Morgunblaðið - 05.10.2011, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 2011
FRÉTTASKÝRING
Örn Arnarson
ornarnar@mbl.is
Óveðursskýin hrannast upp á al-
þjóðlegum fjármálamörkuðum og
vaxandi ótti er um að meiriháttar
áföll kunni að vera yfirvofandi í
bankakerfi álfunnar. Stjórnvöld í
París og Brussel stjórnvöld neydd-
ust til þess að veita ríkistryggingu
á skuldbindingar fransk-belgíska
bankans Dexia í gær. Bankinn hef-
ur rambað á barmi gjaldþrots í
kjölfar þess að aðgengi hans að
skammtímafjármögnun hefur þorn-
að upp. Í tilkynningu frá stjórn-
völdum kom fram að unnið væri að
lausn í málefnum bankans með við-
komandi seðlabönkum en fregnir
herma að til standi að skipta Dexia
upp í góðan og slæman banka þar
sem ágóðinn af sölu þess fyrr-
nefnda myndi koma á móti eign
þess síðarnefnda á skuldabréfa-
safni sem hefur hríðlækkað í verði
undanfarin misseri. Belgísk og
frönsk stjórnvöld munu svo ábyrgj-
ast skuldbindingar slæma bankans.
Dexia táknrænn fyrir aðsteðj-
andi vanda á mörkuðum
Dexia er ekki veigalítill banki í
hinu stóra samhengi hlutanna.
Efnahagsreikningur hans nemur
um 200% af landsframleiðslu Belg-
íu, svo dæmi sé tekið. Ennfremur
sýnir staða Dexia hvernig neikvæð-
ar víxlverkanir vegna skuldakrepp-
unnar eru að grafa undan fjármála-
stöðugleikanum á evrusvæðinu.
Efnahagsreikningur Dexia hefur
verið berskjaldaður gagnvart verð-
rýrnun grískra ríkisskuldabréfa en
á sama tíma er bankinn afar háður
skammtímafjármögnun. Slík fjár-
mögnun hefur að miklu leyti lokast
fyrir evrópska banka að undan-
förnu vegna ótta fjárfesta um áhrif
skuldakreppunnar á efnahags-
reikning þeirra. Stigmögnun þessa
ástands hefur ýtt bankanum út að
ystu nöf.
Staða Dexia í dag er ekki ólík
þeirri sem var uppi haustið 2008.
Þá neyddust belgísk og frönsk
stjórnvöld til að leggja honum til
ríflega sex milljarða evra til þess
að forða honum frá falli. Hinsvegar
er sá reginmunur á ástandinu nú
og þá að stjórnvöldum er sniðinn
þrengri stakkur en áður þegar
kemur að því að ábyrgjast og taka
yfir skuldir bankageirans. Í þessu
samhengi er rétt að taka fram að
matsfyrirtæki hafa sett neikvæðar
horfur á lánshæfismat franska rík-
isins, sem er í efsta flokki, og ljóst
er að lækkun þess myndi hafa
veruleg neikvæð áhrif á fjármála-
markaði í Evrópu. Að sama skapi
er belgíska ríkið eitt það skuldug-
asta í Evrópu og þar af leiðandi er
svigrúmið lítið á þeim bænum.
Merkingarlaus álagspróf
Það að stjórnvöld í Belgíu og
Frakklandi hafi þurft að grípa til
sérstækra björgunaraðgerða vegna
Dexia vekur jafnframt áleitnar
spurningar um stöðu annarra
banka á evrusvæðinu. Ekki síst
vegna þess að Dexia stóðst álags-
próf evrópskra bankayfirvalda í
sumar með glæsibrag. Eins og Ro-
bert Preston, viðskiptaritstjóri
breska ríkisútvarpsins, BBC, bend-
ir á þá gáfu niðurstöður prófsins til
kynna að Dexia væri meðal traust-
ustu banka evrusvæðisins og að
eiginfjárhlutfall hans væri yfir 10%
þó svo að eignasafnið yrði fyrir
meiriháttar áföllum.
