Birtingur - 01.06.1957, Page 15

Birtingur - 01.06.1957, Page 15
Ur skrifum Le Corbusier: . . . Eftir hundrað ára gífurlega landvinninga vísindanna, félagslega baráttu og óskapnað finnur þjóðfélag nútímans loksins lausn, sem ætti að ákvarða endanlegt svipmót siðmenningar vorrar: Sköpun nýrra híbýla. Með sköpun nýrra híbýla hefst annað skeið tæknialdarinnar: tími al- mennrar uppbyggingar. Frjótt, bjartsýnt mannkærleika-starf, sem veitir hina upprunalegu gleði. Þetta verk nær víðar en til tæknilegra vandamála; það er ný lífssýn, sem birtist hrein og skýr. Aðeins í ljósi nýrrar lífssýnar geta menn framvegis skoðað vandamál byggingarlistar og borgarskipulags. Nýtt samfélag býr sér nýjan bústað, þar sem lífinu er lifað. Maðurinn og híbýli hans, gjörvallt landið, borgir og héruð fá nýjan svip. Fyrstu hundrað árin gekk dauðinn í slóð tækniþróunarinnar. Maðurinn vaknaði að morgni bak við mjóar rúður, sem póesían komst aldrei í gegnum, síðan tók vinnutíminn við, þá tilbreytingarlausar ferðir um úthverfi til borgarinnar, og á kvöldin sat hann undir lampanum á drungalegu heimilinu — aldrei tími né tækifæri til næðis og hvíldar. Góð samfélagsskipan, sem hefur til umráða gífurlega orku vélanna og ótæmandi möguleika borgarskipulagsins, getur tryggt mönnunum hina upprunalegu gleði sem daglegt brauð: á heimilunum, vinnustöðum og alls staðar í borginni. Væru bæirnir skipulagðir í heild og hvert einstakt sambýlishús reist samkvæmt hinum nýju sjónarmiðum, mætti komast að samkomulagi við náttúruna. Náttúran getur orðið hluti af búðstöðum manna. Náttúran var til á undan borginni, sem byggði henni út og setti granít, múrstein og malbik í hennar stað. Náttúran — það er útsýn yfir landslagið, laðandi sjóndeildarhring, ása, fjöll, ár, fljót og haf. 1 borginni hafa húsveggir risið í röðum með 20 metra ttiillibili. Tré og grasfletir, sem lifað hafa limlestinguna, eru innikróuð milli húsa. Við verðum að endurheimta sjónbauginn. Við verðum að gróðursetja ný tré.

x

Birtingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.