Morgunblaðið - 25.10.2011, Side 18

Morgunblaðið - 25.10.2011, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 2011 FRÉTTASKÝRING Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Leiðtogar líbíska þjóðar-ráðsins hófust í gærhanda við það erfiða verk-efni að mynda nýja ríkis- stjórn og sameina sundurleitar fylk- ingar eftir að þeir lýstu formlega yfir því að Líbía væri frjáls eftir 42 ára einræði Muammars Gaddafis. Formaður þjóðarráðsins, Mu- stafa Abdel Jalil, sagði í ræðu á sunnudag að stefnt væri að lýðræði en lagði áherslu á að stjórnarskrá landsins ætti að byggjast á sjaría- lögum. Ræðan bendir til þess að ísl- amistar séu áhrifameiri í þjóðar- ráðinu en talið hefur verið. „Við búum í íslömsku landi,“ sagði Jalil og boðaði endurskoðun á lögum sem samræmdust ekki sjaría. „Við gerum íslam að kjarna nýrrar ríkisstjórnar. Stjórnarskráin á að grundvallast á íslamskri trú okkar.“ Þessi áform er þó hægt að túlka með ýmsum hætti og benda má á að stjórnarskrá Egyptalands grund- vallaðist á íslam á valdatíma Hosnis Mubaraks þótt það teldist ekki ísl- amskt ríki. Jalil gekk þó lengra en búist var við og kvaðst m.a. ætla að afnema lög, sem torvelda fjölkvæni, og banna bankavexti í samræmi við sjaríalög. „Vextir valda sjúkleika og hatri meðal fólksins,“ sagði hann. Notfæra sér tómarúmið Samkvæmt sjaríalögum er bannað að taka vexti og bankar í Sameinuðu arabísku furstadæm- unum og fleiri löndum múslíma hafa því boðið upp á verðbréf, sem bera ekki vexti en lántakendurnir greiða gjöld sem munu vera eignatengd og fara eftir hagnaði af undirliggjandi eign. The New York Times hefur eftir öðrum þjóðarráðsmönnum að Jalil hyggist aðeins banna vexti á lán til húsnæðiskaupa og önnur lán ein- staklinga, ekki vexti á fyrirtækjalán. Samkvæmt núgildandi lögum þarf kvæntur karlmaður, sem vill eignast aðra eiginkonu, að fá sam- þykki eiginkonunnar og heimild dómara. Einn ráðherra bráða- birgðastjórnar þjóðarráðsins sagði að Jalil hygðist auðvelda karl- mönnum að „taka sér aðra eigin- konu“ og bætti við að leiðtoginn bæri auðvitað hagsmuni kvenna fyr- ir brjósti. „Margar ungar konur misstu eiginmann sinn í átökunum“ [og vilja því finna nýjan maka], hef- ur The Washington Post eftir hon- um. Líbía hefur verið íhaldssamt samfélag, t.a.m. hefur áfengi verið bannað þar og margar líbískar kon- ur nota slæður. Íslamistar gerðu uppreisn gegn stjórn Gaddafis í austanverðri Líbíu en einræðis- stjórninni tókst að brjóta hana á bak aftur árið 1998. Hreyfingar íslamista virðast þó vera best skipulagða aflið meðal pólitísku hreyfinganna sem sprottið hafa upp eftir uppreisnina. Jalil er álitinn trúhneigður múslími en hefur ekki talist til ísl- amskra ofstækismanna. Líklegt er að með því að leggja svo mikla áherslu á sjaría í ræðunni hafi hann viljað koma sér í mjúkinn hjá ísl- amistum í vopnuðum sveitum þjóðarráðsins og ná hylli almenn- ings sem hefur fengið sig fullsaddan af háum vöxtum. Ræðan er talin endurspegla vaxandi áhrif íslamista meðal þeirra sem börðust gegn einræðis- stjórn Gaddafis. Nokkrir þeirra þjóðarráðsmanna, sem vilja ver- aldlegt lýðræði að vestrænni fyrir- mynd, segja að íslamistunum hafi tekist að notfæra sér pólitíska tómarúmið eftir fall einræðisstjórnar- innar til að seilast eftir völdum. Íslamistar sækja í sig veðrið í Líbíu Reuters Gleði Konur fagna frelsisyfirlýsingu leiðtoga líbíska þjóðarráðsins á torgi í Trípólí eftir fall einræðisstjórnar Muammars Gaddafis. Lík 53 bandamanna Muammars Gaddafis hafa fundist við hótel í borginni Sirte í Líbíu og talið er að þeir hafi verið teknir af lífi án dóms og laga, að sögn mannrétt- indasamtakanna Human Rights Watch. Líkin fundust á grasflöt við mannlaust hótel í Sirte þar sem harðir bardagar geisuðu í