Austurland


Austurland - 23.12.1981, Side 35

Austurland - 23.12.1981, Side 35
Sigurður A. Magnússon MÖSKVAR MORGUNDAGSINS Þetta er sjálístœtt framhald metsölubókarinnar Undir kaistjörnu. Þegar írásögnin heíst er söguhetjan 9 ára og þegar henni lýkur er hann kominn „í íullorðinna manna tölu." Möskvar morgundagsins er ekki síður en fyrri bókin íallegt og átakanlegt lista- verk og um leið sérstœð aldaríarslýsing af þeim sviðum Reykjavíkurlífsins á kreppu- og hernámsárum sem lítt hefur fyrr verið hampað í bókum. Jakobína Sigurðardóttir í SAMA KLEFA Aðalpersónur eru miðaldra kona og ung stúlka sem verða af tilviljun samskipa á leið suður. Á þeim rúma sólarhring sem ferðin tekur segir eldri konan þeirri yngri slitur úr œvisögu sinni. Ai hversdagslegri frásögn hennar - og ekki síður því sem hún lœtur ósagt - nemur lesandinn örlagasögu umkomulausrar manneskju og það hugaríar sem til verður í harðbýlum og aí- skekktum byggðum og skapar henni örlög. Er þá ónefnd lýsing ungu konunn- ar og að hve miklu leyti hennar bíður sams konar hlutskipti þrátt fyrir þá upp- reisn sem henni býr í brjósti. Hér ®r mikilli sögu þjappað saman á fáar blaðsíður í bók sem snginn bókmennta- unnandi má láta fram hjá séríara. Einar Kárason ÞETTA ERU ASNAR GUÐJÓN Bráðvel skrifuð íslensk nú- tímasaga. Aðalpersóna er ungur maður sem er í upp- reisn gegn umhverfi sínu, uppreisn sem er háliáttavUlt og steínulaus. Við fylgjum honum eftir í stúdentsprófs- fylliríi sem œtlar engan enda að taka. í kommúnu gamalla skólaíélaga sem haía sest að á sveitabœ til að nýta gœði landsins, i misheppnaðri tilraun til háskólanáms og á trillu og togbát þar sem lítið íer fyrir sjómannarómantík í lýsingu höfundar. Vandfundin er jafn hnyttin lýsing á lííi og hugsunar- hœtti ungs íólks nútímans og í þessari bók. Máliarið er ósvikið og sver sig í œttina og sagan er auk þess krydduð með hráslaga- legum gálgahúmor sem hœfir eíninu einkar vel. V * I Vilborg Dagbjartsdóttir UÓÐ Ljóðasafn eins af állra list- fengustu ljóðskáldum okkar. Hér er að finna allar þœr ljóðabœkur sem Vilborg heíur gefið út, Laufið á trjánum, Dvergliljur og Kyndilmessu. Til viðbótar eru hér prentuð ljóð sem síðar hafa birst í blöðum og tímaritum. Er ekki minnstur fengur að fá þau kvœði öll saman á einum stað því meðal þeirra eru mörg aí merkilegustu ljóðum Vilborgar. Jón Reykdal teiknaði kápu og sá um útlit bókarinnar. Tryggvi Emilsson KONA SJÓMANNSINS og aðrar sögur Æviminningar Tryggva Emilssonar haía notið mikillar hylli og viður- kenningar. Sögur þessarar bókar em skáldsögur þó að þœr sceki að einhverju leyti efnivið sinn til raunveru- leikans. Sögusviði í Konu sjómannsins svipar að tals- verðu leyti til œviminning- anna, þar er lýst líísbaráttu fólks og byrjandi verkalýðs- baráttu í ungum og vaxandi kaupstað þar sem óbrúan- legt djúp er milli stétta. í bókarlok eru nokkrar smœrri sögur þar sem frá- sagnargáfa höfundar nýtur sín einna best. |R9^ r N -M Mikhaíl Búlgakof MEISTARINN OG MARGARÍTA Söguþráð þessarar mögnuðu og œrslaíullu skáldsögu er eriitt að rekja í stuttu máli. Hér er íléttað saman píslarsögunni og írá- sögn af því er andskotinn og árar hans heimsœkja Moskvu - og setja allt á annan endann. Það íólk sem af því hlýtur uppreisn. örlagasaga þess og ástar- saga, er þungamiðja bókar- innar upp írá því. Mikhaíl Búlgakoí (1891- 1940) lauk við þessa skáld- sögu skömmu fyrir