Morgunblaðið - 07.10.2011, Side 29

Morgunblaðið - 07.10.2011, Side 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2011 ✝ Jón Lárussonfæddist í Reykjavík 17. október 1942. Hann lést á Líkn- ardeild Landspít- alans í Kópavogi 30. september 2011. Foreldrar Jóns voru Lárus Guðjón Jónsson skókaupmaður, og eigandi Skóbúðar Lárusar G. Lúð- vígssonar í Reykjavík, f. í Reykjavík 28. apríl 1906, d. 23. nóvember 1991, og Anna Krist- ín Sveinbjörnsdóttir húsmóðir, f. á Ísafirði 8. október 1905, d. 14. ágúst 1992. Systkini Jóns eru: 1) Hrefna Lárusdóttir Kvaran, f. 3. apríl 1929, gift Ragnari G. Kvaran fyrrverandi flugstjóra, f. 22. júlí 1927. 2) Anna Margrét Lárusdóttir, f. 1. maí 1934, gift Jónasi Hallgríms- syni lækni og fyrrverandi pró- fessor, f. 6. september 1931. Jón kvæntist 18. júlí 1965 Sigríði Guðjónsdóttur gjaldkera hjá Osta-og smjörsölunni, f. 16. júlí 1941. Þau eignuðust ekki börn. Foreldrar Sigríðar voru Guðjón Karlsson sjómaður, f, 27.11. 1901, d. 15.5. 1966, og Sigríður Markúsdóttir, f. 26.9. irtækisins Asiaco hjá Kjartani J. Jóhannssyni þar sem Jón vann árum saman við innflutn- ing á fiskveiðiskipum og netum og öðru þvi sem við kom fisk- veiðum. Hjá Herluf Clausen vann Jón við kaup og sölu ým- iss varnings á Internetinu. Á þeim árum hóf Jón nám í leið- sögumennsku við Mennta- skólann í Kópavogi en það fór fram á kvöldnámskeiðum með starfi. Jón lauk náminu með glæsibrag vorið 2005. Með því tók hann meirapróf á bifreiðar og rútupróf og sneri sér síðan að fullu starfi hjá ferðafyr- irtækinu Allrahanda ehf (Ice- land Escursions) þar sem hann vann við leiðsögu og akstur langferðabifreiða þar til sjúk- dómur hans stöðvaði hann í maí sl. Jón naut mikils trausts í þessu starfi sem var aðallega með erlenda ferðamenn. Þar naut hann góðs af fyrra starfi sínu fyrir Asiaco í sölumennsku um landið allt sem hann þekkti svo vel. Frá upphafi var hann félagsvera sem aðrir fengu síð- ar að njóta góðs af. Jón var skáti um árabil og æfði og keppti á skíðum fyrir Ármann á unglingsárum sínum. Jón æfði svifflug ungur að aldri og lauk einkaflugmannsprófi. Útför Jóns fer fram frá Ví- dalínskirkju í Garðabæ í dag, 7. október 2011, og hefst athöfnin kl. 13. 1902, d. 13.8. 1993. Önnur börn Guð- jóns og Sigríðar voru; Karl, f. 21.11. 1928, Sjöfn, f. 22.2. 1930, Þórarinn, f. 12.8. 1931, Rúnar, f. 26.8. 1933, Eygló, f. 12.2. 1935, Markús, f. 15.1. 1938, Hrefna, f. 21.1. 1940, Garð- ar, f. 20.8. 1942. Markús og Hrefna eru látin. Jón lauk hefðbundinni barna- skólamenntun í Grænuborg (Ís- aksskóla ) og í Æfingadeild Kennaraskóla Íslands. Síðan lá leiðin í Verslunarskóla Íslands þaðan sem hann lauk versl- unarprófi árið 1960. Að loknu verslunarprófi starfaði Jón í eitt ár í banka í Kaupmanna- höfn. Síðan lá leiðin til Boston þar sem Jón var einn vetur í virtum verslunarskóla (Bryant and Stratton) og lauk þaðan prófi vorið 1962. Jón vann lengst af við ýmis skrifstofu- og verslunarstörf. Hjá Árna Ólafssyni vann hann við fiskútflutning, síðan við ferðaáætlanir hjá Ferðaskrif- stofunni Sögu með Njáli Sím- onarsyni. Næst lá leiðin til fyr- Mágur minn Jón Lárusson (Nonni) hefur nú kvatt okkur og er mér ljúft að semja til hans nokkur kveðjuorð, enda