Morgunblaðið - 25.10.2011, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 25.10.2011, Qupperneq 4
FRÉTTASKÝRING Egill Ólafsson egol@mbl.is „Þetta fer allt í gegnum Lúxemborg og þar liggja upplýsingarnar,“ segir Bryndís Kristjánsdóttir skattrann- sóknarstjóri, en skattayfirvöldum hefur ekki tekist að varpa skýru ljósi á öll viðskipti sem íslenskir kaupsýslumenn stunduðu í skjóli dótturfélaga íslensku bankanna í Lúxemborg. Sum þessara viðskipta tengjast skattaskjólseyjum víða um heim. Eftir hrun gerði Ísland samn- inga, fyrir milligöngu Norður- landanna, við nokkrar skattaskjóls- eyjar eins og Mön, Guernsey, Jersey og fleiri eyjar. Samningarn- ir fela í sér gagnkvæman aðgang að upplýsingum. Nokkrar vonir voru bundnar við að þessir samningar myndu auðvelda skattayfirvöldum hér á landi að fá upplýsingar við rannsókn á skattsvikamálum. Bryndís sagði að þessir samning- ar hefðu vissulega skipt máli og þar hefðu fengist upplýsingar sem hefðu verið notaðar í nokkrum mál- um. Í einstökum málum hefðu þær skipt verulegu máli og í öðrum hjálpað við rannsókn mála. Takmarkaðar upplýsingar Bryndís sagði nauðsynlegt að hafa í huga að þrátt fyrir þessa samninga fengju íslensk skattayfir- völd takmarkaðar upplýsingar t.d. frá Tortola-eyjum og Bresku Jóm- frúareyjum. „Það eru takmarkaðar upplýsingar þarna því að þetta fer allt í gegnum Lúxemborg og þar liggja upplýsingarnar. Við höfum ekki getað fengið allar þær upplýs- ingar frá Lúxemborg sem við höf- um viljað og í sumum tilvikum er þetta mjög þungt.“ Ísland er með samning við skattayfirvöld í Lúxemborg, en það felur ekki í sér að allar dyr séu opn- ar. Íslensk skattayfirvöld mega t.d. ekki „fiska“ eftir upplýsingum með því að kalla eftir ítarlegum óskil- greindum upplýsingum. En það sem skiptir einna mestu máli er að að samningurinn við Lúxemborg nær ekki til svokallaðra „1929-fé- laga“, en það eru félög sem eru stofnuð á grundvelli laga frá árinu 1929. Langflest félögin sem Íslend- ingar voru með í Lúxemborg voru slík félög. Enn er því margt óljóst um erlendar eignir íslenskra kaup- sýslumanna sem þeir eignuðust fyr- ir hrun. „Það er alveg ljóst að það sem við sjáum hjá okkur er að leiðirnar liggja til Lúxemborgar gegnum dótturfélög bankanna þar. Það er alveg á hreinu. Síðan er verið að stofna félög í skattaskjólum eins og Tortola. Þar eru yfirleitt engin nöfn Íslendinga, en þar rekumst við á nöfn einhverra félaga sem bankarn- ir hafa umsjón með. Í Lúxemborg eru bankareikningar, en á bresku Jómfrúareyjum eru engir banka- reikningar heldur félög og eigendur þeirra eru yfirleitt einhver félög í Lúxemborg eða einhvers staðar annars staðar.“ Bryndís sagði að það væri ekki búið að varpa ljósi á þessa starfsemi alla. Menn sjái þræðina í gegnum þau mál sem verið er að vinna í, „en það er ekki þannig að þetta sé allt klárt og allar leiðir fyrir okkur að nálgast upplýsingar séu opnar“. Skattsvik í skjóli bankanna Dæmi eru um að einstaklingar og félög hafi ekki talið fram tekjur upp á hundruð milljóna króna vegna hagnaðar af afleiðuviðskiptum á ár- unum fyrir hrun. Þessi viðskipti þrifust í skjóli bankanna en eftir að bankarnir hrundu hafa þeir skilað upplýsingum til skattayfirvalda um þessi viðskipti. Rannsókn á þessum málum er langt komin og í sumum tilvikum lokið. Eftir hrun var komið á fót starfs- hópi sem rannsakaði hvort eitthvað í starfsemi bankanna fyrir hrun hefði falið í sér brot á skattalögum. Hópurinn komst að þeirri niður- stöðu að verulega hefði skort á að bankarnir hefðu í öllum atriðum fylgt lögum. Bryndís sagði að í framhaldi af þessari skýrslu hefðu skattayfir- völd einkum einblínt á mál þar sem bæði einstaklingar og félög hefðu ekki greitt skatta af ýmiss konar af- leiðuviðskiptum. „Nokkrum af þessum málum er lokið og önnur eru í farvegi. Þarna er um mál að ræða þar sem vantaldar tekjur nema hundruðum milljóna,“ sagði Bryndís. Dótturfélög Kaupþing, Glitnir og Landsbankinn ráku dótturfélög í Lúxemborg. Ekki var alltaf greiddur skattur af peningum sem félögin geymdu. Þræðirnir eru í Lúxemborg  Íslensk skattayfirvöld hafa ekki fengið þær upplýsingar sem þau vonuðust eftir frá Lúxemborg en peningar af leynireikningum fóru þaðan m.a. til Tortola 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 2011 Gólfþjónustan er með sérlausnir í smíði borða fyrir fyrirtæki og heimili. Við smíðum borð algjörlega eftir þínu máli svo sem borðstofuborð, sófaborð og fundarborð. SÉRSMÍÐI ÚR PARKETI info@golfthjonustan.is | golfthjonustan.is S: 897 2225 Lögreglan hefur hafið rannsókn á hinu alvarlega umferð- arslysi sem varð á Dalvegi í Kópavogi rétt fyrir klukkan fjögur síðastliðin miðvikudag. Þá hefur lögreglan auglýst eftir vitnum að slysinu. Aðdraganda slyssins má rekja til þess að gámabifreið var beygt í veg fyrir hjólreiðamann sem lenti á bifreiðinni og undir henni. Bæði ökumaður bifreiðar og reiðhjóls voru á leið vestur Dalveg. Á fyr- irhugaðri akstursleið ökumanns er innakstursbann. