Morgunblaðið - 07.10.2011, Qupperneq 25
MINNINGAR 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2011
✝ Elín BjarneyJónsdóttir var
fædd á Galt-
arhrygg í Reykja-
fjarðarhreppi, N-
Ísafjarðarsýslu,
hinn 26. október
1922. Hún lést að
kvöldi 28. sept-
ember á Landspít-
ala við Hringbraut.
Elín, eða Ella
eins og hún var allt-
af kölluð var dóttir hjónanna
Guðbjargar Efemíu Steinsdóttur
og Jóns Ólasonar bónda, fyrst á
Bjarnastöðum og síðar Galt-
arhrygg. Þau hjón eignuðust 11
börn og komust 9 þeirra til full-
orðinsára. Systkinin voru:
Drengur andvana fæddur í júní
1911. Guðmundur Þorvaldur, f.
1. júlí 1912, d. 11. júlí 2006. Val-
gerður Sigurborg, f. 11. júní
1914, d. 1. febrúar 1982. Krist-
ján Margeir, f. 22. október 1915,
d. 1. júní 1996. Kjartan Að-
alsteinn, f. 29. janúar, 1917, d.
27. mars 2006. Ingibjörg Guðný
Jónína, f. 11. nóvember 1918.
Guðbjörg Gróa og Bjarni Sig-
urður tvíburar, f. 28. október
1920. Bjarni Sigurður, d. 21.
mars 1922. Elín Bjarney, f. 26.
október, d. 28. september 2011.
Óli Kristján, f. 21. september
1925, d. 26. apríl 2004 og Bjarni,
f. 15. desember 1926. Um vorið
unglinga á sínu framfæri Nínu
og Friðrik Þórisbörn og sumarið
1951 eignast þau soninn
Tryggva. Hjónaband Ellu og
Þóris varð þó ekki langt því Þór-
ir andast í júlí 1954 aðeins 51 árs
að aldri. Eftir það vann Ella á
saumastofum, í mötuneytum og
tók að sér saumaskap fyrir
verslanir. Undir 1960 kynnist
hún seinni manni sínum Jóni
Sigurðssyni frá Hjalla í Ölfusi.
Þau giftu sig 24. apríl 1965.
Systkini Jóns voru Þórunn, Sig-
urlaug, Ása, Magnús og Har-
aldur. Þau er nú öll látin nema
Ása. Hjónin Ella og Jón fluttu í
nýja íbúð í Fellsmúla 7 í Reykja-
vík 23. apríl 1965 og bjuggu þar
allar götur síðan. Jón andast 17.
oktober 1979 eftir afar erfið
veikindi aðeins 63 ára að aldri.
Ella vann síðan í áraraðir á
barnaheimilinu Laugaborg við
Leirulæk sem aðstoðarmatráðs-
kona. Ella var lágvaxin, afar fín-
gerð og yndisleg kona og þrátt
fyrir erfiða ævi og oft knappan
fjárhag vildi hún öllum hjálpa
eins og hún mögulega gat. Þetta
fann fólk sem kynntist henni og
það gladdi hana og hún mat mik-
ils.
Útför Elínar Bjarneyjar Jóns-
dóttur verður gerð frá Háteigs-
kirkju í dag, föstudaginn 7. októ-
ber 2011, og hefst athöfnin kl.
13.
1930 andast Jón
Ólason frá konu og
9 börnum heimilið
er leyst upp og
börnunum komið í
fóstur á bæjum víða
við Djúpið. Ella og
systir hennar Val-
gerður fara í Vatns-
fjörð til þeirra
sæmdarhjóna séra
Þorsteins Jóhann-
essonar prófasts og
konu hans Laufeyjar Tryggva-
dóttur. Hjónin áttu börn fyrir
sem eru Tryggvi, Þuríður, Jó-
hannes, Jónína Þórdís, látin 10.
ágúst 1998, Haukur, fósturdótt-
irin Ella og síðan bættist við
fósturdóttirin Sigulína Helga-
dóttir. Þau hjón létu sig ekki
muna um að taka 2 föðurlausar
stúlkur undir sinn verndarvæng.