Óneitanlega vekur þetta spurn-
ingar um hver raunveruleg staða
annarra banka sem jafnframt stóð-
ust álagsprófið er. Spjót fjárfesta
hafa fyrst og fremst beinst að
frönskum bönkum undanfarið en
gengi hlutabréfa í þeim hefur hríð-
fallið undanfarna mánuði. Fyrir því
eru augljósar ástæður: Samkvæmt
matsfyrirtækinu Fitch eru stóru
frönsku bankarnir BNP, SocGen
og Crédit Agricole með um ríflega
50 milljarða evra stöðu í ríkis-
skuldabréfum verst stöddu evru-
ríkjanna. Eins og bent er á í um-
fjöllun Financial Times hafa þessir
bankar einungis tekið tillit til þess
afskriftarhlutfalls á grískum ríkis-
skuldabréfum sem horft var til í
sumar. Hinsvegar eru væntingar
um að á endanum verði að afskrifa
skuldir gríska ríkisins um helming
auk þess sem líkur eru á því að
virði ríkisskuldabréfa annarra
evruríkja rýrni enn frekar. Þetta
skýrir ótta fjárfesta um stöðu
frönsku bankanna og getu þeirra
til þess að fjármagna sig við núver-
andi kringumstæður. Leiða má lík-
ur að því að inngrip belgískra og
franskra stjórnvalda í málefni
Dexia séu til marks um það sem
kann að vera í vændum á fjár-
málamörkuðum.
Skuldakreppan að um-
breytast í bankakreppu
Stjórnvöld koma Dexia til bjargar Stóðst álagspróf með glæsibrag í sumar
Reuters
Úttekt Innistæðueigandi tekur út peninga úr hraðbanka evrópska bankans Dexia.
„Flestir sem að skoða þennan möguleika held ég að
sjái að þetta er nokkuð góður kostur,“ segir Har-
aldur Guðni Eiðsson, upplýsingafulltrúi hjá Arion
banka. Bankinn hóf nýlega að bjóða upp á óverð-
tryggð íbúðalán með föstum vöxtum til fimm ára.
Veitt er lán með 6,45% vöxtum fyrir allt að 60% af
markaðsvirði íbúðarinnar. Hægt er að fá að láni
20% til viðbótar en þá með ríflega eins prósentu-
stigs álagi.
Haraldur segir hafa mátt greina mikinn áhuga á
þessum nýju lánum. Verður enda að teljast ansi vel
boðið ef tekið er með í reikninginn að síðustu ár hef-
ur 12 mánaða verðbólga sveiflast frá tæplega 2% og
upp í ríflega 18%. Til samanburðar eru verðtryggð
íbúðalán Arionbanka boðin með 4,3% vöxtum.
Þegar kemur að endurskoðun vaxta segir Har-
aldur tekið mið af markaðsvöxtum á þeim tíma og
hafa lánþegar 30 daga glugga til að gera upp lánið
án uppgreiðslugjalda. Annars leggst á 2% upp-
greiðslugjald, en viðbótarlánin sem veitt eru um-
fram 60% af virði fasteignar eru þó alltaf án upp-
greiðsluþóknunar.
Þyki lánþegum ekki nógu góð kjörin sem bjóðast
þegar fyrstu fimm árin eru liðin ætti væntanlega að
vera auðsótt að endurfjármagna lánið allt á öðrum
stað. Þó má ekki gleyma að nýju láni fylgir lántöku-
kostnaður, 1% lántökugjald og 1,5% stimpilgjald. Í
tilviki láns upp á 20 milljónir er því lántökukostn-
aðurinn ríflega 500.000 krónur þegar allt er talið.
Kjósi lántaki hins vegar að breyta láninu eða nýta
aðra íbúðalánakosti hjá Arion segir Haraldur að-
eins þurfa að greiða fyrir skilmálabreytingu, sem í
dag kostar 10.000 krónur.
Íslandsbanki hefur boðið samskonar lán frá
árinu 2009, nema vextir eru bundnir til þriggja ára í
senn og eru nú 9,1%. Eins býður bankinn óverð-
tryggð lán með breytilegum vöxtum sem nú eru
5,4%. Bankinn hefur fellt tímabundið niður upp-
greiðsluþóknun lána á föstum vöxtum. Samkvæmt
upplýsingum frá upplýsingafulltrúa bankans eru
óverðtryggð lán um 90% af öllum íbúðalánum sem
bankinn veitir í dag.
