Birtingur - 01.06.1957, Blaðsíða 36
Tadeusz Rozewicz:
Hirðið ekki um okkur
Gleymið okkur
gleymið okkar kynslóð
lifið eins og menn
gleymið okkur
við öfunduðum
jurtir og steina
jafnvel hunda
ég vildi ég væri rotta
sagði ég við stúlkuna mína
á þeirri tíð
Ég vildi ég væri ekki til
ég vildi ég gæti sofnað
og vaknað aftur eftir stríðið
sagði hún luktum augum
gleymið okkur
spyrjið ekki um æsku okkar
hirðið ekki um okkur
Því miður vitum við íslendingar harla lítið
um nútímabókmenntir pólverja, og sama máli
gegnir raunar um bókmenntir annarra aust-
urevrópuríkja. Þau fjögur ljóðskáld pólsk
sem hér eru kynnt eru öll mjög ung •— milli
tvítugs og þrítugs — og teljast til „kynslóð-
arinnar ’55“ sem svo er kölluð. Að sögn
kunnugra hefur áköf leit að nýjum tjáningar-
formum verið þreytt þar eystra seinustu tvö
árin: menn hafa keppzt við að þýða og ræða
verk eftir Kafka, Faulkner, Hemingway,
Eliot, Rilke — og í myndlistinni hefur vaknað
áhugi á Picasso, Klee, Kandinsky og öðrum
módernistum sem 1 páfabréfum frá Kreml
hafa verið stimplaðir úrkynjaðir aumingjar
til þessa.
E.B.
30