Morgunblaðið - 07.10.2011, Page 34
34 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2011
Sudoku
Frumstig
5 4
5 4 1 2 8
8 7 2 6
8 7 1
7 3 6
6 2 1 3 5 8
4 2 3
3 7 8
8 9 5
2 9 5
9 5 3
5 1 7
3 2 8 4
9 1 7 2
8 3 7
4 9
3
9 7 8
8 7 6 4
5 7 2
1 8 6
2 7
5 6
8 4 5 2 3
6 1 3 8 4 7 5 9 2
2 4 5 9 3 6 8 7 1
7 9 8 1 2 5 4 6 3
3 7 9 2 5 1 6 8 4
1 6 2 7 8 4 3 5 9
5 8 4 3 6 9 1 2 7
9 5 7 6 1 3 2 4 8
8 3 6 4 7 2 9 1 5
4 2 1 5 9 8 7 3 6
3 1 6 2 5 7 8 4 9
8 4 2 1 6 9 7 5 3
7 5 9 4 3 8 2 6 1
4 2 8 6 7 1 9 3 5
9 3 1 5 8 2 6 7 4
5 6 7 9 4 3 1 2 8
1 9 5 3 2 6 4 8 7
2 8 4 7 1 5 3 9 6
6 7 3 8 9 4 5 1 2
9 7 8 4 3 1 5 2 6
4 6 5 7 8 2 9 1 3
2 3 1 6 5 9 8 4 7
5 1 7 3 9 4 2 6 8
8 9 3 2 6 5 4 7 1
6 4 2 1 7 8 3 9 5
7 8 4 5 2 6 1 3 9
1 5 6 9 4 3 7 8 2
3 2 9 8 1 7 6 5 4
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er föstudagur 7. október, 280. dag-
ur ársins 2011
Orð dagsins: Ég er Drottinn, það er
nafn mitt, og dýrð mína gef ég eigi öðr-
um né lof mitt úthöggnum líkneskjum.
(Jesaja 42, 8)
Margir kvarta stöðugt vegna dag-skrár ríkissjónvarpsins. Þetta
finnst Víkverja vera með ólíkindum
og vill frekar sjá fólk brosa ánægt
framan í heiminn en vera með fýlu-
svip.
x x x
Hver hefði til dæmis vilja missa afstefnuræðu forsætisráðherra
sl. mánudagskvöld? Þökk sé Sjón-
varpinu að forsætisráðherra gat kom-
ið efasemdum sínum um stjórnina á
framfæri. „Byggjum við upp traust á
stjórnmálunum og okkur sjálfum með
framgöngu okkar?“ spurði hún eftir
að hafa vakið athygli á því að traust
til Alþingis hefði aldrei verið minna
og það yrði ekki einvörðungu skýrt
með vísan til bankahrunsins fyrir
þremur árum. „Vinnum við í þágu
heildarinnar þegar til lengdar er lit-
ið?“ hélt forsætisráðherra áfram, fyr-
ir þá sem misstu af beinu útsending-
unni. „Erum við góðar fyrirmyndir
því unga fólki sem veltir fyrir sér
virkri þátttöku í stjórnmálastarfi? Því
verður hver að svara fyrir sig.“
Innanríkisráðherra, sem valdi að
vera á ráðstefnu í Mexíkó frekar en
við þingsetningu, svaraði þessu
reyndar í þættinum Í bítið á Bylgj-
unni morguninn eftir á milli þess sem
lesnar voru upp bingótölur dagsins:
„Ég hef nú ekki misst af neinu og
held að enginn hafi misst af mér.“
x x x
Svo haldið sé áfram að hæla Sjón-varpinu þá má dagskrárstjóri
þess eiga það að þar á bæ er hlustað
þegar eldri þegnar þessa lands leggja
orð í belg. Ekki er ofsagt að allt varð
hreinlega vitlaust, þegar hætt var að
sýna Leiðarljós, en eftir að sýningar
hófust daglega á ný hafa þessar radd-
ir þagnað, þó að aldur og veikindi geti
vissulega átt hlut að máli. Nú heyrir
Víkverji að margir séu komnir fram á
brúnina vegna þáttarins Kexverk-
smiðjunnar og ekkert geti komið
þessu fólki til bjargar nema sýn-
ingum verði hætt og Hringekjan sýnd
í staðinn. Leikmyndin sé enn til hjá
Rúv og því ekkert til fyrirstöðu. Heill
og hamingja áhorfenda Sjónvarpsins
er sögð í veði. Boltinn er í Efstaleiti.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 grannskoðar, 8
keips, 9 látna, 10 eyði, 11
gjálfra, 13 hvalaafurð, 15
poka, 18 sundfuglar, 21
hrós, 22 eyja, 23 sparsemi,
24 gangstétt.
