. október. Tónleikarnir eru um
leið útgáfutónleikar í tilefni þriggja
diska útgáfu, Greifarnir fyrstu 25 ár-
in, sem er safn 40 bestu laga Greif-
anna og tónlistarmyndbanda. Á efn-
isskrá tónleikanna verða flest
vinsælustu lög Greifanna og nokkur
sem eru í sérstöku uppáhaldi hjá
drengjunum sjálfum. Felix Bergsson
mun mæta aftur eftir langa fjarveru
og taka nokkur lög en Bergþór Páls-
son verður gestur Greifanna í Austur-
bæ og Óskar Pétursson í Hofi.
Endilega …
… kíkið á
Greifatónleika
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Söngvari Felix Bergsson verður með.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
» Logi Geirsson hefur hvatt
ungt fólk til heilbrigðs líf-
ernis og atorku í daglegu
lífi. Hann mun á mál-
þinginu fjalla um hvernig
ungt fólk getur náð ár-
angri.
» Sigrún Sævarsdóttir
Griffths notar skap-
andi forystu til að
hjálpa fólki til þess
að leysa úr læð-
ingi þann
sköp-
unarkraft sem í því býr og yf-
irvinna þá tálma sem koma í veg
fyrir að það nái settu marki.
» Í framhaldi af erindum verðar
málstofur settar á laggirnar á
málþinginu þar sem gestir ræða
möguleikana og úrræðin til
framtíðar.
» Verkefnið Energí og trú miðar
að því að efla og hvetja ungt
fólk á Suðurnesjum til sjálf-
stæðis og athafna með fjöl-
breyttum námskeiðum og
stuðningi.
Skapandi forysta
RÁÐSTEFNA
Logi Geirsson
Sími 694 7911 • Eikjuvogur 29
Opið mán. - fim. 12-18,
fös. 12-16, lau. lokað