hvattur til þess af konu minni. Ég mun víst vera einn þeirra lifandi, sem lengst hafa þekkt Nonna, en honum kynntist ég nefnilega, þegar hann var ennþá við vöggu, er ég hóf að stíga í vænginn við systur hans, en göngutúrinn frá þeim væng hefur síðan enzt í ein 67 ár. En nóg með það, Jón hef- ur tekið þátt í þeirri göngu alla tíð, jafnt hérlendis, sem erlendis og þakka ég honum þá samfylgd. Jón hafði sína menntun úr Verzlunarskólanum og hans störf mótuðust lengst af þeirri menntun. Viðskiptastörf og ferðamál voru þar í fyrirrúmi, en eftir að hann hætti skrifstofu- störfum, gekk hann í leiðsögu- skóla og tók meirapróf á bíl. Síð- an hóf hann starf sem leiðsögumaður og rútubílstjóri. Þegar hann ók litlum rútum var hann hvortveggja í senn. Hann hefði ekki getað fundið betra starf til að ljúka sínum ferli, því hann var minnugur og sagði vel frá. Jón hafði alla ævi haft mikinn áhuga á farartækjum, einkum bílum og flugvélum, enda hafði hann einkaflugpróf. Jón hafði ætíð dáðst að rútubílstjórum og var nú orðinn einn þeirra, en mátti jafnframt segja túristum sögur, eftir því, sem tækifæri gáfust við aksturinn. Þessum störfum lauk hann í sumar og fór með konu sinni í siglingu frá Flórída til Ítalíu, en skömmu eftir heimkomuna heltóku hann veikindi þau, sem drógu hann til dauða á svo skömmum tíma. Þessi voru hinsvegar ekki einu störf Jóns, því hann var löngu genginn í SÁÁ, en á vegum þeirra samtaka var hann síðan virkur forvarnamaður og fyrir- lesari og þaðan eiga honum margir gott að þakka. Jón lifði í góðu hjónabandi með Sigríði Guðjónsdóttur og lifir hún mann sinn. Ragnar G. Kvaran. Ég kynntist Jóni (Nonna) mági fyrir tæpum 60 árum þeg- ar ég varð unnusti yngri systur hans, Önnu Möggu, sem nú er eiginkona mín. Nonni var þá tæplega 10 ára gamall og því langt árabil á milli okkar, hann í barnaskóla og ég við nám í lækn- isfræði við Háskóla Íslands. Við áttum því ekki margt sameiginlegt, hann barn og ég fullorðinn maður. En með okkar fjölskylduböndum fylgdumst við að á ýmsan hátt. Fyrst hófst eig- inleg vinátta á milli okkar þegar hann bjó hjá okkur, mér og Önnu Möggu systur hans, við verslunarnám sitt í Boston vet- urinn 1961-62. Síðan hélst sú vinátta með fjölskylduböndun- um öll árin sem hann starfaði við hin ýmsu viðskipta- og ferða- málafyrirtæki. Jón var afar vandvirkur og fróður um allt sem sneri að hverju starfi hans og naut sérstakrar virðingar at- vinnuveitenda sinna. Sérstak- lega varð sterk vinátta á milli hans og Kjartans J. Jóhannsson- ar hjá Asiaco og entist hún út ævi Kjartans þótt Nonni væri þá farinn til annarra starfa. Sem sölumaður fyrir fyrirtækið kynntist Nonni landi sínu og þjóð á nýjan hátt á ferðum sín- um til helstu bæja og þorpa landsins. Gáfur hans og starfs- reynsla og mikil þekking á landi okkar og þjóð leiddu til þess að hann fann sína köllun í starfi og gerðist hann að loknum prófum leiðsögumaður um Ísland hjá fyrirtækinu Allrahanda ehf. og í því starfi þroskaðist hann frekar á því sviði og varð mjög vinsæll og eftirsóttur sem langferðabif- reiðastjóri og leiðsögumaður. Þegar ferðamenn voru 20 eða færri annaðist Nonni bæði akst- ur smærri langferðabifreiða (fjallarútur oft) og leiðsögu um þjóðvegi