Lóðrétt | 2 kærleikshót, 3
guðsþjónusta, 4 gubbaðir, 5
gyðja, 6 baldin, 7 lenska, 12
niðurlag, 14 viðvarandi, 15
kræklingur, 16 svæfils, 17
ráðsnjöll, 18 heldur heit, 19
féllu, 20 vond.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt 1 skælt, 4 bifur, 7 jakar, 8 rellu, 9 fæð, 11 tínt, 13 skýt, 14
óttan, 15 fálm, 17 ýsan, 20 hró, 22 rúmur, 23 sælum, 24 afræð,
25 ólmur.
Lóðrétt 1 skjót, 2 Æskan, 3 torf, 4 barð, 5 fölsk, 6 raust, 10
æmtir, 12 tóm, 13 sný, 15 forða, 16 lemur, 18 selum, 19 námur,
20 hríð, 21 ósjó.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Varnarklúður.
Norður
♠KG107
♥109642
♦Á9
♣G10
Vestur Austur
♠9642 ♠85
♥Á3 ♥D875
♦D3 ♦KG104
♣KD632 ♣854
Suður
♠ÁD3
♥KG
♦87652
♣Á97
Suður spilar 3G.
Bæði Bocchi (fyrir Allegra) og
Cima (fyrir Angelini) hófu vörnina
gegn 3G með litlu laufi. Blindur átti
fyrsta slaginn á millilauf og sagnhaf-
arnir tveir spiluðu hjarta í öðrum slag
á gosann heima og ás vesturs. Nú dró
til tíðinda.
Spilið er frá úrslitaleik ítölsku
klúbbanna, Allegra og Angelini, sem
Allegra-hópurinn vann 206-127.
Bocchi skoraði nokkur stig með góðri
vörn sinni hér. Hann spilaði fyrst ♣K,
sem sagnhafi varð að dúkka, en skipti
síðan yfir í ♦D. Málið afgreitt.
Á hinu borðinu spilaði Cima strax
litlum tígli undan drottningunni.
Sagnhafi fór upp með ásinn og Ga-
rozzo í austur kallaði með ♦G. Tígull-
inn var þar með stíflaður og vörnin
fékk aðeins fjóra rauða slagi: tvo á
hjarta og tvo á tígul.
7. október 1954
Minjasafn Reykjavíkur var
stofnað. Þrettán árum síðar
var því skipt í skjalasafn (síðar
nefnt Borgarskjalasafn) og
minjasafn (Árbæjarsafn).
7. október 1959
Bjarghringur úr danska skip-
inu Hans Hedtoft fannst rek-
inn í Grindavík. Skipið fórst
við Grænland 31. janúar sama
ár og allir sem með því voru,
95 manns. Annar hringur
fannst við Kötlutanga tveimur
vikum síðar og var þetta það
eina sem fannst úr skipinu svo
öruggt sé.
7. október 1966
Breska hljómsveitin Herman
Hermits lék í Austurbæjarbíói.
Dúmbó og Steini og Dátar hit-
uðu upp fyrir þessi fimm hár-
prúðu ungmenni, eins og blöð-
in orðuðu það.
Þetta gerðist …
7. október 1989
Sýning var opnuð í Bogasal
Þjóðminjasafnsins í tilefni
þess að 150 ár voru síðan upp-
finning Daguerre, föður ljós-
myndunarinnar, var kynnt í
París. Á sýningunni var meðal
annars mynd frá 1850 af
Rannveigu Hallgrímsdóttur,
systur Jónasar skálds.
7. október 2008
Fjármálaeftirlitið tók yfir
rekstur Landsbankans og
Glitnis, á grundvelli neyð-
arlaga sem samþykkt voru
daginn áður, og skilanefndir
voru skipaðar.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þegar fólk á afmæli gerir það sér gjarnan daga-
mun. Sóley Víglundsdóttir, þjónn með meiru, er
fimmtug í dag og ætlar að halda upp á það heima
með nánustu fjölskyldu og vinum. „Dæturnar tvær
ýttu á mig um að halda veislu,“ segir hún um tíma-
mótin og bætir við að hún sé annars í eldhúsinu
alla daga, hafi hlaupið í skarðið í Brúarskóla í
Reykjavík, en tíminn þar sé reyndar senn á enda.
