Birtingur - 01.07.1960, Qupperneq 8

Birtingur - 01.07.1960, Qupperneq 8
ins að þróast og vaxa. öll þessi skilyrði þarf húsið að uppfylla“ (Hannes Kr. Davíðsson). En hús er meira. Við tölum um beizlun orku, raforku, vatnsorku. Hér mætti tala um beizlun rúms. Hús afmarkar, umlykur rúm. Hús er rúmeining samsett eða stök. Eins og hljómur eða litur hefur rúmtak mismunandi sálræn áhrif á mannshugann eftir lögun eða stærð. Þegar hús eru metin koma því tvö andstæð sjónarmið til greina: sjónarmið notagildis og sjónarmið fagurgildis. TJtlit húsa fer að sjálfsögðu mikið eftir því til hvers þau eru notuð, íbúðarhús hefur aðrar þarfir að leysa en verksmiðja, kirkja aðrar en sjúkrahús. Samhliða því ræður efniviður og bygg- ingartækni miklu um gerð húsa. Hús hlaðið úr steini lýtur öðrum lögmálum en hús reist úr járnbentri steinsteypu. Hins vegar er sjónarmið fagurgildis. Hver maður virðist búa yfir í mismunandi ríkum mæli hæfni til þess að meta slíkt gildi, hvort sem það er að finna í höggmynd, húsi eða könnu. Hæfileikinn til þess að nema fegurð rúmtaks, sem og þekking á lögmálum í sjónar- heimi, gerir mönnum kleift að ganga til móts við verk arkitekta og meta þau að verðleikum. Það má reyndar segja: til móts við allar greinir listmótunar. 6 Birtíngur

x

Birtingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.