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að rannsóknin bein- ist m.a. að meintu broti ökumanns bifreiðarinnar á um- ferðarlögum með því að aka í veg fyrir umferð gangandi og hjólandi, með því að aka gegn innakstursbanni og broti á hegningarlögum og með því að valda öðrum tjóni á líkama eða heilbrigði með gáleysi. Þá lýtur rannsókn málsins að aðstæðum á vettvangi, m.a. hvernig staðið var að ákvörðun um bann við innakstri á þessum stað og hvort innakstur hafi verið auðveldaður ökumönnum á leið vestur Dalveg með breytingum á umferðarmannvirkjum. Rannsakað verður jafnframt hvort vinnureglur og jafnvel fyrirmæli yfirmanna fyrirtækis sem þarna er með aðstöðu hafi gert ráð fyrir innakstri á nefndum stað. Í öll- um tilvikum verður kannað hvort um refsiábyrgð geti verið að ræða, segir í tilkynningu lögreglunnar. Líðan hjólreiðamannsins er óbreytt. Honum er enn haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild LSH. Lögreglan rannsakar slysið á Dalvegi  Kannað verður hvort um refsiábyrgð geti verið að ræða Morgunblaðið/Júlíus Sum þeirra mála sem rannsökuð hafa verið vegna notkunar á erlend- um kreditkortum hér á landi reyndust vera marg- falt stærri en í fyrstu var talið. Rannsóknin hófst ár- ið 2009, en í nóvember þar ár var farið í 19 hús- leitir. Málin eru um 30 og er rannsókn á flestum þeirra lokið eða að ljúka. „Almennt má segja að þarna hafi verið um verulega fjármuni að ræða. Oft á tíðum tengjast þessi mál Lúxemborg. Mörg þess- ara mála hafa margfaldast frá því að rannsókn á þeim hófst,“ sagði Bryndís Kristjánsdóttir. Bryndís sagði að þessi mál væru af ýmsu tagi. „Það er þannig að menn voru með bankareikninga er- lendis og voru með erlend kreditkort sem þeir not- uðu hér. Þannig sjáum við á framtölunum að það var ekki verið að telja fram neinar eignir eða tekjur erlendis. Síðan hefur rannsóknin beinst að því að finna uppruna þessara fjár- muna og bankareikningana og annað sem þeim tengist. Oft hef- ur þar reynst vera miklu meira en þessi notkun hér á landi sýndi. Í sumum tilvikum eru þetta al- veg svartir peningar og í öðrum hefur ekki verið greiddur fjár- magnsskattur.“ Sum málin reyndust afar stór RANNSÓKN Á KORTANOTKUN AF ERLENDUM REIKNINGUM Bryndís Kristjánsdóttir Einstaklingarnir tveir sem greind- ust með salmonellu- sýkingu eftir að hafa borðað hol- lenskar anda- bringur sem var smyglað til lands- ins eru búnir að ná fullri heilsu. Það staðfestir Haraldur Briem sóttvarnalæknir. Tilfellin greindust á sýkla- fræðideild Landspítalans í lok sept- ember. Við nánari athugun kom í ljós að báðir aðilarnir höfðu tekið þátt í 40 manna matarveislu í heima- húsi á höfuðborgarsvæðinu þar sem boðið var upp á bringurnar, sem voru vel rauðar. „Þetta er alþjóðlegt vandamál og menn þurfa alltaf að gæta sín. Það eru margar varn- arlínur svo mengað kjöt fari ekki á markað en ef það gerist, eins og hef- ur sýnt sig, er ein varnarlínan að sjóða og steikja kjöt vel,“ segir Har- aldur. Á batavegi eftir sýkingu Fengu salmonellu af smygluðu kjöti Haraldur Briem Hollendingar sigruðu Íslend- inga á heims- meistaramótinu í brids í gær þegar þeir unnu 96 spila viðureign í átta liða úrslitum með 233 stigum gegn 142. Er landsliðið þar með úr leik á mótinu en það tekur hins vegar þátt í annarri keppni samhliða heimsmeist- aramótinu og segir Björn Eysteins- son, fyrirliði íslenska landsliðsins, að í því móti keppi fjöldi heimsþekktra spilara. ,,Það verður spennandi að sjá hvernig tekst til, en strákarnir hafa sýnt það á löngum köflum hér í Hol- landi að þeir standa bestu bridsspil- urum í heiminum nú vel á sporði.“ Björn hefur lýst vonbrigðum sín- um yfir að hafa tapað fyrir Hollend- ingum í átta liða úrslitum en þurft hafi að taka áhættu í sjöttu og síðustu lotunni. Mikill aðstöðumunur sé á hol- lenska liðinu og því íslenska. Hollend- ingarnir hafi mikla reynslu enda geri þeir ekki annað en að spila. Þeir hafi þjálfað liðið sitt gríðarlega vel á und- anförnum áratug, mikið fé sé lagt í vinnuna og góður stuðningur hafi fengist frá fyrirtækjum. ,,Það væri gaman að sjá svipað gerast á Íslandi.“ „Standa bestu spil- urum vel á sporði“ Björn Eysteinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.