Eftir hefðbundna skólagöngu í
Héraðsskólanum Reykjanesi og
frábæra fræðslu hjá fósturfor-
eldrunum í Vatnsfirði fór Ella í
Húsmæðraskólann á Ísafirði.
Um tvítugsaldur fór hún til
Reykjavíkur í vist og lærði jafn-
framt saumaskap á saumstof-
unni Fix í Garðastræti. Hún
vann síðan ýmis störf við elda-
mennsku lengst af við mötuneyti
Háskóla Íslands á Gamla Garði.
Árið 1951 giftist Ella Þóri
Tryggvasyni loftskeytamanni,
sem þá var fráskilinn með tvo
Mig langar að minnast nokkr-
um orðum elskulegrar fóstur-
systur minnar, Elínar Bjarneyjar
Jónsdóttur, sem lést hinn 28.
sept. sl. eftir langvinna og erfiða
sjúkdómsbaráttu. Elín var fædd
á Galtarhrygg, litlu býli í Mjóa-
firði við Ísafjarðardjúp, ein níu
systkina sem komust á legg. Fað-
irinn veiktist árið 1928 af alvar-
legu innanmeini og andaðist á
Sjúkrahúsi Ísafjarðar vorið 1930.
Guðbjörg móðir hennar var þá 43
ára, ein með stóran barnahóp,
elsta barnið 18 ára og yngstu
börnin tvö fjögurra og fimm ára.
Enginn möguleiki var fyrir
ekkjuna að sjá börnunum og
heimilinu farborða. Varð því að
ráði sveitarstjórnarinnar að
börnin skyldu tekin í fóstur á
nokkrum heimilum í sveitinni, að
undanskildu næstyngsta
barninu, Óla Kristjáni, sem var
áfram í umsjá móður sinnar. Elín
kom til foreldra minna í Vatns-
fjörð og var þá á áttunda ári, einu
ári eldri en ég. Hún undi sér vel á
nýja staðnum og varð strax sem
ein okkar systkinanna í leik og
starfi.
Elín gekk í barnaskólann og
síðar unglingaskólann í Reykja-
nesi. Árið 1942 fór hún í hús-
mæðraskólann á Ísafirði og
næstu ár tók hún við starfi mat-
ráðskonu við héraðsskólann í
Reykjanesi. Hún flutti til
Reykjavíkur árið 1944 og fór þá í
„vist“ eins og kallað var, fyrsta
hálfa árið, en sótti jafnframt
námskeið í fatasaum. Vann hún
um tíma á saumastofu en nokkru
síðar varð hún aðstoðarmatráðs-
kona á Stúdentagörðunum. Elín
giftist Þóri Tryggvasyni fram-
kvæmdastjóra vorið 1951 og
eignaðist með honum soninn
Tryggva en missti mann sinn eft-
ir fjögurra ára sambúð. Hún hóf
búskap með Jóni Sigurðssyni
byggingaverktaka árið 1961 og
giftist honum í apríl 1964, en
hann dó árið 1979. Elín var ham-
ingjusöm í báðum sínum hjóna-
böndum, enda voru báðir eigin-
mennirnir hugsunarsamir,
nærgætnir og dugandi menn.
Eftir lát Jóns vann Elín fyrir
sér með saumaskap og öðrum
störfum sem til féllu. Hún lét
þessi áföll ekki buga sig og fann
áfram hamingju í lífinu við sín
störf og í samvistum við Tryggva,
sem var augasteinn móður sinnar
og reyndist henni elskandi,
traustur og góður sonur. Hann
hefur verið óþreytandi að sinna
henni, aðstoða og hughreysta,
ekki síst síðustu árin eftir að hún
veiktist.
Elín bar með sér einstaklega
hlýlegt viðmót. Hún var alltaf já-
kvæð og horfði jafnan á björtu
hliðar lífsins, einnig eftir að hún
var orðin rúmföst vegna veik-
inda. Hún var vel gefin, las mikið,
var sérlega minnug og sagði vel
frá. Hún var einstaklega dugleg
við öll störf, sem hún vann af
samviskusemi og ánægju. Þótt
heilsunni hrakaði mjög síðustu
árin hélt Elín sínum andlegu
kröftum ótrúlega vel. Meira að
segja daginn áður en hún and-
aðist gátum við rætt saman um
daginn og veginn án þess að bæri
á minnisleysi eða andvaraleysi.
