Birtingur - 01.07.1960, Side 6

Birtingur - 01.07.1960, Side 6
Bók sú, er gefur tilefni til þessara hugleiðinga, virðist samansett af mönnum, sem leiða hjá sér ýmsar vandasamar spurningar, meðal annars þessa: Munu hús þau sem þar eru birt standast lágmarks- kröfur, sem gera verður til nútíma byggingarmáta, þ. e. a. s., eru einkenni þeirra „einfaldleiki, hagkvæmni og látlaus fegurð“, eins og annar höfundanna segir í formálsorðum? Auðveld leið er valin. Flestir ef ekki allir starfandi húsameistarar, sem teiknað hafa íbúðarhús, eru teknir með. Einn er kostur við þá aðferð og hann er sá, að hér gefur að líta gott sýnishorn af smekk borgaranna á Islandi í dag og í raun og veru alls þorra landsmanna, því Blesugróf er einungis ofboðlítið breytt spegilmynd af Bingóbúlevard. Bók á borð við þessa ætti hins vegar að vera strangur skóli og agasamur. Sannleikurinn er sá, að sum verk í bókinni virðast varla standast lágmarkskröfur prófborðsins. Hæpin fullyrðing má ef til vill segja, því vissulega hafa höfundar bókarinnar bréf upp á sína kúnst. Hvernig má það vera að mönnum, sem komizt hafa klakklaust gegnum skóla og margir hverjir sýnt heiðarlega viðleitni í byrjun starfsferils síns, skuli mistakast svo mjög sem dæmin sanna og hvers vegna hefur ekki rætzt betur úr íslenzkum arkitektúr yfirleitt? Ef til vill má orða þessa spurningu öðru vísi: Hvers vegna hafa hinir gáfuðustu íslenzku arkitektar ekki mótað umhverfi okkar meira en raun ber vitni? Orsakirnar tel ég einkum vera tvær: í fyrsta lagi að aðhald það, sem húsameistarar fá erlendis af sterkri sögulegri hefð ásamt hinni almennu skólun og ögun fyrir tilstilli sýninga, menntastofnana, tímarita o. fl. fyrirfinnst ekki hérlendis. í öðru iagi tel ég að orsökin sé sá óeðlilegi stríðs- og hernámsgróði, sem yfir Island og íslendinga hefur flætt síðastliðin 20 ár og sú spilling og upplausn í þjóðfélaginu, sem í kjölfar gullsins hafa siglt. Ekki má þó skella allri skuldinni á íslenzka arkitekta einvörðungu, húsagerðarlist er ekki síður afsprengi heillar þjóðar en fárra manna. Við eigum því öll nokkurn hlut að máli, en aðallega þó þeir, sem við veljum til forustu í þjóðmálum. Hvað er hús? Hús veita okkur nauðsynlegt skjól fyrir kulda, regni og stormi, hagkvæmt skjól. Við erum þess konar lífverur að án slíks skjóls getum við ekki lifað. Gott hús er því „líffræðileg stofnun með þeim tilgangi að vernda og viðhalda lífi okkar eða með öðrum orðum, þar eiga börn okkar að fæðast og alast upp, taka við menn- ingu okkar til afkomenda sinna. Þar á að vernda heilsu okkar og h'kamsþroska, og síðast en ekki sízt, þar á persónuleiki einstaldings- 4 Birtingur

x

Birtingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.