vikunni sem leið. Að sögn samtakanna er talið að mennirnir hafi verið drepnir fyrir viku. Sumir mann- anna voru með hendur bundnar fyrir aftan bak. Vopnaðir hópar nýju valdhaf- anna í Líbíu höfðu áður verið sakaðir um grimmdarverk og mannréttindabrot sem bentu til þess að þeir væru litlu skárri en ofbeldissegg- irnir sem hrökkluðust frá völdum. Myrtu yfir 50 manns GRIMMDARVERK Í SIRTE Í slendingar eru fljótir að grípa ýmislegt á lofti, mynda sér skoðun og hrinda af stað æði. Heitar umræður skapast út frá einni fyrirsögn, fréttin í heild sinni er ekki lesin. Nánast allir þurfa að eiga fótanuddtæki eða leggingsbuxur sem eiga að „eyða“ appelsínuhúð. Æðin virðast þó breiðast hraðast út ef þau tengjast næringu. Með hverri árstíð kemur nýtt æði sem allir telja sér trú um að feli í sér lausnina að heilbrigðara líferni og langlífi. Einn daginn er engifer soðið með vatni og sítrónu í hverju heimahúsi, sett á flösku og þambað yfir daginn til heilsubótar. Reynslu- sögurnar ganga svo á kaffistofunni; hvernig sé best að sjóða það og með hverju, hversu mikið á að drekka og þann stórkostlega árangur sem hefur komið í ljós. Þá er það kókosolían sem á að bera á sig að innan sem utan og á að vera allra meina bót. Smjör er allt í einu orðið afurð djöfulsins og efasemdir um mátt kókosolíunnar eru jafn hneyksl- anlegar í eyrum þeirra sem unna henni og blót í eyrum prests í guðshúsi. Íslendingar virðast gleypa gagnrýnislaust við öllum heilsuboðskap. Þeir hafa meira að segja gengið svo langt að drekka viðbjóðslegt heimaræktað sveppaseyði, ein- göngu bragðbætt með trúnni á betra líf. Armbönd sem eiga að bæta innyflastarfsemina rokseljast og hér þykir líka sjálfsagt að borða duft og pillur í staðinn fyrir mat. Það er auðvelt að heilaþvo okkur með ýmiss konar boð- skap og gengur það oft svo langt að þeir sem láta ekki heilaþvost eru úthrópaðir þröngsýnir og talsmenn óhollustu. Æðin virðast þó renna af okkur jafn hratt og þau renna á okkur. Það nýjasta sem hefur verið gripið á lofti er D-vítamín. Fræðingar hafa stigið fram og sagt að þjóðina skorti D-vítamín sem er gott og gilt, það er mjög líklegt að okkur skorti það. En fræðingarnir höfðu vart lokið máli sínu fyrr en hver heilsíðuauglýsingin á eftir annarri fór að birtast í blöðum um D-vítamín í dunkum til sölu eða D-vítamínbætt matvæli. Það ætla sér allir að græða á þessari nýtilkomnu hræðslu þjóðarinnar við að drepast úr D-vítamínskorti. Eftir nokkrar vikur verða líklega hillur mat- vöruverslana orðnar fullar af D-vítamín- bættum matvörum. Það verður komið D- vítamínbætt brauð, pulsur og jógúrt. D- vítamíninu verður troðið í allt og reynt að græða á þessum orðum fræðinganna. Ekki má andmæla þessu á kaffistof- unni þegar hinir fara að tala um hvað þeim líður bara miklu betur eftir að þeir fóru að éta meira af D-vítamíni, skrokkurinn hefur liðkast og hægðirnar linast. Næsta sumar verða svo sólbrenndir íslendingar alls staðar á ferð- inni, hættir að nota sólarvörn til að fá sólarskammtinn af vítamínum. Þeir sem nota sólarvörn verða fordæmdir fyr- ir fávisku sína. En það er val: D-vítamínskortur eða húð- krabbamein. Hvort ætli sé auðveldara að eiga við og hvort ætli dragi mann fyrr til dauða? ingveldur@mbl.is Ingveldur Geirsdóttir Pistill Trúin á betra líf er æði Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Mjög skort-ir á aðsett séu fram gagnleg rök fyrir því af hverju Íslendingar ættu að ganga í Evr- ópusambandið. Rök um tollmúra þess duga ekki því með EES-samning- unum hurfu þau úr sögunni. Margur féll flatur fyrir evr- unni sem ekki var óeðlilegt, en flestir sem það gerðu hafa nú reist sig við og aðeins þeir forstokkuðustu liggja enn flatir. Enginn veit á þessu augnabliki hvað um evruna verður, en augljóst