Morgunblaðið - 07.10.2011, Side 40

Morgunblaðið - 07.10.2011, Side 40
40 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2011 Evil Madness samanstendur af Pétri Eyvind- arsyni, Jóhanni Jóhannssyni, BJ Nilsen og með- limum Still- uppsteypu, þeim Sigtryggi Berg Sigmarssyni og Helga Þórssyni. Þessi fjórða plata flokksins ber með sér kómískt yfirbragð og meðlimir virðast hafa ágætan húmor fyrir sjálfum sér. Super Great Love býð- ur upp á tölvutónlistarblöndu sem virðist teygja anga sína allt frá tölvuleikjum níunda áratugarins til sýruteknós 21. aldarinnar. Platan byrjar á laginu „Divine Sensual Love Fantasy“ sem er ansi þokka- fullt eins og nafnið gefur til kynna. Glyskennt tölvupoppið gæti eflaust fengið einhvern með sítt að aftan og í skóm með gormareimum til að dansa vélmennadansinn. Því næst tekur við lagið „Sexy Feeling All Year Long“ sem er ekki eins gríp- andi en kunnuglegt stef lagsins „(I Can’t Get No) Satisfaction“ fær mann til að brosa. Ekki eru öll lögin þó eins brosleg. Lögin „Exciting Night Games“ og „Café Eindhoven“ hafa talsvert alvarlegri undirtón. Í heildina litið er platan þó frekar flöt og einsleit og hefði mátt fara aðeins út fyrir tölvuforritin til að ná meiri dýpt. Einföld tölvuhljóðin verða hálfstirð á köflum og laglínur ekki sérlega grípandi. Húmorinn kemst þó ágætlega til skila og ef ég gæfi einkunn fyrir það hversu góðir laga- titlarnir væru þá væri þetta án nokkurs vafa fimm stjörnu plata. Evil Madness – Super Great Love bbmnn Kómískt yfirbragð Davíð Már Stefánsson Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Hljómsveitin Árstíðir sendi í vikunni frá sér aðra hljóðversskífu sína, Svefns og vöku skil, en sú fyrsta kom út fyrir tveimur árum og bar titil hljómsveitarinnar sem þá var tríó. Nú er hún hins vegar sextett og tónlistin hefur breyst í samræmi við það, eins og heyra má á plöt- unni nýju. Á fyrstu plötunni sveif andi Simons og Garfunkels yf- ir vötnum en nú virðist hann á und- anhaldi. Blaðamaður bar þær vangaveltur undir Ragnar Ólafsson, einn af upp- hafsmönnum hljómsveitarinnar, í gær. Ragnar segir tónlist Árstíða vissulega hafa verið einfaldari og poppaðri þegar meðlimir voru þrír en eftir að fleiri bættust í hópinn og hljóðfærum fjölgaði, þ.e. fiðla, píanó og selló, hafi sándið stækkað og blandan orðið meira spennandi. „Við vorum með fleiri möguleika og að auki syngja allir, við erum með sex söngvara í bandinu,“ segir Ragnar. „Það sem við höfum verið að gera síðustu tvö ár er að experi- menta með þetta sánd og útsetja lögin aftur og aftur,“ segir Ragnar um plötuna nýju. Hljómsveitin hafi verið að fikra sig áfram í hinum nýja hljóðheimi og platan sé mikið unnin fyrir vikið, spáð í hvern tón. Þá hafi upptökustjórn Ólafs Arnalds haft mikið að segja um útkomuna. „Hann þekkir sándið okkar og er náttúrlega mjög fagmannlegur tónlistarmaður, vissi nákvæmlega hvað okkar plata þurfti til að okkar sýn myndi verða að veruleika,“ segir Ragnar. Marka sér eigin stefnu – Það er ekki lengur hægt að líkja ykkur við Simon og Garfunkel eða Crosby, Stills og Nash? „Nei, þó að þetta hafi byrjað svo- lítið í þeim anda urðum við svolítið þreyttir á því að fólk var alltaf að kalla CSN og Simon og Garfunkel þegar það heyrði raddaðan söng. Við höfum markvisst