Morgunblaðið - 07.10.2011, Side 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2011
Ármúla13a | Borgartúni 26 | 540 3200 | www.mp.is
Dýraspítalinn
í Garðabæ
er í viðskiptum
hjá okkur
Hanna, Jakobína og félagar á Dýraspítalanum
í Garðabæ taka á móti yfir þúsund dýrum
í hverjum mánuði, stórum sem smáum.
Þau eru sérfræðingar á sínu sviði og sinna
fjölbreyttum þörfum viðskiptavinanna. Það
gerum við líka.
Þess vegna er Dýraspítalinn í Garðabæ
í viðskiptum hjá okkur.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Þúsundir manna tóku í gær þátt í
mótmælum í New York gegn fjár-
málakerfinu og mótmælafundir voru
einnig haldnir í fleiri borgum Banda-
ríkjanna, m.a. Boston, Chicago og
Los Angeles. Háskólanemar sýndu
víða samhug sinn með því að yfirgefa
kennslustofur. Um síðustu helgi
voru hundruð manna handtekin eftir
að hafa efnt til mótmæla í New York
undir kjörorðinu „Hernemum Wall
Street“.
The New York Times segir að
þessir atburðir hafi gert marga af
leiðtogum hefðbundinna stéttar-
félaga hugsi. Þeir sjái að óþekktum
grasrótarsamtökum gangi mun bet-
ur en þeim að vekja athygli og þau
nái mun betur til unga fólksins.
Nokkrir leiðtoganna kvarta yfir
því að viðleitni þeirra undanfarin tvö
ár til að mótmæla bónusgreiðslum
og öðrum umdeildum aðgerðum fjár-
málafyrirtækjanna hafi vakið litla
athygli þótt þátttakendur hafi verið
mun fleiri en núna.
Lítið var fjallað um 100 þúsund
manna mótmælafund þeirra í Wash-
ington í fjölmiðlum í október í fyrra.
kjon@mbl.is
Þúsundir mótmæla bönkum
Stéttarfélög hissa á áhuga fjölmiðlanna sem hunsa að mestu fundi þeirra
Reuters
Andóf Þátttakandi í mótmælunum með hundinn sinn við deild seðlabankans í San Francisco í gær.
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Bandaríski fjárfestirinn og auðkýfing-
urinn George Soros varð fyrir áfalli í
gær er Mannréttindadómstóll Evrópu
í Strassborg komst að þeirri niður-
stöðu að réttmætt hefði verið hjá
dómstóli í Frakklandi að dæma hann
fyrir innherjasvik árið 2002. Soros er
á seinni árum þekktur fyrir að sveifla
refsivendinum yfir fjármálalífinu og hvetja menn til að
bæta siðferðið. Hann hefur lagt fram fé í margs konar
framfaraviðleitni í Mið- og A-Evrópu en Soros er fæddur
í Ungverjalandi.
Fjórir af sjö dómurum Mannréttindadómstólsins
sögðu að ekki hefði verið brotið gegn mannréttindum So-
ros í málinu á sínum tíma. Soros var að sögn Wall Street
Journal dæmdur fyrir hafa nýtt sér innherjaupplýsing-
ar er hann keypti og seldi síðar með hagnaði hlutabréf í
franska bankanum Societe Generale en viðskiptin fóru
fram 1988. Var hann dæmdur til að greiða 2,2 milljónir
evra, liðlega 350 milljónir króna, í sekt sem reyndar var
síðar lækkuð. Soros bar mál sitt undir Mannréttinda-
dómstólinn árið 2006.
Eftirlitsnefnd verðbréfa studdi Soros
Soros segir að dómurinn 2002 hafi byggst á óáreið-
anlegum vitnisburði. Einnig að hann hafi ekki fengið
eðlilega málsmeðferð og lög sem dómurinn byggðist á
hafi verið of óljós. Eftirlitsnefnd franska verðbréfa-
markaðarins rannsakaði málið og var niðurstaða hennar
að Soros hefði ekki brotið lög og reglur en dómstólar
voru á öðru máli.
Réttindi ekki brotin á fjárfesti
Dómstóll segir George Soros hafa verið sekan um innherjasvik árið 2002
Hann felldi pundið
» George Soros komst í frétt-
irnar árið 1992 vegna skortsölu
hans á breskum pundum árið
1992 en þá var deilt um það
hvort Bretar yrðu að yfirgefa
ERM-samstarfið.
» Skortseldi Soros pund að
andvirði 10 milljarða Banda-
ríkjadollara og græddi á einum
degi 1,1 milljarð dollara, nær
120 milljarða króna.
George Soros
Mörg dæmi eru um að farþegar í
flugi drekki of mikið og missi stjórn
á sér, komið hefur fyrir að flug-
stjóri hefur þurft að snúa við og
lenda til að afhenda lögreglunni
drukkna flugdólga.
Sumir sem þjást af slæmri flug-
hræðslu mæta auk þess augafullir
um borð, hafa reynt að deyfa óttann
með áfengi. Dálkahöfundur sem rit-
ar á vefsíðu ABC-stöðvarinnar
bandarísku nefnir mörg dæmi. Ný-
lega hafi bresk, 25 ára kona í Virg-
in-þotu hellt í sig viskíi, gripið síðan
í flugþjón og heimtað að hann ætti
mök við sig. Kominn sé tími til að
íhuga áfengisbann í flugi.
Verður lausnin að
banna flugfarþegum
að drekka áfengi?
Muammar Gadd-
afi, áður einræð-
isherra í Líbíu,
hefur sent frá sér
hljóðupptöku þar
sem hann hvetur
Líbíumenn til að
fara út á göt-
urnar og sýna
nýjum vald-
höfum borg-
aralega óhlýðni.
Ávarpið var sent út í Al-Rai-
sjónvarpsstöðinni, sem hefur orðið
einskonar málgagn Gaddafis eftir
að hann flúði frá Trípólí. Gaddafi,
sem fer huldu höfði, segir að þjóð-
arráð uppreisnarmanna sé ekki
lögmætur valdhafi í landinu.
kjon@mbl.is
Gaddafi hvetur Líb-
íumenn til óhlýðni
Muammar
Gaddafi
Aðdáun vakti í ágúst þegar Vladím-
ír Pútín, forsætisráðherra Rúss-
lands, „fann“ tvö forn, grísk leirker
við köfun í Svartahafinu.
Á sjónvarpsmynd sést ráð-
herrann halda á brotum úr ker-
unum. „Strákarnir og ég fundum
þau,“ segir hann. Nú hefur tals-
maður hans, Dímítrí Peskov, að
sögn Guardian viðurkennt að um
sviðsetningu hafi verið að ræða.
Fornleifafræðingar hafi komið
gripunum fyrir á staðnum.
Sviðsett afrek
kafarans Pútíns