Morgunblaðið - 07.10.2011, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2011
Íslandsmót skákfélaga hefst nú
um helgina í Rimaskóla í Graf-
arvogi. Fyrsta umferð er í dag,
föstudag, kl. 20. Um 400 skák-
menn á öllum aldri og öllum
styrkleika munu tefla.
Meðal gesta er Anatoly Kar-
pov, fyrrverandi heimsmeistari í
skák, sem er hér á landi í boði
Taflfélags Reykjavíkur. Karpov
mun verða viðstaddur setningu
mótsins.
Einnig munu margir aðrir
frægar kappar mæta til leiks en
mikil leynd ríkir yfir liðsskipan
félaganna sem fæst vilja gefa upp
sína liðsskipan fyrirfram.
Þó munu margir af sterkustu
skákmönnum landsins mæta til
leiks, s.s. stórmeistararnir Jó-
hann Hjartarson, Jón L. Árnason,
Helgi Ólafsson, Héðinn Stein-
grímsson, Hannes Hlífar Stef-
ánsson og Henrik Danielsen.
Morgunblaðið/Golli
Skák Teflt á Íslandsmótinu í Rimaskóla.
Íslandsmót skák-
félaga í Rimaskóla
Í dag er haldið tækni- og hug-
verkaþing í Hamri, húsnæði
Menntavísindasviðs Háskóla Ís-
lands við Stakkahlíð kl. 12.15-
17.00.
Fyrirsögn þingsins er Nýsköp-
un – uppspretta verðmæta.
Fjallað verður um stöðu og
starfsskilyrði tækni- og hug-
verkafyrirtækja á Íslandi og
hvernig stjórnvöld, stoðkerfi og
atvinnulíf geta unnið saman að
því að koma nauðsynlegum um-
bótum í framkvæmd. Meðal fram-
sögumanna eru Jóhanna Sigurð-
ardóttir forsætisráðherra, Orri
Hauksson, framkvæmdastjóri SI,
og Katrín Júlíusdóttir iðn-
aðarráðherra.
Nýsköpun er upp-
spretta verðmæta
STUTT
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Alls veiddust 726 laxar í Stóru-
Laxá í Hreppum í sumar og segir
Esther Guðjónsdóttir á Sólheimum,
formaður veiðifélagsins, að það sé
mjög góð útkoma eftir sumar sem
einkenndist af vatnsleysi, og næst-
besta veiðin í ánni síðan farið var
að halda utan um veiðitölur.
Esther segir veiðina hafa að-
allega komið af svæðum I og II,
lítið hafi veiðst á efri svæðunum.
„Það lifnaði yfir veiðinni upp úr
miðjum ágúst og svo veiddist mjög
mikið í lokin, síðasta hollið fékk
117 laxa,“ segir hún, en þeir veidd-
ust á fjórar stangir á tveimur dög-
um.
Um 570 löxum sem veiddust í
Stóru-Laxá í sumar var sleppt aft-
ur.
„Það var ekki mikið af stórlaxi
en þó alltaf einn og einn. Ég held
að það hljóti allir að vera ánægðir
með þessa útkomu,“ segir hún en í
bókina voru færðir nokkrir fiskar
um tuttugu pund.
Hópur veiðifélaga sem kallar sig
Sogsmenn veiddi í fjóra daga í
Stóru-Laxá í september og einn
þeirra, Karl Logason, segir að ekki
sé hægt að kalla veiðina annað en
mok, því þeir veiddu alls 126 laxa.
„Það var mikið af laxi og þá sér-
staklega neðarlega á svæðinu.
Stekkjarnef og Kóngsbakki
voru stappaðir af fiski en það
var mjög lítið vatn í ánni,“
segir Karl. „Það lá óhemja af
fiski þar en svo var slatti í
stöðum eins og Kálfhagahyl
og Illakeri.“
Og laxinn tók vel.
„Já, hann tók vel. Við gátum
ekki kvartað. Einn morguninn
var fimm gráða frost og að-
stæður fáránlegar, sól og logn.
Við byrjuðum að veiða klukkan
tíu og óðum gegnum íshröngl. En
lax var á strax í öðru kasti og síð-
asta hálftímann setti ég í fimm. Þá
var allt orðið vitlaust, við aðstæður
þegar ætti í raun ekki að vera
hægt að veiða neitt,“ segir Karl.
Best í Bíldsfelli
Samkvæmt bráðabirgðatölum frá
Stangaveiðifélagi Reykjavíkur var
laxveiðin í Soginu einnig sú næst-
besta frá því skráningar hófust.
Voru 752 laxar færðir til bókar á
svæðum félagsins, Ásgarði, Bílds-
felli og Alviðru, en ekki er enn vit-
að um veiðina á Syðri-Brú og
Torfastöðum.
Fyrir Ásgarðslandi veiddust 237,
við Bíldsfell 387, 88 í Alviðru og 40
í Þrastarlundi.
Inni á milli voru stórir drellar,
þar á meðal 105 og 104 cm laxar.
Þrátt fyrir að laxveiði sé víðast
lokið þá tínast enn laxar úr Rang-
ánum. Í þeirri eystri veiddust um
40 í liðinni viku. Veiðinni er hins-
vegar lokið í Breiðdalsá, þar sem
líka er byggt á seiðasleppingum,
en þar var metveiði í ár, 1430 lax-
ar.
Næstbesta laxveiði í Stóru-
Laxá frá því skráning hófst
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Stefnumót Þegar Sigmundur Eyþórsson veiddi um liðna helgi hvar Dalsá rennur í Hvítá, sigldu áhorfendur hjá.
Síðasta hollið fékk 117 laxa Laxveiðin einnig mjög góð í Soginu í sumar
Veiðimenn sem kasta fyrir sjóbirting í Vestur-
Skaftafellssýslu hafa náð ágætri veiði upp á síðkast-
ið. Um síðustu helgi veiddust til að mynda um 30
fiskar í Tungulæk. Nokkrir voru vænir eða yfir 80
cm langir og er hafy eftir veiðimönnum að fiskur sé
að ganga í auknum mæli.
Á sama tíma mætti holl vanra veiðimanna að
Tungufljóti í Skaftártungu en þá var fljótið í ham
eftir rigningar. Hollið á undan hafði landað 19
fiskum og þar á meðal einum 16 punda. Þegar
sjatnaði fór fiskur að taka hjá þessum mönnum
og fengu þeir nokkra góða, þar á meðal einn 16
punda í skilum jökulvatnsins við Syðri-Hólma sem er
aðal veiðistaðurinn í Tungufljóti eins og mörg síðustu
ár.
Með birting
við Tungufljót.
GÓÐ SKOT Í SJÓBIRTINGSVEIÐI Í VESTUR-SKAFTAFELLSSÝSLU
Hollin að fá 19 til 30 fiska
NÝLEGIR
GÆÐABÍLAR
Á GÓÐU VERÐI
Toyota Yaris
Árgerð 2010, bensín,
beinsk. Ekinn 41.000 km
Ásett verð:
1.990.000,-
VW Golf Trendl 1,4
Árgerð 2010, bensín,
beinsk. Ekinn 41.500 km
Ásett verð:
2.890.000,-
VW Jetta
Árgerð 2008, bensín,
beinsk. Ekinn 56.500 km
Ásett verð:
2.350.000,-
Land Cruiser 120 VX
Árgerð 2007, dísel,
sjálfsk. Ekinn 85.000 km
Ásett verð:
6.690.000,-
MM Pajero
Árgerð 2008 dísel
sjálfsk. Ekinn 76.000 km
Ásett verð
5.740.000,-