Morgunblaðið - 25.10.2011, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 25.10.2011, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 2011 S T Y R K T A R F É L A G L A M A Ð R A O G F A T L A Ð R A SÖLUTÍMABIL 12.- 26. OKTÓBER Casa - Kringlunni og Skeifunni | Epal - Skeifunni, Hörpu og Leifsstöð | Kokka - Laugavegi | Kraum - Aðalstræti og Garðatorgi Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhúsinu | Líf og list - Smáralind | Hafnarborg - Hafnarfirði | Módern - Hlíðarsmára Þjóðminjasafnið - Suðurgötu | Blóma- og gjafabúðin - Sauðárkróki | Póley - Vestmannaeyjum | Valrós - Akureyri Verslanir Póstsins um allt land og í netverslun á kaerleikskulan.is MEÐ KAUPUM Á KÆRLEIKSKÚLUNNI STYÐUR ÞÚ STARF Í ÞÁGU FATLAÐRA BARNA OG UNGMENNA. ... fyrir Ísland með ástarkveðju H V ÍT A H Ú SI Ð /S ÍA - 11 -1 80 8 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Hundruð björgunarmanna héldu í gær áfram leit að fólki í rústum bygginga sem hrundu í öflugum jarðskjálfta í Tyrklandi í fyrradag. Yfirvöld sögðu að hundruð manna hefðu farist og um 970 byggingar hrunið í náttúruhamförunum. A.m.k. 272 lík höfðu fundist í húsa- rústunum í gær og talið var að tala látinna myndi hækka verulega. Um 1.300 manns slösuðust. Eyðileggingin er mest í bænum Ercis þar sem 169 lík höfðu fundist í gær. Um 1.200 björgunarmenn tóku þátt í leitinni í bænum. Talið var að tugir manna lægju í húsarústunum, en ekki eins margir og óttast var í fyrstu. Fréttastofan AP hafði eftir innanríkisráðherra Tyrklands, Naim Sahin, að ef til vill væru um hundrað manns í rústunum í Ercis. Fréttaritari breska ríkisútvarps- ins á staðnum sagði að um 80 íbúa fjölbýlishúss, sem hrundi í bænum, væri enn saknað. Alls voru 20 íbúðir í byggingunni. Sextán ára stúlka var dregin bros- andi upp úr rústum heimilis síns og tvö börn fundust á lífi í öðrum rúst- um í Ercis. Um hundrað lík hafa fundist í borginni Van sem er skammt sunnan við Ercis. Ríkisstjórn Tyrklands sagði að um 2.400 leitar- og björgunarhópar hefðu verið sendir á hamfarasvæðið frá 45 borgum, auk rúmlega 200 sjúkrabíla. Herinn hefur sent þang- að sex þyrlur, þar af fjórar sjúkra- þyrlur, og herflutningavélar með tjöld, matvæli og önnur hjálpargögn. Tyrkland er á mótum Evrasíuflek- ans og Arabíuflekans og jarðskjálft- ar eru tíðir þar vegna misgengis sem sjá má á kortinu fyrir ofan. Um 98% íbúa landsins búa á svæði þar sem jarðskjálftahætta telst mikil. Nær 20.000 manns fórust í skjálfta, sem mældist rúm 7 stig, á þéttbýlu svæði í norðvesturhluta landsins árið 1999. Um 3.840 manns létu lífið í jarðskjálfta í bænum Cald- iran í Van-héraði árið 1976. Um 970 hús hrundu í skjálftanum Reuters Barni bjargað Yunus, þrettán ára gömlum pilti, er hér bjargað úr rústum byggingar í bænum Ercis, nálægt borginni Van í Tyrklandi.  Hundruð manna fórust og 1.300 slösuðust í náttúruhamförunum í Tyrklandi  Jarðskjálftar eru tíðir í landinu vegna misgengis  Um 98% landsmanna búa á svæði þar sem jarðskjálftahætta telst mikil MANNSKÆÐUR LANDSKJÁLFTI Heimild: Bandaríska jarðfræðistofnunin U.S. Geological Survey Ankara Ístanbúl T Y R K L A N D SÝRLAND ÍRAK GEORGÍA IRAN Miðjarðarhaf Svartahaf Styrkur skjálftans Lítill Mjög mikill Ercis 55 byggingar hrundu í skjálftanum sem olli miklu manntjóni í bænum Van Yfir 100 lík fundust og fjölda manna saknað Norður-Anatólíumisgengi Au stu r-A nat ólíu mis gen gi Óttast er að hundruð manna hafi farist í jarðskjálfta sem reið yfir Tyrkland í fyrradag. Skjálftinn mældist 7,2 stig og honum fylgdi fjöldi eftirskjálfta. Upptökin voru skammt frá borginni Van 100 km Yfirvöld í Portsmouth, fæðingar- borg breska rithöfundarins Charles Dickens, hafa ákveðið að taka rit- höfundinn Carl Roberts í sátt átta- tíu árum eftir að hann níddi ritsnill- inginn, frægasta son borgarinnar. Carl Roberts skrifaði skáldsög- una „This Side Idolatry“ sem kom út árið 1928. Yfirvöldum í Ports- mouth þótti hann draga upp svo skammarlega mynd af Dickens að ákveðið var að banna bókina í bóka- söfnum borgarinnar. Borgaryfirvöldin hafa nú ákveð- ið að aflétta banninu fyrir 200 ára fæðingarafmæli Dickens á næsta ári, að sögn fréttavefjar breska ríkisútvarpsins. „Við höfum ákveð- ið að gleyma gömlum misgerðum,“ hefur BBC eftir Dom Kippin, bók- menntafulltrúa Portsmouth- borgar. Lýst sem hræsnara Þótt bók Roberts væri skáldsaga skrifaði hann hana til að reyna að kveða niður goðsagnir um ritsnill- inginn. „Höfundur skáldsögunnar, Carl Roberts, heldur því fram að Charles Dickens hafi verið hræsn- ari, flagari, sjálfselskur, eigingjarn hrokagikkur, lágkúrulegur, önug- lyndur, fégjarn og farið á bak við vini sína með því að draga upp af- skræmda mynd af þeim í bókum sínum,“ sagði í ritdómi í The Sunday Times um bókina. Charles John Huffam Dickens fæddist 7. febrúar 1812 og lést í Kent 9. júní 1870. bogi@mbl.is Fyrirgefa gamalt níð um Dickens  Banni við 80 ára gamalli bók aflétt Afburðasnjall Dickens var um- deildur maður en mikill snillingur. Uppljóstrunarvefurinn WikiLeaks hefur neyðst til að hætta tímabundið að birta skjöl vegna fjárskorts. Juli- an Assange, stofnandi vefjarins, skýrði frá þessu í gær og sagði að ef til vill þyrfti að loka vefnum fyrir lok ársins. Assange sagði að fjárframlög til vefjarins hefðu minnkað um 95% vegna þeirrar ákvörðunar alþjóð- legrar greiðslumiðlunarfyrirtækja á borð við Visa, MasterCard, Western Union og PayPal að stöðva greiðslu- miðlun til WikiLeaks. Ákvörðunin hefði verið tekin í pólitískum tilgangi og hún hefði orðið til þess að sjóðir WikiLeaks væru nú uppurnir. „Ef WikiLeaks finnur ekki leið til að af- létta þessari greiðslustöðvun getum við einfaldlega ekki haldið starfsem- inni áfram eftir áramótin, miðað við núverandi útgjöld,“ sagði hann. WikiLeaks hættir að birta skjöl vegna fjárskorts

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.