Morgunblaðið - 07.10.2011, Side 18

Morgunblaðið - 07.10.2011, Side 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2011 STUTTAR FRÉTTIR ... Örn Arnarson ornarnar@mbl.is Samtök atvinnulífsins og Alþýðu- samband Íslands telja fjárlagafrum- varp næsta árs standa á veikum grunni og gagnrýna harðlega ýmsa efnisþætti þess í ályktunum sem gefnar voru út í gær. Miðstjórn ASÍ lýsti yfir vonbrigðum sínum með frumvarpið og telur hún það byggt á „veikum forsendum um efnahags- bata sem því miður sé lítil innistæða fyrir“. SA tekur í sama streng og bendir á að frumvarpið byggist á spá Hagstofunnar frá því í sumar en í henni er gert ráð fyrir 3,1% hagvexti á næsta ári. Síðasta spá Seðlabank- ans gerir hinsvegar ráð fyrir 1,6%, en frá því að hún var gefin út í ágúst hafa horfurnar versnað til muna, meðal annars vegna versnandi ástands á helstu útflutningsmörkuð- um. Skattar á sjávarútveg og fjár- málafyrirtæki draga úr tekjum Áherslur stjórnvalda í skattamál- um fyrir næsta ár falla í grýttan jarðveg hjá bæði SA og ASÍ. Í áliti SA segir að það veki undrun að tveim atvinnugreinum, sjávarútvegi og fjármálageiranum, sé ætlað að standa undir stærstum hluta aukinn- ar skattheimtu á næsta ári, og líkur séu á því að viðbótartekjur ríkissjóðs vegna þessara hækkana verði minni en frumvarpið segi til um. Meðal annars vegna þess að aðrir skattar fyrirtækja í þessum atvinnugreinum hljóti að minnka af völdum þessara nýju álagna. Einnig muni fyrirtæki í þessum greinum mæta áhrifum auk- innar skattheimtu, s.s. með útvistun, minnkun umsvifa og uppsögnum. Samtök atvinnulífsins telja að þeir veikleikar sem er að finna í fjárlaga- frumvarpinu þýði að hallinn á rekstri ríkissjóðs á næsta ári verði að lág- marki 12-15 milljörðum meiri en stefnt er að. Miðstjórn ASÍ gagnrýnir harðlega áform um tvísköttun lífeyrissparn- aðar einstaklinga umfram 2% og tel- ur hún „það hyggilegri leið út úr kreppu að hvetja til sparnaðar og fjárfestinga fremur en að refsa fólki fyrir að spara“. Ennfremur gagn- rýnir miðstjórnin áform um að hækka elli-, örorku- og atvinnuleys- isbætur um 5.500 krónur á næsta ári þegar lægstu laun eiga að hækka um 11 þúsund krónur. Minnt er á í áliti miðstjórnarinnar að þetta sé ekki í samræmi við það sem samið var um við ríkisstjórnina í vor í tengslum við gerð kjarasamninga og „furðar mið- stjórnin sig á því að stjórnvöld ætli sér ekki að efna þá samninga“. Hörð gagnrýni SA og ASÍ á fjárlög  Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands segja fjárlagafrumvarp næsta árs byggt á veikum grunni  SA segir hallann geta orðið 15 milljörðum meiri  ASÍ segir stjórnvöld ekki standa við samninga Gagnrýnin á fjárlaga- frumvarpið » Bæði SA og ASÍ telja fjárlög næsta árs byggð á hagvaxt- arspá sem er mörkuð of mikilli bjartsýni. » SA telur veikleika frum- varpsins fela i sér a.m.k 12-15 milljörðum meiri halla en stefnt er að. » ASÍ gagnrýnir tvísköttun á lífeyrissparnaði harðlega og sakar stjórnvöld um að standa ekki við samkomulag í tengslum við kjarasamninga. Morgunblaðið/Golli Fjárlög Fjármálaráðherra kynnti frumvarpið á dögunum. ● Gengið hefur verið að tilboðum í þrjár fasteignir Orkuveitu Reykja- víkur sem auglýst- ar voru til sölu í vor og í