Birtingur - 01.07.1960, Page 21

Birtingur - 01.07.1960, Page 21
i & * * £ lögunin ein kemur til greina um fegurðina. Þegar vér lítum á manns- ííkamann eða meistaraverk húsgerðarlistar og myndlistar, þá er svo margt sem ræður fegurðinni, að erfitt er úr að skera, hvern þátt stærðarhlutföllin út af fyrir sig eiga í henni. öðru máli gegnir ef vér virðum fyrir oss t. d. tvískipta beina línu, eða einfaldar flatarmyndir, svo sem ferhyrninga, sporöskjur o. s. frv. Fechner valdi sér 10 rétthyrnda ferhyrninga úr hvítum pappa og alla af sama flatarmáli. Hliðahlutföllin voru þessi 1/1, 6/5, 5/4, 4/3, 29/20, 3/2, 34/21, 23/13, 2/1, 5/2. Hann festi þessa ferhyrninga á svarta töflu í ýmislegri röð og lét þá sem hann náði í, menntað fólk af ýmsum stéttum, athuga þá og segja sér, hver þeim þætti fallegastur og oft jafnframt hitt, hver þeim þætti ljótastur. Þetta gerði hann við og við í nokkur ár og fékk þannig dóm 228 karla og 119 kvenna um það, hver væri feg- urstur, en 150 karla og 119 kvenna um það, hver væri ljótastur. Niðurstaðan varð sú, að full 35% af öllum dómunum dæmdu gullin- snið fegurst, en 39% þá tvo rétthyrninga er nálguðust gullinsnið mest. Ferningurinn og aflengsti rétthyrningurinn fengu flest atkvæði um það að þeir væru ljótastir. Þá lét Fechner menn skipta lóðréttri línu í því hlutfalli er þeim þætti fegurst, með því að færa þverslá upp og ofan eftir stöng, unz þeir fundu þann stað er þeim þótti hún fara bezt. En það fer nokkuð eftir því, hve þversláin er löng, svo á því er lítið mark takandi. Þriðja leiðin sem Fechner fór er sú, að mæla alls konar hluti, sem gerðir eru af manna höndum og athuga hlutföll þeirra, því að gera má ráð fyrir, að menn velji almennt það hlutfallið sem þeim þykir fegurst, ef það kemur ekki í bága við tilgang hlutarins að öðru leyti. Birtingur 19

x

Birtingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.