Morgunblaðið - 25.10.2011, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 2011
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
GE kæliskápar
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Strætó er góður samgöngumöguleiki fyrir hag-
sýna en sumum finnst þó biðin í strætóskýlum
draga úr ánægjunni. Það ætti hins vegar ekki að
vera vandamál á biðstöðinni við Þjóðminjasafn-
ið. Skýlið er upphitað og í fyrra komu Stúd-
entaráð og Orkusalan þar upp þráðlausri net-
tengingu. Nú hefur verið bætt um betur með
mikilli ljósadýrð sem lífgar upp á skammdegið
og eru því allar forsendur fyrir góðu stuði.
Sannkallað stoppistuð á Hringbraut
Morgunblaðið/Ómar
Þráðlaust net, rafhitari og diskóstemning fyrir strætófarþega
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Fækkað verður um 15-17 stöðugildi
hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
og ýmsar skipulagsbreytingar gerð-
ar til að mæta lækkun fjárveitinga.
Meðal annars verða ræstingar
boðnar út. Fólki verður sagt upp um
næstu mánaðamót.
Samkvæmt fjárlagafrumvarpi
verður Heilbrigðisstofnun Suður-
nesja gert að draga saman um 73
milljónir króna á næsta ári. Stjórn-
endur stofnunarinnar hafa verið að
fara yfir málið og kynntu niðurstöð-
ur sínar á starfsmannafundum í
gær. Sigríður Snæbjörnsdóttir,
framkvæmdastjóri HSS, hefur þann
fyrirvara að aðgerðirnar kunni að
breytast ef breytingar verða á nið-
urskurðarkröfu eða auknar fjárveit-
ingar fást.
Vernda þjónustu við sjúklinga
Mest á að spara með sameiningu
fæðingardeildar og mæðraverndar
og við útboð á ræstingu, 10 milljónir
á hvorum lið, auk 11 milljóna með
hagræðingu og sparnaði á hjúkr-
unarheimilinu Víðihlíð í Grindavík.
Skipulagi verður breytt í nætur-
þjónustu, hagrætt í eldhúsi, dregið
úr rannsóknum, bakvöktum breytt
við heimahjúkrun og dregið úr við-
haldi.
Sigríður segir að fæðingum á
sjúkrahúsinu hafi fækkað eftir að
skurðstofunum var lokað. Hægt sé
að samnýta starfsfólk með því að
sameina fæðingardeild og mæðra-
vernd í Ljósmæðravaktina.
200 störf eru nú hjá HSS. Að-
gerðirnar hafa í för með sér að
fækkað verður um 15-17 störf. Þar
af eru um 10 störf við ræstingar.
Niðurskurðurinn snertir fleiri störf
því vissum hópum verður boðið
lægra starfshlutfall. Varðandi ræst-
ingafólkið segir Sigríður að óskað
verði eftir því við verktaka að hann
láti núverandi starfsfólk ganga fyrir
við ráðningar.
„Við erum að reyna að vernda
þjónustu við sjúklinga en skerum
niður stoðþjónustu. Um leið leggj-
um við meira á þá starfsmenn sem
annast þjónustuna áfram,“ segir
Sigríður þegar hún er spurð hvort
þjónusta við íbúa skerðist.
Slæmt atvinnuástand er á Suður-
nesjum og því fylgja ýmis vanda-
mál. „Það er erfitt að standa í svona
aðgerðum á því svæði þar sem at-
vinnuleysið er mest, tekjur íbúa
hvað lægstar og öryrkjar einna
flestir. Geð- og sálfélagslegum
vandamálum fjölgar í réttu hlutfalli
við þau vandamál sem eru á svæð-
inu. Þetta er því þungbær ákvörð-
un,“ segir Sigríður.
Fækkað um 15-17 stöður
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þarf að minnka útgjöld um 73 milljónir á næsta ári
Sameina á fæðingardeild og mæðravernd Ræstingar verða boðnar út
„Það er erfitt að
standa í svona að-
gerðum á því svæði
þar sem atvinnu-
leysið er mest“
Sigríður Snæbjörnsdóttir
Stöðu Íslands er
best lýst þannig
að hún sé ekki
eins slæm og hún
hefði getað verið
segir nóbelsverð-
launahafinn og
hagfræðiprófess-
orinn Paul Krug-
man á bloggsíðu
sinni á vefsíðu
New York Times
í gær. Hann segist fá mikið af pósti
um skuldavanda heimilanna.