Þannig virtist engan bilbug á
henni að finna meðan hún dró
andann.
Við fóstursystkini hennar öll,
sem eftir lifum, kveðjum Ellu
með söknuði og miklu þakklæti
fyrir langa, gleðiríka samveru og
elskusemi og sendum Tryggva
syni hennar hugheilar samúðar-
kveðjur.
Tryggvi Þorsteinsson.
Ég kveð í dag með söknuði,
afasystur mína, Elínu Jónsdótt-
ur. Minningar streymdu fram í
hugann er ég fékk fréttir af and-
láti Ellu. Ég er þakklát fyrir að
hafa þekkt hana og mun búa að
því alla tíð.
Sterkustu minningarnar um
Ellu eru þegar ég var lítil stelpa
og fór oft í Fellsmúlann til henn-
ar í heimsókn með foreldrum
mínum. Það fyrsta sem Ella gerði
var að opna forstofuskápinn og
leyfa manni að skoða risastóran
stafla af Andrésblöðum sem var
eins og gull í augum barns. Hún
bauð börnum líka alltaf upp á kók
í gleri sem hún átti í kassa úti á
svölum. Kaffiborðið hjá henni var
alltaf einstaklega vel hlaðið af
yndislegum kökum og öðru bakk-
elsi þannig að enginn fór svangur
frá henni Ellu. Síðan átti hún það
til að lauma seðli í lófa barna áður
en þau fóru.
Pabbi heitinn bjó hjá Ellu í tvo
vetur á skólaárum hans og
reyndist hún honum einstaklega
vel. Það var ekki auðvelt í þá
daga að búa á Vestfjörðum og
vera í skóla í höfuðborginni.
Hann var heppinn að eiga hana
að og hélt hann alltaf góðu sam-
bandi við hana þangað til hann
dó. Ella fylgdist líka vel með öll-
um í fjölskyldunni, hvernig lífið
gekk hjá hverjum og einum og
mundi ótrúlega marga afmælis-
daga hjá stórfjölskyldunni. Það
má segja að hún hafi verið sam-
eiginlegur tengiliður og haldið
fjölskyldunni saman. Hún var
yndislega góð kona og vildi allt
fyrir alla gera.
Ella bjó með syni sínum,
Tryggva, og voru þau ætíð mjög
náin. Hann hefur verið henni
mikil hjálp eftir að hún fór að eld-
ast og veit ég að lífið verður tóm-
legt án hennar.
Elsku Tryggvi, ég votta þér
mína dýpstu samúð.
Inga Dóra Hrólfsdóttir.
Eigum við að skreppa inn í
Fellsmúla? Þessi tillaga var ansi
oft borin upp á heimili mínu hér á
árum áður. Undantekningalaust
var tillagan samþykkt einróma
enda kannski ekki skrítið. Í
Fellsmúla 7, til Ellu, Jóns og
Tryggva var alltaf bæði gaman
og gott að koma.
Mig langar að láta hugann
reika til baka til þeirra tíma er ég
var barn og skreppa inn í Fells-
múla.
Sunnudagur og pabbi leggur
bílnum fyrir framan Fellsmúl-
ann. Ég þarf að hraða mér inn í
húsið því ég hef hlutverki að
gegna. Það er ég sem á að hringja
dyrasímanum og láta vita að við
séum komin. Ég veit upp á hár
hvaða hnapp ég á að ýta á enda
hef ég gert það oft áður. Mild
rödd svarar símanum og segir:
„Halló“ og ég tilkynni að þetta sé
Jón Sigurður. Dyrnar opnast. Ég
hleyp í einum spretti upp stigana
þar til að ég kem að hurð sem
stendur í hálfa gátt. Ella frænka
tekur á móti mér með brosi.
Nafni kemur fram og heilsar og
gantast við mig.