landsins og fjallvegi. Í öllu námi og störfum hans stóð eiginkona hans, Sigríður Guð- jónsdóttir, þétt að baki honum. Í veikindum sínum seinni árin leitaði Nonni mikið til mín varð- andi svör við spurningum sem hann hafði og ekki var svarað nægilega af læknum hans, að hans dómi. Í raun voru þetta spurningar sem hann bjó til að vandlega hugsuðu máli. Þessar spurningar voru þess eðlis að þær sýndu enn frekar hans skilning og jafnframt fólu þær í sér mikla viðurkenningu á störf- um lækna og hjúkrunarfólks sem önnuðust hann. Nonni tók sínum örlögum með mikilli ró- semd og dó með fullan huga af þakklæti til þeirra sem hann önnuðust. Við hjónin og börnin okkar fjögur og fjölskyldur þeirra flytjum ekkju hans, Sigríði Guð- jónsdóttur (Sísí), okkar innileg- ustu samúðarkveðjur og þökk- um góða samfylgd og vináttu í lífinu. Jónas Hallgrímsson (Jónas mágur). Það haustar að, laufin falla af trjánum, eftir að hafa skartað sínu fegursta og litadýrð hausts- ins verið í algleymingi, kær vin- ur fellur frá, siglir á öldum ljós- vakans á vit hins óþekkta, eftir að hafa háð harða baráttu við ill- vígan sjúkdóm. Vinur okkar hjóna og nágranni til margra ára, ferðafélagi ásamt sinni ynd- islegu konu á hinum ýmsu ferða- lögum okkar um heiminn, þar sem hann var hrókur alls fagn- aðar og gat líka notið sín sem leiðsögumaður og bílstjóri, þar sem það var hans starfi seinni árin hér heima og hafði hann mikla ánægju af því og naut sín vel. Í fyrstu kynntist ég þessum glæsilegu hjónum árið 1965 þeg- ar ég fluttist að Háaleitisbraut 37 þar sem við vorum samtíða í 10 ár, svo urðum við aftur ná- grannar þegar við hjónin flutt- umst í Brekkubyggðina og betri granna er ekki hægt að hugsa sér. Með þessum fátæklegu orðum langar mig að þakka fyrir allar okkar góðu samverustundir og vináttu og bið Guð að styrkja Sísí mína í hennar miklu sorg. Oddbjörg Júlíusdóttir. Elsku Nonni minn, mikið rosalega er leiðinlegt að þú sért farinn frá mér. Minningarnar sem við eigum eru svo ótal margar og dýrmætar. Það var alltaf svo gott að koma til ykkar Sísíar í pössun þegar ég var lítil. Þú tókst alltaf svo vel á móti mér, þú ljómaðir allur og kysstir mig í bak og fyrir. Það var alltaf svo notalegt hjá okkur á kvöldin, þú leyfðir mér alltaf að ráða hvað væri í matinn sem var oft- ast spaghettí og hakk sem Sísí gerði. Á kvöldin horfðum við svo saman á sjónvarpið þangað til að ég sofnaði í kjöltunni á þér. Það var svo gaman að vakna á morgnana því ég vissi að dag- urinn myndi verða góður þar sem þú leyfðir mér alltaf að ráða hvað við myndum gera yfir dag- inn. Yfirleitt vissirðu hvað var í vændum. Við fórum ósjaldan í Perluna að fá okkur kúluís, skoðuðum flugvélarnar á Reykj- arvíkurflugvelli, fórum í fjöruna eða í langan sunnudagsbíltúr. Langskemmtilegast var þó að fara í sveitina, það var aldrei leiðinlegt að fara með þér í þær ferðir. Þú hafðir alltaf frá svo miklu að segja sem var svo áhugavert og skemmtilegt. Það var alltaf jafnfyndið að heyra þig segja að heyrúllurnar á túnun- um væru sykurpúðar fyrir tröll- in í fjöllunum og að grænu rúll- urnar væru mynta fyrir tröllin sem væru með kvef. Sá brandari gleymist seint. Á seinustu árum hefurðu allt- af verið mín stoð