Birtingur - 01.07.1960, Qupperneq 18
og skrikkjum. Lína getur verið kát, lína getur verið döpur. „Lóð-
rétt iína er oss tákn afls og festu, tignar og jafnvægis. Hún er stefna
þess, sem hefst sigursælt gegn þyngdinni“, segir Guðmundur Finn-
bogason og um þá láréttu: „Hún er hin trausta undirstaða alls sem
rís. Allt stendur þá fyrst öruggt þegar það er á láréttum grunni“.
Þegar lóðrétt og lárétt lína mætast sýnist það veita auganu ró og
jafnvægi.
„lína getur verið kát“. „lína getur verið döpur“. „ró og jafnvægi".
Einföldustu flatarmyndir eru þríhyrningur, ferhyrningur og hring-
ur. Ferhyrningur, sem er jafn á allar hliðar, orkar öðru vísi á okkur
en t. d. sá sem er helmingi lengri en hann er hár. Sambandið milli
hæðar og lengdar köllum við hlutfall. I byggingarlist skiptir sam-
ræming hlutfalla höfuðmáli og að vissu leyti hefur húsagerðarlist,
allt frá dögum Egypta, verið leikur með hlutföll, hlutfallafræði.
Forum Romanum virðist þann veg reist, að ekki megi raska hæð
eða breidd forhliðar, ella missi húsið hin sterku tök sem það hefur
á vitund okkar fyrir samspil hlutfalla.
Eitt hlutfall virðist falla mönnum bezt í geð, er um leið ráðgáta,
hulinn dómur, ágætir menn hafa ritað um það fjölda bóka, en það
er gullinsniðs-hlutfallið. Guðmundur Finnbogason segir eftirfarandi
í bók sinni Frá sjónarheimi um gullinsnið: „í fagurfræðinni hefur
mikið verið hugsað og ritað um stærðarhlutfall það er gullinsnið
nefnist og stærðfræðingar hafa þekkt allt frá dögum Pyþagórasar
spekings. En gullinsnið er það, ef heild er þann veg skipt í tvo
parta, að sama hlutfall er milli minni hlutans og stærri eins og
milli stærri hlutans og heildarinnar, eða sama hlutfall er milli
breiddar og lengdar flatar eins og milli lengdarinnar annars vegar
og samanlagðrar breiddar og lengdar hins vegar, a : b = b : (a+b).
Þetta hlutfall er þann veg vaxið, að sé minni hlutinn einn, þá er
stærri hlutinn = 1 + K5 eða því sem næst 1,618. Ef vér skrifum
16 Birtingur
2