Birtingur - 01.06.1957, Blaðsíða 7

Birtingur - 01.06.1957, Blaðsíða 7
takanlegu fátæktarbasli alþýðu til sjávar og sveita — og átti þó eftir að harðna. Mann- leg örlög leituðu nú fastar á í náttúrunnar stað, gömul verðmæti í lífi og list þörfnuð- ust endurmats og önnur ný bar við sjónhring. — Þó léztu næstu bók þína heita Ég læt sem ég sofi. — Það var nú bara plat vegna vögguvís- unnar. En sem sagt — sumarið 1932 tek ég mér bessaleyfi frá nytjastörfum, slík lífs- nauðsyn var mér að kveða þessi hrjúfu og hryssingslegu raunsæisljóð. Fór mér þar eitt- hvað svipað og Sigurði Einarssyni, þó ekki þekkti ég til ljóða hans þá. Þegar við flutt- umst suður um haustið hafði ég handritið af bókinni meðferðis. Ég reyni að rifja upp fyrir mér andann i þessari tímamótabók skáldsins meðan ég drekk rjúkandi kaffið sem húsmóðirin hefur borið okkur, minnist hendinga á stangli: Ég orti áður fyrri um ástir vor og blóm. En nú er harpan hörðnuð og hefur skipt um róm. Línur úr Opnu bréfi koma einnig fram í hugann: Ó, gamli kirkjunnar guð! Ég bað til þín löngum sem dálítill drengur, en Drottinn! — nú get ég það ekki lengur .. Þar fór það: náttúrudýrkunin, guðdómur- inn og ungmennafélagsandinn — allt í græn- an sjó. Upp úr kafinu skýtur nýrri mynd: Og gustmiklir öreigar ganga um götuna, ryki þakta. Þeir ryðjast sem rennandi móða — en rauðu fánarnir blakta . . . — Þú hefur auðvitað lent von bráðar í flokki harðsvíraðra byltingarseggja eftir suðurkomuna ? — Ekki stóð á því. Steinn var þegar orð- inn blóðrauður og nú var það hann sem fór að kenna mér. Kristinn E. Andrésson var þá ekki alls fyrir löngu kominn heim frá námi erlendis og sá voldugar sýnir. Hann er einhver hin mesta eldsál sem ég hef kynnzt, þó yfirborðið sé oftast ljúft og kyrrt, auk þess sem hann er gæddur frábærri skipulags- gáfu og framkvæmdadug. Hann var pottur- inn og pannan í öllu markverðu sem gerðist í andlegum málum okkar, hinna róttæku, næstu árin — og það var reyndar ýmislegt: stofnun Félags byltingarsinnaðra rithöfunda, Rauðra penna, Heimskringlu og Máls og menningar. Einkum var stofnun Máls og menningar grettistak sem gerbreytti allri aðstöðu höfunda í því að ná til almennings. En þó Kristinn ætti öll frumkvæði var engu síðri hlutur Einars bróður haris sem gerðist hinn óþreytandi ármaður félagsins og hefur verið það æ síðan. Án hans hefði Mál og menning aldrei náð þeim tilgangi sínum að verða fjöldasamtök menningarþyrstrar al- þýðu. Hygg ég að fáir tveir bræður hafi bætt hvor annan jafn skemmtilega upp í langri og harðri baráttu. Og ekki má gleyma Þóru: hún var alltaf skiöldur okkar og skjól og svo hjartaprúð að manni fannst stundum eins og allir umkomulausustu tónar manns og jarðar yrðu að einum sigurhljómi í brjóstinu á henni. — Ég er þér innilega sammála. En held- urðu ekki að Mál og menning sé tekin að fjarlægjast upprunalegt hlutverk sitt: að vera lifandi samhjálp rithöfunda og fólksins ? Mér virðist sem aðrir hafi nú orðið meiri ráð yfir félaginu og systurfyrirtækjum þess en skáld og rithöfundar. 5

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.