Þegar fullorðna fólkið er búið
að koma sér fyrir í stofunni bein-
ist athygli mín að forstofuskápn-
um. Skápur þessi geymir fjár-
sjóð sem mig langar að komast í
og kynnast betur. Það hvarflar
ekki að mér að opna skápinn. Ég
veit að ég þarf þess ekki. Eftir
stundarkorn kemur Ella frænka
til mín og spyr: „Langar þig að
skoða Andrésblöðin?“ Ég kinka
kolli og fjársjóðsdyrnar opnast. Í
skápnum er óendanlega stór
bunki af blöðum sem ég uni mér
við að skoða. Þau eru á dönsku
en það gildir einu fyrir mig.
Fullorðna fólkið sest við stofu-
borðið og spilar brids. Ella spilar
stundum en víkur sæti eins og oft
áður þegar spilarar eru fleiri en
fjórir. Nafni er hrókur alls fagn-
aðar við borðið og sér spaugilegu
hliðarnar á hlutunum. Það er
kátt á Hjalla. Ella frænka fer
fram í eldhús og fer að taka til
kaffi og með því. Einhverju síðar
finn ég að hönd er lögð á öxlina á
mér og ég lít upp. Þar er Ella
komin og réttir mér Malta-
súkkulaði með bros á vör. Ég er
alsæll og uni hag mínum vel þar
til farið er heim undir kvöld.
Oftar en ekki voru í Fellsmúl-
anum fleiri gestir en við. Heim-
ilið var í raun miðstöð fjölskyldu
og vina og þar var oft glatt á
hjalla. Allir sem þar komu voru
velkomnir og tekið á móti þeim
eins og höfðingjum. Ættingjar af
landsbyggðinni komu við hjá Ellu
þegar komið var til Reykjavíkur
og við sem bjuggum á höfuðborg-
arsvæðinu komum reglulega í
heimsókn. Enda er ég þess nokk-
uð viss að Ella framreiddi veislu-
borð flestar ef ekki allar helgar.
Veisluföng sem sómi hefði verið
að bera fram í fermingarveislum.
Þetta gerði hún alla tíð með
ánægju og brosi. Gestrisni var
henni í blóð borin og meira að
segja í seinni tíð þegar heilsa
hennar var farin að gefa sig var
erfitt eða ómögulegt að stöðva
hana. Alltaf skyldi lagt á borð
fyrir gesti.
Nú, þegar þessi hlýja og góða
kona er fallin frá, myndast tóma-
rúm sem ekki verður fyllt. Hún
var alla tíð miðjan í fjölskyldunni
okkar. Sú sem allir gátu og vildu
leita til.
Ég kveð Ellu frænku með
söknuði og þakklæti í huga og
votta Tryggva frænda mína inni-
legustu samúð.
Jón Sigurður Ólason.
Söknuður og sorg í hjarta,
sannarlega erfið stund.
Engillinn með brosið bjarta
brátt kemst nú á endurfund.
Kát ég sat í kjöltu þinni,
kúrði í þínum örmum.
Minninguna geymi í minni,
mædd, með tár á hvörmum.
(RH)
Elsku Tryggvi. Ég votta þér
innilega samúð mína. Minningin
um Ellu mun lifa í okkar hjörtum.
Rannveig Hrólfsdóttir.
