Birtingur - 01.07.1960, Page 3

Birtingur - 01.07.1960, Page 3
Hörður Ágústsson: Byggingarlist VIII Hugleiðing í tilefni af bók Almenna bókafélagsins: Islenzk íbúðarhús Þakka ber Almenna bókafélaginu þá viðleitni að kynna íslenzkan húsakost, ekki sízt vegna þess hve fræðsla um byggingarlist hefur verið vanrækt hjá okkur Islendingum. Þeir, sem hlut áttu að máli, virðast flestir hafa brugðizt skyldu sinni í þeim efnum, einkum þó íslenzk yfirvöld og íslenzkir arkitektar — stjórnmálamenn með áhugaleysi sínu, skammsýni eða pólitískri blindu, arkitektar með þögn sinni. Hvergi var þó meira í húfi en á Islandi, þar sem þjóðin var algerlega ómenntuð í greinum fagurra lista og virðist að auki hafa glatað eða gleymt þeirri frumstæðu hefð, sem er í raun og veru hennar eina stolt í byggingarlist: Hinn íslenzki burstastíll. Það hefur sýnt sig að afleiðing þessarar vanrækslu og gleymsku er ein- hver ömurlegasta og á köflum kostulegasta byggðarmenning, er sögur fara af í nútíma þjóðfélagi. Sem betur fer eigum við undan- tekningar. (Sjá myndir á bls. 3). Hvernig á að semja slíka bók? Hvaða sjónarmið eiga að ráða um val verka og höfunda? Ég veit að menn munu segja: Það eru skiptar skoðanir um það, og til frekari áherzlu bæta þeir við: og smekkur- inn er svo misjafn. Ég hef illan grun um það, að fjas manna um margbreytileg tilbrigði smekks, sé dulin afsökun á eigin vanþekk- ingu og áhugaleysi á list. Satt er það, ekki eru menn alvitrir þótt þeir afli sér menntunar og reynslu á sviði lista, og því fer fjarri, Birtingur 1

x

Birtingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.