sumar. Það eru hinar samliggjandi jarðir Hvammur og Hvammsvík í Kjós, Hótel Hengill á Nesjavöllum og hús- næði í Elliðaárdal, sem hýsti minjasafn OR. Samanlagt söluverð eignanna nemur 465 milljónum króna. Það er heldur meira en væntingar OR stóðu til, sem byggðar voru á mati sérfræðinga á fasteignamarkaði, að því er OR segir í tilkynningu. Jarðirnar Hvammur og Hvammsvík voru auglýstar til sölu í vor. Var gengið til samninga við hæstbjóðanda og feng- ust 155 milljónir króna fyrir eignina. Í tilkynningunni segir að hæsta til- boði í Hótel Hengil hafi verið tekið og nemi það 210 milljónum króna. Að Raf- stöðvarvegi 9 rak OR minjasafn þar til síðastliðið haust að starfseminni var hætt. Var hæsta tilboði í hana tekið. Það er 100 milljónir króna. Orkuveitan selur eignir Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is „Á margan hátt er eins og við séum í miðju stormsins einmitt í dag, og ég held að þegar litið verður til baka eftir 20 ár þá verði þessi tími álitinn mjög kaotískur og um leið spenn- andi. Við stöndum á vissum tímamót- um og mun hafa áhrif á hvernig hag- kerfið þróast hvaða ákvarðanir verða teknar og hvaða fyrirkomulag haft á hugverkaréttindum,“ segir María Rut Reynisdóttir. María stýrir You are in Control- ráðstefnunni (YAIC) sem haldin verður í fimmta skipti dagana 10. til 12. október. Ráðstefnan fer fram í Hörpu en um er að ræða alþjóðlegan viðburð sem skoðar samband tölvu- tækninnar og skapandi greina. Með- al fyrirlesara má nefna Jane Pollard, Ralph Simon og Iain Forsyth en dagskráin er blanda fyrirlestra, vinnustofa, pallborðsumræða og list- viðburða. Á allt að vera opið? Einn af hápunktum YAIC verður væntanlega á þriðjudaginn þegar Robert Levine, rithöfundur og blaðamaður, og Mathias Klang, lekt- or í lögfræði, takast á um hvaða leið á að fara í höfundarréttarmálum á listasviðinu. „Um leið og netið ýtir undir samskipti milli skapandi greina hafa komið í ljós brestir í kerfinu. Robert hefur gagnrýnt þá frístefnu sem virðist ætla að verða ofan á á netinu, þar sem öll menning á að flæða um hindrunarlaust, lista- menn eiga helst að gefa sköpunar- verk sín en fá tekjur sínar með öðr- um leiðum. Mathias tekur hinn pólinn í hæðina og saman munu þeir taka þátt í rökræðum við gesti í sal,“ segir María. „Það má alveg búast við að það hitni í kolunum í þessari um- ræðu enda eru höfundarréttarmál það viðfangsefni sem stafræna bylt- ingin hefur neytt fólk til að endur- skoða og aðlaga breyttum atvinnu- háttum.“ Stendur netið á tímamótum?  Ráðstefna um tengsl netsins og skap- andi greina í Hörpu Morgunblaðið/Júlíus Bannað? Sitt sýnist hverjum um frjálst flæði menningar á netinu. Afgangur af vöruskiptum við út- lönd nam 65,9 milljörðum króna á fyrstu átta mánuðum ársins 2011, samkvæmt tölum frá Hagstofu Ís- lands. Á sama tíma árið áður var vöruskiptajöfnuðurinn jákvæður um 74,3 milljarða króna og var af- gangurinn því 8,3 milljörðum króna minni en í fyrra. Samtals nam útflutningur 397,5 milljörðum króna á tímabilinu, en innflutningur 331,5 milljörðum króna. Verðmæti vöruútflutnings var 47,3 milljörðum eða 13,5% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Í ágústmánuði voru fluttar út vörur fyrir 56,7 milljarða króna og