Elín Bjarney Jónsdóttir
V i n n i n g a s k r á
23. útdráttur 6. október 2011
A ð a l v i n n i n g u r
Kr. 3.000.000 kr. 6.000.000 (tvöfaldur)
4 8 3 3 4
V i n n i n g u r
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
1 8 1 3 0 3 6 5 5 4 4 7 8 2 7 7 8 0 8 2
V i n n i n g u r
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
648 6488 13487 39084 41883 72076
5039 7939 30790 41251 45487 77053
V i n n i n g u r
Kr. 15.000 Kr. 30.000 (tvöfaldur)
4 5 8 8 7 8 6 1 6 4 6 9 2 9 1 6 9 3 8 4 0 5 5 0 4 8 8 6 0 8 4 5 7 0 2 8 9
1 9 1 6 8 9 6 7 1 6 5 0 9 3 0 0 9 1 4 0 3 3 1 5 2 0 6 2 6 0 9 7 2 7 3 3 6 0
3 9 5 3 1 0 0 9 5 1 9 3 8 6 3 0 8 6 1 4 0 9 1 4 5 2 4 9 7 6 1 6 3 4 7 3 6 3 7
4 5 1 9 1 1 0 0 8 2 1 4 2 9 3 0 9 9 0 4 0 9 8 9 5 3 1 9 9 6 1 8 3 1 7 3 9 3 0
4 6 9 7 1 1 3 1 4 2 4 1 1 6 3 1 9 2 9 4 2 2 0 9 5 4 6 6 0 6 3 5 5 9 7 4 1 9 9
7 1 3 0 1 2 1 8 7 2 4 3 6 3 3 2 9 6 0 4 6 9 0 2 5 6 9 1 1 6 4 6 2 2 7 6 9 9 5
7 3 6 4 1 3 2 5 3 2 4 7 3 3 3 3 0 3 1 4 7 5 4 3 5 7 3 2 6 6 5 0 4 9 7 7 4 9 4
7 3 7 8 1 3 3 6 4 2 7 3 2 1 3 3 7 2 4 4 8 1 3 9 5 8 8 0 2 6 6 3 0 1 7 8 3 5 8
7 8 8 8 1 4 7 5 8 2 7 9 1 0 3 5 6 0 9 4 8 3 3 2 5 9 6 3 3 6 8 6 5 2 7 8 7 9 6
8 6 0 7 1 5 7 0 2 2 8 6 0 2 3 5 7 7 2 4 9 6 6 5 6 0 3 5 4 6 9 7 4 7 7 9 3 0 5
V i n n i n g u r
Kr. 9.000 Kr. 18.000 (tvöfaldur)
5 2 5 8 9 9 9 2 0 6 6 3 3 1 5 9 9 4 1 1 2 2 5 0 2 9 7 5 8 6 8 3 7 0 5 5 8
9 9 5 9 8 5 6 2 1 2 5 3 3 1 6 6 9 4 1 2 4 6 5 0 4 6 9 5 8 7 3 6 7 0 9 8 7
1 1 7 7 1 0 5 2 6 2 1 5 7 4 3 2 1 8 7 4 1 5 8 0 5 0 7 5 5 5 9 0 1 1 7 1 1 5 2
1 7 8 8 1 0 5 6 4 2 2 4 9 4 3 2 9 1 5 4 2 0 4 5 5 0 8 0 6 5 9 3 0 9 7 1 2 2 2
2 3 6 6 1 1 0 5 5 2 2 8 4 7 3 3 4 9 3 4 2 2 3 9 5 0 9 0 9 5 9 3 1 1 7 1 3 9 7
2 5 0 0 1 1 0 6 1 2 3 0 8 7 3 3 5 5 7 4 2 6 5 8 5 1 1 6 6 5 9 8 0 9 7 1 7 6 3
2 7 8 7 1 1 1 4 3 2 3 4 4 7 3 3 7 8 1 4 2 7 1 7 5 2 0 1 9 6 0 7 0 0 7 2 1 4 8
3 1 4 0 1 3 0 0 1 2 3 5 1 6 3 4 0 4 7 4 3 3 4 0 5 2 0 3 0 6 0 9 5 5 7 2 4 5 1
3 3 1 9 1 3 0 5 1 2 3 6 1 1 3 4 2 0 3 4 3 7 1 7 5 2 2 6 4 6 1 6 2 9 7 3 6 5 2