Krugman segir að Íslendingar
verði að spyrja sig að því hvort
þeir væru í þeirri stöðu sem þeir
eru í nú ef þeir hefðu farið „lettn-
esku leiðina“ með því að festa
gengið og reyna að endurheimta
samkeppnishæfni sína með verð-
hjöðnun.
Svarið við því sé einfaldlega nei-
kvætt.
Krugman slær reyndar þann
varnagla að hann sé ekki nógu vel
að sér í því hvernig málum er hátt-
að á Íslandi til að geta tjáð sig um
hvaða leið skuli fara við niður-
færslu skulda.
Hins vegar sé ljóst að það að
binda gengi krónunnar við evruna
hefði verið til lítils gagns og getað
leitt til mun meira atvinnuleysis.
Binding við evru
til lítils gagns
Krugman ræðir vanda Íslands í NYT
Paul
Krugman
Hagsmuna-
samtök heim-
ilanna munu hefja
vinnu við að koma
þjóðaratkvæða-
greiðslu um kröfu
samtakanna á
dagskrá. Engin
viðbrögð hafa
fengist frá rík-
isstjórninni eftir
að undirskriftir
33.525 einstaklinga, sem krefjast af-
náms verðtryggingar og almennra
leiðréttinga á lánum heimilanna, voru
afhentar forsætisráðherra 1. október.
Hinn 4. október tilkynnti forsætis-
ráðuneytið að Hagfræðistofnun hefði
verið falið að leggja mat á kröfur
samtakanna. ,,Við reiknum með að
fara á fund Hagfræðistofnunar og
skýra okkar sjónarmið,“ segir Andr-
ea J. Ólafsdóttir, formaður Hags-
munasamtaka heimilanna. Næst á
dagskrá hjá samtökunum er að höfða
beint til þingmanna allra flokka.
„Þingmenn geta lagt frumvarp sem
yrði samið í samvinnu við okkur í
þjóðaratkvæði,“ segir Andrea. „Við
reiknum með að tala fyrst við þing-
flokksformenn.“ Að sögn Andreu
hafa Hagsmunasamtökin miðað við
þann fjölda undirskrifta, til þess að
knýja fram þjóðaratkvæðagreiðslu,
sem stjórnlagaráð hefur lagt til.
mep@mbl.is
Vilja vinna
frumvarp
með þinginu
Andrea J.
Ólafsdóttir
Hagfræðistofnun
falið að meta kröfur
Eldur kom upp í
loftræstikerfi í
vörumiðstöð
Samskipa í Kjal-
arvogi í Reykja-
vík seint í gær-
kvöldi. Þegar
slökkviliðið kom
á staðinn töldu
starfsmenn sig
vera búna að slökkva eldinn en tölu-
verður reykur myndaðist.
Kviknað hafði í einum mótor í
hitablásara sem er hluti af loftræsti-
og hitakerfi vörumiðstöðvarinnar.
Að sögn slökkviliðsins var ekki mik-
ið tjón vegna eldsins. Búið var að af-
tengja mótorinn og tryggja öryggi á
svæðinu í gærkvöldi.
Eldur kviknaði
í loftræstikerfi
Betur fór en á horfðist þegar tveir
bílar rákust saman á horni Hrafna-
gilsstrætis og Byggðavegar á Ak-
ureyri um hálfníuleytið í gær-
kvöldi. Ökumenn beggja bílanna og
farþegi í öðrum bílnum sluppu án
meiðsla en bílarnir eru báðir ónýtir
að sögn lögreglunnar á Akureyri.
Sluppu án meiðsla
Níu ökumenn voru teknir fyrir ölv-
unarakstur á höfuðborgarsvæðinu
um seinustu helgi. Þá voru fimm
ökumenn teknir fyrir að aka undir
áhrifum fíkniefna, skv. upplýs-
ingum lögreglu. Fimm þeirra sem
grunaðir eru um ölvunarakstur
voru stöðvaðir í Reykjavík og tveir
í Kópavogi og Hafnarfirði. Þrír
þessara ökumanna höfðu þegar
verið sviptir ökuleyfi.
Fjórir karlar á aldrinum 19-28
ára og ein kona, 36 ára, eru grunuð
um að hafa ekið undir áhrifum
fíkniefna en einn þessara öku-
manna hafði verið sviptur ökuleyfi.
Fíkniefni fundust í þremur bílanna.
Margir undir áhrif-
um við akstur