inn fyrir 45,6 milljarða króna. Vöruskiptin í ágúst voru því hag- stæð um 11,1 milljarð króna. Í ágúst 2010 voru vöruskiptin hag- stæð um 7,3 milljarða á sama gengi, samkvæmt frétt Hagstofunnar. Enn afgangur af vöruskiptum  66 ma.kr. á fyrstu 8 mánuðum ársins ● Tryggingar og ráðgjöf bjóða nú upp á aukna þjónustu – Tryggingavaktina. Í tilkynningu kemur fram að hlutverk Tryggingavaktarinnar sé að meta vá- tryggingarþörf viðskiptavina sinna, hvort sem um ræðir eigna- eða per- sónutryggingar, og tryggja þeim ódýr- ustu og jafnframt bestu tryggingarnar hverju sinni. Með reglubundnu millibili setur Tryggingavaktin sig í samband við viðskiptavini til að endurmeta trygg- ingaþörf þeirra og iðgjöld. Meta vátryggingarþörf viðskiptavina                                         !"# $% " &'( )* '$* ++,-./ +,0-/1 ++0-1/ 2+-2.0 23-20 +4-254 +2,-22 +-./.4 +,/-+. +.,-22 ++,-,2 +,0-5+ ++0-54 2+-0+. 23-25 +4-0/, +2,-., +-..32 +,/-4 +.,-11 2+/-0.0 ++5-+ +,/-01 ++/-0 2+-044 23-0. +4-055 +2,-5/ +-../4 +,.-2. +.5-+ Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Greiningardeild Arion banka telur að fyrirhugaðar breytingar á fiskveiði- stjórnunarkerfinu, samkvæmt frum- varpi til laga sem tekið verður fyrir á Alþingi í haust, séu varhugaverðar. Þetta kemur fram í skýrslu um sjáv- arútveginn sem deildin sendi frá sér í gær. Í skýrslunni er m.a. varað við því að varanlegt framsal aflaheimilda verði bannað, eins og gert er ráð fyrir í 7. grein frumvarpsins. Segir grein- ingardeild að mikil hagræðing hafi orðið í sjávarútvegi frá því framsal aflaheimilda var leyft í byrjun tíunda áratugarins. „Með því að banna fram- sal aflaheimilda er komið í veg fyrir að þeir aðilar sem standa betur að vígi geti orðið sér úti um kvóta. Með þessum hætti er því líklegt að bann við varanlegu framsali dragi úr hag- kvæmni í sjávarútvegi,“ segir í skýrslunni. „Aftur á móti gæti bann við fram- sali aflaheimilda einnig orðið til þess að smærri fyrirtæki sameinist. Ef meðalstór eða minni fyrirtæki geta ekki orðið sér úti um aflaheimildir, líkt og hagkvæmur rekstur fyrir- tækja þeirra krefðist, gætu þau þurft að sameinast öðru fyrirtæki til að geta nýtt aflaheimildir þess. Bannið gæti því aukið hagræði í sjávarútvegi, en í þessu tilviki væri það á kostnað smærri fyrirtækja. Ef tilgangur bannsins er að koma í veg fyrir að aflaheimildir safnist á hendur fárra aðila má benda á að nú þegar eru tak- markanir á hversu miklar aflaheim- ildir útgerð má hafa til ráðstöfunar. Þetta mun því að öllum líkindum hafa mest áhrif á þau fyrirtæki sem eiga möguleika á aukinni hagræðingu í rekstri, fyrirtæki sem enn eru að stækka og með umframafkastagetu en eru ekki komin í aflahlutdeildarhá- markið,“ segir ennfremur. „Varhugaverðar breytingar“  Arion varar við frumvarpi um stjórn fiskveiða Morgunblaðið/Kristinn Arion banki Greiningardeild varar við breytingum á stjórn fiskveiða. Allur ágóði af sölunni rennur til Krabbameinsfélags Íslands hafðu það um helgina Bleikt slaufunammi - Pink ribbon candy Sölustaðir: N1, Iða, Mál og menning, Háma, Pósturinn, Skeljungur, Debenhams, Samkaup-Strax, Samkaup-Úrval, Nettó, Kaskó og Melabúðin. www.faerid.com

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.