3 5 7 9 1 3 2 1 9 2 3 8 1 6 3 4 3 3 0 4 4 1 4 3 5 2 5 4 9 6 1 6 9 3 7 3 7 7 9
3 6 7 4 1 3 3 9 1 2 3 8 7 4 3 4 8 2 9 4 4 2 4 4 5 3 2 3 9 6 2 1 0 8 7 4 9 8 2
4 1 5 3 1 4 2 6 7 2 4 0 1 9 3 4 8 7 3 4 4 4 5 6 5 3 2 7 1 6 2 1 1 2 7 5 1 6 0
4 1 8 7 1 4 6 9 3 2 4 2 2 6 3 5 3 0 1 4 4 4 7 0 5 3 2 9 0 6 3 1 1 5 7 5 8 5 5
4 2 3 1 1 5 0 7 4 2 5 0 1 8 3 5 3 6 6 4 4 7 3 5 5 4 0 3 4 6 3 5 2 8 7 5 8 6 3
4 4 5 8 1 5 2 4 3 2 5 1 7 9 3 5 7 4 3 4 4 7 5 9 5 4 2 0 6 6 4 0 3 6 7 6 0 3 4
4 9 8 9 1 5 9 8 9 2 5 6 7 7 3 6 0 5 6 4 5 2 2 5 5 4 3 4 4 6 4 4 8 5 7 7 4 5 0
5 1 1 5 1 6 0 8 8 2 5 8 5 3 3 6 0 9 2 4 5 3 5 9 5 4 4 4 5 6 4 7 5 2 7 7 5 3 6
5 6 9 2 1 6 2 3 2 2 6 7 5 9 3 6 0 9 6 4 5 6 1 5 5 5 6 6 4 6 5 4 5 4 7 7 6 6 4
6 0 1 5 1 6 8 0 5 2 6 8 7 9 3 6 1 9 0 4 5 9 4 1 5 6 3 2 8 6 5 6 5 1 7 8 2 3 7
6 0 9 9 1 7 0 2 5 2 7 9 7 1 3 6 6 6 1 4 6 0 0 7 5 6 4 3 2 6 6 1 6 5 7 8 6 8 3
6 5 2 4 1 7 3 3 9 2 8 5 1 1 3 7 1 8 1 4 6 2 9 2 5 6 6 6 8 6 6 4 4 2 7 9 0 8 3
6 5 8 8 1 7 5 0 7 2 8 6 7 1 3 7 4 8 2 4 6 4 5 0 5 6 6 9 4 6 6 7 9 8 7 9 3 4 5
7 3 4 4 1 7 6 0 0 2 8 9 6 0 3 7 6 0 9 4 6 4 6 5 5 7 0 2 3 6 6 8 9 5 7 9 4 2 7
7 5 9 3 1 7 6 3 1 2 9 6 0 9 3 7 6 5 6 4 6 5 7 9 5 7 2 8 2 6 7 3 0 9 7 9 5 4 8
7 7 2 0 1 7 7 1 6 2 9 7 0 3 3 7 8 0 4 4 6 9 8 8 5 7 3 7 3 6 7 7 2 6 7 9 7 9 6
7 8 4 1 1 7 9 3 7 2 9 8 1 2 3 8 5 7 2 4 7 2 9 3 5 7 3 8 2 6 7 8 8 7 7 9 8 9 3
7 9 5 5 1 8 1 1 4 3 0 6 8 9 3 8 7 8 3 4 7 3 9 6 5 7 5 2 7 6 7 9 3 6
8 2 0 4 1 9 0 0 1 3 0 7 6 8 3 9 3 4 2 4 8 0 9 1 5 8 1 7 8 6 9 0 3 8
8 3 0 4 1 9 5 4 8 3 0 8 7 6 3 9 8 3 3 4 8 1 6 2 5 8 2 0 8 6 9 0 9 3
8 3 1 0 1 9 9 5 2 3 0 9 3 8 4 0 2 7 6 4 9 0 3 8 5 8 2 3 0 6 9 4 1 1
8 5 4 0 2 0 2 3 9 3 1 0 5 1 4 0 3 8 1 4 9 6 2 2 5 8 2 9 6 6 9 6 5 6
8 7 5 3 2 0 5 1 2 3 1 0 6 1 4 0 8 8 9 4 9 8 0 9 5 8 6 1 7 6 9 9 6 1
Næstu útdrættir fara fram 13. okt, 20. okt & 27. okt 2011
Heimasíða á Interneti: www.das.is
Sigurbjörn Þorleifsson frá
Langhúsum hafði brennandi
áhuga á hrossum og það var
þess vegna sem leiðir okkar
lágu saman í upphafi og eftir
því sem á leið urðu samskiptin
meiri og vináttan traustari.
