Morgunblaðið - 05.10.2011, Blaðsíða 36
MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 278. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Komin með koddaandlit vegna …
2. Spænski drengurinn látinn
3. Lögreglumennirnir voru fyrir
4. Eitt glæsilegasta hús landsins …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Tónleikaröðin Funk í Reykjavík með
Samúel Jón Samúelsson Big Band fer
fram 1. fimmtudag í mánuði frá sept-
ember til desember 2011. Aðrir tón-
leikar raðarinnar fara fram á Faktorí
á morgun, fimmtudag.
Tónleikaröðin Funk
í Reykjavík á morgun
Útgáfutónleikar
raftónlistar-
mannsins AMFJ
(Aðalsteins Jör-
undssonar) verða
haldnir á Bakkusi
í kvöld. Platan
hans, BÆN, mun
verða kynnt til
sögunnar. Aðrir
sem fram koma eru AuxPan (Elvar
Kjartansson), Gjöll (Jóhann Eiríksson
og Sigurður Harðarson) og Inside
Bilderberg (Georg Sveinbjörnsson).
Útgáfutónleikar
AMFJ
Í kvöld kl. 19.40 hefst Sigur-
sveinsvaka í tónlistarhúsinu Hörpu,
í tilefni af því að 100 ár eru liðin
frá fæðingu Sigursveins D. Krist-
inssonar tónskálds. Fjölmargir lista-
menn leggja fram krafta sína á vök-
unni, m.a. Ástríður
Alda Sigurð-
ardóttir píanó-
leikari og sagt
verður frá
uppvexti og
ævistarfi Sig-
ursveins.
Sigursveins minnst
á Sigursveinsvöku
Á fimmtudag Norðan 8-15 m/s, hvassast austast. Rigning eða
slydda á N- og A-landi. Bjartviðri á S- og V-landi. Hiti 0 til 8 stig.
Á föstudag Hæg breytileg átt og bjart veður. Víða næturfrost.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vaxandi NA-átt, 10-18 m/s seinnipartinn,
hvassast á NV-verðu landinu. Slydda í fyrstu, en rigning þegar
kemur fram á daginn. Þurrt að mestu S-lands.
VEÐUR
„Við erum búnir að setja
okkur ákveðin markmið í
þessu sambandi og ég er
bjartsýnn á að við náum
saman,“ sagði Geir Þor-
steinsson, formaður Knatt-
spyrnusambands Íslands,
þegar Morgunblaðið spurði
hann í gær hvort sambandið
væri nokkuð að spenna bog-
ann of hátt ef af ráðningu
Lars Lagerbäck verður en
KSÍ á í viðræðum við Svíann
kunna. »1
Vongóður um að
landa Lagerbäck
Hermann Hreiðarsson, sem hefur
verið fyrirliði landsliðsins í knatt-
spyrnu til skamms tíma, gerir ekki
ráð fyrir að spila oftar fyrir Íslands
hönd. „Ég hef alltaf gefið kost á mér
en það er fullt af ungum peyjum kom-
ið inní liðið, sem eru mjög sterkir, og
ég sé ekki annað en að framtíðin sé
björt,“ segir Hermann við Morgun-
blaðið. »3
Hermann sér fram
á lok landsliðsferilsins
Rut Jónsdóttir, landsliðskona í hand-
knattleik, er bjartsýn á að komast á
fulla ferð á ný eftir um hálfan mánuð.
Rut varð fyrir meiðslum á hné í leik
með danska liðinu Tvis Holstebro fyr-
ir um tveimur vikum. Mörg verkefni
eru framundan hjá kvennalandsliðinu
bæði í undankeppni EM í þessum
mánuði og í lokakeppni HM í Brasilíu í
desember. » 3
Rut gæti náð næstu
leikjum landsliðsins
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Hérna verður tívolí innanhúss
með um 90 mismunandi leik-
tækjum,“ segir Eyþór Guðjónsson,
framkvæmdastjóri skemmtigarðs-
ins sem verið er að útbúa þar sem
áður var Vetrargarðurinn í versl-
unarmiðstöðinni Smáralind í
Kópavogi, en gert er ráð fyrir að
staðurinn verði opnaður í nóv-
ember.