og stytta í öllu sem ég hef tekið mér fyrir hend- ur. Þú hvattir mig mest af öllum í gegnum námið og vaktir áhuga minn á svo ótalmörgu. Þegar ég tilkynnti þér að ég hefði valið stjórnmálafræði í Háskólanum kom það þér ekkert á óvart, ég þurfti ekki að segja þér það því þú vissir það. Þú þekktir mig svo vel, þú sást alltaf á mér þegar mér leið illa og varst alltaf tilbú- inn að hjálpa mér. Það þótti óeðlilegt ef það leið meira en vika sem við heyrðum ekki hvort í öðru. Þú vísaðir mér á beinu brautina í lífinu og fyrir það á ég þér svo margt að þakka. Þegar þú kynntir mig fyrir fólki sagð- irðu að þú ættir stóran hlut í mér og værir nokkurs konar afi minn. Fyrir mér varstu ekki bara það heldur einnig besti vin- ur minn. Vináttan okkar var sér- stök sem bara við tvö skildum og henni mun ég aldrei gleyma. Eygló Alexandra Sævarsdóttir. Elsku Nonni minn hefur nú kvatt okkur. Minningarnar um góðan mann streyma um huga minn. Það var alltaf gott að koma í Brekkubyggð, þá komu Nonni og Sísí alltaf brosandi á móti okkur Eygló. Dýrmætar minningar sem ég á frá skemmtilegum sumarbústaðar- ferðum og tjaldútileigum úr Fljótshlíðinni, ylja mér um hjartarætur. Þú varst svo góður við hana Eygló mína og fræddir hana um ýmsa hluti, t.d. pólitík. Ræðan var falleg sem þú hélst í fermingunni hennar og stoltur varstu þegar hún varð stúdent í fyrra, brosið fór ekki frá þér þann dag enda stóðstu þig vel í afahlutverkinu í stað pabba míns sem lést um aldur fram. Elsku Nonni, nú ert kominn í sumarlandið og ég mun hitta þig þar síðar. Takk fyrir að vera svona góður við hana Eygló mína. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (Vald Briem.) Hrafnhildur Halldórsdóttir. Árið 1990 var þjóðarátak gegn krabbameini undir kjör- orðinu „Til sigurs“. Þetta vakti þónokkra umræðu enda fólk vanast því að hugsa um krabba- mein sem ósigrandi vágest. Það var hins vegar sýn þeirra sem sem leiddu þetta átak að for- varnir sjúkdóma eru ekki tak- markaðar við að koma í veg fyrir þá eða greina á forstigum heldur spanni þær allt sviðið og nái líka til meðferðar og líknar. Þetta rifjast allt upp fyrir mér eftir að hafa fylgst með vini mín- um Jóni Lárussyni gegnum öll stigin. Barátta hans til sigurs tók enda á líknardeildinni í Kópavogi sl. föstudag, 30. sept- ember. Hann trúði alltaf á bat- ann og sýndi ótrúlegan andlegan styrk og æðruleysi í veikindum sínum. Við Nonni vorum jafnaldrar og áttum ljúfar stundir saman í bernsku í Norðurmýrinni í Reykjavík og á sumrin við Álfta- vatn í bústöðum foreldra okkar. Þar voru mjög náin fjölskyldu- tengsl. Eftir unglingsárin fórum við hvor sína leið en vorum alltaf í kallfæri. Nonni fór í flugið og stundaði margs konar störf í verslun og þjónustu. Alltaf sýndi hann mikið frumkvæði og hreif fólk með sér en aldrei setti hann sig á stall, fremur var honum lagið að vinna sín verk af alúð og leyfa öðrum að njóta hylli. Fyrir rúmum 13 árum lágu leiðir okkar aftur mjög náið saman þegar við fórum að stunda forvarnir í bókstaflegri merkingu í eigin lífi. Eins og annað tók Nonni það föstum tök- um og sýndi afburðagott for- dæmi í lífi og starfi. Honum var sýndur sá trúnaður í sveitarfé- lagi sínu, Garðabæ, að vera fulltrúi í