Sigurbjörn var bóndi að ævi-
starfi, rak um árabil gott kúabú
í Langhúsum í Fljótum, en
hafði hrossin sér til dægrastytt-
ingar, þau voru áhugamál, sem
Sigurbjörn
Þorleifsson
✝ SigurbjörnÞorleifsson
fæddist 2. júlí 1944
í Langhúsum í
Fljótum. Hann varð
bráðkvaddur hinn
23. september
2011.
Útför Sig-
urbjörns fór fram
frá Sauðárkróks-
kirkju föstudaginn
30. september
2011.
síðar varð að eins
konar atvinnustarf-
semi og eftir að
þau Dísa fluttu á
Krókinn áttu
hrossin hug hans
allan. Bjössi var
ákaflega natinn
hestamaður, ná-
kvæmur og fór sér
að engu óðslega,
trippin fengu að
njóta vafans. Hann
fékkst við tamningar allt til
æviloka og þeir sem trúðu hon-
um fyrir trippum voru ekki
sviknir af verkum hans, sam-
viskusemin var honum í blóð
borin og ef dagur féll úr af ein-
hverjum orsökum, þá var það
bætt upp síðar.
Það var harður kjarni hesta-
manna í Fljótum og þar fóru
þeir fyrir svilarnir Sigurbjörn
Þorleifsson og Símon Gestsson.
Þeir voru jafnframt máttar-
stólpar í hestamannafélaginu
Svaða. Ógleymanlegar eru ferð-
ir þeirra félaga upp í Skagafjörð
seinni part vetrar og með í för
voru þeir Siggi á Ysta-Mói og
Jóhannes á Reykjarhóli, en bíl-
stjóri yfirleitt Ólafur, tengda-
sonur Bjössa. Það var glatt á
hjalla í þessum ferðum, komið
við á nokkrum bæjum, glasi lyft
og lagið tekið. Ég hefði ekki
viljað missa af þessum samfund-
um.
Bjössi var félagi í Gangna-
mannafélagi Austurdals og fór
margar ferðir fram í Austurdal
með Stefáni bónda á Keldul-
andi, í stóðrekstur að sumri og
fjár- og stóðsmölun að hausti;
þeir Stefán kunnu vel að meta
hvor annan. Bjössi var frábær
sögumaður og fór oft á kostum í
lýsingum á slíkum ferðum, þar
sem Stefán foringi var í aðal-
hlutverki.
Við Bjössi vorum saman í
stjórn Hrossaræktarsambands
Skagfirðinga um tíu ára skeið,
hann varaformaður en ég for-
maður. Þar reyndist hann góður
liðsmaður og ég leitaði oft ráða
hjá honum. Bjössi var fljótur að
átta sig á aðalatriðum máls og
sagði sína skoðun umbúðalaust,
þar lá aldrei fiskur undir steini.
En Bjössi kom víðar við þeg-
ar eitthvað stóð til hjá hesta-
mönnum; Reiðhöllin Svaðastað-
ir naut ósjaldan krafta hans,
fótaskoðun á kynbótasýningum
og öðrum mótum var oft hlut-
verk hans og sem liðstjóri
Skagfirðinga á Bikarmótum
Norðurlands var hann betri en
enginn, útsjónarsamur og hafði
mikinn metnað fyrir sitt lið,
sem oftar en ekki hampaði
sigri.
Það er skarð fyrir skildi í
röðum skagfirskra hestmanna,
ósérhlífinn og frábær félagi er
fallinn og við njótum ekki leng-
ur krafta hans, en minningin
um sannan heiðursmann mun
lifa.
Hrossaræktarsamband
Skagfirðinga stóð fyrir sölusýn-
ingu á Sauðárkróki síðdegis
föstudaginn 23. september og
við vorum fremur liðfáir. Þá
hringdi ég í síðasta sinn í
Bjössa en hann svaraði ekki,
aldrei þessu vant; ég hringdi of
seint.
Við hjónin á Ytra-Skörðugili
sendum Dísu og öllum vanda-
mönnum okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Ingimar Ingimarsson.