Austurland - 23.12.1981, Síða 18
Gerður G. Óskarsdóttir:
■
Strætislíf i
Boston, Mossochusetts
„Draumurinn um Ameríku" hefur svo sannarlega á sér margar hliðar.
Hér á eftir langar mig að deila með lesendum Austurlands svolitlu af
reynslu minni hér vestur í Bandaríkjunum og segja frá hlutum sem ekki
blasa við öllum sem hér fara um.
Sandý og Junior
Sandy og Junior hafa verið saman í mörg ár. Öll þau ár og miklu
lengur hefur gatan verið þeirra heimili. Junior sem nú er 32 ára kom
bam að aldri til Bandaríkjanna frá Puerto Rico. Foreldrar hans komu
trúlega í leit að atvinnu og „betra lífi,“ ásamt púsundum annarra landa
sinna. Junior talar blending af ensku og spönsku sem er erfitt að skilja
bæði fyrir ensku- og spænskumælandi fólk. Sandy er frá Boston. Hún
er 33 ára (lítur út fyrir að vera 10, jafnvel 20 árum eldri). Hún á tvö böm,
sem hún hefur ekki séð í nokkur ár, en hún segist vita að þau séu hjá
góðu fólki. Þegar við hittumst og hún heyrði að ég var frá íslandi, spurði
hún: „Slást þeir mikið á götunum }>ar?“ og „hafa þeir staði þar, þar sem
fólk getur fengið að gista frítt yfir nótt og fengið mat?“ Þetta varð henni
hugleikið þegar fjarlægar slóðir bar á góma.
Ráðgjafar- og félagsmiðstöðin „Project Place”
Junior -og Sandy em meðal um fimm púsund karla og kvenna í
Boston sem eiga sér engan fastan bústað (íbúar borgarinnar em um
Gestir og ráðgjaji í félagsmiðstöðinni. (Norma lengst til vinstri).
650.000, á öllu Boston-svæðinu búa um 1,2 milljón manns). Þau flækjast
um og borða og sofa hér og J?ar, allt eftir veðurfari og möguleikum á húsa-
skjóli. Þau eru fastir gestir í „Project Place“ sem er ráðgjafar- og félags-
miðstöð í einu af fátækari hverfum Boston. Ég hef kynnst „Project Place“
í gegnum starf )>ar sl. hálft ár, en hluti náms míns í ráðgjafarsálfræði við
Boston háskóla er starf á vettvangi í 20 klst. á viku allan námstímann.
„Project Place“ er rekið af áhugamannahópi. Þar starfa átta fastir
starfsmenn, flestir í hlutastörfum, og um 60 sjálfboðaliðar sem gengið
hafa í gegnum ákveðna pjálfun. Starfsemin er fjármögnuð af styrkveit-
ingum frá ríki, bæ og einkaaðilum. Húsnæði er leigt af einkaaðila fyrir
einn dollar á ári. Starfið í Project Place“ er þríþætt. Þar er símaþjónusta
allan sólarhringinn, svonefnd „hot line“. Tveir sjálfboðaliðar eru á síma-
vakt í einu og fólk hringir vegna allra hugsanlegra vandamála. Sumir
)>urfa leiðsögn við að komast í gegnum kerfið og pama eru upplýsingar
um alla hugsanlega pætti heilbrigðis- og félagslegrar pjónustu. Á mörgum
sviðum er sú þjónusta mjög vel þróuð. Aðrir hringja til þess að tala við
einhvem um persónuleg vandamál í sambýh, fjölskyldulífi, starfi, kynh'fi,
o. s. frv. Enn aðrir eiga við drykkju- og eiturlyfjavandamál að stríða og
hringja gjaman í örvæntingu, sumir hverjir með enga aðra lausn í huga
sér en sjálfsmorð. Þá getur verið hjálp í að tala við skilningsríka manneskju
sem hefur tíma og vilja til að hlusta og getur jafnvel hjálpað viðkomandi
við að átta sig betur á aðstæðum.
Annar þáttur starfseminnar er persónuleg ráðgjöf eða félagsráðgjöf.
Fólk pantar tíma eða kemur fyrirvaralaust og hefur kost á að tala við
ráðgjafa augliti til auglitis. Sumir koma einu einni, aðrir koma vikulega
í skemmri eða lengri tíma. Þessi Jrjónusta er ókeypis en gjafir þemar af
þeim sem em aflögufærir. Vandamálin eru af sama toga og ]>au sem
nefnd voru í sambandi við símaj>jónustuna. Takmarkið er að reyna að
hjálpa skjólstæðingnum að skilja betur sjálfan sig og eigin aðstæður. Fólk
sem J>ama kemur er aðallega af lægri millistétt og lágstétt.
í „Project Place" er einnig opin félagsmiðstöð síðdegis }>ar sem fólk
getur komið til að tala saman, spila, búa til mat. föndra. o. fl.
Af gestum í félagsmiðstöðinni
Sandy og Junior koma reglulega í félagsmiðstöðina. .Tunior hefur unrnð
ötullega í garðinum bak við húsið í sumar. Þar vom ræktaðir tómatar,
agúrkur og annað grænmeti. Starfsliðið vissi ekki fyrr en síðla sumars
að Junior hafði laumað maríuana plöntum bak við tómataplöntumar. Af
öðmm gestum má nefna Charline. Hún er ung blökkustúlka sem vinnur
18
Austuiland jólablað 1981