forvarnarnefnd bæjar- ins. Bárum við oft saman bækur okkar, samhæfðum okkur og áttum fjölmarga fundi saman og með félögum okkar. Á þessum tíma söðlaði Nonni einnig um og fór í leiðsögu- mannsnám sem hann lauk með prýði. Sneri hann sér svo alfarið að ferðaþjónustunni og varð fljótt mjög eftirsóttur í því starfi. Hann vann af miklum krafti þar til krabbameinið var greint 2008. Að fengum góðum bata sneri hann aftur til starfa en sjúkdómurinn lagði hann aft- ur í rúmið sl. sumar og síðan af velli eftir hetjulega baráttu. Ég er afar þakklátur Jóni vini mínum Lárussyni fyrir að hafa gengið með mér drjúgan hluta af lífinu. Hann var gæfumaður og vissi hann það manna best. Tal- aði hann oft um það lán sitt að hitta Sísí lífsförunaut sinn sem hann virti og dáði að verðleikum. Ég og fjölskylda mín færum Sísí og fjölskyldum þeirra Nonna innilegar samúðarkveðj- ur Almar Grímsson. Allt líf er ein hringrás og eitt vitum við menn að okkar jarð- neska lífi lýkur, á misjöfnum aldri þó. Í dag kveðjum við vin minn og ferðafélaga til margra ára, Jón Lárusson. Jón kvaddi þennan heim ósáttur við að fá ekki að vera lengur hjá Sísí sinni og vinum, sem sagt ekki tilbúinn í þetta ferðalag enda aðeins 68 ára. Jón var mjög fróður um land og þjóð og vinamargur, gat rætt um heima og geima, hafði góðan frásagnastíl og léttur andi var í sögum sem hann sagði. Við Jón vorum nágrannar og vinir í tutt- ugu ár og fórum við hjónin sam- an í margar ferðir til útlanda og eru frábærar minningar frá þessum ferðum. Í Marmaris í Tyrklandi tókum við litla rútu heilan dag með fararstjóra, heimsóttum gamlar grafhvelf- ingar og syntum í sundlaug Kleóplötru, heimsóttum verk- smiðju með vefnað, þar sáum við silkiofið teppi af síðustu kvöld- máltíðinni, eitt mesta listaverk sem ég hef séð. Í Króatíu tókum við bílaleigubíl og Jón ók um þvert og endilangt landið, því- líkir dagar í dásamlegu veðri. Á Tenerife sólbað á daginn og frá- bærir veitingastaðir, dans og skemmtistaðir á kvöldin. Ekki má gleyma Taílandi, að heim- sækja Jóhannes Guðmundsson vin Jóns og Sísíar og hans in- dælu frú, ótrúleg ferð, sýningar og söfn skoðuð, mikil ferðalög dans og gleði með þeim hjónum. Þetta voru allt mjög eftirminni- legar skemmtiferðir þar sem Jón var miðpuntur í gleði og söng. Jón var góður tungumálamað- ur og fór fyrir nokkrum árum í Leiðsöguskólann og hefur nú seinni ár ekið rútum og verið sem leiðsögumaður og hef ég séð mörg þakkarbréf sem honum bárust frá þakklátum útlending- um fyrir frábæra leiðsögn og túlkun á landi og þjóð. Að lokum þakka ég frábær kynni og vináttu og veit að Jón vinur minn er kominn þangað sem okkur öllum er ætlað að vera eftir dvöl hér í jarðnesku lífi. Sísí mín, Guð styrki þig og styðji, þið voruð svo samstillt og elskuleg saman. Elsku Sísí, inni- leg samúð til þín og fjölskyldu. Karl Ásgrímsson. Jón Lárusson  Fleiri minningargreinar um Jón Lárusson bíða birt- ingar og munu birtast í blað- inu næstu daga. langömmu sinni. Amma Fjóla var yfir sig stolt af litlu nöfnu sinni og að sjálfsögðu mætti hún í skírnina þrátt fyrir háan aldur og eigum við fallegar myndir af Fjólunum okkar þremur á þessum fallega degi. Amma Fjóla átti fjögur barna- börn og sjö barnabarnabörn