andlát sitt og var þá lítil von til þess að sagan kœmist nokkru sinni á prent. Frumprentun var í sovésku tímariti 1966-7, með ýmsum úrfellingum. í þýðingu Ingibjargar Haraldsdóttur, sem gerð er beint úr rússnesku, er sagan óstytt. Snorri Hjartarson KVÆÐ11940-1966 Heildarsaín ljóða Snorra Hjartarsonar fram að verð- launabókinni Hauströkkrið ylir mér. Myndskreytingar eftir Jón Reykdal. Bók sem enginn ljóðaunnandi getur án verið. William Heinesen KVENNAGULLIÐ í GRÚTARBRÆÐSLUNNI Fimmta bókin í sagnasaíni Heinesens í þýðingu Þorgeirs Þorgeirssonar. Um síðustu bók sögðu gagnrýnendur m.a.: „Er nú ekki að orðlengja það að slika bók leggja menn frá sér með þakklœti og biðja William Heinesen að liía í hundrað og tuttugu ár. Þorgeir Þorgeirsson fœr ósvikið lof fyrir þýðingu sína sem hinar fyrri í þessu ritsafni - hún er á miklu máli og góðu." ÁB Þjv. „Þessar dýrlegu smásögur Heinesens eiga eílaust eftir að vera öllum unnendum hans kœrkomin upplyíting í annars snautlegu jólabókaflóði." SSHp. „Þegar öðm hveiju er verið að rífast út aí Norrœna þýðingarsjóðnum, aldrei heyrist þá nefnt hvað við eigum sjóðnum að þakka... í mínum huga er enginn vafi á því að þýðingar Þorgeirs Þorgeirssonar em það sem við eigum sjóðnum mest að þakka það sem af er." ÓJDbl. „Sem bókmenntaverk er „Það á að dansa" með þvi besta aí þýddu eíni, sem undirritaður hefur fengið til lestrar mjög lengi." JGTíminn. Maj Sjöwall og Per Wahlöö MAÐUR UPPIÁ ÞAKI Sjöunda bókin í hinum vinsœla lögreglusagna- ílokki Skáldsaga um glœp. Þessar bœkur hafa komið út í 22 þjóðlöndum og hvarvetna notið mikilla vin- sœlda. Eftir þessari sögu gerði Bo Widerberg kvikmynd sem m.a. hefur verið sýnd hér á landi. Þýðandi er Ólafur Jónsson. 1 f ' \ ^ * I M. LJL |, W ■: 1 Richard Llewellyn GRÆNN VARSTU DALUR Saga námumannafjölskyldu í Wales skömmu fyrir síðustu aldamót. Sagan er í senn uppvaxtarlýsing, þjóð- íélagsleg skáldsaga og ástarsaga. Engum dylst að höfundur nauðþekkir það íólk sem hann lýsir og að það á samúð hans óskipta. Saga þess verður heillandi lestur, ljóðrœn. full af hlýju, skaphita, angurvœrð og góðlátlegri kímni. Þessi skáldsaga hefur hvarvetna íarið siQpjríör. Þýðing Ólaís Jóhanns Sigurðssonar var fyrst prentuð 1949 og seldist upp á tveimur mánuðum en hefur ekki verið endurprent- uð íyrr en nú. Vésteinn Lúðvíksson í BORGINNI OKKAR Sögur og ævintýri frá kostulegri tíð. Vésteinn Lúðviksson er löngru kunnur sem einn fremsti rithöfundur okkar. Með þessu sagnasaíni mun hann þó enn koma lesend- um sínum á óvart. Hann fjallar hér um samtíð okkar frá sjónarhóli íramtíðar- innar og birtir hana um leið í nýju og kostulegu ljósi. Lestur þessara sagna er ekki síður skemmtun en opin- bemn á þeim veruleika sem við þekkjum best. Það er góður sögumaður sem heldur á penna. Kristján Jóhann Jónsson HAUSTIÐ ER RAUTT Fj ölskrúðug 'nút ímasaga sem gerist í íslensku þorpi og sveitinni þar í kring. Þetta þorp er þó ekki allt þar sem það er séð. í rás sögunnar tekur það t.a.m. stökkbreyt- ingu og þenst út í allar áttir. Er ekki að furða þótt ýmsar af sögupersónum verði átta- villtar og að háttvirtur höfundur óttist að missa allt út úr höndum sér. Kristján Jóhann Jónsson er. f. 1949. Hann kennir nú við Menntaskólann á Egils- stöðum. Haustið er rautt er íyrsta skáldsagan sem eftir hannbirtist. Mál H og menning

x

Austurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.