Sóley vann í veitingabransanum sem þjónn um
árabil og rak meðal annars Matstofu Sóleyjar við
Smiðjuveg í Kópavogi og áður Sportarann í Hafn-
arfirði. Ferillinn í veitingahúsunum hófst í Sjall-
anum á Akureyri og eftir að hún flutti suður vann hún meðal annars í
Naustinu. „Ég hef verið í þessum bransa í mörg ár og hann togar allt-
af í mig,“ segir hún. Fyrir vikið hafi hún ekki haft margt annað fyrir
stafni, „en ég reyni að fara að fara í ræktina eins og allir hinir segja.“
Dæturnar eru í skóla, en mæðgurnar leyfðu sér þann munað að fara
til Búlgaríu fyrir um tveimur árum og draumurinn er að fara aftur til
útlanda innan skamms. „Það var mjög gaman í Búlgaríu og stefnan er
að láta það eftir sér að fara aftur út næsta sumar, kannski til Spánar,“
segir afmælisbarn dagsins. steinthor@mbl.is
Sóley Víglundsdóttir þjónn 50 ára
Veisla fyrir dæturnar
Hlutavelta
Sandra
Bjarnadóttir
hélt tombólu
við Samkaup
í Kópavogi
og safnaði
1.755 krón-
um sem hún
færði Rauða
krossinum.
Flóðogfjara
7. október Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 3.14 3,0 9.29 1,3 15.44 3,4 22.03 1,1 7.54 18.38
Ísafjörður 5.30 1,6 11.37 0,7 17.46 1,9 8.03 18.40
Siglufjörður 1.02 0,5 7.44 1,1 13.25 0,6 19.37 1,2 7.46 18.22
Djúpivogur 0.02 1,6 6.19 0,8 12.59 1,8 19.04 0,8 7.24 18.07
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þín sterka hlið er skipulagningin og
þú átt að nýta þér það til hins ýtrasta.
Reyndu að vinna sem mest ein/n og láttu fé-
lagslífið sitja aðeins á hakanum.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú hefur háar hugmyndir um næstu
mánuði og stefnir á mikið ævintýri. Láttu
eirðarleysið ekki ná tökum á þér.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Skrifaðu niður skuldbindingar þínar
gagnvart öðrum, og hvettu þá til hins sama.
Nú hafa persónulegu málin forgang og krefj-
ast athygli þinnar.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þér verður afar lagið að vinna að
rannsóknum á næstu vikum. Taktu góðlátlegt
grín annarra ekki nærri þér því þú veist vel að
það býr ekkert að baki.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þér finnst þú þurfa að fá sérstaka við-
urkenningu fyrir framlag þitt. Reyndu að vera
þolinmóð/ur gagnvart einhverjum sem reynir
að skipta sér af einkamálum þínum.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Taktu það ekki nærri þér þótt vinir þín-
ir hafi ekki allan þann tíma fyrir þig sem þú
vilt. Þú átt von á vinningi í einhverju formi.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þið ættuð ekki að láta draga ykkur til
þess að gera annað en þið viljið sjálf. Fjár-
málin eru að komast á rétta braut.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú miklar fyrir þér hlutina og
það finnst þér ekki gott. Þú átt fullt af vinum
– njóttu þess.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Reyndu að eyða eins miklum
tíma til útivistar og þú mögulega getur. End-
urskoðaðu það sem þú hefur verið að gera og
íhugaðu hvort það hafi skilað tilætluðum ár-
angri.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Gættu þess að hrapa ekki að
neinu, þótt þér þyki skoðanir annarra fram-
andi. Taktu þér tak í ræktinni.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Eitthvað hvílir þungt á þér og
hindrar þig í að afreka mikið. Taktu til í
geymslunni og hentu eða gefðu.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Dagurinn gengur að óskum ef þú gæt-
ir þess að tjá þig skilmerkilega. Þú hefur
augastað á dýrum hlut.
Stjörnuspá
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Rc3 g6 4. d4 cxd4 5.
Rxd4 Bg7 6. Be3 Rf6 7. Bc4 0-0 8. Bb3
d6 9. f3 Bd7 10. Dd2 Rxd4 11. Bxd4 b5
12. h4 a5 13. a4 b4 14. Rd5 e6 15. Bb6
Db8 16. Bc7 Db7 17. Re7+ Kh8 18.
Bxd6 Rxe4 19. fxe4 Bxb2 20. 0-0 Dxe4
21. Hf4 Db7 22. Hd1 e5 23. Hf2 Bd4
Staðan kom upp í Evrópukeppni tafl-
félaga í Rogaska Slatina í Slóveníu. Sig-
urbjörn Björnsson (2.349) hafði hvítt
gegn Martin Ahn (2.290) frá Belgíu. 24.
Rxg6+ þessi leikur dugar til vinnings en
fallegri skáklok hefðu verið: 24. Dxd4!
exd4 25. Be5+ f6 26. Hxf6 og svartur er
óverjandi mát. 24. … hxg6 25. Dh6+
Kg8 26. Dxg6+ Kh8 27. Dh6+ Kg8 28.
Hxd4! exd4 29. Be5 Dxg2+ 30. Hxg2+
og svartur gafst upp. Sigurbjörn tefldi
fyrir Taflfélagið Helli og náði sínum
fyrsta áfanga að alþjóðlegum meist-
aratitli á mótinu.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is