Undirbúningur vegna verkefnis-
ins hófst fyrir um þremur árum,
en framkvæmdir byrjuðu í sumar.
Húsnæðið er skammt frá veitinga-
stöðum og bíóinu, um 2.000 fer-
metrar á tveimur hæðum og er
hannað af alþjóðlega hönnunarfyr-
irtækinu KCC. Eyþór bendir á að
KCC hafi meðal annars hannað
skemmtigarð í verslunarmiðstöð í
Moskvu, sem var valinn sá besti í
heimi 2010. „Við höfðum þann
skemmtigarð að fyrirmynd og tók-
um það besta frá honum. Mikið
hefur verið lagt í skemmtigarðinn
og boðið verður upp á afþreyingu
fyrir alla aldurshópa.“
Eins og frumskógur
Skemmtigarðurinn er hugsaður
þannig að gengið er inn í frum-
skóg og þá blasa við alls konar
dýr og fleira. Fyrirtæki í Kína,
sem m.a. framleiðir leikmyndir
fyrir Walt Disney, vinnur nú að
gerð leikmyndanna og dýranna
ytra en á sama tíma vinna kanad-
ískir listmálarar við að mála frum-
skóginn á staðnum í Smáralind.
Kínversku dýrin, sem búin eru til
úr trefjaplasti, verða síðan hengd
upp hér og þar í frumskóginum.
„Þetta er nútíma Eden,“ segir Ey-
þór.
Tækin verða misjöfn að stærð
og gerð, frá litlum leiktækjum upp
í svonefnda sleggju, sem fer með
fólk í nokkurs konar rússíbanareið
upp í um 13 metra hæð. Klessubíl-
arnir verða á sínum stað, fallturn
og fleira. „Við verðum með öll nýj-
ustu og vinsælustu tækin,“ segir
Eyþór.
Fjölmennur vinnustaður
Að fyrirtækinu standa fjórar
fjölskyldur sem samtals eiga yfir
20 börn og barnabörn. „Við sáum
að svona afþreyingu vantaði hér-
lendis,“ segir Eyþór og leggur
áherslu á að rýmið í Smáralind
passi sérstaklega fyrir svona
skemmtigarð, það sé hvorki of lít-
ið né of stórt. Hann bætir við að
um 60 manns muni starfa í fyr-
irtækinu og kveður það ánægju-
legt að geta skapað vinnu fyrir
fólkið í landinu.
Skemmtigarður í Smáralind
Um 90 leiktæki
í gamla Vetrar-
garðinum
Morgunblaðið/Kristinn
Í startholunum Hjónin Eyþór Guðjónsson og Ingibjörg Guðmundsdóttir bíða spennt eftir að opna tívolí í Smáralind.
Víða erlendis eru skemmtigarðar í
verslunarmiðstöðvum. Íslendingar
þekkja sennilega tívolíið í versl-
unarmiðstöðinni Mall of America í
Minneapolis í Bandaríkjunum
einna best, en stærsti garðurinn er
Galaxyland í helstu verslunar-
miðstöðinni í Edmonton í Kanada.
Eyþór segir að áhersla verði lögð á
að halda miðaverði í lágmarki til
að allir geti skemmt sér. „Hugs-
unin er sú að öll fjölskyldan geti
komið og skemmt sér saman í æv-
intýralegu umhverfi,“ segir hann.
Góð reynsla sé af svona skemmti-
görðum í verslunarmiðstöðvum er-
lendis og sérstaklega þyki gott að
hafa bíó og veitingastaði samhliða
vegna þess að þá geti gestir slegið
margar flugur í einu höggi. „Þarna
verður eitthvað fyrir alla og sumar
alla daga. Íslensk veðrátta hefur
því engin áhrif á gleðina,“ segir
hann.
Gleði fyrir alla fjölskylduna
TÍVOLÍ INNANHÚSS ALLT ÁRIÐ AÐ ERLENDRI FYRIRMYND