Morgunblaðið - 25.10.2011, Page 12

Morgunblaðið - 25.10.2011, Page 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 2011 sjúkir fiskar,“ sagði Árni. Gera þarf skýran greinarmun á smiti annars vegar og hins vegar fiskum sem sýna sjúkdómseinkenni. Vötnin sem búið er að rannsaka eru Elliðavatn, Vífilsstaðavatn, Eyrarvatn í Svína- dal, Vatnsholtsvatn á Snæfellsnesi, Húnavatn, Mjóavatn á Auðkúlu- heiði, Mývatn og Úlfljótsvatn. El- liðavatnskerfið hefur mest verið rannsakað. Árni sagði niðurstöður sýna að smitið væri mjög algengt í vatnakerfinu, ekki síst í bleikjunni í Elliðavatni. „Þetta herjar mest á 1-2 ára fisk, um og yfir helmingur fiskanna er sjúkur. Af bleikjunni voru 97-100% smituð en 35-70% urriðans árin 2009 og 2010,“ sagði Árni. Bleikjuseiði á fyrsta ári sem voru veidd í Hellu- vatni, en það tengist Elliðavatni, voru ekki smituð. Árið 2009 voru 0-2 ára laxa- og urriðaseiði úr Elliða- ánum, Hólmsá og Suðurá, sem eru kaldar ár og renna í Elliðavatn, rannsökuð. Enginn sjúkur lax fannst í ánum. Hins vegar reyndust sex urriðar sem veiddust í Elliðaánum allir vera sjúkir. Í fyrra voru sýni tekin fjórum sinnum frá vori til hausts í Elliða- ánum. Laxinn var ósýktur þótt smit væri nokkuð útbreitt. En í ágúst í fyrra reyndust 38 af 39 urriðum úr Elliðaánum vera með svæsin ein- kenni PKD-sýkinnar. Árni tók fram að sjúkdómur þessi hefði ekki nein áhrif á menn og því fylgi því engin hætta fyrir menn að neyta fiskjar úr vötnum þar sem PKD-smit væri að finna. PKD-sýki leggst á laxfiska  Fjármuni skortir til frekari rannsókna á afleiðingum PKD-sýki á villta laxfiska  Sjúkdómurinn fannst hér haustið 2008  Bleikja í Elliðavatni og Vífilsstaðavatni er nær öll smituð af PKD-sýki Morgunblaðið/Golli Elliðavatn Flestar bleikjur úr Elliðavatni hafa reynst smitaðar af PKD-sýki og meira en helmingur þeirra sjúkur. BAKSVIÐ Guðni Einarsson gudni@mbl.is PKD-sýki sem leggst á nýru laxfiska hrjáir stóran hluta bleikju í vötnum á borð við Elliðavatn, Vífilsstaðavatn og fleiri vötn sem hlýna mikið. Sama gildir um urriða í Elliðaánum. Árni Kristmundsson, fisksjúk- dómafræðingur við Rannsóknadeild fisksjúkdóma, og Þórólfur Antons- son og Friðþjófur Árnason hjá Veiðimálastofnun, hafa rannsakað útbreiðslu PKD-sýkinnar. Hún greindist fyrst hér á landi í október 2008 þegar unnið var að söfnun sýna úr Elliðavatnssilungi. PKD-sýkinni veldur smásætt sníkjudýr og eru mosadýr millihýsill fyrir það. Sjúkdómurinn er vel þekkur í út- löndum og hefur hann valdið miklum skaða bæði í fiskeldi og eins í stofn- um villtra fiska. Eftir að sýkin fannst var efnt til rannsóknar m.a. á útbreiðslu hennar og hvernig hún hafði lagst á hinar ýmsu tegundir laxfiska. Árni Kristmundsson sagði að fjárskortur stæði frekari rann- sóknum á afleiðingum sýkinnar fyrir þrifum. Hann sagði að flestar bleikj- ur úr Elliðavatni og Vífilsstaðavatni sem rannsakaðar voru hafi reynst vera smitaðar af PKD-sýki og meira en helmingur þeirra var sjúkur. Ungir fiskar, 1-2 ára, voru flestir sjúkir. Hlýnun er talin stuðla að efl- ingu sýkinnar. Til þessa hafa verið tekin sýni í átta vötnum og tveimur ám. „Við höfum greint sýkilinn í sjö vötnum og í sex vötnum hafa fundist Aðalmarklíffæri PKD-sýkinnar (Proliferative Kidney Disease) er nýra fisksins sem verður svampkennt, ljósleitt og mjög þrútið. Sýkin getur valdið veru- legum nýrnaskemmdum sem orsakar skerðingu á seltustjórn- un, útskilnaði úrgangsefna og nýmyndun blóðfrumna með til- heyrandi ónæmisbælingu. Þetta kemur fram í skýrslu sem Árni Kristmundsson, Þórólfur Ant- onsson og Friðþjófur Árnason skrifuðu um PKD-sýkina og var gefin út í júní sl. Þar segir að sjúkdómsfar- aldrar af völdum PKD tengist vatnshita en sýkin láti jafnan ekki á sér kræla nema vatnshiti hafi náð 12-15°C og haldist þar í 1-3 mánuði. Hins vegar geti fisk- ar borið einkennalaust smit við mun lægri vatnshita, sem við- heldur sýklinum í vistkerfinu. Nokkuð sé síðan menn gerðu sér grein fyrir að sýkillinn væri útbreiddur meðal laxfiska