Birtingur - 01.07.1960, Qupperneq 22
Þar bar enn að sama brunni: gullinsniðið reyndist vinsælast. Fechner
fann það almennt á letursíðum bóka, á skrifpappír, bréfapappír,
umslögum, ljósmyndum blaðahylkjum, reikningsspjöldum, skraut-
kössum, tóbaksdósum, tígulsteinum o. fl.“.
Fyrir þá er áhuga hafa sýnir meðfylgjandi teikning hvernig finna
má gullinsnið: AB er lína er skipta skal í gullinsnið. AB/2 er sett
hornrétt á AB í B. Myndast þar þríhyrningur ABC. CB = AB/2
er sett út á hliðina AC frá C. Mismunur AC og AB/2 eða AC
AB/2 er þá lengra hlutfallið í gullinsniði á AB.
Le Corbusier, einn frægasti núlifandi arkitekt heimsins og annar
frumkvöðull nútímabyggingalistar, hefur frá fyrstu tíð hallazt að
:gullinsniðs-hlutfalli og þóttist snemma sjá að hinir gömlu grísku
húsgerðarmeistarar notfærðu sér það í list sinni. Le Corbusier hefur
síðari ár unnið að nýju mál- eða mátkerfi, sem á rót sína að rekja
til gullinsniðs. Það skal gilda fyrir alla hluti, gerða af manna hönd-
urn enda segir hann sjálfur að skilningur sinn á arkitektúr sé
miklu víðfeðmari en almennt gerist. Hann segir: Orðið arkitektúr
þýðir: Listin að reisa hús, hallir eða hof, smíða skip, bíla, járnbraut-
arlestir, flugvélar. Framleiðsla heimilistækja og iðnaðarvara. Prent-
list. Málkerfi þetta kallar hann Modulor af orðunum „modul“, sem
þýðir mælieining eða mát og „or“, sem þýðir gull, gullinmát gætum
við kallað það á íslenzku. Mér vitanlega hefur þessi merka hugmynd
eða tillaga til þess að fá samræmi í formmótun manna í dag, ekki
verið kynnt Islendingum, einmitt þeirri þjóð, sem mest hefði þurft
á samræmisbundinni ögun í framleiðslu sinni að halda. Hugmynd Le
Corbusier er í sem styztu máli þessi: Metramálið er ekki sniðið við
20 Birtingur