verið að marka okkar eigin stefnu og ég er mest stoltur af því, við þessa plötu, að sándið er eitthvað sem við erum búnir að rata á sjálfir. Við höfum ekki líkt eftir neinu öðru bandi,“ seg- ir Ragnar. Hljómsveitin er nýkomin heim eftir þriggja vikna tónlistar- ferðalag um Rússland og Búlgaríu og segir Ragnar það hafa verið vel heppnaða ferð. Í Rússlandi hafi ver- ið uppselt á meira en níu tónleika og spilað á fínum stöðum og stórum. „400-500 manna hallir,“ segir Ragn- ar um tónleikastaðina. Árstíðir túr- aði með rússnesku bandi, Iamthe- morning, sem hefur á að skipa selló-, víólu- og fiðluleikara og léku þeir með Árstíðum lög af nýju plötunni á nokkrum tónleikanna. Spurður að því hvort Rússar hafi þekkt Árstíðir fyrir segir Ragnar að hljómsveitin sé með rússneskan um- boðsmann sem hafi unnið mikið með rússneskum menningarsamtökum sem áhuga hafi á Íslandi og íslenskri menningu. Umboðsmaðurinn hafi séð um að „plögga“ hljómsveitina í Rússlandi og tónleikagestir verið iðnir við að kaupa diska sveit- arinnar. Hvað næstu tónleika varðar þá kemur hljómsveitin fram á Iceland Airwaves, í salnum Kaldalóni í Hörpu og mun svo halda útgáfu- tónleika vegna plötunnar í Hofi á Akureyri, 11. nóvember og í Salnum í Kópavogi 19. nóvember. Þá eru fleiri tónleikaferðir fyrirhugaðar og líklegt að næsta sumar verði mikið hátíðasumar hjá Árstíðum. Hún mun m.a. leika á Colours of Ostrava í Tékklandi, stærstu alþjóðlegu tón- listarhátíðinni þar í landi. Bless, Simon og Garfunkel Ljósmynd/Roland Hensel Fjölmenni Árstíðir á tónlistarhátíðinni Bardentreffen í Nürnberg í Þýskalandi í sumar.  Nýr tónn á annarri hljóðvers- skífu Árstíða www.arstidir.com „HÉR ER ÞRILLER SEM Á EFTIR AÐ HRÆÐA ÚR ÞÉR LÍFTÓRUNA“ - ENTERTAINMENT WEEKLY - CHICAGO READER - NEW YORK TIMES NÚMERUÐ SÆTI Í KRINGLUNNI REAL STEEL kl. 3:30 - 6 - 8 - 10:40 2D 12 KONUNGURLJÓNANNA kl. 4 - 6 Ísl. tal 3D L REAL STEEL kl. 8 - 10:40 2D VIP DRIVE kl. 8 - 10:10 2D 16 CONTAGION kl. 8 - 10:40 2D 12 ALGJÖR SVEPPI kl. 4 - 6 2D L CONTAGION kl. 3:40 - 5:50 2D VIP CRAZY,STUPID,LOVE kl. 8 :30 2D 7 HRAFNAR,SÓLEYJAROG MYRRA kl. 4 - 6 2D L HORRIBLE BOSSES kl. 10:40 2D 12 JOHNNY ENGLISH REBORN kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 2D 7 REAL STEEL kl. 5:20 - 8 - 10:40 2D 12 ALGJÖR SVEPPI kl. 5:30 2D L CONTAGION kl. 8 - 10:30 2D 12 DRIVE kl. 5:30 - 8 - 10:20 2D 16 KONUNGURLJÓNANNA Ísl. tal kl. 5:30 3D L CRAZY,STUPID,LOVE kl. 8 2D 7 SHARK NIGHT kl. 10:30 3D 16 / EGILSHÖLL/ ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI á allar sýningar merktar með grænuSPARBÍÓ 3D 1.000 kr. SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLLI, KRINGLUNNI OG AKUREYRI, HANN HLÆR FRAMAN Í ÓTTANN FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR MISTER BEAN ROWAN ATKINSON SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK  „JOHNNY ENGLISH Í GÓÐUM GÍR“ - K.I. -PRESSAN.IS FRÁ ÓSKARSVERÐLAUNALEIKSTJÓRANUM STEVEN SODERBERGH KEMUR MAGNAÐUR ÞRILLER „STÓRKOSTLEG SKEMMTUN FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA.“ „KLASSÍK SEM ÞÚ VILT SJÁ AFTUR OG AFTUR“ - J.C. SSP HUGH JACKMAN ER FRÁBÆR Í EINNI ÓVÆNTUSTU MYND ÁRSINS - L.S. ENTERTAINMENT WEEKLY  FRÁ FRAMLEIÐANDANUM STEVEN SPIELBERG

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.