sem hún fylgdist vel með og var mjög stolt af og voru þær ófáar mynd- irnar af þeim sem prýddu íbúðina hennar á Ásabrautinni. Amma Fjóla hélt fullri heilsu lengstan hluta ævi sinnar og bjó ein á Ásabrautinni þar til fyrir rúmlega ári að hún flutti á hjúkr- unarheimilið Garðvang þá 89 ára gömul. Hinn 17. janúar 2011 hélt hún upp á 90 ára afmælið sitt með allri fjölskyldu sinni og áttum við góða stund saman. Ég verð alltaf þakklátur fyrir mánudaginn 26. september þegar ég kom til ömmu og átti með henni notalega stund og kvaddi hana, morguninn eftir hringdi mamma svo í mig og sagði að hún hefði kvatt þennan heim á hljóðlegan og kyrrlátan hátt. Að leiðarlokum langar mig til að þakka ömmu Fjólu fyrir allar þær góðu og yndislegu stundir sem ég og mín fjölskylda áttum með henni. Minning um góða konu mun ávallt lifa með mér. Guð blessi þig amma mín. Elsku mamma, pabbi og systk- ini, megi Guð styrkja ykkur og hugga á þessum erfiðu tímum. Missir okkar er mikill. Þinn dóttursonur, Ólafur Pétursson. Meira: mbl.is/minningar Léttar viðarinnréttingar gerðu skólastofurnar notalegar og hlý- legar. Eftir þriggja vetra nám á kirkjuloftinu vorið 1940 lukum við gagnfræðaprófi. Margir góðir nemendur voru í bekknum, en alltaf var Margrét Björnsdóttir með hæstu einkunn. Á þessum tíma voru tölvur og farsímar ekki komnir til sögunnar. Við stunduð- um námið vel og lékum okkur mikið úti við. Margrét ólst upp við mikið ást- ríki á myndarlegu heimili þar sem allt var í föstum skorðum. Hún átti systur, Guðbjörgu, sem var nokkrum árum eldri. Móðir þeirra, Ólöf í Hlíðarhúsi, var oft fengin til aðstoðar þegar húsmæð- ur á Siglufirði þurftu að halda matarveislur. Hlíðarhús könnuð- ust allir Siglfirðingar við. Það stóð innarlega í firðinum, eitt og sér of- arlega í fjallshlíðinni í nokkurri fjarlægð frá öðrum húsum. Margrét var hölt og stakk við fæti þegar hún gekk. Var það vegna galla í mjaðmarlið frá fæð- ingu sem ekki reyndist unnt að ráða bóta á, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Að sjálfsögðu olli þetta Margréti nokkrum erfiðleikum. Það var töluverður spölur sem þurfti að ganga til og frá í skólann og snjóþyngsli mikil á Siglufirði á þessum árum. En Margrét bar sig vel. Hún var fínleg og falleg og þeir sem kynntust henni mundu best eftir glaðlegu og hlýlegu við- móti hennar. Mér er sérstaklega minnisstætt hvað hún hafði fallega rithönd. Ekki var þess vart að hún teldi sig öðrum fremri vegna yf- irburða námshæfileika. Þegar við vorum á þriðja vetri í skólanum kynntist Margrét Óla Jósepssyni Blöndal sem síðar varð eiginmaður hennar. Átján ára að aldri fæddi hún fyrsta barn þeirra. Hjónabandið var farsælt og ham- ingjusamt. Börn þeirra eru; Ólöf Birna Blöndal, kennari og listmál- ari, Jósep Ó. Blöndal, yfirlæknir á St. Fransiskusspítalanum í Stykk- ishólmi, Ásbjörn Ó. Blöndal verk- fræðingur, Sigurður Ó. Blöndal skurðlæknir og Guðrún Ó. Blön- dal framkvæmdastjóri. Síðustu ár Margrétar voru henni erfið vegna vanheilsu. Svo er einnig hjá flestum okkar sem erum komin á efri ár. Ég þakka henni fyrir þær stundir sem við áttum saman og bið afkomendum hennar Guðs blessunar. Gyða Jóhannsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.