Morgunblaðið - 25.10.2011, Síða 11

Morgunblaðið - 25.10.2011, Síða 11
hesta fyrir þessa tuttugu nem- endur og líklega um áttatíu eftir áramót. Þannig sagði hann að hver nemandi kæmi að þjálfun og tamn- ingu um tíu hesta á þessu öðru námsári sínu. „Þetta er orðið þriggja ára há- skólanám, þar sem nemendur út- skrifast með BS-gráðu í reið- mennsku og reiðkennslu og við leggjum allt kapp á að þeir hafi sem víðtækasta þekkingu og reynslu og eins mikla færni og kostur er,“ sagði Þórarinn að lok- um. Þetta er það sem ég hef áhuga á og þetta vil ég gera Bergrún Ingólfsdóttir frá Kálfholti í Holtum sýndi gullfallega hryssu, Glóeyju frá Torfunesi, og sagði blaðamanni að nú væri verið að ljúka frumtamningu og sýna af- raksturinn. „Hér erum við að sýna hvað það er sem við höfum verið að gera þessar síðastliðnu sex vik- ur. Við lærum vinnubrögðin við frumtamninguna og hvert okkar fær tvö trippi til tamningar og þjálfunar. Kennararnir raða þeim síðan á okkur og reyna að láta okkur glíma við sem ólíkasta ein- staklinga. Námið er mjög ein- staklingsmiðað og raunar sniðið að þörfum hvers og eins og þetta er alveg gríðarlega gaman, hér er mikið verklegt og það er það sem ég er að sækjast eftir. Ég geri ráð fyrir að ljúka náminu á þremur ár- um með BS-gráðu, og þetta er það sem ég hef áhuga á og þetta vil ég gera,“ sagði Bergrún Ingólfsdóttir um leið og hún skokkaði með Gló- eyju í átt að hesthúsinu. Þegar búinn að panta pláss á næsta ári Páll Dagbjartsson, fyrrverandi skólastjóri í Varmahlíð, var bæði að leggja inn og taka út úr skóla- starfinu á Hólum. Hann var að sækja tvö trippi sem hafa verið í frumtamningu í sex vikur, en einn- ig að koma með klár í framhalds- þjálfun. „Mér líst alveg frábærlega á þetta sem hér er verið að gera, það er gríðarlega gott verk sem hér er unnið. Eftir þessar sex vikur eru trippin orðin góð í beisli, þæg og mjög vel reiðfær, – bæði úti og inni. En auðvitað er um frumtamn- ingu að ræða, það verður að vinna traust hestsins, þetta eru fyrstu kynni skepnunnar af hnakki, manni og ásetu og allt tekur þetta sinn tíma og verður að vera unnið af al- úð og samviskusemi. Og ég er þeg- ar búinn að leggja inn pöntun fyrir pláss á næsta ári, því þetta er bar- asta gott mál,“ sagði Páll Dag- bjartsson. Morgunblaðið/RAX Fallegir Eftir sex vikur eru trippin orðin góð í beisli, þæg og mjög vel reiðfær. Síðan er að temja þau áfram. Var undravert hversu mikið hafði áunnist á ekki lengri tíma. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 2011 Miðvikudaginn 26. október kl. 12:00-13:30 Hátíðasalur Háskóla Íslands Fyrirlestur á vegum Hagfræðideildar og Viðskiptafræðideildar í tilefni sjötugsafmælis Þráins Eggertssonar. Í fyrirlestrinum fjallar prófessor Benham um framlag smáþjóða til uppfinninga, en framlag Íslands og Íslendinga til uppfinninga er hlutfallslega mjög stórt. Uppfinningar eru uppspretta hagvaxtar, og Benham veltir fyrir sér þremur spurningum: • Hvers vegna eru rætur uppfinninga ákaflega staðbundnar? • Hvers vegna er ekki meira um uppfinningar þvert og breitt um heiminn? • Hvers vegna hafa hagfræðingar vanrækt að kanna þær aðstæður sem leggja grunninn að uppfinningum? Lee Benham er prófessor emeritus við hagfræðideild Washington University í St. Louis og stjórnarmaður og kennari við Ronald