er þó orðið að miklum fjármunum skatt- greiðenda þarf að verja til að reyna að tryggja framhaldslíf hennar. Gallar hennar, sem háværir aðildarsinnar vildu ekki ræða, hafa sjálfir þrýst sér inn í umræðuna með eft- irminnilegum hætti. Hvað sem út úr öllum þeim ósköp- um kemur, sem nú skekja ríki evrunnar, og hún myndi þrátt fyrir allt hafa það af, þá yrði hún ekki mynt Íslands árum eða jafnvel áratugum saman. Hún er því bersýnilega ekki tæk í umræðuna af fjölmörg- um ástæðum. Lengi voru innanbúð- armenn í utanríkisráðuneyt- inu hafðir í því að koma með tvenns konar spádóma, sem hvor um sig átti að leiða til þess að Ísland neyddist til að ganga í Evrópusambandið, þótt þjóðinni væri það óljúft. Samkvæmt öðrum þeirra hefði EES-samningnum hrakað mjög og átti jafnvel að vera hættur að virka. Í hvert sinn sem þær fullyrðingar voru skoðaðar kom þó strax í ljós að enginn fótur var fyrir þeim. Hin kenningin var sú, að öruggar heimildir úr innsta hring stjórnkerfis Noregs sýndu að á bak við tjöldin væri það land á hraðferð í undirbúningi aðildar að ESB. Íslandi yrði óvært utan þess færu Norðmenn inn. Þetta reyndust líka rangfærslur eða óskhyggjan ein. Nú er svo komið að rétt tæp 80% þeirra Norðmanna sem taka afstöðu til spurningar um aðild Nor- egs að ESB eru á móti aðild en rétt liðlega 20% eru slíkri aðild fylgjandi. Þetta sýna nýjustu kannanir þar í landi. Hefur andstaða Norðmanna aldrei áður verið slík og því- lík. Nú nýlega dúkkaði þriðja röksemdin af framangreindu tagi upp í umræðunni og eru jafnvel sumir þingmenn VG með hana á vörunum til að réttlæta svikult framferði sitt. „Það verður að klára málið.“ „Það fer ekkert og hangir yfir nema þjóðin fái þjóðaratkvæðagreiðslu.“ Nú vill þannig til að það voru kynntar tillögur á Al- þingi um það að þjóðin yrði sérstaklega spurð í almennri atkvæðagreiðslu um hver hennar vilji væri, áður en ætt yrði í aðlögunarleiðangurinn, sem þegar hefur kostað offjár og lamað íslenska stjórnsýslu á versta tíma. Þessum hug- myndum var hafnað af þessu sama fólki sem segir nú gjarnan að ekki megi hafa þjóðaratkvæðagreiðslu af landsmönnum. En svo lýsandi sem þetta dæmi er um tvískinnunginn er annað þýðingarmeira. Það vita flestir innst inni að þótt umsóknarbröltinu verði hafn- að myndarlega í þjóð- aratkvæðagreiðslu, eins og allar líkur standa nú til þá hættir þetta fullveldisafsalsl- ið aldrei sínu baksi. Það sann- ar einmitt Noregur betur en flest önnur lönd, þótt þau séu fleiri til sannindamerkis. Nor- egur hafnaði aðild í þjóð- aratkvæðagreiðslu. Það lauk engu máli þar. Enn var ham- ast og aftur var reynt. Og aft- ur hafnaði norska þjóðin bröltinu í þjóðaratkvæða- greiðslu. Og þrátt fyrir að þjóðin hafi þannig í tvígang frábeðið sér aðild að ESB er jáhreyfingin enn á ferð í Nor- egi og sú er í góðu samstarfi við systurhreyfinguna hér á landi. Skoðanakannanir sýna vissulega að hún er ekki að ná neinum árangri. En þetta dæmi sýnir að atkvæða- greiðsla um ESB hér á landi er ekki líkleg til að ljúka einu eða neinu hjá þeim sem hel- teknir eru af hugðarefninu. Enda er slík afstaða í góðu samræmi við framgöngu ESB sjálfs. Það tekur ekki neitt mark á þeim sjónarmiðum al- mennings í ríkjum Evrópu sem ganga gegn hugmyndum kommissaranna. Ótal dæmi sýna að segi þjóðir Nei þá eru þær látnar kjósa aftur og aftur undir vaxandi hræðsluáróðri og hótunum þar til þær gefast upp og segja Já. Eftir það fá þær ekki að kjósa um málið á ný eins og umræða í breska þinginu þessa dagana er svo gott dæmi um. Þrátt fyrir að norska þjóðin hafi tvívegis hafnað ESB-aðild eru aðildarsinnar þar enn að} Vantar rök STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon Mustafa Abdel Jalil

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.