í náttúrunni. Það sé þó ekki fyrr en í seinni tíð að menn sáu að PKD getur orsakað veruleg af- föll í villtum laxfiskastofnum. Vatnshiti mikilvægur PKD-SÝKIN Kristján Jónsson kjon@mbl.is Talsvert hefur verið um að undan- förnu að stolið hefur verið þvotta- vélum og þurrkurum úr sameigin- legu rými fjölbýlishúsa. Tilkynntur var slíkur þjófnaður á þvottavél í Hlíðunum í Reykjavík í fyrradag. Íbúi nokkur hugðist nota vélina en greip í tómt, hún var horfin. Oft geta slík sameiginleg tæki verið mjög dýr enda þurfa þau að vera öflug þar sem margir nota þau. Nýlega var stolið þurrkara úr fjölbýlishúsi við Eyjabakka, hann fannst síðar mikið skemmdur á svæðinu. Við þjófnaðinn var notað kúbein til að spenna upp hurðir og þýfið flutt á brott með kerru sem blaðberi í húsinu geymdi í kjall- aranum. Hver íbúðareigandi ber að sjálf- sögðu ábyrgð á því hvort hann þjóftryggir sínar eigin vélar, ákveður sjálfur hvort hann kaupir innbústryggingu með slíku ákvæði. Tryggingar eru ýmist einkamál eða sameiginleg. Flest húsfélög eru með húseigendatryggingu vegna til dæmis tjóns af völdum vatnsleka úr rörum í vegg. En komi upp leki í eldhúsvaski eða baðtækjum hjá íbúa á efstu hæð geta skemmdir á parketi og öðru á hæðunum fyrir neðan orðið geysi- miklar. Hafa mörg húsfélög því keypt sérstaka tryggingu sem greiðir tjón um umfram það sem trygging óheppna (eða hirðulausa) íbúðareigandans dugar fyrir. En hvað um sameiginlegar þvottavélar, sláttuvélar og fleira þess háttar í sameiginlegu rými sem innbústrygging tekur ekki til? Stundum neitað að tryggja „Þá kaupir húsfélagið oft svo- nefnda lausafjártryggingu fyrir sameiginlega rýmið,“ segir Ástrós Guðmundsdóttir, deildarstjóri hjá VÍS. „Hún getur verið eingöngu þjófnaðartrygging en líka hægt að láta hana ná til annars tjóns. Við metum áhættuna í hverju tilviki en oftast er um að ræða lokuð rými þannig að börn geta t.d. ekki geng- ið þar um. En ef ekkert er tekið á slíkum málum á staðnum, engrar varúðar gætt, þá annaðhvort hækkar ið- gjaldið eða við hreinlega seljum ekki trygginguna. Þetta getur ver- ið svo slæmt að það gangi ekki upp.“ Tryggingar af þessu tagi geta náð til tjóns af völdum vatns, elds og þjófnaðar. Vandinn við sameig- inleg rými er að allir íbúarnir hafa lykla að þeim og því mikilvægt að ekki leiki vafi á því hvort um inn- brot hafi verið að ræða þegar hlut- um er stolið. Að sögn fulltrúa nokkurra tryggingafélaga er ljóst að gerðar eru sömu sönn- unarkröfur og í venjulegum inn- brotsmálum, að ummerki sýni að beitt hafi verið valdi til að komast inn, ekki bara lykli. Þvottavél og þurrkari á bak og burt  Bíræfnir þjófar færa sig upp á skaftið og ráðast inn í sameiginleg rými fjölbýlishúsa  Húsfélög geta keypt sérstakar tryggingar vegna ýmissa hluta sem íbúarnir eiga saman Morgunblaðið/Árni Sæberg Þvottavélar Færst hefur í aukana að þvottavélum og þurrkurum sé stolið úr sameiginlegu rými fjölbýlishúsa. Húsfélög í fjölbýli geta keypt sérstaka tryggingu á sameig- inlegar þvottavélar, þurrkara, sláttuvélar og annan búnað. Verðið er auðvitað misjafnt eftir aðstæðum en sé miðað við tryggingu upp á eina milljón gæti iðgjaldið verið nokkur þús- und krónur á ári. Verðið fer ekki síst eftir því hve miklar tryggingar eru keyptar hjá umræddu félagi, all- ir fá magnafslátt. Auk þess er oft hægt að þrýsta verði niður með því að hafa samband við öll félögin og bera saman verð. Fram kemur í lögum um fjöl- býlishús að ekki má taka ákvörðun um fjárhagslegar skuldbindingar eins og trygg- ingar nema á húsfélagsfundi, stjórnin getur ekki gert það upp á sitt eindæmi. Þá gildir einu hvort um er að ræða kaup á tryggingu eða uppsögn trygg- ingar. Dæmi eru um að nýkjörinn gjaldkeri hafi fengið snjalla hugmynd, séð að félagið var að greiða stórfé í iðgjöld ár hvert og ákveðið að minnka útgjöld. Hver ætli að fari nú að stela níð- þungri þvottavél eða þurrkara úr blokk? Óþarfi að tryggja? SAMEIGINLEGAR VÉLAR Árni Kristmundsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.