Coase Institute. Ókeypis aðgangur og allir velkomnir. Small Countries, Important Innovations VIÐSKIPTAFRÆÐIDEILD FÉLAGSVÍSINDASVIÐ HÁSKÓLI ÍSLANDS Lee Benham Hjá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum eru starfræktir fjölbreyttir fjall- gönguhópar sem ganga allt árið um kring. „Sú hugmynd að bjóða fólki að vera í hópi hefur mælst vel fyrir. Við setjum dagskrána upp þannig að fólk skráir sig í hóp og tekur þar með þátt í vikulegum göngum og mánaðar- legum lengri fjallagöngum,“ segir Jón Gauti Jónsson hjá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum. Ólíkir gönguhópar Starfræktir eru tveir almennir gönguhópar sem kallast Fjallafólk og Fjallagengið. Markmiðið með þeim er að ganga á fjöll allt árið um kring og gera fjallagöngur að lífsstíl. Er gengið á eitt stórt fjall í mánuði og hærri fjöll eftir því sem líður á vorin. Nú í vor var t.d. gengið í Öræfunum. Fyrir utan mánaðarlegar gönguferðir er farið einu sinni í viku í kvöldgöngur eða þrekæfingar í Öskjuhlíðinni. Þá er leitað að góðu undirlendi án snjós og hálku til að auka þrek og þol. Í þess- um hópum eru alls um rúmlega 100 manns. Fjallamennskuhópurinn Brattgengið er ætlaður þeim sem vilja aðeins meira en göngu. Sá hópur fer í gegnum röð námskeiða þar sem fólk lærir til að mynda að nota línu og ísaxir en eftir hvert námskeið er farið í ferðir og tæknin reynd. Í sumar gekk þessi hópur á Hraundranga. Loks verður starfræktur fjalla- skíðahópur í vetur sem er nýjung á Ís- landi. Jón Gauti segir vaxandi áhuga vera á fjallaskíðum en þá eru skíðin notuð til að ganga upp fjöll og skíða niður. Með þessu gefist fólki tækifæri til að sjá aðra hlið á landinu en þessi hópur fer bæði á jökla- og snjófljóð- anámskeið svo og grunnnámskeið í notkun fjallaskíða. Vetrardagskrá Ís- lenskra fjallaleiðsögumanna verður kynnt á fimmtudagskvöldið klukkan 20 í verslun 66° norður í Faxafeni. Þar verður hægt að fá allar nánari upplýs- ingar um hópana. Íslenskir fjallaleiðsögumenn Ljósmynd/Jón Gauti Jónsson Ganga Á Miðfellstindi í Öræfasveit í blíðskaparveðri. Fjallgöngur stundaðar allt árið og gerðar að lífsstíl Á vefsíðu breska dagblaðsins The Guardian kennir ýmissa grasa þegar kemur að greinum um líkamsrækt og hollt líferni. Þar má meðal annars lesa grein eftir Sam Murphy þar sem hann tiltekur nokkur atriði sem gott sé að hafa í hug við undirbúning fyrir London-maraþonið á næsta ári. Murphy er skynsamur í ráðum sínum og mælir meðal annars því að fólk gleymi ekki að hvíla sig inn á milli. Sófinn eigi ekki að vera óvinur þeirra sem æfi af kappi heldur eigi fólk reglulega að hvíla sig og safna orku með því að faðma sófann. Hann talar líka um að pasta sé ekki allt og þó að kolvetni séu visslega eldsneyti þeirra sem reyni mikið á sig megi ekki gleyma próteininu í bland. Murphy er höfundur bókarinnar Marathon & Half Marathon From Start to Finish og heldur úti vefsíð- unni www.sam-murphy.co.uk. Fyrir þá sem eru að byrja að hlaupa eða eru að æfa fyrir maraþon getur verið fróðlegt og forvitnilegt að skoða góð ráð héðan og þaðan og finna síðan það sem hentar manni best. Maraþon Gott að hvíla sig vel með því að faðma sófann inn á milli Morgunblaðið/Eggert Maraþon Best er að æfa reglulega og byggja sig upp smám saman.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.