Birtingur - 01.07.1960, Síða 16
Tökum annað dæmi. Á næstu síðu eru fimm ferhyrningar.Við skulum
hugsa okkur að það séu gluggar. 1 annan stað er langur ferhyrn-
ingur og stærri, og hugsum hann sem fábrotna húshlið. Einföldust
hrynjandi fæst með því að setja minni ferhyrningana með jöfnu
millibili á lengdina og jafna hæð fyrir ofan og neðan þá. Þegar
betur er að gáð sjáum við að um allmikla einhæfni er að ræða,
eitthvað þarf til mótvægis, eitthvað sem raskar of miklu jafnvægi
myndarinnar. Við skulum t. d. lengja yzta gluggaferhyrninginn og
minnka bilið milli hans og þess næsta og hækka gluggaröðina alla
á stóra ferhyrningnum. Tvennt vinnst: gluggarnir sitja betur í hús-
hliðinni og með því að trufla hina einhæfu endurtekningu myndast
andstaða milli hins einhæfa og fjölbreytta, lítil tilraun til sam-
ræmis. Við tökum líka eftir öðru. Við mældum nákvæmlega stærð-
irnar fyrir ofan og neðan glugga, en samt virðast þeir vera fyrir
neðan miðju flatarins og hafa tilhneigingu til þess að falla niður.
Þess vegna hækkuðum við þá. Hér kemur til greina sjónfræðilegt
fyrirbæri, sem ekki er að fullu skýrt, en flestir kannast við er
fengizt hafa við hvers konar teiknun. Guðmundur Finnbogason segir
eftirfarandi:
„Til skýringar þessu hefur verið bent á þá missýningu, að oss sýnist
efri helft lárétts tvíhverfs hlutar stærri en neðri helftin. Eigi
menn að skipta lóðréttri línu í miðju eftir augnmáli einu, þá gera
þeir að jafnaði efri hlutann minni. Efri hluti stafanna S og 8 er
minni en neðri hlutinn, og munu þó fáir taka eftir því; sé þeim
snúið við, kemur munurinn greinilega í ljós. Lóðrétt lína sýnist og
lengri en jafnlöng lína lárétt.
Sálarfræðingum ber ekki saman um það, hvernig á þessari mis1-
sýningu standi. Halda sumir að hún komi af því, að erfiðara sé að
renna augunum upp og niður en til hliðanna, þar sem fjórir af þeim
sex vöðvum er augað hreyfa starfa saman, er vér lítum upp eða
niður, en ekki nema tveir, er vér lítum til hliðar. Aðrir halda að
missýningin stafi af því, að reynslan hefur kennt oss, að það sem
ofar er í sjónarfletinum er að jafnaði fjær oss en það sem neðar er
og því í raun og veru stærra en það sýnist".
Hús er samsettar einingar frumforma, línu og flata. Tölum um lín-
una. Lína er ýmist bein, brotin, bogin eða hverfist í ótal hlykkjum
14 Birtingur