Morgunblaðið - 07.10.2011, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2011
Núverandi ríkisstjórn setti niðurhóp sem hún hafði bæði traust
og velþóknun á til að fara með yf-
irstjórn bankasýslunnar í sínu um-
boði.
Framkvæmda-stjórinn, sem
gegnt hafði sínu
starfi frá upphafi
þess, kvaddi nokkuð
óvænt og mátti ráða
að eitthvað hefði
skort á ánægju framkvæmdastjór-
ans með ráðuneytið sem starfsemin
fellur undir.
Hvað sem því líður þá varð aðleita eftir nýjum fram-
kvæmdastjóra. Stjórnin gerði það
og tilkynnti sína niðurstöðu. Þá
varð uppi fótur og fit.
Á daginn kom að sá sem ráðinnvar til starfans var ekki sam-
fylkingarmaður. Það sem verra var
að nákvæm skoðun sýndi að hann
tengdist Framsóknarflokknum.
Málið var að sjálfsögðu tekið upp á
þinginu af hinum sómakæra þing-
manni Helga Hjörvar, og fór vel á
því. Hann hefur litríka reynslu úr
viðskiptalífinu, af fleiri stöðum en
einum. Hafðar voru uppi hótanir í
þingsal um að sæi ekki fram-
kvæmdavaldið að sér myndi þingið
„að sjálfsögðu“ grípa í taumana.
Stjórnarformaðurinn fullyrðir aðframkvæmdastjórinn hafi ver-
ið ráðinn með samhljóða atkvæðum
eftir „faglegt“ ráðningarferli. Hinn
nýráðni hefur gott orð, þykir hæfur
og vandaður maður með víðtæka
reynslu. Hann mun starfa undir
umsjá og eftirliti stjórnar og hún og
hann undir vökulu auga fjár-
málaráðuneytis.
En það breytir ekki því að mað-urinn er ekki samfylking-
armaður.
Helgi Hjörvar
Vitlaus maður
ráðinn
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 6.10., kl. 18.00
Reykjavík 5 skýjað
Bolungarvík 3 léttskýjað
Akureyri 3 skýjað
Kirkjubæjarkl. 8 skýjað
Vestmannaeyjar 6 skýjað
Nuuk -1 heiðskírt
Þórshöfn 8 skúrir
Ósló 10 heiðskírt
Kaupmannahöfn 12 skýjað
Stokkhólmur 12 skýjað
Helsinki 13 skýjað
Lúxemborg 11 skýjað
Brussel 12 léttskýjað
Dublin 10 skúrir
Glasgow 8 léttskýjað
London 12 heiðskírt
París 15 skýjað
Amsterdam 12 léttskýjað
Hamborg 12 skýjað
Berlín 12 skúrir
Vín 23 léttskýjað
Moskva 11 skýjað
Algarve 26 heiðskírt
Madríd 31 léttskýjað
Barcelona 25 léttskýjað
Mallorca 26 léttskýjað
Róm 23 léttskýjað
Aþena 22 heiðskírt
Winnipeg 21 heiðskírt
Montreal 7 skýjað
New York 13 heiðskírt
Chicago 19 heiðskírt
Orlando 29 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
7. október Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:54 18:38
ÍSAFJÖRÐUR 8:03 18:40
SIGLUFJÖRÐUR 7:46 18:22
DJÚPIVOGUR 7:24 18:07
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Snjóskaflinn í Gunnlaugsskarði í
Esjunni virðist ætla að hafa það af
þetta árið, en hann hefur horfið á
hverju ári frá 2001 eða í áratug. „Það
er heldur ólíklegt að það komi sú
hlýja í október að hann hverfi þó að
snjórinn sem hefur fallið þarna fari,“
segir Páll Bergþórsson, veðurfræð-
ingur og helsti sérfræðingur í skafl-
inum og hátterni hans. „En það er
samt ekki hægt að fortaka það.“
Páll segir að áður en fór að
snjóa á dögunum hafi mátt grilla í
skaflinn í litla stund. Hann sé því á
sínum stað. „Það eru mestar líkur til
þess að hann geymist þarna í vetur
og fram á næsta sumar.“
Á árunum 2001 til 2010 hvarf
skaflinn eftir 25. september. Páll
hefur bent á að mikið hafi snjóað í
apríl og þó að snjóinn hafi fljótlega
tekið upp í byggð hafi hann safnast
fyrir í fjöllum og m.a. í Gunnlaugs-
skarði. Tiltölulega kalt hafi verið í
júní og sumarhitinn undir meðallagi
síðasta áratugar. Fyrir um þremur
vikum sagði Páll að stæði skaflinn af
sér komandi rigningar og hlýindi
gæti hann dugað til vetrar. Sú spá
virðist ætla að ganga eftir.
Hitamælir
Árni Sigurðsson vitnar í Pál og
skrifar á vef Veðurstofunnar að í
hlýjum árum bráðni skaflinn, „áður
en snjór tekur að safnast þar fyrir
aftur að hausti, en á köldum tímabil-
um helst hann allt árið. Fram undir
aldamót hvarf skaflinn yfirleitt
ekki“.
Páll hefur fylgst með skaflinum
um árabil og kannað mælingar úr
honum. Samkvæmt könnunum hans
hvarf skaflinn ekki í heilan áratug
a.m.k. frá árinu 1863. „Þetta er í
rauninni mjög nákvæmur hitamælir
því maður getur áætlað mjög vel 10
ára meðalhita eftir því hvað skaflinn
hefur horfið oft á því tímabili,“ segir
Páll. Margir fylgjast með skaflinum
og Páll vill ekki fullyrða að hann hafi
það af að þessu sinni, „en það eru
mestar líkur til þess“.
Bendir til kaflaskipta í Esjunni
Skaflinn í Gunnlaugsskarði ætlar
að hafa það af í fyrsta sinn síðan 2001
Ljósmynd/Veðurstofan
Esjan Skaflinn í Gunnlaugsskarði á dögunum en hann hefur ekki horfið í ár.
Um helgina munu um 400 ungling-
ar koma saman í Fjallabyggð á
landsmóti Samfés. Þátttakendur
eru frá félagsmiðstöðvum víðs-
vegar um landið.
Landsmót Samfés er einn stærsti
viðburðurinn sem Samfés stendur
fyrir. Öll ungmennin sem taka þátt
eiga það sammerkt að vera fulltrú-
ar í nemenda-, félagsmiðstöðva-
og/eða ungmennaráðum úti um allt
land eða vera afar öflug í fé-
lagstengdu starfi í félagsmið-
stöðvum landsins.
Á mótinu kennir ýmissa grasa.
Unglingunum gefst m.a. kostur á
að taka þátt í fjölbreyttum smiðjum
s.s. í silfursmíði, útivist og við fjöl-
miðlun.
Landsmótinu lýkur á sunnudag
með Landsþingi ungs fólks. Þar
munu mótsgestir ræða um öll þau
mál sem brenna á ungu fólki.
Um 400 unglingar
á landsmóti Samfés
í Fjallabyggð
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Listmunauppboð
Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu
mánudaginn 10. október, kl. 18
í Galleríi Fold, á Rauðarárstíg
G
uðm
undurThorsteinsson
-M
uggur
Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna svo og
fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna.
Verkin verða sýnd í dag föstudag 10–18, laugardag 11–17,
sunnudag 12–17, mánudag 10–17
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is