Hjá Landsbankanum fengust þær upplýsingar
að bankinn veitti óverðtryggð lán aðeins með
breytilegum vöxtum. ai@mbl.is
Stemning fyrir óverðtryggðum lánum
Arion með ný óverðtryggð lán á föstum vöxtum Bjóða 6,45% vexti en verð-
bólga frá 2-18% síðustu ár Um 90% af íbúðalánum Landsbankans óverðtryggð
● Deutsche Bank, stærsti banki Þýska-
lands, sendi í gær frá sér afkomu-
viðvörun og sagði ljóst, að áætlanir um
hagnað á árinu myndu ekki standast
vegna umróts á fjármálamörkuðum.
Bankinn áætlaði að hagnaður af kjarna-
starfsemi yrði 10 milljarðar evra á
árinu, en segir nú ljóst að það takmark
náist ekki.
Afkomuviðvörun
frá Deutsche Bank
● Þór Jes Þórisson hefur verið ráðinn í
nýja stöðu framkvæmdastjóra Tækni-
mála Skiptasamstæðunnar en hann
hefur verið framkvæmdastjóri hjá Sím-
anum frá lokum 1997, nú síðustu ár
framkvæmdastjóri á Tæknisviði Sím-
ans. Þór Jes verður ábyrgur fyrir
stefnumörkun og samræmingu tækni-
mála Skiptasamstæðunnar.
Í stað Þórs í stöðu framkvæmda-
stjóra á Tæknisviði Símans hefur verið
ráðin Anna Björk Bjarnadóttir, sem hef-
ur gegnt stöðu framkvæmdastjóra Ein-
staklingssviðs Símans síðustu þrjú ár.
Anna Björk hefur starfað innan fjar-
skiptageirans síðastliðin ellefu ár, ef frá
er talið tæpt ár sem hún starfaði hjá
Capacent sem stjórnunarráðgjafi,
2007-2008.
Breytingar hjá
Símanum og Skiptum
Þór Jes
Þórisson
Anna Björk
Bjarnadóttir
Stuttar fréttir…
!"# $% " &'( )* '$*
++,-.+
+/0-.1
++0
.+-+.
.2-2,3
+4-.+.
+.,-00
+-550/
+/3-.5
+54-.+
++,-3,
+/0-4+
++0-00
.+-+/.
.2-+50
+4-.1.
+.,-1,
+-55/0
+/3-/
+54-15
.+0-54//
++,-44
+/3-+1
++0-11
.+-.33
.2-.+.
+4-0+.
+02-25
+-51./
+/5-05
+5/-2,
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Icelandair Group hefur gengið frá
lántöku hjá Deutsche Bank. Láns-
fjárhæðin nemur 18 milljónum banda-
ríkjadala, eða 2,1 milljarði íslenskra
króna. Lánið er veitt til sjö ára og
Deutsche Bank tekur veð í tveimur
flugvélum fyrirtækisins.
Fram kemur í tilkynningu að lánið
er nýtt til endurfjármögnunar á óhag-
stæðari lánum sem hafa verið greidd
upp. Afborganir eru vísitölubundnar
með hámarki og lágmarki. Kjörin fela
því í sér ígildi breytilegra vaxta með
vaxtaþaki og vaxtagólfi. Breytingar á
undirliggjandi vísitölu hafa áhrif á af-
borgunarkjör innan fyrirfram skil-
greindra marka. Deutsche Bank sér
um rekstur og daglega skráningu vísi-
tölunnar, sem á sér rúmlega 20 ára
sögu og er auðkennd á Bloomberg
sem DBPPULSU INDEX.
Icelandair Group tekur
lán hjá Deutsche Bank
Veikur hlekk-
ur vestra
MORGAN STANLEY
Erfiðir tímar.
Samhliða titringnum í evrópska
bankakerfinu hefur skuldatrygg-
ingaálagið á bandaríska bankann
Morgan Stanley rokið upp úr öllu
valdi undanfarna daga. Álagið
fór hæst yfir 800 punkta í gær
sem þýðir að mjög sennilegt er
talið að bankinn verði fyrir meiri-
háttar áföllum á næstunni.
Morgan Stanley er sagður vera
með miklar stöður gagnvart
franska bankakerfinu en auk
þess vegur það án efa þungt að
bankinn slapp naumlega við þrot
þegar Lehman Brothers fór á
hliðina haustið 2008.