Líf og list - 01.11.1950, Síða 20

Líf og list - 01.11.1950, Síða 20
LJtvarpsleikritið „Browningþýðingin“ Að öllu jöfnu er hyggilegra að vera á varðbergi fyrir því, sem er á boðstólum í hæstvirtu Ríkisút- varpi. Þó að þessum menningar- gjafa þjóðarinnar sé, því miður, ærið áfátt í ýmsu um tilvöndun dagskrár og efnisval að öllum jafn- aði og obbi hlustenda skrúfi frá tækjum sínum af eins konar vana- bundinni hversdagsskyldu eða þráa við guð og menn, bregður þó við, að útvarpið íslenzka gerir lýðum ljóst, hve ómissandi það getur ver- ið. En slíkt má þó teljast viðburð- ur. Síðastliðið laugardagskvöld flutti útvarpið erlent leikrit, eink- ar gott, sem ekki má láta hjá líða að geta sérstaklega. Flutningur leikenda og framsögn var í fullu samræmi við efnið sjálft. Leikritið hefir Bjarni Bene- verður óeðlilegur og þunglama- legur í snúningum, og handahreyf- ingar hans verða sér í lagi klaufa- legar — „Nor do not saw the air too much, thus. Use all gently" („. . . Sagið ekki heldur og saxið loftið svo með höndunum, en far- ið að öllu hóflega." Hamlet eftir Shakespeare, 3. þáttur, 2. atriði. Þýð. Matt. Jch.). Þetta er eitt af heilráðum Hamlets til leikaranna. Jóni ætti að vera innan handar að lagfæra þetta. Þargrímur Einarsson fer þarna með smáhlutverk og er ekkert að því að finna. Bjarni Guðmundsson hefir snú- ið leikritinu á íslenzku. Þýðingin er víðast hvar góð, en á stöku stað virðist þýðandinn vera of háður frummálinu. Halldór Þorsteinsson. diktsson frá Hofteigi íslenzkað, og nefnist það Browning-þýðingin. Höfundur er enskur, Rottigan að nafni. Sennilega hefir Bjarni sjálf- ur valið leikritið, og á hann þakkir skyldar fyrir þá smekkvísi sína. Þýðingin er smekkleg að sama skapi og hún er lifandi. Tilsvörin Jijál og án þýðandablæs — auð- sýnilega ekki verið kastað höndun- um til þýðingarinnar. Það ríður á miklu, að þýðendur erlendra leik- rita, sem flytja á í útvarpinu séu starfi sínu vaxnir, kunni skil á fögrum bókmenntum og séu gædd- ir tilfinningu fyrir viðfangscfninu. Hitt er auðvitað ekki síður mikil- vægt, að leikritið sjálft sé innviða- mikið og eigi einhverja köllun. í þetta skipti réð hvort tveggja: vandvirkni og fágun í hinni ís- lenzku þýðingu og inntaksmikið efni leikritsins sjálfs. Leikritið er sálgreining — skapgerðalýsing — heilsteypt persónueinkenni krufin til mergjar. Barátta milli sundur- leitra skaphafna. Andstæður leik- ritsins eru sterkar, en þó hvergi yfirdrifnar eins og oft hættir við í mörgum svokölluðum tízkuleikrit- um nútímans. Hver athöfn virðist vera markmið í sjálfu sér, og hvcrt atvik er á rökum reist og skýrt til botns. Grunntónninn er hlýr og samúðarkenndur. Mannúð og víð- tækur skilningur á öfugstreymi í mannlegu eðli er sterkasti þáttur höfundar. Hér er ekki farið í laun- kofa með þá sannreynd, að óhrein- lyndi og ótrygglyndi eiginkonunn- ar við eiginmanninn á sér engin takmörk, ef ástríðuin hennar er ekki fullnægt. En höfundur kafar dýpra og sér fram á fleiri sjónar- mið en þau, er beinast í þá átt að fordæma siðferðisbrot þessara ó- lánsömu mannvera. Hið kvikinzka er ekki sprottið af illu einu — und- irvitundin getur verið jafn-hrein og óspillt eftir sem áður. Hér birt- ist mönnum engin predikun eða vandlæting yfir mannlegum löst- um — hver persóna á sama rétt á samúð að dómi liöfundar. Höf- undi er ljóst, að mannskepnan er flóknari og óútreiknanlegri en svo, að hún verði afgreidd með Jjví einu að skipta henni í tvo hópa, annan hvítan og hinn svart- an. Samúð höfundar nær til allra persónanna — að minnsta kosti þeirra, sem skipta einhverju máli í leiknum — hann er eliki að ná sér niðri á einstaka misbresti í skap- höfn mannanna (smbr. Kiljan á Magnúsi í Bræðratungu — alas!) — hann er stærri karl en Jiað. Þó sparar hann hvergi til að segja sannleikann. Táknrænt er fyrir leikritið, að Jsað fjarar út — í því er stígandi og eins konar andstíg- andi. Leikurinn er eins og lieit bylgja, sem skellur með sívaxandi hraða á ískaldri klöpp (eftir því sem fram í sækir, vitnast manni sannleikurinn á svipaðan hátt). Síðan virðist sem hann fjari út bæði snöggt og hægt í senn. Sum- um kann því að þykja leikritið nokkuð snubbótt í endalokin, en Jrað er Jió í fullu samræmi við þá atburði, sem gerast í sjálfu leikrit- inu. Það er harmleikurinn innan sjálfs harmleiksins, sem fjarar út eða sem höfundur ætlast til að fjari út. Þess vegna er leikritið svo rökrænt og listrænt byggt upp. — Leikrit þetta hlaut að ná til hja"fa hvers þess, sem á hlýddi. Vonandi verður Þjóðleikhúsið ekki eftirbátur útvarpsins í Jiví að flytja jafn-merkileg leikrit og Jietta, Jieg- ar fram vindur. Ennfrcmur er þess að vænta, að útvarpið haldi nú uppteknum hætti og flytji landslýð boðleg leikrit. Þökk sé leikendum og þýðanda! 29. oct. 1950. 20 LÍF og LIST

x

Líf og list

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Líf og list
https://timarit.is/publication/819

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.